Dagur - 10.03.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 10. mars 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Sigurður Sveinsson átti mjög góðan leik með KA-liðinu og skoraði glæsi-
mörk með þrumuskotum. Myndír: Goiii
Gengið í Ólafsfírði
Á laugardaginn var haldið
Kristinsniót í skíðagöngu í
Ólafsfirði en mótið var um leið
bikarmót SKÍ. Gengið var í
flokkum 13 ára og eldri við
ágæt skilyrði. Daginn eftir var
síðan slegið upp öðru móti,
svokallaðri veiðimannakeppni,
en það var hraðakeppni þar
sem ræst var út eftir tímum frá
deginum áður. Gengið var
með frjálsri aðferð í hláku.
Úrslit í bikarmótinu á laugar-
dag urðu þessi:
13-15 ára stúlkur, 2,5 km H
1. Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Ó. 7,46
2. Lísebet Hauksdóttir, Ó. 7,58
3. Svava Jónsdóttir, Ó. 8,17
13-14 ára drengir, 5, km H
1. Albert Arason, Ó. 13,15
2. Þóroddur Ingvarsson, A. 13,40
3. Hafliði Hafliðason, S. 14,03
15-16 ára drengir, 7,5 km H
1. Arnar Pálsson, í. 18,36
2. Bjarni Jóhannesson, S. 18,57
3. Hlynur Guðmundsson, í. 19,06
17-19 ára piltar, 10 km H
1. Kristján Hauksson, Ó. 23,59
2. Kristján Ólafsson, A. 24,37
3. Gísli Einar Árnason, í. 25,03
Karlar 20 ára og eldri, 15 km H
1. Árni Antonsson, A. 41,22
2. Egill Rögnvaldsson, S. 41,32
3. Jóhannes Kárason, A. 45,11
Úrslit úr veiðimannakeppni:
Stúlkur 13-15 ára, 2,5 km
1. Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Ó.
2. Lísebet Hauksdóttir, Ó.
3. Svava Jónsdóttir, Ó.
13-14 ára drengir, 4,5 km
1. Albert Arason, Ó.
2. Þóroddur Ingvarsson, A.
3. Hafliði Hafliðason, S.
15-16 ára drengir, 5,0 knt
1. Arnar Pálsson, í.
2. Hlynur Guðmundsson, í.
3. Bjarni Jóhannesson, S.
17-19 ára piltar, 7,5 km
1. Kristján Hauksson, Ó.
2. Kristján Ólafsson, A.
3. Gísli Einar Árnason, í.
Karlar 20 ára og eldri, 7,5 km
1. Árni Antonsson, A.
2. Jóhannes Kárason, A.
Handknattleikur 2. deild:
KA-landsliðið:
Siggi Sveins gerði
gæfumuninn fyrir KA
Þórsarar luku útileikjunum
með tveimur öruggum sigrum
Þórsarar unnu örugga sigra t
tveimur síðustu útileikjum
sínum í 2. deild íslandsmóts-
ins í handknattlcik um helg-
ina og tryggðu enn frekar
stöðu sína á toppnum. Á
Iaugardaginn sigruðu þeir KR
26:20 og daginn eftir ÍH í
Hafnarlirði 25:21. Liðið á eft-
ir þrjá heimaleiki, gegn Ögra,
ÍR og Aftureldingu.
Þórsarar léku þokkalega gegn
KR og náðu mest þriggja ntarka
forystu í fyrri hálfleik en staðan
í hléi var 9:12. í seinni hálfleik
hafði Iiðið yfirhöndina allan
tímann og vann öruggan sigur.
Hornamennirnir Atli Rúnars-
son og Sævar Árnason áttu báð-
ir góðan leik gegn KR og sömu-
leiðis Ole Nielsen og Rúnar Sig-
tryggsson. Skástir í annars
jöfnu liði KR voru Einar Birgis-
son og Páll Beck.
Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggsson 8,
Sævar Árnason 7, Ole Nielsen 6, Atli
Rúnarsson 3, Jóhann Samúelsson 2.
Mörk KR: Einar Birgisson 5, Páll Beck
5, Jóhann Kárason 2, Hilmar Pórlinds-
son 2, Magnús Magnússon 2, Björgvin
Barðdal 2, Gísli Einarsson 1, Baldur
Bjarnason 1.
Dómarar: Runólfur Sveinsson og Haf-
liði Maggason. Voru vægast sagt
skrautlegir.
var ekkert vafamál hvort liðið
myndi sigra.
Jóhann og Ole voru bestir
Þórsara og fyrirliðinn Hermann
varði nokkur vel valin skot.
Hann sagði eftir leikinn að
Þórsarar hefðu spilað langt und-
ir getu í báðum leikjunum.
„Við létum liðin fara í taugarn-
ar á okkur með löngum sóknum
og hnoði. Það er gott að úti-
leikirnir eru búnir og 1. deildar-
sætið nánast tryggt. Við ætlum
taplausir í gegnum 2. deildina
og bíðum spenntir eftir að fá
ÍR-inga í heimsókn," sagði
Hermann.
Jan Larsen, þjálfari l'órs,
sagði ekki skemmtilegt að leika
gegn ÍH. „Þeir voru sífellt að
breyta varnarleiknum og gerðu
okkur erfitt fyrir. Okkur vantar
stundum einbeitingu og mótlæt-
ið fer í skapið á strákunum. Það
stefnir í úrslitaleik gegn ÍR um
sigur í 2. deild og við viljum fá
fullt hús af áhorfendum á þann
leik,“ sagði Jan Larsen. -bjb
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 8, Ole
Nielscn 7, Rúnar Sigtryggsson 5, Sævar
Árnason 3, Atli Rúnarsson 1, Ólafur
Hilmarsson 1. Hermann Karlsson varöi
10 skot.
Mörk ÍH: Jón Þórðarson 7/2, Ólafur
Magnússon 5, Guðjón Steingrímsson 3,
Bragi Larsen 2, Björn Þ. Hannesson 2,
Þórarinn Þórarinsson 1, Brynjar
Einarsson 1.
Sævar Árnason átti góða leiki með
Þór.
Hnoð í Hafnarfirði
Leikurinn gegn ÍH var lítið fyri
augað og það er með eindæn-
um hvað Hafnfirðingar koma:
áfram með hnoði. Þeim tókst a
hanga í Þórsurutn fram í miðja
seinni hálfleik eftir aö norðar
menn höfðu forystuna í hlé
14:13. Þórsarar bættu ieik sinn
seinni hálfleik, náðu fimr
marka forystu þegar 15 mínútu
voru eftir, 22:17, og eftir þa
- skoraði sigurmarkið með þrumuskoti
KA-liðið, styrkt af þeim Sig-
urði Sveinssyni og Þorgils Ótt-
ari Mathiesen, gerði sér lítið
fyrir og sigraði landsliðið í
æfingaleik í KA-húsinu á
föstudagskvöldið. Lokatölur
urðu 32:31 og skoraði Sigurður
Sveinsson sigurmarkið með
þrumuskoti þegar leiktíminn
var að renna út. Leikurinn var
kaflaskiptur, landsliðið hafði
yfirhöndina framan af og leiddi
19:13 í hléi en KA-menn söx-
uðu á forskotið í seinni hálfleik
og komst í fyrsta sinn yfir 5
mínútum fyrir leikslok.
Leikurinn var jafn fyrstu mín-
úturnar en um miðjan fyrri hálf-
leik seig landsliðið framúr og
náði 8 marka forystu, 18:10. Lið-
ið lék oft mjög vel á þessum
tíma, vörnin og markvarslan
sterk og sóknarleikurinn
skemmtilegur með einfaldar
leikfléttur í fyrirrúmi sem gengu
oft upp. Munurinn á liðunum lá
þó fyrst og fremst í markvörsl-
unni því landsliðsmarkverðirnir
vörðu samtals 9 skot á meðan
KA-markverðirnir vörðu 1.
Seinni hálfleikur var bráð-
fjörugur og verður sjálfsagt lengi
í minnum hafður. Munurinn á
liðunum hélst lengi vel en þegar
um 15 mínútur voru til leiksloka
fór að draga til tíðinda. Áhorf-
endur, sem voru hátt á ellefta
hundrað, tóku þá við sér og náðu
upp stemmningunni sem húsið er
að verða frægt fyrir. Og KA-
menn fóru að bíta frá sér, eink-
um júgóslavneski markvörðurinn
Race sem fór að verja eins og
KA-mönnum lciddist ckkcrt sérstaklega í leikslok.
brjálæðingur, samtals 12 skot í
seinni hálfleik! Leikur landsliðs-
ins riðlaðist líka sem eðlilegt er,
leikmenn þreyttir eftir mikið álag
auk þess sem Þorbergur notaði
alla leikmenn og kippti m.a. út
þeim sem höfðu haídið liðinu á
floti. Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi, KA-menn skrefinu á
undan síðustu 5 mínúturnar og
það var svo Sigurður Sveinsson
sem tryggði liðinu sigurinn með
glæsilegu marki eftir aukakast í
leikslok.
Sigurður átti afbragðsleik með
KA og kunni greinilega vel við
sig í gula búningnum, ótrúlega
sterkur sóknarleikmaður sem
aldrei má líta af. Annars var
Race maður leiksins og átti stór-
an þátt í sigrinum með frábærri
frammistöðu í seinni hálfleikn-
um. Alfreð var sterkur í vörninni
að vanda og Stefán gerði margt
laglegt.
Hjá landsliðinu var Valdimar
langbestur en Sigurður, Konráð
og Bjarki spiluðu einnig vel.
„Vörnin small saman í seinni
hálfleiknum og markvarslan var
frábær síðustu 15 mínúturnar.
Við bárum of mikla virðingu fyrir
þeim í fyrri hálfleik og þeir fengu
að spila sig alltof mikið í gegn.
Mér líst alls ekki illa á landsliðið,
það er búið að vera í stífu pró-
grammi og þeir voru orðnir
þreyttir í seinni hálfleik. Byrjun-
in gefur miklu betri mynd af lið-
inu,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA.
„Ég notaði alla leikmennina
enda þarf ég að sjá hvar við
stöndum. Þetta var erfiður leik-
ur, stemmningin gríðarleg og
mínir menn höfðu gott af þessu.
Þeir urðu mjög stressaðir þegar
KA jafnaði í lokin,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, landsliðs-
þjálfari.
Landsliðið lék tvo leiki við
Portúgali um helgina og sigraði
24:22 og 24:20. Liðið leikur gegn
Slóveníu f kvöld og annað kvöld
og verða það síðustu leikirnir fyr-
ir B-keppnina sem hefst 19.
mars.
Mörk KA: Sigurður Sveinsson 7/3,
Stefán Kristjánsson 7/3, Sigurpáll Aðal-
steinsson 5/2, Alfreð Gíslason 3, Pétur
Bjarnason 3, Erlingur Kristjánsson 2,
Þorgils Óttar Mathiesen 2, Árni Stefáns-
son 2, Jóhann Jóhannsson 1.
Mörk landsliösins: Valdimar Grímsson 91
3, Konráð Olavsson 7/2, Bjarki Sigurðs-
son 5, Geir Sveinsson 4, Sigurður
Bjarnason 3, Jón Kristjánsson 1, Birgir
Sigurðsson 1, Patrekur Jóhannesson 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Guð-
mundur Lárusson.