Dagur - 10.03.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 10. mars 1992 - DAGUR - 11
'HÉR 8c ÞAR
Starfsfólk Trausta sf. á Hauganesi, útgerðar Víðis Trausta, var sannarlega í essinu sínu og virtist skemmta sér hið
besta. Myndir: óskar Þór Halldórsson.
HÚSEIGENDUR
Tökum að okkur allt er viðkemur
trésmíði og múrverki
NÝSMÍÐI ★ VIÐGERÐIR ★ BREYTINGAR
Tilboð - tímavinna.
NÝTT A AKUREYRI
Visa - Euro - Samkort - Raðgreiðslur.
Löggiltir meistarar.
Egill Stefánsson
múrarameistari,
sími 24826.
V_____________________
Johannes P. Héðinsson
húsasmíðameistari,
sími 24851.
____________________________/
KAUPMENNA
NORÐURLANDI!
Sjávarréttakvöld Sæluhússins á Dalvík:
Steiktur langhali, skreiðarstappa
tindabykkja, fiskilundir eða...
Undanfarin tvö laugardags-
kvöld hefur veitingastaðurinn
Sæluhúsið á Daivík efnt til
sjávarréttakvölda þar sem
boðið hefur verið upp á ríflega
50 sjávarrétti. Þriðja og síðasta
sjávarréttakvöldið í ár verður
nk. laugardagskvöld, 14. mars,
og er full ástæða til þess að
benda þeim sem hafa áhuga að
geyma ekki að panta miða,
enda hafa færri komist að en
vilja.
Sjávarréttakvöldin eru orðin
fastur liður í starfsemi Sæluhúss-
ins og þau njóta sífellt meiri vin-
sælda og viðurkenningar. Ár eftir
ár mæta sömu gestirnir og margir
þeirra koma langt að, frá höfuð-
borgarsvæðinu, vestan af fjörð-
um og víðar.
Það sem gerir sjávarrétta-
kvöldin svo sérstök er auðvitað
fyrst og fremst maturinn. Fjöl-
breytnin er ótrúleg. Síðastliðið
laugardagskvöld var boðið upp á
um 50 rétti, bæði heita og kalda.
Sem dæmi um heita rétti: Smokk-
fiskur í steinseljusmjöri, hausa-
stappa, hlýri í rækjusósu, spánsk-
ur saltfiskréttur, tindabykkja í
ostasósu, steiktur langhali,
fiskilundir í rækjusósu, smokk-
fiskur í bleki, úthafsrækja í karrí-
smjöri, steiktur sólkoli með lauk
og papriku og skreiðarstappa. Og
á kalda borðinu mátti m.a. finna:
marhnúta- og hrognakæfu, rækj-
ur í rósavínshalupi, kryddsoðinn
ál, marineraðan skelfisk, grá-
sleppuhrogn, súra sundmaga,
krabba, hákarlsstöppu, ferska
léttsoðna kúskel og heilagfiski í
hvítlaukssósu.
Það var ósvikin sjávarstemmning
í Sæluhúsinu sl. laugardagskvöld.
Salurinn var skemmtilega skreytt-
ur, svona rétt til að minna á sjáv-
| arsíðuna. Klæönaður framreiðslu-
stúlknanna var í stíl.
Tekið var á móti gestum með
léttum fordrykk, en síðan var
þeim boðið að setjast að snæð-
ingi. Undir borðum léku þau
Hlín Torfadóttir og Michael
Jacques nokkur Iétt lög og hituðu
raddbönd gestanna. Arnar
Símonarson og Halla Árnadóttir
brugðu sér í ýmis gervi og ræddu
á léttum nótum við gesti. Að
loknum málsverði sáu strákarnir
í hljómsveitinni Kredit frá Akur-
eyri um að halda fólki á dansgólf-
inu fram á nótt.
Ummæli eins gestanna í Sælu-
húsinu sl. laugardagskvöld, sem
var að prófa þetta í fyrsta skipti,
segja meira en mörg orð: „Ég
þori að hengja mig upp á að
hvergi annars staðar á landinu er
boðið upp á slíkt sjávarrétta-
borð. Væri ekki ráð að Flugleiðir
efndu til sérstakra ferða frá
Reykjavík hingað?“ óþh
[ miðju kafi. Baldur Friðleifsson (t.v.), Björg Pctursdóttir, Sigurður Krist-
insson og Jóna Kristína Björnsdóttir.
Arnar Símonarson (nær) og Halla Árnadóttir löðuðu fram hlátrasköll með
skondnum uppátækjum og ummælum um gestina.
Kaupmannasamtök íslands minna kaup-
menn og forráðamenn kaupfélaga á
Norðurlandi á fundinn um landsbyggðar-
verslun á Hótel KEA, laugardaginn 14.
mars nk. kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Ávarp formanns K.í. Bjarna Finnssonar.
2. Ulfar Ágústsson kaupmaður á ísafirði.
Starf sérstakrar nefndar sem fjallað hefur um málefni
landsbyggðarverslana innan K.f.
3. Georg Olafsson verðlagsstjóri.
Frá verðlagsákvæðum til frjálsrar verðmyndunar.
4. Atli Freyr Guðmundsson skrifstofustjóri í viðskipta-
ráðuneytinu.
Landsbyggðarverslun á vegamótum.
5. Sigurður Jónsson verslunarráðgjafi.
Er framtíðin falin í „keðjum"?
6. Fyrirspurnir og umræður.
Kaupmannasamtök íslands.
Einstakt
Daihatsu tilboð
Daihatsu Charade TX, 3 dyra,
árgerð 1991.
Kr. 598.000,- stgr. á götuna.
VASK bíll, kr. 498.000,- stgr. á götuna án VSK.
INNIFALIÐ í VERÐI:
★ Nýskráning.
★ 5 gíra gírkassi.
★ Sæti tauklædd í miðju.
★ Útvarp og segulband.
★ Skipt aftursætisbak.
★ Hiti í afturrúðu.
★ Tímarofi á þurrkum.
★ Vasar í hliðarhurðum.
★ Ný númer.
★ 6 ára verksmiðjuryðvörn.
★ Stokkur milli sæta.
★ Hátalarar 2x30 w.
★ Stærð hjólbarða 155SR13.
★ Speglar beggja megin.
★ Bremsudiskar að framan.
★ Jafnvægisstangir fr. & aftan.
★ 3ja ára ábyrgð.
★ Þurrka á afturrúðu.
★ Stafræn klukka.
★ Loftnet.
★ Dagljósabúnaður.
★ Stýri & gírst.hnúður leðurlíki.
★ öryggisbelti að framan.
★ Aurhlífar framan.
ÞÓRSHAMAR HF
BÍLASALA
Glerárgötu 36, sfmar 11036 & 30470