Dagur - 17.03.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 17. mars 1992 53. tölublað
HERRADEILD
Gránuíélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599^
Akureyri:
Arekstrar og ölvun við akstur
Nokkuð var um árekstra í fæstir árekstranna væru harðir er
umferðinni á Akureyri um
helgina og voru 10 árekstrar
tilkynntir til lögreglunnar frá
föstudegi til síðdegis á mánu-
dag. Hált var víða á götum -
einkum eftir að frost fór að
lina á sunnudag. Þá voru þrír
ökumenn teknir grunaðir um
ölvun við akstur á sama tíma-
bili.
Alls voru tíu árekstrar til-
kynntir til lögreglunnar á Akur-
eyri frá föstudegi til mánudags.
Engin slys urðu þó á fólki og þótt
um tölvert eignatjón að ræða.
Ástæður árekstranna má einkum
rekja til mikillar hálku en menn
virðast verða orðnir óvanir hál-
um vegum í góðviðrinu í vetur.
Einnig munu vetrardekk og nagl-
ar undir bifreiðum vera farin að
slitna eftir ntikinn akstur á auðu
auk þess sem tjara sest á hjól-
barða og dregur úr viðnámshæfni
þeirra. Auk árekstranna voru
þrír ökuntenn teknir grunaður
um ölvun við akstur á Akureyri
um helgina. ÞI
Veðurhorfur:
Norðanátt og smáél
- hitastig verður um frostmark
Þótt suðrið hafi andað sæla-
vindum hlýjum í gær og brætt
klaka og ef til vill einhver
hjörtu er ekki gert ráð fyrir
áframhaldandi vorveðri í dag
eða næstu daga þótt Veður-
stofan varist að spá um-
hleypingum eða öðru illviðri á
Harður árekstur
á Tjömesi
Geysilega harður árekstur
fólksbíls og jeppa varð í Gerði-
brekku á Tjörnesi um kvöld-
matarleytið á laugardag. Engin
slys urðu á fólki. Báðir bílarnir
skemmdust injög mikið og er
annar þeirra jafnvel talinn
ónýtur.
Ánnars var tíðindalítið hjá
Húsavíkurlögreglu um helgina.
Um hádegi á laugardag varð
smáárekstur á horni Héðins-
brautar og Laugarbrekku. Þar
urðu smávægilegar skemmdir á
bílum. Á föstudag var ekið á bíl
sem á urðu skemmdir og á föstu-
dagskvöld var ein rúða brotin í
bænum. IM
næstunni.
í dag er gert ráð fyrir að hann
snúist til norðlægrar áttar og hita-
stigið lækki niður undir eða jafn-
vel aðeins niður fyrir frostmark.
Við megum þó ekki eiga von á
neinu kuldakasti eins og um síð-
astliðna helgi. Veðurstofan spáir
hægri norðlægri átt með lítilshátt-
ar éljagangi á Norðurlandi næstu
daga en aftur gæti farið að létta
til með sunnanátt undir helgi ef
ekki verða óvæntar breytingar á
loftstraumum í kringum landið.
ÞI
íslandsmeistarar SA í íshokkí. Fremrí röð frá vinstri: Sveinn Björnsson, Ágúst Ásgrímsson, Heiðar Ingi Ágústs-
son, Sigurgeir Sábeck, Birgir Júlíusson, Jónas Björnsson, Einar Gunnarsson og Ágúst Ásgrímsson. Áftari röð
frá vinstri: Benedikt Sigurgeirsson, Pekka Santanen, Magnús E. Finnsson, Baldur Guðlaugsson, Garðar Jónas-
son, Sigurgeir Haraldsson, Haukur Hallgrímsson, Heiðar Gestur Smárason, Sigurður Sveinn Sigurðsson og
Héðinn Björnsson. Á myndina vantar Birgi Ágústsson og Sigurbjörn Þorgeirsson. Mynd: Ásgrímur
SA íslandsmeistari í íshokkí
Skautafélag Akureyrar tryggði
sér Islandsmeistaratitilinn í
íshokkí um helgina. Liðið
sigraði þá Isknattleiksfélagið
Björninn 10:1 og Skautafélag
Reykjavíkur 7:0 á vélfrysta
skautasvellinu í Laugardal en
þetta voru síðustu leikir SA á
mótinu.
Akureyringar eru vel að sigr-
inum komnir enda töpuðu þeir
aðeins einum leik á mótinu.
Þess má geta SA var eina liðið
sem ekki hafði útlending innan
sinna raða en Finninn Pekka
Santanen, sem þjálfað hefur lið-
ið um tíma, fékk ekki keppnis-
leyfi eins og fram kom í Degi á
fimmtudag.
Sjá nánar um leikinn á bls. 7.
Stjórn SÍF segir utanríkisráðuneytið ekki virða eigin reglur frá 1991:
Veitti nokkrum útvöldum útflutningsleyfi
Stjórn Sölusambands íslenskra
saltfiskframleiðenda sam-
þykkti í gær harðorða ályktun
þar sem segir að utanríkisráðu-
neytið virði ekki þær reglur
sem það hafi sjálft sett í aprfl á
síðasta ári sem bönnuðu öllum
öðrum en SÍF að flytja út salt-
fisk til Evrópulanda. Þröstur
Ólafsson, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra, vísar þessu
á bug.
í samþykkt stjórnar SÍF segir
að ráðuneytið hafi „veitt tak-
mörkuðum fjölda útvaldra aðila
útflutningsleyfi“ og séu afleiðing-
ar þess nú að koma í ljós á helstu
saltfiskmörkuðum íslendinga.
Málefni landsbyggðarverslana rædd á fundi á Akureyri:
„Brautin er vörðuð aftiirför
fækkun og niðurlægingu"
- segir Úlfar Ágústsson frá ísafirði
Síðastliðinn laugardag efndu upphafið að nánara samstarfi
Kaupmannasamtök Islands til kaupfélaganna og Kaupmanna-
fundar að Hótel KEA á Akur- samtaka íslands. Frummælendur
eyri um málefni Iandsbyggðar-
verslana. Fundurinn var fjöl-
mennur og kaupmenn víða af
landsbyggðinni sóttu fundinn.
Athygli vakti hversu fáir kaup-
menn frá Akureyri mættu til
fundarins, en á hinn bóginn
mættu nokkuð margir verslun-
armenn frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga sem og frá verslun Hag-
kaups á Akureyri.
í upphafi fundar bauð Bjarni
Finnsson, formaður Kaupmanna-
samtaka íslands, fundarmenn
velkomna þá sérstaklega fulltrúa
kaupfélagsverslana og sagðist
vona að fundarseta þeirra væri
voru fjórir. Úlfar Ágústsson,
kaupmaður frá ísafirði, Guð-
mundur Sigurðsson, yfirvið-
skiptafræðingur Verðlagsstofu,
Atli Freyr Guðmundsson,
skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neyti, og Sigurður Jónsson, versl-
unarráðgjafi. Að loknum erind-
um voru fyrirspurnir og umræð-
ur.
Úlfar Ágústsson frá ísafirði
kom víða við og sagði meðal ann-
ars að misvægi á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðisins
yrði varanlegt ef ekki yrði
brugðist við þeirri þróun sem
hagtölur undangenginna ára
sýna. „Staðreyndin er að við mik-
inn rekstrarvanda er að etja í
verslunarrekstri í strjálbýli.
Margar verslanir á landsbyggðinni
eru komnar á vonarvöl þar sem
kaupmanna býður ekkert annað
en rekstrarstöðvun og
gjaldþrot." Lokaorð Úlfars í
annars yfirgripsmiklu erindi
voru: „Það ætla ég að fullyrða
hér og nú úr pontunni að við get-
um ekki haldið áfram á sömu
braut. Sú braut er vörðuð af
afturför, fækkun og niðurlæg-
ingu. Við verðum að finna leið
sem tryggir að kaupmað„rinn
hvar sem hann er á landinu geti
staðið á eigin fótum, selt sína
vöru á eðlilegu markaðsverði og
haft af því hagnað."
Nánar verður fjallað um fund-
inn síðar í vikunni. ój
Sigurður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segir að svo
virðist sem ráðuneytið hafi gefið
leyfi til aðila utan SÍF til útflutn-
ings á 1400 tonnum. Sigurður
segir að erlendir kaupendur salt-
fisks séu greinilega tregir að
birgja sig upp af fiski vegna
óvissu um leikreglur sem gildi á
markaðnum og væntinga um
verðlækkun í kjölfar fjölgunar
seljenda á íslenskum saltfiski.
„Verði verðlækkun og birgða-
söfnun er augljóst að framleiðsl-
an verður minni, sem aftur inun
bitna á þeim plássum sem fyrst og
fremst byggja á saltfiskfram-
leiðslu. Stjórn SÍF telur að aðeins
sé einn kostur í stöðunni fyrir
stjórnvöld, að setja reglur sem
halda,“ sagði Sigurður. Hann lét
þess getið að á Norðurlandi
hefðu á síðasta ári verið 91 salt-
fiskframleiðandi með 21% heild-.
arframleiðslunnar.
Þröstur Ólafsson vísar því á
bug að ráðuneytið hafi brotið eig-
in reglur. „Það er ekkert í
þeim sem segir að það eigi að
banna algjörlega útflutning, en
við sögðum að við myndum
bægja mönnum frá Evrópu,“
sagði Þröstur.
Hann sagði að flattur fiskur
væri ekki nema lítið brot af þess-
um 1400 tonnum. „Það hefur
ekki gerst að um sé að ræða
undirboð á verði. Við höfum
fylgst náið með því. Sé um ein-
hverjar breytingar á markaði er-
lendis að ræða, þá er ekki um að
kenna þessum fáu prósentum
sem fara framhjá SIF,“ sagði
Þröstur. óþh
Fíkniefnamálið:
Margir verða ákærðir
Rannsókn fíkiefnamálsins a
Akureyri er nú á lokastigi.
Þegar hafa 32 verið færðir til
yfirheyrslu vegna málsins og
segir Gunnar Jóhannsson,
rannsóknarlögreglumaður, að
væntanlega verði gefin út
ákæra á flesta þeirra sem eru
viðriðnir málið.
Þeir síðustu sem voru í gæslu
lögreglunnar á Akureyri vegna
þessa máls voru látnir lausir sl.
föstudag. Þá hafði rannsókn
þessa víðtækasta fíkniefnamáls
sem hefur verið upplýst á Akur-
eyri staðið í viku.
Gunnar sagði að í það heila
hafi lögreglan gert upptæk um 40
grömm af hassi, en játning lægi
fyrir um neyslu á ríflega 200
grömmum.
Frá lögreglunni á Akureyri fer
þetta mál til embættis ríkissak-
sóknara og dómstóls í ávana- og
fíkniefnamálum. óþh