Dagur - 17.03.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 17. mars 1992 - DAGUR - 11
Leiklist
Grettistaki lyft
- rokkóperan Messías Mannssonur sýnd í Freyvangsleikhúsinu
Það er rétt, sem sr. Hannes
Blandon, sóknarprestur Eyja-
fjarðarsveitar, segir í leikskrá
með verkefni Freyvangsleikhúss-
ins á þessu starfsári, að leikfélag-
ið hefur ekki haft þá stefnu í
verkefnavali, að ráðast á
garðinn, þar sem hann er lægstur,
heldur gjarnan hið gagnstæða.
Til staðfestingar þessu má nefna
fjölmörg dæmi, jjar sem félagið
hefur lagt í ýmis af eftirtektar-
verðari verkum samtíma leikhús-
bókmennta og í mörgum tilfell-
um tekist vel. Djarflegasta upp-
færslan, sem félagið hefur ráðist í
er þó líklega sú, sem nú er á fjöl-
um Félagsheimilisins í Freyvangi:
„Jesus Christ Superstar", rokk-
óperan mikla um píslarsögu
Krists, með tónlist eftir Andrew
Lloyd Webber við libretto eftir
Tim Rice.
Óperan hefur verið flutt hér á
landi einu sinni fyrr. Þá setti
Leikfélag Reykjavíkur hana upp
í þáverandi Austurbæjarbíói og
kallaði hana frumheiti sínu.
Freyvangsleikhúsið hefur látið
endurþýða librettó óperunnar.
Það verk unnu sr. Hannes
Blandon og Emilía Baldursdótt-
ir. Þýðingin er lipur og fellur vel
að tónlistinni. Heiti verksins var
líka íslenskað og er núna Messías
Mannssonur. Tónlistin er í nýrri
útsetningu eftir Jón Ólafsson,
sem hefur tekist vel að halda
upprunalegum anda og náð
skemmtilegri fjölbreytni í rödd-
unum.
Messías Mannssonur var frum-
sýndur föstudaginn 13. mars. Það
var húsfyllir, enda margir forvitn-
ir um það, hvernig til hefði tekist
með svo viðamikið verkefni í
höndum áhugamannaleikfélags.
Við augum blasti leikmynd gerð
af Kolbrúnu Halldórsdóttur,
leikstjóra, Rögnvaldi Rögnvalds-
syni og Kristjáni Jónassyni. Leik-
myndin er einföld en tiginleg og
lýst af natni og útsjónarsemi, sem
gerði mögulegt að draga fram
atriði og skapa hughrif í sýning-
unni. Lýsinguna önnuðust Ingvar
Björnsson, Þórir Gunnarsson og
Hjörleifur Ólafsson.
Upphafsatriði óperunnar, for-
leikurinn, skapaði strax rétta
stemmningu. Tónlistin fyllti sal-
inn og flytjendur komu hóglega
og þögulir fram á sviðið. Þeir
fylltu það um stund, en hurfu síð-
an á braut. Þetta var áhrifamikið
og hrífandi atriði, sem fyllti
áhorfendur strax í upphafi lotn-
ingu og furðu: Allir þessir flytj-
endur, smekkvísin í búninga-
gerð, samhæfing þeirra og leik-
myndarinnar, atvinnumannslegt
fasið og vönduð uppröðunin -
allt þetta og fleira hjá áhuga-
mannafélagi. Strax þarna var
ijóst, að hér var samhæfður
flokkur, sem hafði unnið af
metnaði að stóru verki undir
handleiðslu hæfs leikstjóra og
lagt sig í líma við að skila því vel.
Þetta sannaðist í sýningunni á
mörgum stöðum. Sérstaklega
voru margar hópsenurnar vel
unnar. Leikstjórinn, Kolbrún
Halldórsdóttir, hefur með aðstoð
aðstoðarleikstjóra síns, Vífils
Valgeirssonar, haft vakandi auga
á hverjum manni og iðulega tek-
ist að skapa áhrifamiklar heildir.
Til dæmis er atriði hinna sjúku
með Kristi afar vandlega unnið
og sterkt, atriði Heródesar og
hirðar hans fjörlegt og hæfilega
léttúðarfullt og atriði Júdasar
með Kaífasi og prestunum, þar
sem hann þiggur silfurpeningana
þrjátíu vel af hendi leyst. Fleiri
vellukkaðar hópsenur mætti
nefna. Ekki ná þær þó allar þeim
áhrifum, sem skyldi. Þannig er
atriði Krists með kaupmönnun-
um í musterinu ekki nógu sterkt
og einnig líður afneitunaratriði
Péturs postula fyrir heldur dauf-
leg viðbrögð Maríu Magdalenu
og Símonar við orðum hans.
Kórar eru almennt vel æfðir og
nutu sín. Víða er túlkun áhrifa-
mikil og sannfærandi. Svo var til
dæmis um kór í garði Kaífasar og
aftur fyrir Pílatusi, þar sem kom
fram áhrifamikil grimmd og
kröfuharka, og einnig má nefna
kór lærisveina í garðinum Getse-
mane, fyrir bænargjörð Krists,
þar sem söngurinn fjarar út í lúa
og svefnþunga. Kórstjórn er í
höndum Þórdísar Karlsdóttur og
á hún lof skilið fyrir verk sitt.
Öll hljóðfæratónlist er af segul-
bandi. Upptöku stjórnaði Sigurð-
ur Bjóla Garðarsson, en hljóð-
færaleikarar voru Ólafur Hólm,
trommur, Jón Elvar Hafsteins-
son, gítar, Eiður Arnarson,
bassi, og Jón Ólafsson, hljóm-
borð. Tónlistin er skemmtilega
flutt og styrkur hennar oftast í
lagi. Fyrir kemur samt, að hún er
heidur hátt stillt sem undirleikur
með söngvurum. Þeir, sem eru í
aðalhlutverkum, eru búnir
hljóðnemum, svo að hér er að
mestu um hljóðblöndunaratriði
að ræða.
Titilhlutverkið er í höndum
Ingólfs Jóhannssonar. Hann gerir
sínu hlutverki nokkuð bærileg
skil, en því miður ekki meira en
það. í fas hans skortir reisn og í
söngflutning hans þann brag, sem
æskilegur hefði verið. Þó tekst
Ingólfi allvel upp í kvöldmáltíð-
aratriðinu með Júdasi og einnig í
bænargjörðaratriðinu í Getse-
mane.
Með hlutverk Júdasar fer
Sigurður Ingimarsson. Sigurður
er iðulega mjög góður í þessu
hlutverki, sem er í raun burðarás
verksins. Söngur hans er tjáning-
arríkur og leikhreyfingar við
hæfi. Honum tekst vel að túlka
hugarstríð Júdasar og örvæntingu
hans og gæðir þessa persónu, sem
er sú flóknasta í óperunni, sann-
færandi lífi.
Hulda Björk Garðarsdóttir fer
með hlutverk Maríu Magdalenu
og túlkar hana af mikiili innlifun
og fallega. Sérlega er ánægjulegt
að hlýða á Huldu Björk flytja
aríur Maríu, en það gerir hún svo
vel að jafna má til þess besta,
sem heyrst hefur.
Hlutverk Péturs postula og
Símonar postula eru í höndum
Hilmars Trausta Harðarsonar og
Kristjáns Ingimarssonar. Báðir
komast vel frá sínum þáttum í
uppsetningunni.
Helgi Þórsson fer með hlut-
verk Heródesar. Hann er stór-
góður í sínu hlutverki ekki síst í
höfuðatriði sínu; hirðsenunni,
þar sem segja má að hann fari á
kostum.
Kaífas æðstaprest leikur
Kristján Pétur Sigurðsson.
Kristján Pétur er skemmtilegur í
þessu hlutverki. Hann hefur til
að bera hæfandi stæðileika og
kemst talsvert vel frá söngatrið-
um sínum.
Annas er leikinn af Heimi
Bragasyni. Heimir gerir úr Ann-
asi refslega persónu, sem fellur
vel.
Haraldur Davíðsson fer með
hlutverk Pílatusar og nær vel
þeim heimsmannslega brag, sem
hæfir þessari persónu. Túlkun
hans í söng er líka tjáningarrík
og sannfærandi.
Það er vafalítið, að það hefur
verið mikið verk að ná saman
þeim fjölmenna flokki, sem flyt-
ur Messias Mannsson í Freyvangi
og sem stendur að baki sýning-
unni á ýmsan hátt. Alls eru flytj-
endur um fjörutíu og annað
starfslið við uppfærsluna um tutt-
ugu og fimm að tölu. Allt þetta
fólk hefur verið óspart á tíma
sinn í undirbúningi þessarar viða-
miklu og glæsilegu uppsetningar.
Ekki síður er eftirtektarverð sú
natni, sem lögð hefur verið í all-
an umbúnað, en þar ber tæplega
skugga á. Þá hefur Kolbrún Hall-
dórsdóttir, leikstjóri, sannarlega
skilað sínu verki með prýði og
ekki síður Jón Ólafsson, tónlist-
arstjóri. í öllu þessu hefur Frey-
vangsleikhúsið bætt enn einni
fjöður í hatt sinn og henni s*órri.
Það hefur ráðist á Grettistak og
ekki einungis náð að láta vatna
undir það, heldur beinlínis hafið
það hátt á loft.
Haukur Ágústsson.
Tveir af níu einsöngvurum í „Messías Mannssonur“, Kristján Ingimarsson
og Ingólfur Jóhannsson í hlutverkum Símonar og Jesús. Myndir: Goiii
Pétur, Jesús, og einn postulanna. Hilmar Harðarsson, Ingólfur Jóhannsson
og Höskuldur Höskuldsson í hlutverkum sínum.
Stangveiðifélagið
Flugan
Akureyri
Aöalfundur félagsins árið 1992 verður hald-
inn á Hótel KEA, miðvikudaginn 18. mars,
kl. 20.30.
Stjórnin.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKiSINSqg
©
Deildarstjóri
Tryggingastofnun ríkisins auglýsir hér með eftir
deildarstjóra fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð.
Umsóknir um starfiö ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf skulu hafa borist Tryggingastofnun
ríkisins fyrir 10. apríl nk.
Staöan veitist af heilbrigðis- og tryggingamálaráö-
herra að fengnum tillögum stjórnar Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs.
Reykjavík, 10. mars 1992.
Tryggingastofnun ríkisins,
Laugavegi 114, Reykjavík.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR THORLACÍUS,
Öxnafelli,
sem andaðist 13. mars, verður jarðsunginn að Grund, laugar-
daginn 21. mars kl. 14.00.
Sesselja Andrésdóttir,
Ólafur Andri Thorlacíus, Fjóla Huld Aðalsteinsdóttir,
Andri Thorlacíus,
Sindri Thorlacíus.