Dagur - 17.03.1992, Qupperneq 5
Þriðjudagur 17. mars 1992 - DAGUR - 5
DÓMS- OC KIRKJUMÁLARÁÖUNEYTIÐ
•: j ^ [•! <934
Reykjavík. 5. janúar 1984.
ÓWS/HG
i :: i ■ a <• „• •. i :• J ’i!* ií r e•• i
1 t-;: V1, i J 1
Með vísun til bréfs yðar, herra bæjarstjóri, dags. 21.
desember sl., skal tekið fram, að ráðuneytið hefur í dag
staófest samþykkt um breytingu á lögreglusamþykkt fyrir Akureyr;
kaupstað, nr. 44 28. apríl 1954, sem samþykkt hefur veriö af
bæjarstjórn Akureyrar.
’erður bráðlega birt í
Fylgir samþykktin hér með, en hún
B-deild Stjórnartíóinda.
Ráðuneytið tekur að gefnu tilefni fram, að þótt gert
sé ráó fyrir því að bæjarstjórn ákveöi gjald fyrir leyfi
samkvæmt hinum nýju reglum, felur það ekki í sér heimild
gjaldtöku til bæjarsjoðs, enda veita lög um lögreglu-
samþykktir eigi lengur slíka heimild, sbr. 3. gr. laga nr.
1/1890.
L-/‘ *
Bæjarstjóri Akúreyrar
600 AKUREYRI.
Afrit:
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Athugasemd dóins- og kirkjumálaráðuneytisins við breytingunni á lögrcglu-
samþykkt Akureyrar.
tekin um að leggja íþróttaskemm-
una niður sem íþróttahús, en ver-
ið er að skoða þann möguleika og
munu nefndir og ráð fá það mál
til umfjöllunar. B.B. virðist hins
vegar ekki vera það ljóst að
íþróttaskemman verður lögð af
sem íþróttamannvirki á komandi
árum, þegar íþróttakennsla
barna við Oddeyrarskóla verður
leyst.
Spurningin sem leitað er svara
við nú, er einfaldlega sú hvort
hægt sé að fresta byggingu húss
fyrir íþróttakennslu við Oddeyr-
arskóla, enn um sinn, vegna
þeirrar vannýtingar sem er að
skapast í öðrum íþróttahúsum og
Bragi V. Bergmann.
Að lokum
Ég vil segja Sigurði J. Sigurðssyni og
öðrum bæjarfulltrúum til hughreyst-
ingar að Bæjarstjórn Akureyrar hef-
ur eflaust margt sér til ágætis. Ég læt
þó öðrum eftir að tíunda það. Hins
vegar finnst mér bæjarstjórn hafa
orðið á í messunni í veigamiklum
atriðum á yfirstandandi kjörtímabili,
þegar íþrótta- og tómstundamálin
eru annars vegar. Pann kaleik get ég
ekki tekið frá henni, né heldur kæri
ég mig um það.
Þetta eru lokaorð mín í þessu máli
- nema mín verði freistað með ómót-
stæðilegum hætti til að leggja fleiri
orð í belg!
Bragi V. Bergmann.
Höfundur er ritari íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrar.
spara á þann hátt rekstrargjöld.
Skólanefnd er að skoða málin
frá sínum sjónarhóli og það er
von mín að íþrótta- og tómstunda-
ráð leggi sitt á vogarskálarnar til
þess að benda á bætta nýtingu og
betri rekstur íþróttamannvirkja
til að draga úr rekstrargjöldum
bæjarsjóðs.
Opnunartími leiktækjastofa
Um opnunartíma leiktækjastofa
ætla ég ekki að hafa mörg orð.
Ég skýrði afstöðu mína í fyrri
grein minni og þó svo að B.B. sé
henni ekki sammála og kalli slíkt
útúrsnúninga breytir slíkt ekki
þeirri staðreynd að flestir stefna
að frjálsari viðskiptum og minni
höftum og bönnum. Reykjavík-
urborg ætlar t.d. að afnema tak-
markanir á opnunartíma pylsu-
vagna í miðbænum, þrátt fyrir
andstöðu lögreglustjóra.
Innheimta leyfisgjalda
Að ég fjölyrti ekki um greiðslur
fyrir leyfisgjöld í síðustu grein
minni stafaði einfaldlega af því
að það mál var allt annars eðlis
og snérist ekki um stefnumörkun
bæjarins í íþrótta- og tómstunda-
málum. Vegna athugasemda B.B.
og fullyrðingar hans um að mér
þætti það ekki mikið mál þó þetta
leyfisgjald hefði aldrei verið inn-
heimt, er nauðsynlegt að upplýsa
hann og aðra um eftirfarandi:
Þegar breyting var gerð á lög-
reglusamþykkt Akureyrarbæjar
1983 til að koma inn nýjum
ákvæðum um leiktækjastofur,
var sett inn ákvæði sem heimilaði
bæjarstjórn að innheimta sér-
stakt gjald af þessari starfsemi.
Við afgreiðslu málsins í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu var
breytingin á lögreglusamþykkt-
inni staðfest, en þó gerð eftirfar-
andi athugasemd:
„Ráðuneytið tekur að gefnu
tilefni fram, að þótt gert sé ráð
fyrir því að bæjarstjórn ákveði
gjald fyrir leyfi samkvæmt hinum
nýju reglum, felur það ekki í sér
heimild til gjaldtöku til bæjar-
sjóðs, enda veita lög um lögreglu-
samþykktir eigi lengur slíka
heimild.“
Með hliðsjón af þessari
athugasemd var gjald þetta aldrei
innheimt af þessari starfsemi.
Leiktækjastofur eiga hins vegar
að greiða öll almenn gjöld til
sveitasjóðs, sem önnur atvinnu-
starfsemi. Mál þetta er til
skoðunar nú í tengslum við þá
endurskoðun sem nú hefur farið
fram á þessurn málum og verður
eitt fastagjald innheimt við
útgáfu nýrra leyfa.
Ég hef hér að framan farið enn
á ný yfir nokkur atriði sem komu
fram í gagnrýni B.B. á störf
bæjarstjórnar í greinaskrifum
hans. Þó B.B. sé ekki samstíga
bæjarstjórn í ákvörðunum sínum
ætti slíkt ekki að vera mér
áhyggjumál, því hann er tilnefndur
af hálfu Framsóknarflokksins til
setu í íþrótta- og tómstundaráði.
Ég er hins vegar ósáttur við að
hann skuli í skrifum sínum reyna
að draga fram mynd af bæjar-
stjórn sem lýsi henni sem yfir-
valdi, sem lítið sé gefið fyrir sjón-
armið annarra og virði að vettugi
að hafa samráð við sínar starfs-
nefndir. Bæjarstjórn hefur þvert
á móti aukið sjálfstæði nefnda og
ráða, fært þeim aukin verkefni,
starfsmannahald og ráðstöfun
fjármuna. Þess er vænst að slíkt
einfaldi ákvarðanatökur og geri
stjórnun mála fljótvirkari, en
leggur líka þær kvaðir á nefndir
að þær vinni skilvirkt og sýni fjár-
málalega ábyrgð.
Sigurður J. Sigurðsson.
Höfundur er forseti bæjarstjórnar Akur-
eyrar.
20-25% afsláttur
Kuldagallar - Vinnufatnaður
Seljum á meðan byrgðir endast
alla kuldagalla og ýmsan vinnufatnað
með 20-25% afslætti.
Verið velkomin!
Furuvöllum 13 I Akureyri
Simi 96-23830
Framsóknarvist
Spilakvöld
Þriggja kvölda keppni
Annað spilakvöld.
Framsóknarvist að Hótel KEA
miðvikudaginn 18. mars kl. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
r
hornsófinn
er fallegur, vandaður og ekki síst þægilegur
sófi til að sitja í. Ekta nautshúð á slitflötum.
Margir litir.
í Húsgagnahöllinni eru til húsgögn frá öllum
heimshornum og kappkostum við að hafa
úrvalið sem fjölbreytilegast fyrir allan aldur.
Sendum samdægurs.
LANDSÞJÓNUSTA t 28 ÁR.
QOB GREIÐSLUKJOR
Raðgreiðslur Visa 18 mán.
Raðgreiðslur Euro 11 mán.
Húsgagnahöllin
BILDSHOFÐA 20 - 112 REYKJAVIK - SIMI 91-681199
.J