Dagur - 24.03.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 24. mars 1992 - DAGUR - 5
Norðlenskir hestadagar:
Fjölbreytt dagskrá og íjftlmenni
Norðlenskir hestadagar fóru
fram í Reiðhöllinni í Reykjavík
um sl. helgi. Sýningar voru á
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Aðsókn að sýningun-
um var mikil. Hátt í 3000 gestir
mættu til sýninganna. Á laugar-
dagskvöldið þurfti að vísa 400 til
500 manns frá þar sem Reiðhöll-
in var orðin yfirfull af áhorfend-
um strax um kl. 20.00, en sýn-
ingin hófst kl. 20.30 stundvíslega
með fánareið fulltrúa hesta-
mannafélaga af Norðurlandi.
Atli Guðlaugsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Eyjafjarðar, fór
fyrir fánareiðinni á glæstum
brúnum hesti. Er knapar höfðu
heilsað áhorfendum blés Atli
stef í trompet til merkis um að
sýningin væri hafin.
Þau hestamannafélög er tóku
þátt í „Norðlenskum hestadögum“
voru; Funi úr Eyjafirði, Glæsir frá
Siglufirði, Gnýfari úr Ólafsfirði,
Grani, Þjálfi og Þráinn úr Suður-
Þingeyjarsýslu, Hringur frá
Dalvík, Léttfeti, Stígandi og Svaði
úr Skagafirði, Léttir frá Akureyri,
Neisti, Óðinn og Snarfari úr Aust-
ur-Húnavatnssýslu og Þytur úr
Vestur-Húnavatnssýslu. Sýningar-
atriði kvöldsins voru 22. Taum-
hringssýning nemenda frá Bænda-
skólanum á Hólum tókst með
ágætum og þá tók við sýning 6
vetra stóðhesta. Sjö stóðhestar
komu fram og voru allir glæsilegir.
Undirrituðum þótti Safír frá Við-
vík í eigu Jóhannesar Ottóssonar,
Akureyri, og Gnýfari frá Húsey í
eigu Jósafats V. Felixssonar,
bónda í Húsey, hvað glæsilegastir
og fimastir. Að lokinni sýningunni
á stóðhestunum komu fram tveir
úrvalstöltarar samkvæmt kynn-
ingu. Hausti frá Hofsstaðaseli og
Fálki frá Lambanesreykjum voru
ekki þeir úrvalstöltarar sem búast
mátti við fremur en hinir tveir
úrvalstöltararnir, Þór frá Neðra-
Ási og Vinur frá Úlfsstöðum, er
komu fram síðar um kvöldið.
í afkvæmasýningu Elds 950
komu fram sex hross. Sýningin var
ekki rishá, en Þristur Sigurbjarnar
Bárðarsonar í Reykjavík er þó
hestur sem væntingar eru bundnar
við.
Nú var komið að unglingunum.
Átta galvaskir krakkar frá Hesta-
mannafélaginu Létti frá Akureyri
riðu inn á völlinn. Sýningaratriðið
er þau höfðu æft undir stjórn Kol-
brúnar Kristjánsdóttur frá Rauð-
vík ránn í gegn hnökralaust að
mestu og þau fengu lófaklapp
mikið.
„Séra Magnús settist upp á
skjóna“ var tilkomumikil sýning
undir söng Baldvins Kr. Baldvins-
sonar og Baldurs Baldurssonar.
Sigurbjörn Bárðarson kom fram
búinn sem séra Magnús á hesti sín-
um Gáska, sem er 5 vetra undan
Gáska frá Hofsstöðum og Drottn-
ingu 4648 frá Sauðárkróki. Gáski
Sigurbjarnar er listagæðingur þó
ungur sé. Fótahreyfing á tölti sem
brokki er fjaðurmögnuð og há.
Ekki skemmdi skeiðspretturinn í
lok sýningarinnar heildarmyndina
og lofar tamningu eigandans.
Sýningin „Fimimunstur" sextán
nemenda frá Bændaskólanum á
Hólum á glæstum hestum var hnit-
miðuð. Greinilegt var að Eyjólfur
ísólfsson, reiðkennari að Flólum,
hafði lagt mikla vinnu í að undir-
búa nemendur sína. Undirritaður
verður þó að segja að atriði sem
þetta er enn tilkomumeira með
stórum hestum sem á hestasýning-
unni í Essen forðum daga.
Sýning á kynbótahryssum var
ekki tilkomumikil og gefur ekki
rétta mynd af ræktun hrossa norð-
an heiða. Þess ber að geta að hryss-
urnar allar eiga eftir að gera mun
betur er líður að vori. Hreyfing frá
Húsey bar af fyrir gjörfileik, en
hún er í eigu Guðlaugs Arasonar á
Akureyri.
„Hvarf séra Odds“ var skemmti-
lega sviðsett. Þeir hestar er komu
fram voru Brýnir frá Kvíabekk,
Hylling frá Akureyri, Krummi frá
Litla-Hóli og Nökkvi frá Akureyri
og stóðu fyrir sínu. Skemmtileg
lýsing setti mikinn svip á sýning-
una.
Hindrunarstökk er nemendur frá
Bændaskólanum á Hólum sýndu
hitti ekki í mark að mati undirrit-
aðs fremur en sýning númer tvö á
kynbótahryssum. Nótt frá Akri í
Eyjafirði og Hrafntinna frá Dalvík
eru þó kostagripir sem vert er að
fylgjast með í sýningum á komandi
sumri. Betur hefði mátt vanda til
sýningar þessarar og allar hryssurnar
fóru illa á skammhliðum.
Ræktunarbússýning frá Keldu-
dal í Skagafirði var ekki rishá og
oft hefur undirritaður séð betri
tilþrif hrossa frá Leifi Þórarinssyni
bónda. Spurningu vekur hvert
markmið sé með sýningu sem þess-
ari.
Kerruakstur Sigmundar Sigur-
jónssonar þar sem Hvassi frá
Hvassafelli var spenntur fyrir létti-
kerru var skemmtilegur, en þó
hefði Sigmundur mátt nýta hæfi-
leika Hvassa mun betur og gang-
breytingar hefðu mátt vera hreinni.
Munsturreiðin var gott sýningar-
atriði og þá var komið að hástökks-
áskoruninni.
Nemendur Bændaskólans á Hól-
um höfðu skorað á Sigurbjörn
Bárðarson á Hæringi í einvígi í
hindrunarstökki. Sigurbjörn og
Hæringur hafa unnið til fjölda
verðlauna í hindrunarstökki, en nú
fóru leikar svo að Sigurbjörn varð
að játa sig sigraðan eftir hörku-
spennandi keppni. Þórdís Bjarna-
dóttir og Sýslumanns-Gráni voru
sigurvegarar kvöldsins. íþrótta-
hestar tveir, Hjúpur frá Leysingja-
stöðum og Nökkvi frá Þverá komu
nú fram. Hestarnir báðir eru falleg-
Rökkurkórinn:
Söngfór til Siglufjarðar
Rökkurkórinn í Skagatlröi
hyggur á söngför til Siglufjarð-
ar nk. miðvikudag. Kórinn
söng með Kvennakór Siglu-
fjarðar á tónleikum í Hofsósi
fyrir skömmu og að sögn Önnu
S. Rögnvaldsdóttur fæddist þá
hugmyndin að tónleikunum á
Siglufirði.
Stjórnandi Rökkurkórsins er
Sveinn Árnason og undirleikarar
þau Rögnvaldur Valbergsson á
píanó og Mette Worum á saxa-
fón, en kórfélagar eru um fimm-
tíu talsins.
„Gróska hefur verið í starfi
kórsins í vetur og margt ungt fólk
bæst í hans raðir. Framundan hjá
okkur eru tónleikar á Sæluviku
Skagfirðinga og síðan munum við
enda vetrarstarfið á söngför til
Þingeyinga í lok apríl,“ segir
Anna.
Anna segir að kórinn sé búinn
að æfa upp liðlega tuttugu lög og
í lagavali gæti mikillar fjöl-
breytni. Tónleikarnir á Siglufirði
hefjast klukkan 21 nk. miðviku-
dag. SBG
ir, en oft hafa sést betri „íþrótta-
hestar“ á mótum hestamanna.
Fegurðardrottning Norðurlands
1991 er Pálína Halldórsdóttir frá
Sandhólum á Tjörnesi. Pálína var
kynnt á Norðlenskum hestadögum
og hún kom fram á glæstum brún-
um gæðing sem er í eigu Sigur-
bjarnar Bárðarsonar. Fallegur
hestur sem stúlka settu snotran
svip á kvöldið í Reiðhöllinni.
Framlag ísólfs Þórissonar til
kvöldsins var athyglisvert þar sem
hann fór stórum standandi á hest-
unum Ljúf og Tuma á stökki
miklu. „Djákninn“ var gott sýning-
aratriði í meðferð knapanna
Hrafnhildar Jónsdóttur og Her-
manns Ingasonar frá Þingeyrum,
en þá var komið að lokaatriði
kvöldsins.
Hrímni frá Hrafnagili í Eyjafirði
og Björn Sveinsson frá Varmalæk í
Skagafirði þarf ekki að kynna. Er
sýningunni lauk heyrði undirritað-
ur margan manninn segja. „Því
getum við íslendingar ekki ræktað
hest sem þennan?" Spurningunni
læt ég ósvarað, en hrossaræktar-
ráðunautar ættu að velta þessari
spurningu fyrir sér sérstaklega í
ljósi þess sem bar að líta í Reið-
höllinni, „úrvalshesta og hryssur af
Norðurlandi". ój
Aðalfundur
Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands
hf., Akureyri, árið 1992, verður haldinn á
Hótel KEA, Akureyri, þriðjudaginn 31. mars
nk. og hefst kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 12. greinar
samþykkta félagsins.
2. Horfur á hlutabréfamarkaði.
Erindi: Stefán Halldórsson, ráðgjafi.
3. Önnur mál.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1991 verður
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Ráð-
hústorgi 1, Akureyri, frá 24. mars 1992.
Akureyri, 24. mars 1992.
Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
RAUTT
UÓS
RAUTT
'II \\\iÍlk
yUMFERÐAR
RÁÐ
BYGGINGAVORUR
LÓNSBAKKA
Muniö
Gólfefnadaga
15%
Gólfflísar - Gólfteppi - Gólfdúkar - Dreglar
- Mottur - Spónaparket, ýmsar gerðir -
Plastparket, beyki, askur, eik, greni
Tarket parket:
Eik natur kr. 3.531 m2 stgr
Eik kvistuð kr. 3.256 m2 stgr
Askur kr. 3.712 m2 stgr
Merbau kr. 3.589 m2 stgr
Hevea kr. 2.990 m2 stgr
601 Akurevri •
96-30321 & 96-30326 • Fax 96-27813
__