Dagur - 24.03.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 24.03.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 24. mars 1992 - DAGUR - 11 Kvikmyndarýni Jón Hjaltason Glæpagengið Borgarbíó sýnir: Glæpagengiö (Mobsters). Leikstjóri: Michael Karbelnikoff. Aöalhlutverk: Christian Slater, Patrick Dempsey, Richard Grieco, Costas Mandylor og Anthony Quinn. Universal 1991. Glæpagengið er að mörgu leyti ekki ólík kvikmyndum eins og Krays-bræðrum og Good Fellas. Fátækir og umkomulausir ung- lingar sjá enga leið færa upp úr strætinu aðra en þá sem leiðir inn á glæpsamlegar brautir. Þröngi vegurinn er of grýttur og of mjór. Sá stóri munur er þó á Glæpa- genginu og hinum kvikmyndunum tveimur að drunginn og svartnætt- is vonleysið er sveif yfir vötnum í bæði Good Fellas og bræðrunum er víðsfjarri í Glæpagenginu. Það er þvert á móti heldur létt yfir fjórmenningunum Slater, Demps- ey, Grieco og Mandylor en þeir mynda klíkuna og bakfiskinn í seinna voldugum glæpasamtök- um. Þeir eru ungir menn á upp- leið. Gamlir skarfar eins og Ant- hony Quinn reyna að halda hlut sínum fyrir þeim, þykjast klókir í skjóli aldurs og reynslu, en ung- dómurinn er ekki á því að láta bæla sig. Við þetta bætist að Slat- er á harma að hefna vegna yftr- gangs mafíuforingja. Sagan er byggð á sönnum atburð- um, að minnsta kosti eiga sögu- hetjumar sér stoð í raunveruleik- Christian Slater sem Charlie hinn lánsami Luciano. anum. Slater er til dæmis lánsami Luciano sem var meðal annars í slagtogi með hinum þjóðsagna- kennda A1 Capone. Félagar hans þrír eru einnig í hlutverkum kunnra bandaríska glæpona er hófust til „vegs og virðingar" bannárunum. Glæpagengið er um baráttu þeirra fjögurra við sér eldri mafíuosa og lýsir því hvemig þeir, þrátt fyrir mikinn liðsmun, reyndu að sigra öldungana og koma þeim fyrir kattamef. Úrslit þeirrar bar- áttu skulum við láta liggja á milli hluta að sinni. Ekki verður annað sagt en að leikstjóranum Michael Kar- belnikoff takist mæta vel að búa til bæði spennandi og skemmti- lega kvikmynd úr margbrotnum efniviði. Það er aldrei einfalt að búa til kvikmynd þar sem mörg ár eru höfð undir án þess að það bitni að einhverju leyti á myndmálinu og um leið sögunni. Við skulum minnast þess að í upphafi er leik- stjóranum skammtaður ákveðinn tímarammi, nálega 120 mínútur, sem hann á að fylla upp í. Það er ekki eins og til dæmis með sagn- fræðingsdulur sem mega skrifa og skrifa bara á meðan andinn blæs þeim einhverju í brjóst og þurfa ekkert að hyggja að væntanlegri þykkt bókar eða umfangi mynd- máls. Það er skemmtilegt að sjá hvemig sögusvið 3. áratugarins er endurskapað, götur, klæðnaður, bílar, og maður hrífst með ung- lingunum þar sem þeir hlaupa um strætin í misjafnlega heiðvirðum tilgangi. Ekki er síður athyglisvert að fylgjast með sambandi fjór- menninganna, tveir þeirra eru af ítölsku bergi brotni og tveir gyð- ingar. Þetta er viðsjárverð blanda að dómi umhverfisins en gengur engu að síður upp. Andlegur þykkskinnimgur Borgarbió sýnir: Hollywood-lækninn (Doc-Hollywood). Lcikstjóri: Michael Caton-Jones. Aðalhlutverk: Michael J. Fox, Julie Warner og Barnard Hughes. Warner Bros 1991. Stundum halda hugsunarlitlir menn að til sé einn og einhlítur mælikvarði á alla hluti, jafnt stóra sem smáa. Aðrir, sem mæna á þessa sömu mælistiku, telja sig sjá örlítið lengra og fullyrða að þekk- ing sé allt er maðurinn þarfnist til að ná þessum Olympstindi visk- unnar; að geta fellt óvéfengjan- lega og óumdeilda dóma (sumir fá þennan hæfileika í vöggugjöf okk- ur meðborgurunum til óblandinnar ánægju). Ef til vill er þetta svo en mikið skelfing á ég oft erfitt með að koma auga á hið algilda svar. Hollywood-læknirinn er nýjasta dæmið þar um. Þrátt fyrir nokkra óbeit á Michael J. Fox og efa- semdir um leikhæfileika hans (er mögnuðust mjög eftir að hafa séð myndina Casualties of War) verð ég að játa fyrir sjálfum mér að Hollywood-læknirinn er ekki svo afleit. Þetta er létt grín um allt og ekkert. Bandarísk rómantík er sett í öndvegi og draumur allra Banda- ríkjamanna um að verða ríkir sett- ur til hliðar eða öllu heldur hann er látinn bíða ósigur fyrir ástinni. Ég var sem sagt tiltölulega sáttur þegar ég kom út úr bíóinu og hóf viðræður við sjálfskipaðan kvið- dóminn, fylginautana tvo. En ekki hafði ég fyrr lokið upp munni um þá ágætu skemmtun sem ég hafði haft af Fox en þeir byrjuðu að finna honum allt til foráttu og auðvitað kvikmyndinni um leið. Og þar sem ég var í minnihluta var skoðun minni ýtt út af pall- borðinu rétt eins og notuðum smokki - þið afsakið orðalagið en samlíkingin er nauðsynleg. Ég ætti því, ef farið væri eftir þeim lýðræðisreglum sem okkar kyn- slóð telur forsendu allra framfara, að skrifa ljótt eitt um Fox og lækninn hans. En ég hef alltaf ver- ið svolítill einræðissinni inn við beinið - eða andlegur þykkskinn- ungur eins og spaugaramir hafa leyft sér að segja - og vil því ekki alveg alltaf lúta vilja eða skoðun- um meirihlutans. Hollywood-læknirinn er að mínu mati heldur geðþekk mynd, spaugileg og jafnvel svolítið róm- antísk. Það er vel farið með and- hverfur myndarinnar, annars veg- ar drauminn um ríkidæmið og hins vegar ástina. Auðvitað getur þetta tvennt farið saman en í þetta skiptið hentar það leikstjóranum að mála allan heiminn í svart- hvítu. Ég er raunar ekki frá því að íslenskir starfsbræður hans gætu eitthvað lært af þessari kvikmynd um afstöðuna til strjálbýlisins. Þeir eru nefnileg ekkert síður en marg- ur útlendingurinn fastir í þeirri goðsögn að sveitalífið sé örugg á- vísun á andlega örbirgð og jafnvel líkamlega einnig. Enginn dvelur í sveit óneyddur, hljóðar vísdómur þeirra. Auglýsinga-taktur Borgarbíó sýnir: Bakslag (Ricochet). Leikstjóri: Russell Mulchay. AOalhlutverk: Denzel Washington, John Lithgow og Ice T. Warner Bros 1991. Hvað þarf til að gera góða spennumynd? Ef til vill atburðarás er líkist auglýsingatíma ríkissjón- varpsins okkar? Ég veit það að minnsta kosti fyrir víst að litlu bömin kunna að meta stutt og at- burðarík myndskeiðin er auglýs- ingatíminn býður upp á. En emm við hin eldri að leita að svipuðum sam-klipptum en samhengislitlum spennuköflum í kvikmyndum nú- tímans, á bófahasarinn að vera eintóm spenna sem mögnuð er upp með handafli þar sem tæknin er notuð til hins ýtrasta en minni gaumur gefinn að sögunni og eðli- legri framvindu ævintýrisins? Ef við tökum auglýsingaháttinn fram yfir söguna þá er Bakslag mynd fyrir okkur. Vemleiki kvikmynd- arinnar er látinn stjómast af því er kemur aðalsöguhetjunni vel en um leið rofnar jarðsambandið. Bófar verða góðir, svo góðir að þeir fóma fjárfúlgum til aðstoðar hetj- unni. Menn skjóta upp kollinum hér og þar, ýmist hátt uppi á hús- þökum eða í hæstu nýbyggingum. Heimilisfaðirinn geymir gullin sín, rakettur, í eldhússkápnum og þrjóturinn er allsstaðar, ofur-klók- ur (nema í byrjun) og alvondur. Bakslag á að vera afþreying en allri afþreyingu em takmörk sett. Auðvitað er það svo að bíómyndin lýtur ekki sömu lögmálum og vemleikinn sem við þrífumst í. Margt er þó sameiginlegt og spuming hvenær afþreyingin fer yfir velsæmismörk skynseminnar og verður vitlaus. En stundum má einnig hafa gaman af vitleysunni, sérstaklega ef Denzel Washington tekur þátt í henni. Hann er af- bragsleikari og ætti vissulega að fá stærri hlutverk að leika en það sem hann fer með í Bakslagi. Par er hann lögregluþjónninn sem flækist inn í sóðamál, liggur sjálf- ur undir gmn um morð, er hund- eltur og verður að leita hjálpar hjá undirheimalýð stórborgarinnar til að koma undir sig fótunum aftur. Hótel til leigu! Raufarhafnarhreppur auglýsir eftir rekstraraðila til að taka að sér rekstur Hótels Norðurljóss á Raufarhöfn. Hótelið er á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru m.a. gestamóttaka, 9 gistiherbergi, eldhús, 60 manna veitingasalur og setustofa. Á efri hæð eru m.a. 14 gistiherbergi. Þetta er kjörinn atvinnukostur fyrir hjón eða fjöl- skyldu með áhuga og reynslu af hótel- og/eða veit- ingarekstri. Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 96- 51151. Þeir sem áhuga hafa, skili umsóknum til skrifstofu Raufarhafnarhrepps, Aðalbraut 2, 675 Raufarhöfn, fyrir 10. apríl nk. ÚTBOÐ Óskað er eftir tilboðum í byggingu 70 íbúða fyrir aldraða við Lindasíðu 2 og 4 á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent á A.V.J. teiknistofunni, Tryggvabraut 10, Akureyri frá og með miðvikudegin- um 1. apríl 1992, gegn 30.000 - þrjátíu þúsund króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð í Húsi aldraðra Lundargötu 7, Akureyri miðvikudaginn 15. apríl nk. kl. 10.00 að við- stöddum þeim bjóðendum og fulltrúum þeirra sem staddir kunna að verða þar. Við áskiljum okkur fullan rétt að taka eða hafna hvaða tilboði sem er. Akureyri 23. mars 1992. Framkvæmdanefnd um byggingar aldraðra Akureyri. o o Aðalfundur Aöalfundur íslandsbanka hf. árib 1992 veröur haldinn í Súlnasal, Hótel Sögu, mánudaginn 6. apríl 1992 og hefst kl. 16.30. Dagskrá: 1. Abalfundarstörf í samræmi vib 19. gr. samþykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum bankans. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Hluthafar, sem vilja fá ákvebib mál tekib til mebferbar á abalfundinum skulu í samrœmi vib ákvœbi 16. greinar samþykkta bankans gera skriflega kröfu um þab til bankarábs, Kringlunni 7, ísíbasta lagi 26. mars 1992. Abgöngumibar ab fundinum og atkvœbaseblar verba afhentir hluthöfum eba umbobsmönnum þeirra í útibúi íslandsbanka, Kringlunni 7, 1., 2. og 3. apríl nœstkomandi kl. 9.15 - 16.00 svo og á fundardegi. Ársreikningur félagsins fyrir árib 1991, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verbur hluthöfum til sýnis á sama stab. Reykjavík, 20. mars 1992. Bankaráb íslandsbanka hf. ÍSLANDSBANKI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.