Dagur - 24.03.1992, Page 7

Dagur - 24.03.1992, Page 7
Þriðjudagur 24. mars 1992 - DAGUR - 7 - gerði jafntefli við ÍR í æsispennandi leik þar sem jafnt var á nánast öllum tölum Toppliðin í 2. deild karla í handbolta, Þór og ÍR, skildu jöfn í æsispcnnandi leik í Iþróttahöllinni á Akureyri sl. föstudag. Með jafnteflinu lögðu Þórsarar aðra hönd á Islandsbikarinn sem veittur er fyrir sigur í 2. deildinni og dag- inn eftir lögðu þeir hina hend- ina á gripinn, er Völsungur og IR gerðu jafntefli á Húsavík. Bæði Þór og IR eiga einn leik eftir, Þór gegn Aftureldingu og ÍR gegn Fjölni en Þórsarar hafa þriggja stiga forystu í efsta sætinu og því er 2. deild- artitilinn í höfn. Leikur Þórs og ÍR á föstudags- kvöld einkenndist af mikilli bar- áttu og taugaveiklun leikmanna. Þórsarar fóru illa með tvö góð færi í lokin og hefðu með smá heppni getað farið með sigur af hólmi. Fyrst átti Rúnar Sigtryggs- son skot í stöng úr góðu færi þeg- ar innan við fjórar mín. voru eftir og þá skaut Jóhann Samúelsson í slá úr vítakasti þegar innan við ein mín. var eftir og staðan 18:18. Það var Sævar Árnason sem jafnaði fyrir Þór um 2 mín. fyrir leikslok, með marki úr vinstra horninu. Lokatölur leiksins urðu 18:18, eftir að staðan var jöfn í leikhléi 10:10. Jafnt var öllum tölum í leiknum, fyrir utan að ÍR-ingar náðu tvívegis tveggja marka for- ystu, 10:8 og 17:15. „Það var virkilega gott að ná stigi hér í kvöld,“ sagði Hermánn Karlsson fyrirliði Þórs að leik loknum og var að vonum ánægð- ur. „Ég tel það vel að verki staðið miðað við nýtinguna hjá liðinu. Við héldum ekki haus á tímabili í leiknum en náðum þó öðru stig- inu. Þetta var ótrúlega jafn leikur enda mikið í húfi fyrir bæði lið.“ Hermann sagðist mjög sáttur við árangur liðsins f vetur og er bjart- sýnn á gott gengi í 1. deildinni næsta vetur. „Við höldum okkar mannskap og styrkjum liðið frek- ar fyrir næsta vetur og stefnum að góðum árangri í 1. deildinni," sagði Hermann Karlsson. Ole Nielsen var bestur Þórsara og skoraði 8 af fyrstu 12 mörkum Þórsara. Jóhann Samúlesson og Sævar Árnason áttu ágæta spretti en aðrir hafa leikið betur. Sér- staklega áttu þeir Rúnar Sig- tryggsson og Atli Rúnarsson erfitt uppdráttar og Rúnar sem hefur verið einn helsti markaskorari liðsins í vetur, komst ekki á blað að þessu sinni. Hins vegar náðu strákarnir öðru stiginu og það dugði til sigurs í deildinni. Hjá ÍR var Hallgrímur Jónas- son markvörður góður og einnig átti Róbert Rafnsson ágætan leik. Dómarar voru þeir Guðmund- ur Lárusson og Arnar Kristinsson og komust þeir ágætlega frá sínu. Mörk Þórs: Ole Nielsen 8/3, Jóhann Samúlesson 4, Sævar Árnason 4, Atli Rúnarsson 1, Ólafur Hilmarsson 1 (með vinstri). Mörk ÍR: Róbert Rafnsson 4, Frosti Guðlaugsson 3, Sigfús Orri Bollason 3, Magnús Ólafsson 2, Matthías Matthías- son 2, Ólafur Gylfason 2, Jóhann Ásgeirsson 2. -KK íslandsmótið í júdó: KA-menn hlutu sex titla íslandsmótið í júdó í ilokkum, karla yngri en 21 árs og flokki fullorðinna fór fram í Reykja- vík á laugardaginn. KA sendi keppendur á mótið og unnu þeir allir til verðlauna, sex gullverðlauna, þriggja silfur- verðlauna og fímm bronsverð- launa. Upphaflega stóð til að að keppa einnig í flokki yngri en 18 ára en á síðustu stundu var keppni í þeim flokki frestað. Norðanmenn voru óhressir með þá ráðstöfun þar sem margir KA- menn höfðu ætlað að keppa bæði í flokki yngri en 21 og 18 ára en hafa ekki efni á að fara tvisvar suður og því urðu keppendur frá KA aðeins átta talsins en ekki sautján eins og upphaflega stóð til. Á mótinu var keppt í sjö þyngd- arflokkum og opnum flokki full- orðinna og fimm þyngdarflokk- um karla yngri en 21 árs, samtals þrettán flokkum. KA-menn og Ármenningar unnu sex flokka hvort félag og UMFG einn. Einnig voru keppendur frá Júdófélagi Reykjavíkur, Þrótti, Ólafsvtk og Selfossi, samtals um níutíu talsins. í flokki yngri en 21 árs kepptu KA-mennirnir Rúnar Sæland og Sævar Sigursteinsson í -60 kg flokki. Sævar sigraði örugglega og Rúnar vann bronsið. í -65 kg flokki sigraði Hans Rúnar Snorrason örugglega annað árið í röð og í -78 kg flokki sigraði Freyr Gauti Sigmundsson þriðja árið í röð. í -95 kg flokki sigraði Vernharð Þorleifsson auðveld- lega. KA vann því fjóra flokka Freyr Gauti Sigmundsson og Baldur KA. en gat ekki unnið þann fimmta þar sem félagið átti þar engan keppanda. 1 fullorðinsflokki hlaut Rúnar Sæland bronsverðlaun í -60 kg flokki en Sævar Sigursteinsson veiktist og gat ekki keppt í full- orðinsflokknum sem var óheppi- legt þar sem hann hafði verið tal- inn sigurstranglegur. Hans Rúnar Snorrason og Baldur Stefánsson kepptu í -65 kg flokki og sigraði Baldur af öryggi en Hans hlaut bronsverðlaunin. í -78 kg flokki sigraði Freyr Gauti Sigmundsson en í -86 kg flokki tapaði Guð- laugur Halldórsson úrslitaglím- unni eftir mjög harða viðureign. Jón Jakobsson hlaut bronsverð- laun í +95 kg flokki. Og þá er komið að hlut Vern- harðs Þorleifssonar. Hann keppti Stefánsson, tveir af íslandsmeisturum til úrslita við Bjarna Friðriksson í -95 kg flokki og var viðureignin afar tvísýn. Á síðustu augnablik- unum náði Bjarni armlás og gafst Vernharð upp einni sekúndu fyr- ir lok glímunnar. í opna flokkn- um sigraði Vernharð síðan Sigurð Bergmann sannfærandi í undanúrslitum og glímdi aftur til úrslita við Bjarna en varð að sætta sig við ósigur eftir snarpa viðureign. Guðlaugur Halldórs- son hlaut bronsverðlaun í opna flokknum. Jón Óðinn Óðinsson, þjálfari KA, var ánægður með árangjr- inn og sagði að eftir mótið væri ljóst að KA ætti orðið fjóra kepp- endur sem væru framarlega á alþjóðlegum mælikvarða, Bald- ur, Frey Gauta, Guðlaug og Vernharð. Ole Niclsen var besti leikmaður Þórsara og hér fær hann óblíðar viðtökur hjá Ólafi Gylfasyni. Mynd: Goiií Nýtt íþróttafélag stofnað í Skagafirði Nýtt íþróttafélag var stofnað í Skagafírði um helgina. Félagið er öllum opið, en áherslan lögð á íþróttir fatlaðra og aldraðra. Stofnfélagar eftir stofnfund eru þrjátíu talsins, en að sögn Sólveigar Jónasdóttur, geta menn skráð sig stofnfélaga fram í maímánuð. „Það var mikill áhugi og vel- vilji fyrir stofnun á þessu félagi. Bæjarstjórn Sauðárkróks tók okkur t.d. inn á sína fjárhags- áætlun, en félagið er samt sem áður fyrir alla Skagfirðinga, ekki bara Króksara. Stærsta málið sem framundan er hjá félaginu er að taka þátt í íslandsmeistara- móti fatlaðra og þar munum við verða með sveit í boccia,“ segir Sólveig. í stjórn félagsins sitja auk Sól- veigar: Þórhallur Ásmundsson, Karólína Gunnarsdóttir, Ingi- björg Stefánsdóttir og Kári Steinsson, en varamenn eru Anna Hjaltadóttir og Fanney ísold Karlsdóttir. SBG Körfuknattleikur: Vaiur í tveggja leikja bann Vaiur Ingimundarson, þjálfari og leikmaður körfuknattleiks- liðs Tindastóls, byrjar næsta keppnistímabil í úrvalsdeild- inni á að taka út tveggja leikja bann. Valur fékk brottvísun í síðasta leik Tindastóls gegn Skallagrími en fékk tveggja leikja bann þar sem hann átti yfir höfði sér dóm fyrir annað brot. Tim Harvey, Snæfelli, var dæmdur í eins leiks bann á sama fundi aganefndar sem fram fór í síðustu viku.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.