Dagur


Dagur - 24.03.1992, Qupperneq 13

Dagur - 24.03.1992, Qupperneq 13
Þriðjudagur 24. mars 1992 - DAGUR - 13 Tónlist Nemendatónleikar píanódeildar Það er ætíð skemmtilegt að sækja nemendatónleika tónlistarskól- anna. Það eru reyndar ekki ætíð slegnar réttu nóturnar og ekki heldur gallalaus flutningurinn. En sá andi, sem svífur yfir, hið unga tónlistarfólk, sem sumt hvert á ef til vill framtíð fyrir höndum í tónlistinni og sem allt hefur lagt tíma sinn og metnað í það að gera svo vel sem því er unnt, gefur stundinni og staðnum blæ, sem er óviðjafnanlegur og hugnæmur. Tónleikar píanódeildar Tón- listarskólans á Akureyri voru haldnir í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju laugardaginn 21. mars. Tuttugu og sjö nemendur komu fram og léku verk eftir fjölda höfunda bæði lífs og liðna. Fyrstu sex verkin voru eftir meistarann J. S. Bach. Verk hans eru svo fjölbreytt að gerð og spanna slíkt svið getu, að þau eru afar vinsæl sem verkefni nemenda á hvaða stigi sem þeir eru. Auk þess vill svo til, að 21. mars er fæðingardagur tónskálds- ins og því afar vel við hæfi að heiðra minningu hans með þess- um hætti. Önnur verk á verkefnaskrá píanónemendanna voru flest eftir klassísk tónskáld. Flest voru þau erlend, en út af brá þó í tveim til- fellum. Erik Newman lék verk eftir Snorra S. Birgisson, sem hann nefnir Slökkviliðið. Þetta er afar nútímalegt smástykki, flutt af skemmtilegu öryggi af hinum unga píanista. Hitt íslenska verk- ið var eftir Gunnar Reyni Sveins- son og nefnist Melos (II, I). Gunnar Benediktsson flutti verk- ið og gerði það afar snyrtilega. Af öðrum flytjendum, sem athygli vöktu, má nefna Sigur- íslenskukennsla! 1. Kennum málfræði, stafsetningu og lestur. 2. Kennnum útlendingum íslensku, einstaklings- eða hópkennsla. Vanir kennarar. Upplýsingar í síma 11339, milli klukkan 18 og 20. Hreinsið sjálf. Leigjum teppahreinsivélar. Hjá okkur færðu vinsælu Buzií hreinsiefnin. Teppahúsið. Tryggvabraut 22, sími 25055. Giuggaþvottur - Hreingerningar -Teppahreinsun - Rimlagardfnur. Tek að mér hreingerningar á íbúð- um, stigagöngum og stofnunum. Teppahreinun með nýlegri djúp- hreinsivél sem skilar góðum ár- angri. Vanur maður - Vönduð vinna. Aron Þ. Sigurðsson. Sími 25650. Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer í símsvara. Verð við píanóstillingar á Akur- eyri dagana 29. mars til 3. apríl. Upplýsingar í síma 96-25785. ísólfur Pálmarsson, píanósmiður. Pianóstillingar. Verð á Akureyri og nágrenni dag- ana 23.-27. mars. Uppl. og pantanir í síma 21014 og 96-61306. Sindri Már Heimisson, hljóðfærasmiður. KEA byggingavörur, Lónsbakka. Vantar hillur í búrið? - Vantar hillur í skápinn? Sögum eftir máli hvít- húðaðar hillur eftir óskum ykkar. Seljum einnig ýmsar gerðir af plöt- um eftir máli (spónaplötur, M.D.F. krossvið o.fl.). Nýtt - Nýtt. Plasthúöaðar skápahurðir og borðplötur í nokkrum litum, einnig gluggaáfellur. Sniðið eftir máli. Reynið viðskiptin. Upplýsingar í timbursölu símar 96- 30323 og 30325. Tökum að okkur daglegar ræst- ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ennfremur allar hreingerningar, teppahreinsun og gluggaþvott. Ný og fullkomin tæki. Securitas, ræstingadeild, símar 26261 og 25603. □KUKENNSLFI Kenni á Galant, árg. '90 Hreingerningar, teppahreinsun, þvottur á rimlagardínum, leysum upp gamalt bón og bónum. Tökum að okkur hreingerningar, teppahreinsun og bón í heimahús- um og fyrirtækjum. Þvoum rimlagardínur, tökum niður og setjum upp. Leiga á teppahreinsivélum, sendum og sækjum ef óskað er. Einnig höfum við söluumboð á efn- um til hreingerninga og hreinlætis- vörum frá heildsölurnarkaðinum BESTA í Kópavogi. Gerum tilboð í daglegar ræstingar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Opið virka daga frá kl. 8-12. Fjölhreinsun, Fjölnisgötu 6c, Inga Guðmundsdóttir, sfmi 11241, heimasími 25296, símaboðtæki 984-55020. ÚKUKENNSLA - ÆFINGATÍMAR Útvegum öll gögn, sem meö þarf, og greiðsluskilmálar við allra hæfi. JÓN S. RRNRBON Sími 22935. Kenni ailan daginn og á kvöldin. Minningarkort minningarsjóðs Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð Jónasar og Bókvali. Minningarspjöld Akureyrarkirkju fást í Safnaðarheimili kirkjunnar, Bókvali og Blómabúðinni Akri í Kaupangi. veigu Árnadóttur, sem lék Til Elísu eftir L. van Beethoven af umtalsverðu öryggi, og Áshildi Hlín Valtýsdóttur, sem flutti Allegro í D-dúr eftir C. Ph. E. Bach fallega. Síðustu tveir nemendurnir voru greinilega komnir lengst á tónlistarbrautinni. Þau voru Sunna Sigurðardóttir, sem flutti Malaguena op. 165, nr. 3 eftir I. Albéniz, og Davíð Bragason, sem lék Polonaise í A-dúr op 40 eftir Fr. Chopin. Bæði léku af verulegu öryggi og náðu talsverðri túlkun í flutning sinn. Leikur Sunnu var þýöur og ljúflegur og reis ekki ætíð sem skyldi, en flutningur Davíðs var dálítið kantaður og ekki eins syngjandi og æskilegt hefði verið. Á nemendatónleikum stórs tónlistarskóla eins og Tónlistar- skóla Akureyrar gefst áheyrend- um kostur á að hlýða á mestallt það svið, sem nemendur skólans eru á - allt frá ungum nemend- um, sem eru stutt komnir í námi sínu, upp í þá, sem eru farnir að sjá fram á lok veru sinnar við skólann. Þær aðstæður eru hollar hverjum þeim, sem tónlist ann. Það er æskilegt að vera minntur á það, að tónlistarflutningur er mikið starf og að undirbúningur þess að verða frambærilegur tón- listartúlkandi langur ferill, sem krefst margra ára erfiðis og atorku. Að hafa þennan stig allan fyrir eyrum á einum tónleikum er tækifæri, sem fæstir ættu að láta fram hjá sér fara. Haukur Ágústsson. GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 Á söluskrá: Kringlumýri: Einbýlishús á þremur pöll- um með nýlegum rúml. 40 fm bdskúr, samtals ca. 235 fm. Eignin hefur verið endurnýj- uð að hluta t.d. nýtt eldhús og saunabað. Eignin er laus 1. júlí. Áhvílandi langtímalán ca. 2,0 millj. Lyngholt: 4ra-5 herb. neðri hæð í tví- býli ásamt bílskúr, samtals ca. 170 fm. Eignin er í mjög góðu lagi. Laus fljótlega. Steinahlíð: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum, samtals ca. 136 fm. Eignin er mikið endurnýjuð og er i fyrsta flokks ástandi. Laus snemma í maí. FASTDGNA& (J skipasalaZ&T N0RÐURLANDS O Giérsrgötu 36, 3. hæð Síml 11501 Opið virka daga ki. 14.00-18 3( á öðrum tímum eftir samkomulag Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: jm Benedikt Ólafsson hdl. íf" Staða fóstru við barnaheimilið Stekk er laus til umsóknar Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi. Barnaheimilið Stekkur er leikskóli fyrir börn á aldrin- um 2ja-6 ára og er rekinn af Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Leikskólinn er ætlaður fyrir börn starfs- manna sjúkrahússins. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ásta Guðjónsdóttir, leikskólastjóri, í síma 96-22100. Umsóknir sendist leikskólastjóra fyrir 26. mars 1992. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. it Hjartkær bróðir okkar, JÓN INGIMAR KRISTJÁNSSON, frá Brautarhóli, lést 21. mars á Kristnesspítala. Jarðarförin ákveðin síðar. Systur hins látna. Elskuleg dóttir mín, eiginkona, móðir og amma, REGÍNA AXELSDÓTTIR, lést að heimili sínu, Ránargötu 3, Akureyri, 22. mars. Jarðarförin fer fram í Akureyrarkirkju, föstudaginn 27. mars kl. 13.30. Anna Stefánsdóttir, Vigfús Hjaltalín, Jónberg Vigfússon, Vilberg Geir Vigfússon, Anna Jóna Vigfúsdóttir, Regína Ósk Óðinsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, HALLGRÍMS THORLACÍUS, öxnafelll. Lifið heil! Sesselja Andrésdóttir, og fjölskylda. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför mannsins míns, föður okkar, sonar og bróður, ÁSGEiRS S. JÓNASSONAR Steinahlíð 5i, Akureyri. Fyrir hönd vandamanna, Haiia irpadóttir, Silley Hrönn Ásgeirsaoí!.'.1; Fannar Geir Ásgeirsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.