Dagur - 27.03.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 27. mars 1992
Fréttir
Ungmennafélagið Efling:
Frumsýning í kvöld á
Fugli í búri og Fótaferð
Aðalbjörg Pálsdóttir og Snorri Kristjánsson í hlutverkum sínum.
Mynd: Víkurblaðið
Visa ísland:
Tugmilljóna hagnaður
á síðasta árí
-árið 1991 hagstætt greiðslukortafyrirtækinu
UMF Efling í Reykjadal frum-
sýnir tvo einþáttunga, Fugl í
búri og Fótaferð, að Breiðu-
mýri í kvöld kl. 21. Leikstjóri
er María Sigurðardóttir, en
hún leikstýrði einnig hjá félag-
inu fyrir tveimur árum er það
frumsýndi Sveitasinfóníu
Ragnars Arnalds eftir talsvert
langt hlé á leikstarfsemi.
„Áhugi fyrir leikstarfsemi er
mikill, en það er mikið að gera
hjá fólki,“ sagði Aðalbjörg Páls-
dóttir, formaður leikdeildar Efl-
ingar, aðspurð um áhuga á leik-
listarstarfseminni í Reykjadal.
Sex sýningar á einþáttungunum
hafa verið ákveðnar en sýningar-
tími á verkinu verður mjög tak-
markaður.
Níu leikendur koma fram í
þáttunum en alls starfa 15-20
manns að sýningum þeirra.
Einþáttungarnir fjalla báðir
um líf kvenna, en gerast á ólíkum
tímum, á ólíkum stöðum og fjalla
um ólík líf. Fugl í búri er eftir
Iðunni og Kristínu Steinsdætur
og hefur aðeins einu sinni verið
sýndur áður, á vegum Félags
eldri borgara. Þátturinn fjallar
um ekkju og myndir úr lífshlaupi
hennar koma fram er börn henn-
ar halda upp á 75 ára afmælið.
Þátturinn er sagður skemmtileg-
ur og bregða upp myndum af
mannlegu hliðinni á lífinu á
átakalausan hátt.
Fótaferð er einn af þremur
sjálfstæðum þáttum úr verkinu
Kona eftir Dario Fo og Franca
Rame. Hólmfríður Jóhannes-
dóttir glímir þarna við einleik í
mjög skemmtilegu verki.
„Við vonum að við fáum góða
aðsókn á sýningarnar, þó mikið
sé um að vera um þessar
mundir," sagði Aðalbjörg Páls-
dóttir, í samtali við Dag. IM
Athugasemd
- vegna fréttar um
kartöflumarkaðinn
í frétt Dags sl. miðvikudag um
kartöflumarkaðinn kom fram að
vegna kartöflumyglu hafi orðið
mikil afföll af uppskeru síðasta
sumars.
Rétt er að taka það fram, til að
forðast misskilning, að kartöflu-
myglu hefur til þessa ekki orðið
vart á Norðurlandi; hún hefur
eingöngu verið bundin við Suður-
land.
Hagnaður Visa ísland á síðasta
árí nam 127 milljónum króna.
Þegar tekið hefur verið tillit til
skattagreiðslna nemur nettó-
hagnaður 65 milljónum króna.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn fyrir skömmu og sagði
stjórnarformaður þess, Jóhann
Ágústsson, þar að árið 1991
hafí verið félaginu hagstætt og
aukið umfang í allri starfsemi
þess.
Hagnaður Visa íslands eykst
verulega milli áranna 1990 og
1991 en fyrrnefnda árið var hann
63 milljónir fyrir skattagreiðslur.
Heildarvelta í Visa-viðskiptum á
árinu 1991 nam 35,7 milljörðum
króna og jókst um 3,8 milljarða,
eða 15,2%, frá árinu áður. Þetta
er nokkru minni aukning við-
Samgönguráðuneytið hefur
auglýst stöðu flugmálastjóra
lausa til umsóknar.
Staðan er veitt frá og með 1.
skipta en á árinu 1990 þegar þau
jukust um yfir 20%.
Af viðskiptum með Visa-kort á
síðasta ári eru 30 milljarðar
innanlands og 5,7 milljarðar
erlendis.
Á aðalfundinum kom fram að
hlutfallslega varð mest aukning á
sjálfvirkum reglubundnum greiðsl-
um, svonefndum boðgreiðslum,
sem námu 3 milljörðum á síðasta
ári og hafa aukist um 185% á síð-
ustu tveimur árum. Þá jukust
raðgreiðslur einnig umtalsvert á
árinu og námu í heild 2,3 millj-
örðum króna á árinu, sem er
34% aukning frá árinu 1990.
Greiðslur erlendra ferða-
manna með Visa-kortum hér á
landi aukast jafnt og þétt og
námu tæpum milljarði á síðasta
ári. JÓH
júní 1992 en umsóknarfrestur er
til 10. apríl. Það er samgönguráð-
herra sem veitir stöðuna að feng-
inni umsögn flugráðs.
PIZZA-
HÚS
PIZZA-
HÚS
FRI HEIMSENDINQ • SIMI 22525
BAR
BAR
riOTALEGUR STADUR
TÓNLISTARSTADUR
DROPINN
HAFNARSTRÆTI 98 • AKUREYRI
STORSYNING
5RIDDS
Alfreðsmótið í bridds:
Mótið jafnframt Akureyrarmót
Staða flugmálastjóra auglýst
O1 Á HEIMILISTÆKJUM OG SAUMAVÉLUM ”13]
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
í sveitakeppni og tvímerniingi
Nú stendur yfir á vegum
Bridgefélags Akureyrar,
Alfreðsmótið, sem er minning-
armót um Alfreð Pálsson.
Mótið er jafnframt Akureyrar-
mót í sveitakeppni og tvímenn-
ingi og eru pörin dregin saman
í sveitakeppnina. Spilað er eft-
ir Butler fyrirkomulagi.
Þegar lokið er 17 umferðum af
24 er staðan í mótinu þessi:
Sveitakeppni:
1.-2. Stefán Stefánsson, Gunnar
Berg, Skúli Skúlason og Gunnar
Berg jr. 110
1.-2. Árni Bjarnason, Svein-
björn Jónsson, Jón A. Her-
mannsson og Viðar Sigurjónsson
110
3. Ormarr Snæbjörnsson, Jónas
Róbertsson, Magnús Magnússon
og Reynir Helgason 49
4. Ólafur Ágústsson, Tryggvi
Gunnarsson, Haukur Jónsson og
Haukur Steinbergsson 34
Tvímenningur:
1. Jón A. Hermannsson/Viðar
Sigurjónsson 94
2. -3. Örn Einarsson/Hörður
Steinbergsson 86
2.-3. Ármann Helgason/Sigfús
Hreiðarsson 86
4. Magnús Magnússon/Reynir
Helgason 78
5. Tryggvi Gunnarsson/Ólafur
Fyrir skömmu lauk firmakeppni
Bridgefélags Siglufjarðar. Spil-
aður var þriggja kvölda tví-
menningur og spiluðu því þrjú
pör fyrir hvert fyrirtæki. Röð
efstu fyrirtækja var þessi:
stig
1. Þormóður Eyólfsson hf. 430
2. Berghf. 425
3. Stálvík Sl. 1 421
4. Kranaleiga Þorsteins 420
5. L.V.N.V. 416
Efstu pörin eftir þessi þrjú
kvöld voru þessi: stig
1. Ásgrímur Sigurbjörnsson -
Jón Sigurbjörnss. 469
2. Reynir Pálsson -
Stefán Benediktsson 428
Ágústsson 71
6. Pétur Guðjónsson/Stefán
Ragnarsson 57
3. Birgir B./Gottskálk R./
Þorsteinn J. 405
4. Jónas Stefánsson -
Þorleifur Haraldsson 395
5. Sigfús Steingrímsson -
Sigurður Hafliðason 394
Nú stendur yfir aðalsveita-
keppnin og taka 12 sveitir þátt í
henni. Lokið er 7 umferðum af
11 og er staðan á toppnum
þannig: stig
1. Björk Jónsdóttir 157
2. Þorsteinn Jóhannsson 132
+ biðleikur
3. íslandsbanki 124
+ biðleikur
4. Níels Friðbjarnarson 121
5. Stefán Benediktsson 115
Bridgefélag Sigluijarðar:
Sveit Bjarkar efst
í aðalsveitakeppniimi