Dagur - 27.03.1992, Blaðsíða 11
Föstudagur 27. mars 1992 - DAGUR - 11
Iþróttir
Badminton:
Sterkt Pro Kennex mót í Höllinni
- flórði sterkasti Daninn meðal þátttakenda
Um helgina fer fram Pro
Kennex mótið í badminton í
Skíði:
Unglingameistara-
mótið um helgina
Unglingameistaramót íslands
á skíðum verður haldið á
ísafirði og í Reykjavík um
helgina.
Á ísafirði fer fram keppni í
alpagreinum 13-14 ára og í
göngu 13-16 ára. Alpagreinar
15-16 ára fara hins vegar fram
í Bláfjöllum. Keppt verður í
göngu, boðgöngu, svigi, stór-
svigi og samhliðasvigi.
Akureyri:
Fjölmennustu
glímumót frá
upphafi?
Um hclgina fara fram
Grunnskólamót Glímu-
sambands íslands og Meist-
aramót Íslands/Landsflokka-
glíman í íþróttaskemmunni
á Akureyri. Útlit er fyrir að
þetta verði fjölmennustu
glímumót sem sögur fara af
hérlendis.
Á laugardeginum kl. 15
hefst Grunnskólamótið og
verður keppt í 14 flokkum.
Skráðir keppendur eru 122.
Meistaramótið hefst einnig á
sama stað kl. 15 á laugardag
og verður fram haldið kl. 9 á
sunnudag. Þar eru skráðir
keppendur 116.
Liðlega helmingur kepp-
enda kemur frá HSK. Einnig
eru Þingeyingar fjölmennir að
vanda og nú hafa Eyfirðingar
hafið glímukeppni á ný og
verða með um helgina. Vík-
verjar og KR-ingar senda
einnig stóran hóp í mótin.
Knattspyrna:
Oraiarr í
landsliðið
Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, hefur
valið 16 manna hóp sem
mætir ísraelum í ísrael 8.
aprfl. Mesta athygli vekur
að Ormarr Örlygsson, leik-
maður KA, er kominn í
landsliðshópinn á nýjan
leik.
Hópurinn er þannig skipað-
ur:
Markverðir
Birkir Kristinsson Fram
Friðrik Friðriksson ÍBV
Aðrir lcikmenn
Einar Páll Tómasson Val
Atli Helgason Víkingi
Kristján Jónsson Fram
Baldur Bjarnason Fram
Kristinn R. Jónsson Fram
Valur Valsson UBK
Arnar Grétarsson UBK
Rúnar Kristinsson KR
Ormarr Örlygsson KA
Eyjólfur Sverrisson Stuttgart
Arnór Guðjohnsen Bordeaux
Sigurður Grétarsson Grasshopper
Guðni Bergsson Tottenham
Þorvaldur Örlygsson Nott. Forest
Ólafur Þórðarson, Lyn, og
Andri Marteinsson, FH, geta
ekki tekið þátt í leiknum
vegna meiðsla.
Iþróttahöllinni á Akureyri.
Allir sterkustu badminton-
menn landsins mæta til leiks
ásamt fjórum erlendum spilur-
um og fer þar fremstur í flokki
Michael Sögaard sem er fjórði
sterkasti einliðaleiksmaður
Danmerkur.
Sögaard mun spila tvíliðaleik
með Þorsteini Páli Hængssyni og
má búast við jafnri og spennandi
keppni bæði í einliðaleik og tví-
liðaleik. Broddi Kristjánsson
mætti Sögaard á móti fyrir
skömmu og hafði Daninn þá bet-
ur í oddalotu og mun Broddi án
efa ætla sér að hefna þeirra ófara.
Á mótinu verður einnig Mike
Brown, landsliðsþjálfari íslands,
en hann bar sigur af Brodda á
Reykjavíkurmótinu fyrir tveimur
vikum. Tveir Norðmenn, Anders
Tandberg-Johansen og Fridjof
Berents, taka þátt í A-flokki
karla í einliða- og tvíliðaleik.
Þeir eru Noregsmeistarar í tví-
liðaleik í flokki 21 árs og yngri.
Þarna eru á ferðinni mjög góð-
ir útlendingar og er ekki vafi á að
þetta mót verður það sterkasta
sem haldið hefur verið á Akur-
eyri. Það hefst í dag kl. 18 á leikj-
um í A-flokki en meistaraflokk-
urinn byrjar keppni kl. 9 í fyrra-
málið. Áætlað er að úrslitin hefj-
ist um kl. 16 á morgun.
Akureyrarmótið í handknattleik:
Úrslitaleikur KA og Þórs
I kvöld mætast meistaraflokk-
ar KA og Þórs í seinni leik lið-
anna í Akureyrarmótinu í
handknattleik. Leikurinn fer
fram í KA-húsinu og hefst kl.
18.
Það er jafnan nokkur viðburð-
ur þegar þessi lið mætast enda
ekkert gefið eftir og leikmenn lítt
hrifnir af því að bíða lægri hlut
fyrir „erkifjendunum." Leikur
þessi er merkilegur fyrir ýmissa
hluta sakir, m.a. er nú orðið ljóst
að bæði liðin leika í 1. deild að
ári og því fróðlegt að sjá hvar þau
standa í innbyrðis viðureignum.
Að auki verður þetta fyrsti leikur
Þórsara í hinu nýja íþróttahúsi
KA.
KA-menn hafa haft undirtökin
f handboltanum síðustu árin en í
haust unnu Þórsarar sögulegan
sigur á KA, þann fyrsta í opin-
berum leik í 13 ár. Þórsurum
tókst ekki að fylgja þessu eftir í
fyrri leik liðanna í Akureyrar-
mótinu, KA vann örugglega
19:14 og má búast við að Þórsar-
ar hyggi á hefndir.
RUV:
Útsendingar frá B-keppninni
Sjónvarpið mun að öllum lík-
indum sýna beint lokamínút-
urnar úr leik Norðmanna og
Dana í B-keppninni í kvöld. Sá
leikur ræður úrslitum um hvort
ísland hafnar í einu af fjórum
efstu sætum keppninnar og
kemst í A-keppnina í Svíþjóð.
Útsendingin kemur þá inn í
fréttatímann en leiknum lýkur
um kl. 20.15.
Sjónvarpið sýnir beint báða
úrslitaleikina um 1. og 3. sætið á
sunnudaginn, um 3. sætið kl. 13
og 1. sætið kl. 15. Ef ísland leikúr
um sæti sem er neðar fer sá leikur
fram um morguninn og verður
honum ekki sjónvarpað en lýst
beint á Rás 2.
Leikur íslands og ísraels verð-
ur sýndur beint kl. 15 í dag.
Knattspyrna:
Ami Stef. í Magna
Árni Stefánsson hefur ákveðið
að taka fram knattspyrnuskóna
á nýjan leik og spila með
Magna í 3. deildinni í sumar.
Árni, sem er kunnur harðjaxl á
knattspyrnuvellinum, spilaði
síðast 1989, þá sem þjálfari og
leikmaður með 2. deildarliði
Leifturs.
Árni sagði í samtali við Dag að
ástæðurnar fyrir því að hann tæki
fram skóna á nýjan leik væru
fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi
væri Nói Björnsson, þjálfari
Magna, búinn að nudda töluvert
í sér og í öðru lagi væri hann
búinn að spila handbolta með
KA í vetur og því kominn í
þokkalegt form sem hann vildi
halda við. „Mér líst bara vel á
þetta og það verður gaman að
prófa að spila í 3. deildinni. Ég
þekki flesta þessa stráka vel og
veit að Nói er góður þjálfari og
við stefnum að því að gera góða
hluti. Það þýðir ekkert annað en
að vera bjartsýnn."
Árni er 33 ára gamall og hefur
Árni Stefánsson.
gífurlega reynslu sem kemur
Magnaliðinu örugglega vel.
Hann hefur leikið um 250 leiki í
1. og 2. deild.
Þá hefur Gísli Úlfarsson, fyrr-
um leikmaður UMSE-b, æft með
Magna upp á síðkastið en ekki er
ljóst hvort hann leikur með liðinu
í sumar.
Jón Haukur Brynjólfsson
Haukur. Hrefna.
Bikarúrslitaleikirnir í blaki:
Bæði KA-liðin í úrslitum
Á morgun ráðast úrslitin í
bikarkeppni karla og kvenna í
blaki þegar úrslitaleikirnir fara
fram í Digranesi í Kópavogi.
Karla- og kvennalið KA eru
bæði í úrslitum, karlarnir
þriðja árið í röð og mæta
Þrótti Reykjavík en konurnar,
sem mæta ÍS, leika í fyrsta sinn
til úrslita í keppninni. Karlalið
KA er núverandi bikarmeist-
ari.
Flestir hallast að því að ÍS eigi
titilinn vísan í kvennaflokknum
enda virðist liðið það sterkasta á
landinu í dag. Hrefna Brynjólfs-
dóttir er leikmaður KA og hefur
séð um þjálfun liðsins upp á síð-
kastið og hún sagði að vænting-
arnar til ÍS kæmu KA til góða.
„Það býst enginn við neinu af
okkur og það er ágætt. ÍS hefur
verið á miklu skriði upp á síð-
kastið, á mjög góða möguleika á
íslandsmeistaratitlinum og er
auðvitað mun sigurstranglegra.
Þær verða vonandi sigurvissar en
við ætlum að gera okkar besta og
það getur allt gerst.“
Heiða Sigfúsdóttir leikur ekki
með KA-liðinu en hins vegar er
Karítas orðin nokkuð góð af
meiðslum sem hafa háð henni. Þá
hafa tveir eldri spilarar ákveðið
að spila með í úrslitaleiknum,
þær Sigurhanna Sigfúsdóttir og
Birna Kristjánsdóttir, en þær
hafa ekki verið með í vetur. „Þær
styrkja okkur tvfmælalaust og
mér finnst möguleikar okkar hafa
aukist verulega upp á síðkastið,"
sagði Hrefna.
Karlarnir of sigurvissir?
Haukur Valtýsson, fyrirliði
karlaliðsins, var ekki of bjartsýnn
þegar blaðið hafði samband við
hann í gær. „Við vinnum þennan
leik ef við tökum hann alvarlega
en mér finnst hugarfarið ekki
hafa verið rétt hjá liðinu upp á
síðkastið. Menn virðast telja að
þetta verði létt og mér líst illa á
það. Við erum sterkari á pappím-
um en það skiptir engu þegar út í
leikinn er komið, staðan er 0:0
þegar hann byrjar og það má
búast við erfiðum leik. Þróttarar
eru með mikla reynslu og þekkja
okkar lið vel og þeir unnu okkur
auðveldlega í úrslitaleik fyrir
tveimur árum. Við höfum enn
tvo daga til að hrista upp í mann-
skapnum en ef það tekst ekki
gæti illa farið.“
Búast má við að Shao Baolin
leiki ekki með KA í úrslitaleikn-
um. „Þróttarnir hafa eitthvað
verið að stríða Stúdentunum út
af Fei og það má búast við kæru-
málum ef við notum Shao. En
það á ekki að koma að sök ef við
verðum rétt stemmdir og leikum
af eðlilegri getu,“ sagði Haukur.
„Ekki tyrir
hvalavini"
Vorum að taka upp stóra stendingu af
„Death metal“ geisladiskum,
með hljómsveitum eins og:
Napalm death, Morbid Angel, Boltthrower,
Godflesh, Terrorizer, Filthy Cristians, Carcass,
Entombed, Hellbastard, Nocturnus, Massacre,
Fudge Tunnel, Cathedral, Confessor og fl.
Nýr „Death metal“ safndiskur:
„Gods of grind“
Hefurðu heyrt nýja
Defleppard dlsklnn?
i
VORHHUS
Póstkröfusíminn
k er 96-30478
f Hljómdeild
Þar sem úrvalið er!