Dagur - 27.03.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 27. mars 1992
Hvaðeraðgerast?
Reykjavíkurkvartettinn. Frá vinstri Zbigniew Dubik, fiðla,
Rut Ingólfsdóttir, fiðla, Guðmundur Kristmundsson, lág-
fiðla, og Inga Rós Ingólfsdóttir, selló.
Akureyrarkirkja:
Reykjavíkurkvartettiim
á tónleikum á sunnudag
Rey kj avíkurkvartettinn
spilar á tónleikum í Akur-
eyrarkirkju nk. sunnudag
29. mars kl. 17 á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar.
Kvartettinn skipa þau Rut
Ingólfsdóttir, fiðla, Zbign-
iew Dubik, fiðla, Guð-
mundur Kristmundsson,
lágfiðla og Inga Rós Ing-
ólfsdóttir, selló. Flutt verða
verk eftir Jón Leifs, E.
Grieg og Beethoven. Rétt
er að geta þess að fyrir tón-
listarskólanema er ókeypis
aðgangur.
Reykjavíkurkvartettinn
var stofnaður árið 1990.
Hann hefur komið fram á
mörgum tónlistarhátíðum,
t.d. á Myrkum músíkdög-
um, Kirkjulistahátíð í
Reykjavík, á Sumarhátíð á
Þingeyrum og á hátíð
strengjakvartetta í Litháen
í september sl.
Upplyfting og Rúnar
Júlíusson í Sjailamim
Leikdeild Ungmf.
Skriðuhrepps:
Leikdeild Ungmennafélags
Skriðuhrepps bregður fyrir
sig betri fætinum um helg-
ina með leiksýninguna um
Bör Börsson jr. í gærkvöld
var allra síðasta sýning á
Melum í Hörgárdal þar sem
verkið hefur verið sýnt 17
sinnum en 18. sýningin verð-
ur í Ljósvetmngabúð í S-
Þingeyjarsýslu á laugar-
dagskvöld og hefst hún kl.
2L____________________
Freyvangsleikhúsið:
Þriðja sýningar-
helgi á Messíasi
Freyvangsleikhúsið sýnir
rokkóperuna „Messías
Mannsson" tvisvar um
helgina. Sýningarnar verða
í kvöld og annað kvöld og
hefjast báða dagana kl.
20.30.
í næstu viku verða sýning-
ar á fimmtudag og síðan á
föstudags- og laugardags-
kvöld, auk miðdegissýning-
ar á sunnudag.
Akureyri:
Bókamarkaðnum
lýkur á sunnudag
Stóra bókamarkaði Félags
íslenskra bókaútgefenda og
Skjaldborgar hf. í kjallara
kjörmarkaðs KEA við
Hrísalund lýkur á sunnu-
dag. Óhætt er að segja að
markaðurinn hafi gengið
vel, því yfir 30 þúsund bæk-
ur hafa þegar selst. Þessa
síðustu daga verður sér-
stakt tilboð á bókum. Meðal
annars verður boðið upp á
12 bóka bókapakka fyrir
500 krónur.
Bókamarkaðurinn verð-
ur opinn í dag kl. 9 til 19, á
morgun kl. 10 til 18 og á
sunnudag kl. 13 til 18.
Upplyfting á KEA
Hljómsveitin Upplyfting
ásamt Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur sér um fjörið
á Hótel KEA annað kvöld,
laugardagskvöld. Hjörtur
Howser Ieikur fyrir matar-
gesti.
Leikfélag Akureyrar
frumsýnir um helgina
íslandsklukkuna eftir Hall-
dór Laxnes og af því tilefni
býður Hótel KEA upp á
leikhúsmatseðil fyrir 1900
krónur sem samanstendur
af rjómalagaðri laxasúpu
með hvítlauksristuðum
brauðteningum, léttsteikt-
um lambavöðva á villi-
sveppagrunni og kaffi og
konfektköku.
Bflasalan Stórholt:
Toyota-sýning
ámorgun
Bílasalan Stórholt á Akur-
eyri verður á morgun, laug-
ardag, kl. 10-17 með sýn-
ingu á öllu því nýjasta frá
Toyota. Þarna verða
nýjustu gerðir af Toyota
Camry, Toyota 4runner,
Toyota Corolla og Toyota
Hilux.
Auk þess að skoða þessa
nýju gerðir Toyota-bifreið-
anna gefst fólki kostur á
setjast undir stýri og prófa
bílana.
Starfsmaður frá auka-
hlutadeild Toyota verður á
staðnum.
Leikfélag Dalvíkur:
Tvær sýningar
á Rjúkandi ráði
um helgina
Sýning Leikfélags Dalvíkur
á söng- og gamanleiknum
Rjúkandi ráð eftir Pír O.
Man, öðru nafni Stefán
Jónsson og Jónas og Jón
Múli Árnasynir, gengur
mjög vel og þarf að leita
nokkuð langt aftur í tímann
til að finna jafnvinsæla sýn-
ingu hjá félaginu. Er áhorf-
endafjöldinn orðinn um
þúsund manns.
Tvær sýningar verða um
helgina, föstudag og laugar-
dag, og hefjast kl. 21 bæði
kvöldin. Auglýst er að hér
sé um síðustu sýningar á
þessum vinsæla gamanleik
að ræða.
Skákfélag Akureyrar:
Fimmtánmín.
mót í kvöld
Skákfélag Akureyrar held-
ur 15 mínútna mót í kvöld,
föstudagskvöld, kl. 20.
Teflt verður í skákheimil-
inu við Þingvallastræti.
Þetta er sjötta og næst
síðasta stigamótið í röð 15
mínútna móta í vetur og
jafnframt góð æfing fyrir
deildakeppnina um aðra
helgi, en þar er sveit Skák-
félags Akureyrar í topp-
baráttunni í 1. deild.
Ungmennafél. Efling:
Sýnir tvo
einþáttunga
á Breiöumýri
Ungmennafélagið Efling í
Reykjadal frumsýnir tvo
einþáttunga á Breiðumýri í
kvöld kl. 21.00. Um er að
ræða „Fugl í búri“ eftir
Iðunni og Kristínu Steins-
dætur og „Kona“ eftir Dar-
io Fo og Franca Rame.
Næstu sýningar verða
sunnudaginn 29. mars kl.
16.00, þriðjudaginn 31.
mars kl. 21.00, föstudaginn
3. apríl kl. 21.00, laugar-
daginn 4. apríl kl. 15.00 og
sunnudaginn 5. apríl kl.
21.00.
Aðeins er um fáar sýn-
ingar að ræða og því betra
að tryggja sér miða f tíma.
Miðapantanir eru teknar í
síma 43110 milli kl. 13 og
16 alla virka daga og í síma
43145 sýningardagana.
Norðurljósin:
Fjáröflunarhátíð
á sunnudagiim
Fjáröflunarhátíð Norður-
ljósanna, kvikmyndir og
kaffi, verður haldin á
skemmtistaðnum 1929 á
Akureyri næstkomandi
sunnudag og hefst kl. 16.
Norðurljósin eru samnefn-
ari fyrir hóp barna sem hafa
verið á leiklistarnámskeið-
um hjá Erni Inga og mun
hópurinn fara á heimsmót
barnaleikhópa í Tyrkiandi í
næsta mánuði.
Sýndar verða tvær stuttar
kvikmyndir eftir Örn Inga,
einnig upptaka með Norð-
urljósunum, óvæntar uppá-
komur verða og glæsilegt
kaffihlaðborð. Vonast er til
að einstaklingar sem fyrir-
tæki sjái sér fært að styrkja
ieikhópinn til Tyrklandsfar-
arinnar.
Aldreián
dóttur minnar
í Borgarbíói
Borgarbíó á Akureyri sýnir
um helgina kl. 21 stór-
myndina Aldrei án dóttur
minnar með Sally Field,
Alfred Molina, Sheila Ros-
enthal og Roshan Seth í
aðalhlutverkum. Myndin er
byggð á sannsögulegum
atburðum og greinir frá
bandarískri konu sem fór
með írönskum eiginmanni
til írans ásamt dóttur
þeirra. Þar breyttist líf
þeirra í martröð og baráttu
upp á líf og dauða.
Klukkan 21.05 verður
sýnd gamanmyndin Holly-
woodlæknirinn með Micha-
el J. Fox í aðalhlutverki.
Klukkan 23 verða sýndar
myndirnar Dularfullt
stefnumót (Mystery Date)
og Glæpagengið
(Mobsters).
Á barnasýningum á
sunnudag kl. 15 verða sýnd-
ar myndirnar Lukkuláki og
Supermann.
Björgunarsveitin
Ægir á Grenivík:
Opið hús
í nýrri
félagsaðstöðu
Á morgun, laugardaginn
28. mars kl. 14.00, verður
björgunarsveitin Ægir á
Grenivík með opið hús.
Tilefnið er að sveitin hefur
fengið inni í gamla Kaup-
félagshúsinu við Ægisgötu
og er þar að taka í notkun
nýja félagsaðstöðu.
Boðið verður upp á kaffi-
veitingar, auk þess sem
búnaður sveitarinnar verð-
ur til sýnis. Þá verður í
gangi samkeppni um nafn á
nýju aðstöðuna og verður
veitt viðurkenning fyrir það
nafn sem notað verður.
Grenvíkingar og nær-
sveitarmenn eru hvattir til
þess að líta við á Ægisgöt-
unni á morgun og kynna sér
starfsemi björgunarsveitar-
innar.
Akureyri:
Biggí Mar hjá
IiB og flöri
Skemmtiklúbburinn Líf og
fjör efnir til dansskemmt-
unar í Alþýðuhúsinu Skipa-
götu 14 á Akureyri annað
kvöld, laugardagskvöldið
28. mars kl. 22 til 03. Húsið
verður opnað kl. 21.30.
Hljómsveit Birgis
Marinóssonar sér um
fjörið.
Háskólinn á Akureyri:
Fyrirlestur
um Grímsvötn
í Vatnajökli
Magnús T. Guðmundsson
flytur opinn fyrirlestur í
Háskólanum á Akureyri í
dag. Fyrirlesturinn hefst kl.
17.00 en ekki kl. 16.00 eins
og missagt var í Degi í gær.
Magnús nefnir fyrirlest-
urinn: Grímsvötn í Vatna-
jökli: Innri gerð eldstöðvar
undir jökli. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og er
aðgangur ókeypis.
Nissan-sýning
um helgina
Um helgina verður bílasýn-
ing í sýningarsal bifreiða-
verkstæðis Sigurðar Valdi-
marssonar að Óseyri 5 á
Akureyri. Þar verður sýnd-
ur Nissan Patrol með 4.2
bensínvél og sjálfskiptingu.
Einnig verður Nissan
Sunny til sýnis.
Sýningin verður opin
milli 14 og 15 á laugardag
og sunnudag.
Akureyri:
Austurlenskur
maturáUppanum
í gær, fimmtudag, byrjaði
veitingastaðurinn Uppinn á
Akureyri á þeirri nýbreytni
að bjóða upp á austurlensk-
an mat. Um er að ræða
thailenskan, kínverskan og
indverskan mat.
Undirbúningur hefur
staðið yfir í nokkra mánuði
og er óhætt að segja að vel
hafi tekist til. Lögð verður
áhersla á að halda verði
skaplegu, mikilli fjölbreytni
og góðri þjónustu.
A næstu mánuðum verð-
ur síðan boðið upp á veislur
og heimsendingar. Þeir á
Uppanum mælast til þess
að Akureyringar komi og
prófi þessa nýbreytni.
Innan skamms mun Upp-
inn hafa aftur opið í hádeg-
inu á virkum dögum og
verður þá boðið upp á aust-
urlenska hraðrétti. Borða-
pantanir eru teknar í síma
24199.
Akureyri:
Undir tungl-
inu í 1929
- Eyjólfur á Uppanum
Hljómsveitin Undir tungl-
inu, leikur fyrir dansi f
skemmtistaðnum 1929 í
kvöld og annað kvöld. Að
venju verður boðið upp á
happy hour úr krana á milli
kl. 23.30 og 00.00.
Eyjólfur Kristjánsson
skemmtir gestum Uppans í
kvöld og annað kvöld.
Akureyri:
Portið opið
ámorgun
Að vanda verður líf og fjör
í Portinu í nýju slökkvi-
stöðinni við Árstíg á Akur-
eyri á morgun, laugardag-
inn 28. mars, kl. 11 til 16. Á
boðstólum verður m.a.
broddur, minjagripir og
veggplattar, prjónuð barna-
föt, spil, bækur, plötur,
myndir, lax, brauð, lakkrís,
postulínsvörur, keramik og
kartöflur.
Akureyri:
Sýning Leifs
Breiðprð heldur
áfram
Sýning Leifs Breiðfjörð í
Gallerí AllraHanda á
Akureyri heldur áfram um
helgina. Á morgun, laugar-
dag, verður opið frá kl. 10
til 18. Sýningin stendur út
næstu viku.
í kvöld leikur hljómsveitin
Upplyfting í Sjallanum.
Hljómsveitin Upplyfting er
að verða ein sú elsta í dans-
hljómsveitabransanum hér
á landi og hefur átt mörg
vinsæl lög sem komið hafa
út á hljómplötum á síðustu
árum. Síðustu ár hefur
söngkonan Sigrún Eva
Ármannsdóttir sungið með
hljómsveitinni og eins og
flestir vita mun hún standa
við hlið Sigríðar Beinteins-
dóttur á sviðinu í Svíþjóð í
apríl nk. þar sem þær
syngja sem fulltrúar íslands
Harmonikuunnendur:
Kafflhlað-
borð í Lóni
Harmonikuunnendur verða
með kaffihlaðborð í Lóni
við Hrísalund á Akureyri,
sunnudaginn 29. mars frá
kl. 15-17 og eru allir vel-
komnir.
Akureyri:
Sýning blaða-
ljósmyndara í
anddyri íþrótta-
hallarinnar
Að undanförnu hefur íbú-
um höfuðborgarsvæðisins
gefist kostur á að sjá ljós-
myndasýningu Blaða-
mannafélags íslands og
Blaðaljósmyndarafélags
íslands í Reykjavík. Nú
hefur tekist að fá sýning-
una, sem svo sannarlega
hefur slegið í gegn syðra,
norður yfir heiðar.
Sýningin verður í anddyri
íþróttahallarinnar á Akur-
eyri um helgina á morgun,
laugardaginn 28. mars, kl.
12.30 til 21 og nk. sunnu-
dag, 29. mars, kl. 12.30 til
19. Rétt er að ítreka að sýn-
ingin verður aðeins þessa
tvo daga.
Aðgangseyrir að sýning-
unni er 200 krónur.
í söngvakeppni Evrópskra
sjónvarpsstöðva.
Á laugardagskvöldið
verður stórsýningin Það er
svo geggjað - Saga af sveita-
balli og fer nú hver að
verða síðastur til að sjá
þessa skemmtilegu sýningu
sem gengið hefur í Sjallan-
um síðustu helgar.
Hljómsveitin Vinir og
synir leikur fyrir dansi til kl.
03.00 og tekur Rúnar
Júlíusson lagið með hljóm-
sveitinni á dansleiknum.
í Kjallaranum verður
karaoke söngvélin opin fyr-
ir gesti og hafa nokkrar nýj-
ar plötur bæst í safnið.
Æfingabúðir skólalúðra-
sveita í Hrafnagilsskóla:
Tónleikar fyrir
ahnemung
Um helgina gengst Tónlist-
arskóli Eyjafjarðar fyrir
æfingabúðum skólalúðra-
sveita á Norðurlandi í
Hrafnagilsskóla í Eyja-
fjarðarsveit. Þátttakendur
koma víðs vegar að af
Norðurlandi og verða um
200 talsins, flestir á aldrin-
um 7-16 ára. Aðalleiðbein-
endur verða Skarphéðinn
Einarsson, Michael Jacques
og Norman H. Dennis en
auk þeirra munu aðrir
stjórnendur sveitanna og
kennarar leggja hönd á
plóginn.
Dagskráin hefst í kvöld
með tónleikum Lúðrasveit-
ar Akureyrar, sem er fimm-
tíu ára um þessar mundir.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.
Á sunnudag verða svo
tónleikar þar sem fram
koma sveitir þær sem þátt
taka í æfingabúðunum og
leika þar hver í sínu lagi og
sameiginlega. Hefjast þess-
ir tónleikar kl. 14.
Aðgangur á tónleikana
er ókeypis og eru allir
hvattir til að mæta og
hvetja þetta unga tónlist-
arfólk til dáða.