Dagur - 09.04.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 9. apríl 1992
70. tölubiað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Sverrir Leósson. stjórnarformaður Útgerðarfélags Akurcyringa, flytur skýrslu stjórnar á aðalfundi fyrirtækisins í
gær. Honum á vinstrí hönd eru f.v. Gunnar Ragnars, framkvæmdastóri ÚA og stjórnarmennirnir Halldór Jónsson,
Asgeir Magnússon, Sigurður Jóhannesson og Pétur Bjarnason. Mynd: Goiii.
Pormóður rammi á Siglufirði:
Rekinn með 85,5 milljóna
hagnaði á síðasta ári
Rekstur Þormóðs ramma hf. á
Siglufírði skilaði 85,5 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári eft-
ir fjármagnsgjöld. Velta fyrir-
tækisins nam 888,2 miiljónum
á árinu og voru skuldir lækk-
aðar um 200 milljónir króna.
Hagnaður Þormóðs ramma á
árinu 1990 var 58,3 milljónir
króna.
Róbert Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
segist vera ánægður með rekstur-
inn á síðasta ári. „Reksturinn
kom mjög vel út og það er ljóst
að sameining Þormóðs ramma og
Drafnar hf. auk útboðs á nýju
hlutafé og sölu arðlausra eigna
Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf. í gær:
Engin rök fyrir því aö sjávar-
útvegurinn greiði auðlinaaskatt
sagði Sverrir Leósson, stjórnarformaður, þegar hann flutti skýrslu stjórnar
I skýrslu stjórnar Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf., sem
Sverrir Leósson, formaður
hennar flutti á aðalfundi
félagsins í gær, segir að ekki sé
undir neinum kringumstæðum
hægt að færa fyrir því rök að
Akureyri:
Engar lokanir
Þau þrettán fyrirtæki á Akur-
eyri, sem skulduðu virðisauka-
skatt og staðgreiðslu og bæjar-
fógetaembættið á Akureyri
hafði gefíð síðasta frest til að
greiða, gerðu upp áður en kom
til lokana.
Björn Rögnvaldsson, aðalfull-
trúi hjá bæjarfógetaembættinu á
Akureyri, segir að fyrirtækin hafi
haft frest til hádegis í gær til þess
að gera upp og fyrir þann tíma
hafi þau öll greitt skuldir sínar,
samtals 8,2 milljónir króna. óþh
sjávarútvegurinn eigi að greiða
fyrir aðgang að auðlindinni í
sjónum, hvort sem það sé kall-
að auðlindarskattur, aflagjald
eða eitthvað annað. „Slíkar
umræður verða að bíða síns
tíma og sá tími kemur ekki fyrr
en allri þessari aðlögun er lok-
ið og fyrirtækin hafa fengið
svigrúm til þess að afskrifa
þann kostnað sem af þessu hef-
ur leitt,“ segir í skýrslunni.
Eins og fram hefur komið nam
hagnaður af rekstri ÚA á síðasta
ári 86,6 milljónum króna. Heild-
areignir félagsins í árslok voru
bókfærðar á ríflega 3,3 milljarða
króna. Þá námu skuldir rúmum
1,8 milljarði króna og var eigið fé
í árslok því 1,478 milljarður
króna. Raunaukning eigin fjár á
síðasta ári nam 6%, en var um
17,2% árið áður. Eiginfjárhlut-
fall var í árslok 44,7%, en var
44,6% um næstliðin áramót.
Hreint veltufé er nú 11,6 milljón-
ir og veltufjárhlutfall 1,02, en var
174,5 milljónir og 1,40 árið áður.
í ársskýrslu ÚA kemur fram að
þessa lækkun megi rekja til
kaupa á Árbaki „auk þess sem
fjárfestingar á árinu voru að
miklu leyti fjármagnaðar með fé
úr rekstri.“
Heildarafli skipa félagsins nam
rúmum 23 þúsund tonnum í
fyrra, sem var tæplega þúsund
tonnum meiri afli en árið 1990.
Þarna hafði sitt að segja að Sól-
bakur EA-307 var í fullum rekstri
allt síðasta ár, en aðeins þrjá
mánuði árið 1990.
Bróðurpartur framleiðslu ÚA
fór í fyrra á fimm markaðssvæði.
Sem fyrr eru Bandaríkin stór, en
hlutur þeirra hefur þó dregist
umtalsvert saman. Að sama
skapi hefur aukist verulega
útflutningur til Frakklands og
reyndar hefur magnhlutur
Japans, Bretlands og Þýskalands
einnig aukist.
í fyrra störfuðu að meðaltali
500 manns hjá ÚA, en voru að
meðaltali 450 árið 1990. Hluthaf-
ar í félaginu voru um 1.800 í
árslok. Á aðalfundinum í gær var
tillaga stjórnar um að greiða hlut-
höfum 10% arð samþykkt.
óþh
hefur tekist og það er ekki hægt
að segja annað en afkoma fyrir-
tækisins hafi verið mjög góð.
Lausafjárstaða þess er mjög góð,
sem er að stórum hluta vegna nýs
hlutafjár,“ sagði Róbert.
Eigið fé Þormóðs ramma var
385 milljónir króna um síðustu
áramót, sem er 38%. Eigið fé var
rúmar 190 milljónir í fyrra, en
hefur nú tvöfaldast.
Hlutafé í Þormóði ramma er
240 milljónir króna að nafnvirði.
Róbert segir að á aðalfundi
félagsins verði lagt til að auka
hlutaféð. „Við viljum styrkja
fyrirtækið enn frekar og breikka
eignaraðildina,“ segir Róbert.
Hluthafar í Þormóði ramma eru
um 160 talsins og er hátt í 70%
hlutafjár í eigu heimamanna.
Stærstu hluthafar eru Marteinn
Haraldsson hf. og Ríkissjóður,
sem á 20%. Að sögn Róberts
hefur ekki verið rætt að Ríkis-
sjóður selji hlut sinn í fyrirtæk-
inu.
Róbert segir að lagt verði fyrir
aðalfundinn að greiða hluthöfum
10% arð, en það hefur ekki verið
gert áður í sögu Þormóðs ramma.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
hefur Þormóður rammi velt
meiru en sömu mánuði síðasta
árs. „En það er ljóst að útlitið
með afkomu er tvísýnt, sem helg-
ast fyrst og fremst af óvissu um
verð á saltfiski. En við erum ekk-
ert svartsýnir,“ sagði Róbert og
bætti við að erfitt væri að spá fyr-
ir um rekstur á nýjustu einingu
Þormóðs ramma, Sunnu SI-67,
sem nú er í sinni fyrstu veiðiferð.
„En það skip er mjög vel fjár-
magnað og mun því ekki sliga
fyrirtækið á nokkurn hátt,“ sagði
Róbert Guðfinnsson. óþh
Skinnauppboði lauk í Kaupmannahöfn í gær:
5% verðlækkun á mink og bláref
A skinnauppboöi í Kaup-
mannahöfn, sem lauk síðdegis
í gær, varð um 5% lækkun á
bæði minka- og blárefaskinn-
um miðað við uppboðið í
febrúar sl. Fjöldi íslenskra
skinna var boðinn upp í gær,
en Arvid Kro, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda, hafði í gærkvöld
ekki spurnir af sölu þeirra.
Af um 4 milljónum minka-
skinna seldust 3,4 milijónir og
var meðalverð á skinn 125 dansk-
ar krónur, eða um 1150 íslenskar
krónur. Þá voru boðin upp um 95
þúsund blárefaskinn og seldust
77% þeirra.
Arvid sagði að skýringin á
verðlækkuninni væri mikið fram-
boð á skinnum. Auk nýrra skinna
væri verið að selja birgðir frá
fyrri árum. óþh
Verður gervisnjór framleiddur í Böggvisstaðafjalli?
- raunhæfur kostur, að mati Jóns Hafldórssonar, verslunarmanns í Sportvík á Dalvík
Jón Halldórsson, verslunar-
maður í Sportvík á Dalvík,
sem lengi hefur verið í fram-
varöarsveit skíðaáhugafólks á
Dalvík, hefur mikinn áhuga á
kaupum á tækjabúnaði til
snjóframleiðslu fyrir skíða-
svæðið í Böggvisstaðafjalli
ofan Dalvíkur. Jón fór nýlega
til Östersund í Svíþjóð til að
kynna sér notkun og rekstur á
slíkum tækjabúnaði og niður-
staða hans að afíokinni þeirri
ferð er sú að hér sé um að
ræða raunhæfan möguleika
sem mönnum beri að skoða í
fullri alvöru.
Það þarf víst ekki að fjölyrða
um hvernig snjóleysið í vetur og
raunar undanfarna vetur hefur
leikið skíðafóik hér norðan
heiða. Miklir fjármunir hafa
verið lagðir í uppbyggingu
skíðasvæðisins á Dalvík með
dýrum skíðalyftum og nú síðast
glæsilegu húsi og því er mikil-
vægt að geta haft svæðið opið
fyrir almenning sem lengst yfir
veturinn þannig að það skili
tekjum. Með þetta í huga ákvað
Jón að gera alvöru úr því að
kanna þcssa hugmynd, sem
hann segist hafa lengi velt fyrir
sér.
En hvernig gengur slík snjó-
frantleiðsla fyrir sig? Að sögn
Jóns er gríðarlega mikið vatn
lykilatriði. Tækjabúnaðurinn
dælir vatninu út í loftið í fínum
úða, sein síðan frýs. Eftir því
sem frostið er meira, þeim mun
betri verður árangurinn. Hugs-
unin er sú að snjóframleiðslu-
tækin, sem vega rúm 500 kíló,
yrðu færanleg. Settir yrðu niður
brunahanar á mörgum stöðum í
skíðabrekkunum og tækjabún-
aðurinn tengdur við þá. Með
því móti þyrfti ekki að eyða
mikilli orku í að flytja til snjó í
skíðabrekkunum.
Ljóst er að auk kostnaðar við
kaup á sjálfum tækjabúnaðin-
um, þyrfti að leggja í töluverð-
an kostnað við vatns- og raf-
lagnir að honum. Jón segir erfitt
að skjóta á heildarkostnaðinn,
en úti í Svíþjóð kostar sjálft
snjóframleiðslutækið um 2 mill-
jónir króna.
Jón gerir sér góðar vonir um
að þessi hugmynd verði að
veruleika. Þarna sé um að ræða
kost, sem fleiri aðilar á Dalvík
en hann telji raunhæfan. Á
næstu misserum verður ntálið
kynnt og síðan væntanlega tek-
in ákvörðun. Á þessu stigi er
hins vegar ómögulegt að segja
hvort hugmyndinni verður
hrundið í framkvæntd. óþhj