Dagur - 09.04.1992, Síða 11
Fimmtudagur 9. apríl 1992 - DAGUR - 11
Fatasöfnunin vegna Kúrda:
Fötin komin til skila
Fötin sem fólk gaf í söfnun
Hjálparstofnunar kirkjunnar
til bágstaddra Kúrda eru nú
komin á leiðarenda. Jónas
Þórisson, framkvæmdastjóri
stofnunarinnar var nýlega á
ferð á meðal Kúrda og fylgdist
með útdeiiingu fatnaðar í skól-
um og á barnaheimilum. Enn á
eftir að deila einhverju magni
af fötum út en búið er að
skipuleggja hvert síðustu fata-
sendingarnar eiga að fara og
reiknað er með að dreifingu
fatnaðarins Ijúki á næstu
dögum.
Islendingar tóku tilmælum
Hjálparstofnunarinnar um fata-
gjafir handa Kúrdum af meiri
rausn en nokkurn hafði órað
fyrir. Mikið magn af fatnaði safn-
aðist saman á nokkrum dögum
um allt land. Norðlendingar létu
ekki sitt eftir liggja og safnaðist
mikið magn af fötum saman á
flestum stöðum - einkum voru
Siglfirðingar örlátir að öllum öðr-
um ólöstuðum. Fatnaðurinn var
síðan sendur héðan til Danmerk-
ur þar sem Hjálparstofnun
dönsku kirkjunnar tók við hon-
um og annaðist áframhaldandi
flutning hans til fjallahéraðanna í
norðurhluta írak við tyrknesku
landamærin þar sem hinir land-
flótta Kúrdar hafa bækistöðvar
sínar.
Jónas Þórisson ferðaðist um
bvggðir Kúrda ásamt starfs-
bræðrum sínum frá Danmörku
og kvað þá hafa unnið mikið starf
við erfiðar aðstæður. Mjög
„Skyldu þessir leistar passa í skóna
mína?“ - Islenska ullin kemur sér
vel í kulda og vosbúð hinna land-
flótta fjallabúa.
Handbók fyrir
skokkara
Út er komin handbók fyrir þá
sem vilja auka þrek sitt og þol,
Skokkarinn 1992. Bókin, sem
er 64 bls., er ætluð jafnt byrj-
endum og þeim sem lengra eru
komnir.
Fjallað er um öll helstu atriði
sem skipta máli fyrir skokkara
svo sem áhrif skokks á líkamann,
utbúnað, hlaupalag, teygjur,
æfingaaðferðir, æfingaáætlanir,
ráðleggingar um undirbúning fyr-
ir hlaup, mataræði og meiðsli.
Auk þess er í bókinni skrá yfir
hlaup árið 1992, hraðatöflur,
æfingadagbók og afrekaskrá
aldursflokka í hálfmaraþoni og
maraþoni.
Skokkarinn 1992 er gefinn út
af Útbreiðslunefnd Frjálsíþrótta-
sambands íslands. Höfundar eru
Sigurður P. Sigmundsson og
Gunnar Páll Jóakimsson.
Bókin kostar 1.200 kr. Hún
fæst á Akureyri í Bókabúð Jónas-
ar í Hafnarstræti. Auk þess er
hægt að panta hana hjá Frjáls-
íþróttasambandi íslands í síma
91-685525.
ánægjulegt væri að sjá hversu vel
hafi gengið að koma hjálpinni til
skila. Erlendar hjálparstofnanir
höfðu alla yfirumsjón með dreif-
ingu fatnaðarins en fengu inn-
lenda aðila í hverju þorpi til liðs
við sig. Innfæddir önnuðust
þannig síðasta stig dreifingarinn-
ar - að ráðstafa fatnaði til fjöl-
skyldna og skiluðu síðan listum
til hjálparstofnunarinnar um
hversu margar flíkur hver fjöl-
skylda fékk. Jónas kvaðst hafa
séð með eigin augum bæði börn
og fullorðna komna í íslenskar
lopapeysur og annan fatnað. ÞI
Sértilboð: Eitt símtal og við gerum þér tilboð
AKUREYRI
96*24838
Bílaleigan Örn
Flugvöllur og Tryggvabraut 1.
ÞÓRSHÖFN: Tel. 96-81175
VIÐ ÞJÓNUM ÞÉR
RVS-AVIS
Licency
íslcnskar lopapeysur - skyldi ein-
hver þekkja sina?
•Á'>V.
St
SUNNUHUÐ
VERSIXJNARMTOSTÖÐ
Munið laugardagsopnun
Fermingar- og
páskaskreytíngar
Kerti, servíettur
Fermingargjafir í úrvalí
BLÓMABUÐIN
LAUFÁS
Dragtír í úrvali
20% afsláttur
til páska
Nýtt frá LINDON
HABRO
Þvi færð fermingargjöfina hjá okkur t.d.
orðabækur, fræðibækur, gestabækur, albúm,
töskur, skartgripaskrín.
Einnig mikíð úrval af kortum
og gjafapappír, myndum og
myndarömmum
Pað borgar síg að líta ínn
IH TENS3Í
útvarpsvekjarar
Frá kr. 1.990,-
QfRafland hf.
Tónlist á föstudag frá kl. 14-16 - Arnar Quðmundsson
Ynja s. 25977 - Slétt og fellt s. 27224 - Ljósmyndabúðin s. 11030 - Samson s. 27044 - Tónabúðin s. 22111
Rafland s. 25010 - Pálína s. 27177 - HABRÓ s. 11119 -Trygging s. 21844 - M. H. Lyngdal s. 26399
Möppudýrið s. 26368 - Brauðbúð Kristjáns s. 25904 - Vaggan s. 27586 - Saumavélaþjónustan s. 11484
Blómabúðin Laufás s. 26250 - Búnaðarbanki íslands s. 27600 - Kjörbúð KEA s. 30387
Allt undír eínu þakí