Dagur - 19.05.1992, Síða 2
2 - DAgCIr - Þriðjiídagur 19! maí 1992
Fréttir
Fermingarbörn í Akureyrarkirkju árið 1942, eða fyrir 50 árum, komu saman á Akureyri um helgina. Þau rifjuðu
upp gamlar minningar með heimsókn í Barnaskóla Akureyrar, fóru saman út að borða á laugardagskvöld og sóttu
messu í Akureyrarkirkju sl. sunnudag þar sem þessi mynd var tekin af hópnum. Að messu lokinni snæddu ferming-
arbörnin léttan hádegisverð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og færðu við það tækifæri kirkjunni að gjöf 50 ein-
tök af nýlega útkomnum sálmabókarviðbæti. Eftir hádegi fór hópurinn í útsýnisferð um Akureyri, fram í Kristnes
og yfir í Vaðlahciði. Mynd: Golli.
Skýrsla sjömannanefndar kynnt eyfirskum bændum:
Yfirvofandi mnflutningur land-
búnaðarafurða veldur þrýstingi
Norðurland vestra:
Sumar-
stemmning í
næturlífinu
Lögreglumenn á Norðurlandi
vestra áttu náðuga daga um
helgina og þurftu lítil afskipti
að hafa af fólki.
Laganna verðir á Sauðárkróki
segja þó, að með suðlægum vind-
um aðfaranótt laugardags, hafi
sumarstemmning skapast í bænum
og fólk verið lengi frameftir að
spjalla við Bakkus konung. SBG
Kennarar sam-
þykktu miðl-
unartiilöguna
Fyrir helgina lauk talningu
atkvæða í atkvæðagreiðslu
Kennarasambands íslands um
miðlunartillögu ríkissáttasemj-
ara.
Á kjörskrá voru 3576.
Atkvæði greiddu 3105 eða
86,83%. Já sögðu 1368 eða 44%,
nei sögðu 1438 eða 46,31%.
Auðir seðlar voru 251 eða 8,08%
og ógildir 50 eða 1,61%.
Miðlunartillagan skoðast sam-
þykkt þar sem mótatkvæði náðu
ekki 50%. óþh
Bókasafn S-Þing:
Þijár umsóknir
um stöðu
forstöðumanns
Þrjár umsóknir hafa borist um
stöðu forstöðumanns Bóka-
safns Suður-Þingeyinga, en
fleiri umsóknir gætu verið á
leiðinni í pósti þar sem
umsóknarfrestur rann ekki út
fyrr en 14. maí sl.
Regína Sigurðardóttir, for-
maður stjórnar bókasafnsins,
vildi ekki gefa upp nöfn umsæk-
enda að svo komnu máli, en
sagði að stjórn safnsins mundi
fjalla um umsóknirnar á fundi á
þriðjudag.
Elín Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður bókasafnsins, sagði starfi
sínu lausu í mars sl. IM
Á síðustu 12 árum hefur inn-
vigtuð mjólk til mjólkurbúa að
jafnaði verið mun meiri en sala
mjólkurafurða á innlendum
markaði. Á árinu 1988 náðist
nokkurn veginn jafnvægi á
milli framleiðslu og sölu innan-
lands og árið 1989 var innan-
landssalan heldur meiri en inn-
vigtað mjólkurmagn. Síðan
hefur bilið aukist á ný og nú
þarf að minnka mjólkurfram-
leiðsluna um 4,5 milljónir lítra.
Þetta var kjarninn í ræðu Guð-
mundar Sigþórssonar, deildar-
stjóra í Landbúnaðarráðuneyt-
inu og formanns sjömanna-
nefndar, er hann kynnti
skýrslu nefndarinnar á fundi á
Akureyri á föstudagskvöld.
í skýrslunni er rakin þróun
mjólkurframleiðslunnar og sala
mjólkurafurða síðastliðin 12 ár.
Með búmarkinu og kjarnfóður-
gjaldi, sem komið var á árið
1980, dró snögglega úr fram-
leiðsu mjólkur og nálgaðist hún
þarfir innanlandsmarkaðarins
verulega. Var mjólkurframleiðsl-
an um 102 milljónir lítra árið
1981. Síðan slaknaði á fram-
leiðslustjórnuninni og fram-
leiðsla jókst á nýjan leik því
búmarkskerfið setti framleiðend-
um ekki skýr framleiðslumark-
mið fyrirfram, heldur var gert
upp eftir á þegar fyrir lá að hve
miklu leyti útflutningsbætur
höfðu nægt til að bæta halla af
útflutningi.
Með samþykkt búvörulaganna
árið 1985 og tilkomu fullvirðis-
réttarins dró úr framleiðslunni á
nýjan leik og var hún komin nið-
ur í tæpar 100 milljónir lítra árið
1989. Vegna ákvæða í þeim
búvörusamningi um aukningu
fullvirðisréttar, ef innanlands-
neysla færi yfir ákveðin mörk,
jókst fullvirðisréttur framleið-
enda um 500 þúsund lítra frá
verðlagsárinu 1990/1991 til 1991/
1992 og var bændum heimilað að
framleiða allt að 15% umfram
fullvirðisréttinn árið 1991. Vegna
þessara ákvarðana fór mjólkur-
framleiðslan í um 107 milljónir
lítra á sama tíma og innanlands-
neyslan dróst saman á ný. Hún er
nú aðeins um 100 milljónir lítra.
Haukur Halldórsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda, ræddi
meðal annars um af hverju
bændasamtökin hefðu gerst aðil-
ar að þjóðarsáttinni á síðastliðnu
ári. Bændur hefðu gengið til
þeirra samninga undir ákveðinni
pressu vegna umræðna um að
opnað yrði fyrir innflutning á
landbúnaðarvörum og að slíkt
yrði jafnvel notað sem lausn í
kjarasamningum. Pá hefðu
bændur einnig tapað vegna verð-
hækkana á hverju ári þótt verð-
lagsgrundvöllurinn hafi verið
leiðréttur eftir á.
Björn Arnórsson, hagfræðing-
ur BSRB, sagði það mikinn
árangur að bændur hefðu gerst
aðilar að þjóðarsáttinni. Mark-
miðið hefði verið að treysta stöðu
innlendrar búvöruframleiðslu á
markaðnum því í umræðum
manna hefði beinlínis verið farið
að æpa á innflutning landbúnað-
arafurða. Björn kvað augljóst að
GATT-samningarnir yrðu að
veruleika, hvað sem um EES-
samninginn yrði og hverju sem
hann myndi breyta fyrir landbún-
aðinn. Því yrði að mæta ákveð-
inni samkeppni frá innfluttum
vörum með aðlögun.
Nokkrar umræður urðu að
loknu máli frummælenda. Bænd-
ur lýstu m.a. áhyggjum sínum
vegna fyrirhugaðs samdráttar í
mjólkurframleiðslu og veltu fyrir
sér hvaða áhrif hann kæmi til
með að hafa á landbúnaðinn og
atvinnulíf á þeim stöðum þar sem
vinnsla landbúnaðarafurða vegur
þungt hvað atvinnumöguleika
varðar. Í>I
Húsavík:
Einn ölvaður
ökumaður
áferð
Einn ökumaður var tekinn á
Húsavík um helgina vegna
gruns um ölvun við akstur, en
annars var rólegt að sögn lög-
reglu.
Ókumenn virðast hafa tekið
við sér hvað notkun öryggisbelta
varðar á síðustu dögum, en lög-
reglan hefur fylgst vel með notkun
bílbeltanna. IM
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
tvo hönnunarsamninga vegna
nýbyggingar við Amtsbóka-
safnið á Akureyri. Annars
vegar er það samningur við
Verkfræðistofu Norðurlands
um gerð vinnuteikninga og út-
boðsgagna vegna burðarþols-,
frárennslis-, neysluvatns-, loft-
ræsi-, og slökkvivatnsteikn-
inga. Samningsupphæð er kr.
6.850.000 án virðisaukaskatts.
Hins vegar samningur við Raf-
tákn hf. um gerð raflagna-
teikninga. Samningsupphæð
er 1.840.000 án virðisauka-
skatts.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
einfalda bæjarábyrgð til trygg-
ingar lánum samtals að upp-
hæð 8 milljónir króna vegna
byggingar Safnaðarheimilis
Akureyrarkirkju.
■ Sömulciðis hefur bæjarráð
samþykkt einfalda bæjar-
ábyrgð til tryggingar lánum
samtals að upphæð 35 milljón-
ir króna vegna byggingar
Glerárkirkju.
■ Bæjarráð hefur synjað
erindi Baldurs Björnssonar
Borgarsíðu 13 um lagfæringu á
lóð lians vegna skemmda, sem
hann telur sig hafa orðið þegar
grafið var fyrir húsi á lóðinni
Borgarsíðu 7.
■ Hafnarstjórn hefur tekið
tilboði Adolfs Bjarnasonar í
stálþil og íestingar frá Tysscn
að upphæð kr. 17.474.692.
Um er að ræða 70 metra stálþil
ásamt göflum, stögum og fest-
ingum.
■ Menningarmálanefnd hef-
ur samþykkt að veit 4 nem-
endum úr Tónlistarskólanum
styrk að upphæð 80 þúsund til
ferðar til Bandaríkjanna á
námskeið fyrir strengja-
nemendur.
■ Einnig hefur menningar-
málanefnd samþykkt að veita
hópi 9 myndlistarmanna, sem
kallar sig „Trójuhesturinn“,
80 þúsund króna styrk vegna
fyrirhugaðrar sýningar í Safn-
aðarheimili Akurevrarkirkju í
næsta mánuði.
■ Fjórir kennarar við grunn-
skóla Akureyrar hafa sagt upp
störfum. Þeir eru Hulda Árna-
dóttir, Glerárskóla, frá 1.
september nk., Jón Eyfjörð,
Gierárskóla, frá 1. ágúst nk.,
Ragnheiður G. Gunnarsdótt-
ir, Glerárskóla, frá 1. sept-
ember nk. og Þorbjörg Vil-
hjálmsdóttir, Lundarskóla, frá
1. ágúst nk.
■ Samkvæmt bréfi frá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu hefur Ingimar
Eydal verið skipaður formað-
ur áfengisv.árnanefndar til
fjögurra ára frá 1. apríl 1992.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
erindi oddvita Árskógshrepps
og Svarfaðardalshrepps um
heimild til urðunar sorps á
Glerárdal frá þessum sveitar-
félögum.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að veita bæjarstjóra fullt
umboð til lántöku fyrir Akur-
eyrarbæ allt að 450 milljónir
króna vegna Bæjarsjóðs, Hita-
veitu og Framkvæmdasjóðs.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt með fyrirvara um eld-
varnir leyfi til að innrétta
skrifstofur og gistiheimili í
húsinu nr. 13 við Strandgötu.
fluqfélaq
nordurlands hf.
Flugfélag Norðurlands
auglýsir nýtt símanúmer
frá og með 19. maí
í
12100