Dagur - 19.05.1992, Síða 6

Dagur - 19.05.1992, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 19. maí 1992 ÁkaJl um hjálp! Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli þína á þeim mannréttindabrotum sem sagt er frá hér að neðan og vonar að þú sjáir þér fært að skrifa bréf til hjálpar fórnarlömb- um þeirra. Þú getur lagt fram þinn skerf til þess að samviskufangi verði lát- inn laus eða að pyndingum verði hætt. Boðskapur þinn getur fært fórnarlömbum „mannshvarfa" frelsi. Þú getur komið í veg fyrir aftöku. Fórnarlömbin eru mörg og mannréttindabrotin margvís- leg, en hvert bréf skiptir máli. íslandsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort til stuðnings því fólki sem hér er sagt frá, og krefst einungis undirskriftar þinnar. Hægt er að gerast áskrif- andi að þessum kortum með því að hringja eða koma á skrifstofu samtakanna að Hafnarstærti 15, virka daga frá kl. 16-18 í síma 16940 eða senda okkur línu í pósthólf 618, 121 Reykjavík. Gana Jaacob Jabuni Yidana er fyrrum yfirlögregluforingi sem hefur set- ið af sér átta ára fangelsisdóm og er nú í gæsluvarðhaldi án ákæru og undangenginna réttarhalda. Að öllum líkindum er ástæða varðhaldsins sú, að hann bendl- aði ríkisstjórnina við morð á þremur hæstaréttardómurum og liðsforingja á eftirlaunum árið 1982. Hann er samviskufangi. Jacob Yidana tilkynnti niður- stöður rannsóknar sinnar til sér- staks Rannsóknarráðs, og komst að þeirri niðurstöðu að lögsækja ætti 10 manns vegna morðs, þ.ám. æðsta yfirmann Öryggis- lögreglunnar. Fjórir í þessum hópi manna voru fundnir sekir um morð árið 1983 og teknir af lífi. Þeir höfðu verið dæmdir af opinberum dómstóli sem talinn var hallur undir yfirvöld, án þess að njóta aðstoðar verjanda. Fimm aðrir sem bendlaðir voru við morðin, þar með talinn yfir- maður Öryggislögreglunnar voru ekki lögsóttir, að öllum líkindum af pólitískum ástæðum. I ágúst 1983 var Jacob Yidana einnig sakfelldur af sama dóm- Sumarbúðirnar við Vestmannsvatn Innritun er hafin og er virka daga kl. 17-18.30. Síminn er 96-27540. Skrifstofa Byggðastofnunar á Egilsstöðum Undirbúningur að stofnun skrifstofu Byggðastofnun- ar á Egilsstöðum stendur nú yfir og leitar stofnunin að forstöðumanni fyrir skrifstofuna. Skrifstofum stofnunarinnar á landsbyggðinni er ætl- að að annast verkefni stofnunarinnar í vaxandi mæli. Skrifstofu Byggðastofnunar á Egilsstöðum er ætlað að annast samskipti stofnunarinnar við fyrirtæki, sveitafélög og aðra á Austurlandi auk þess verður unnið að ýmsum verkefnum sem ná til landsins. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku í atvinnuþróunar- starfi landshlutans og gerð svæðisbundinna áætl- anna. Um er að ræða krefjandi en jafnframt gefandi starf á sviði sem er þjóðarbúinu afar mikilvægt. Upp- bygging skrifstofunnar hvílir á herðum forstöðu- mannsins. Stofnunin leitar að manni með háskólamenntun. •Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra bankamanna og bankanna. Þeir sem hug hafa á að sækja um þetta starf eru beðnir um að senda umsókn sína ásamt upplýsing- um um menntun og starfsreynslu til Guðmundar Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar, sem veitir nánari upplýsingar um starfið, fyrir 15. júní 1992. Byggðastofnun Rauðarárstíg 25 -105 Reykjavík • Sími 91-605400. Bréfasími 91-605499 • Græn lína 99-6600. stóli, án þess að hafa rétt til áfrýjunar, fyrir að hafa leynt ein- um leiðtoga misheppnaðrar upp- reisnar sem gerð var 1982. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi. Vitni saksóknara voru, sam- kvæmt heimildum, annað hvort pynduð eða beitt ýmis konar öðr- um þrýstingi til að fá fram falsað- ar sannanir gegn honum. Jacob Yidana var settur í gæsluvarðhald í júlí 1988. Þetta kom í veg fyrir lausn hans frá skilorði þá, eða við lok dómsins á árinu 1991. í desember 1991 var ósk um að dómari úrskurðaði um lögmæti frelsissviptingarinnar vísað frá og ríkisstjórnin gaf út afturvirka fyrirskipun sem gerði ríkisstjórn- inni kleift að halda honum áfram. Lögin sem stuðst var við eru frá árinu 1982 og veitir leyfi til ótak- markaðs gæsluvarðhalds, án rétt- ar og ákæru „af þjóðaröryggis- ástæðum". Rétturinn til að rengja gæsluvarðhald af þessu tagi var afnuminn af ríkisstjórn- inni árið 1984. Frá því 1981 hefur hundruðum manna verið haldið í krafti þessarra laga, sumum í meira en átta ár. Vinsamlegast sendið bréf og farið fram á að Jacob Yidana verði látinn laus nú þegar og án skilyrða. Skrifið til: Flight-Lieutenant J.J. Rawlings Chairman, Provisional National Defence Council PO box 1627 Accra Ghana. E1 Salvador María Cristina Gómez, meðlim- ur í stéttarfélagi kennara, var drepin af „dauðasveit“ í San Salvador hinn 5. apríl 1989. í apríl fyrir þremur árum neyddu fimm vopnaðir menn, borgaralega klæddir, barnaskóla- kennarann Maríu Cristinu Gómez inn í bíl. Nemendur hennar ásamt öðrum vitnum horfðu á án þess að geta nokkra rönd við reist. Tveimur klukkustundum síðar fannst lík hennar með sár eftir fjórar byssukúlur og brunasár víðs vegar um líkamann. María Cristina Gómez var virkur félagi í stéttarfélagi kennara og í kvennahreyfingu. Vitni að morðinu og mannrétt- indahreyfingar rekja morðið, sem framið var í anda „dauða- sveitanna", til meðlima flughers- ins. Yfirvöld gerðu hins vegar lítð til að finna þá seku; vitnis- burði sjónarvotta var hvorki fylgt eftir né var krufning framkvæmd. Fjölskylda hennar bíður enn eftir því að réttlætinu verði fullnægt. María Cristina Gómez er í hópi óteljandi fjölda borgara sem hafa verið teknir af lífi án dóms og laga síðan 1980 sem herinn og „dauðasveitirnar“ hafa tengst. Meðlimir stéttarfélaga og ann- arra grasrótarsamtaka hafa orðið sérstaklega fyrir barðinu á dráp- um og „mannshvörfum" hinna vopnuðu sveita sem hafa ásakað fórnarlömbin um að styðja Farabundo Martí skæruliðasam- tökin (FMIN). Flest málin hafa aldrei verið rannsökuð og aftök- ur án dóms og laga hafa haldið áfram án þess að hinir seku hafi verið leiddir fyrir rétt. í janúar 1992 gerðu ríkisstjórn- in og FMLN með sér friðarsátt- mála sem skuldbatt báða aðila til að virða ýmis atriði varðandi almenn mannréttindi. Rannsókn- arnefnd var stofnuð til þess að rannsaka öll obeldisverk beggja aðila allt frá 1980 „sem hafa haft þau áhrif á samfélagið að miklu skiptir að almenningur fái að vita sannleikann um þau“. Þau mann- réttindabrot sem eru ekki rann- sökuð af nefndinni falla undir sérstök lög um sakaruppgjöf sem sett voru í síðastliðnum janúar og veita afbrotamönnum friðhelgi. Öll fórnarlömb mannréttinda- brota og ættingjar þeirra eiga rétt á að sannleikurinn um þessi mál verði gerður opinber. Mál Maríu Cristinar Gómezar og önnur af sama tagi mega ekki liggja órann- sökuð og þá sem ábyrgir eru ætti að leiða fyrir dómstóla til að koma í veg fyrir að slíkir glæpir endurtaki sig. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að mannrétt- indaskilmálarnir í friðarsáttmál- anum verði notaðir til þess að varpa ljósi á morð Maríu Cristinar Gómez og til að flýta nákvæmum rannsóknum á öllum ásökunum um aftökur án dóms og laga. Skrifið til: Procurador Nacional de Derechos Humanos Fiscalía General de la República San Salvador E1 Salvador. Kúveit ’Umar Shehadeh‘ Abdallah Hamdan Abu Shanab, 31 árs gamall sjúkrahússtarfsmaður, var dæmdur til 15 ára fangelsisvistar fyrir herrétti í júní 1991 eftir ósanngjörn réttarhöld, vegna meintrar samvinnu við íraka meðan þeir höfðu hersetu í Kuwait. Samkvæmt fregnum er honum haldið í einangrun í fang- elsi í Kúveit. ’Umar Abu Shanab er Pal- estínumaður af jórdönskum upp- runa en fæddur í Kúveit. Hann „hvarf“ eftir að hafa verið hand- tekinn af kúveiska hernum við al- Razi spítalann, í lok febrúar 1991. Afdrif hans voru ókunn þar til í júnf 1991, þegar kúveisk yfir- völd létu fjölskyldu hans vita að hefði verið ákærður um „sam- særi“ og dæmdur til 15 ára fang- elsisvistar. Honum var gefið að sök að hafa látið írönskum her- mönnum í té lyf þegar þeir komu á spítalann til meðferðar. Laga- leg framkvæmd réttarhaldanna var gölluð í öllum meginatriðum. Margir hinna sakfelldu fengu hvorki lagalega aðstoð né mögu- leika að áfrýja dómnum til hærri dómstiga. ’Umar Abu Shanab var, að sögn, pyndaður í gæsluvarðhald- inu og ættingjar hans óttast að pyndingum og illri meðferð verið haldið áfram. Fjölskyldu hans var leyft að heimsækja hann eftir dómsúrskurð en síðan hefur þeim verið neitað um heimsókn- arleyfi og er ættingjum hans nú bannað að hafa samskipti við hann. Einangrun hans getur auk þess valdið því að hann verði fyr- ir frekari misþyrmingum. Vinsamlega sendið kurteislega orðað bréf og farð fram á að ’Umar Abu Shanab verði tafar- laust leyft að hitta ættingja sína, að meintar pyndingar verði rannsak- aðar og að mál hans verði tekið upp að nýju. Skrifið til: His Excellency Ahmad al-Ham- moud al-Jaber Minister of Interíor Ministry of Interior Safat Kuwait. Framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna: Gagnrýnir þingflokk Alþýðuflokksins harðlega Framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna gagnrýn- ir harðlega þingflokk Alþýðu- flokksins fyrir að samþykkja frumvarp um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna, án þess að beita sér fyrir breytingum á sjöttu grein þess, eins og flokksstjórn Alþýðuflokksins hafði samþykkt. í ályktun, sem framkvæmda- stjórn Sambands ungra jafnað- armanna hefur sent frá sér vegna þessa máls, segir m.a.: „Samband ungra jafnaðar- manna ítrekar andstöðu sína við það ákvæði frumvarps um náms- lán, sem gerir ráð fyrir að öll lán verði greidd út eftir að náms- áföngum er lokið. Það þýðir í raun að Lánasjóðnum verði lok- að næsta haust. Þetta ákvæði mun hafa þær afleiðingar að þeir hópar námsmanna sem mest þurfa á aðstoð sjóðsins að halda, barnafjölskyldur og námsmenn utan af landi, verða að framfleyta sér á lánum sem bera markaðs- vexti meðan á námstíma stendur. SUJ telur að þessi ráðstöfun brjóti algerlega í bága við mark- mið laganna um jafna aðstöðu allra til náms, og geti aukinheld- ur ekki samrýmst stefnu jafnað- armanna um réttlæti í samfélag- inu.“ í ályktun framkvæmdastjórnar Sambands ungra jafnaðarmanna segir ennfremur: „SUJ lýsir andstöðu við þá þingmenn Alþýðuflokksins, sem allir utan einn, samþykktu þetta ákvæði frumvarpsins, og huns- uðu þannig áskorun flokksstjórn- ar Alþýðuflokksins frá 28. mars um að beita sér fyrir breytingum þar á. SUJ lýsir stuðningi við þær breytingar til bóta sem náðst hafa fram, mest fyrir tilstuðlan þing- manna Alþýðuflokksins, en hvet- ur þá jafnframt til að endurskoða hug sinn til sjöttu greinarinnar, og koma í veg fyrir það ranglæti sem leiðir af samþykkt hennar, eins og hún lítur út eftir aðra umræðu frumvarpsins á Alþingi. Þannig mun verða gengið til móts við samhljóða samþykkt flokks- stjórnar. Að öðrum kosti áskilur SUJ sér rétt til að fara fram á flokks- stjórnarfund um málið, og boðar að það verði tekið upp á þingi Alþýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands - í júní næstkomandi.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.