Dagur - 13.06.1992, Page 15
Laugardagur 13. júní 1992 - DAGUR - 15
f
Kjötiðnaðarmeistarar á Kjötiðnaðarstöð KEA með viðurkenningar sínar. F.v. Eggert Þór Ingólfsson, sem hlaut
bronsverðlaun,' Páll Hjálmarsson, sem hlaut gullverðlaun og Óskar Erlendsson, sem hlaut gull-, silfur- og brons-
verðlaun. Mynd: Golli
Fagkeppni kjötiðnaðarmeistara 1992:
KEA og KÞ með helming gullsins
- Guðmundur Geirmundsson frá Selfossi varð kjötmeistari
Sex kjötiðnaðarmenn hlutu
gullverðlaun í fyrstu fagkeppn-
inni sem haldin hefur verið í
kjötiðnaði hér á landi. Keppn-
in fór fram í samvinnu við
Markaðsnefnd landbúnaðarins
og Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins um mánaðamótin.
Keppnin var haldin samkvæmt
alþjóðlegum reglum Interfair
keppninnar sem haldin er á
tveggja ára fresti í Danmörku.
Gullverðlaun voru veitt fyrir
gallalausar vörur en vörur sem
gerðar voru minniháttar at-
hugasemdir við hlutu silfur-
verðlaun. Þá var veitt brons-
viðurkenning fyrir vörur þar
sem einu eða tveimur atriðum
var ábótavant.
í keppninni var gefin einkunn
fyrir ytra og innra útlit, lykt og
bragð, samsetningu kjötvaranna
og verkun þeirra. Keppt var í
fimm vöruflokkum en hver kjöt-
iðnaðarmeistari átti aðeins kost á
að senda eina vörutegund í hvern
flokk. í keppninni tóku þátt 38
einstaklingar frá 13 fyrirtækjum,
sem sendu inn alls 94 vöruteg-
undir.
Kjötmeistari varð Guðmundur
Geirmundsson frá Selfossi og
hlaut hann gullverðlaun fyrir
rjómalagaða lifrarkæfu með
sveppum og beikoni. Páll Hjálm-
Sigmundur Hreiðarsson, kjötiðnað-
armeistari í Kjötiðju KÞ hlaut gull-
verðlaun í keppninni.
arsson og Óskar Erlendsson, sem
báðir starfa hjá Kjötiðnaðarstöð
KEA á Akureyri, hlutu gullverð-
laun, Páll fyrir úrbeinað hangi-
kjötslæri og Óskar fyrir Peder-
sens Salami.
Sigmundur Hreiðarsson hjá
Kjötiðju KÞ á Húsavík hlaut
gullverðlaun fyrir þurrkryddað
lambalæri, Haraldur Pétursson
hjá Meistaranum hlaut gullverð-
laun fyrir grófa lifrarkæfu með
portvíni og Bergsveinn Símonar-
son hjá Kaupfélagi Borgfirðinga
hlaut gullverðlaun fyrir grillsteik.
Þá voru veitt 24 silfurverðlaun
fyrir margvíslega kjötrétti og 35
bronsverðlaun.
Óskar Erlendsson, kjötiðnað-
armeistari hjá KEA, var mjög
ánægður með árangurinn í
keppninni og sagði að stefnt væri
að því að senda vörur í keppnir
erlendis í framhaldinu. „Okkar
tromp í keppninni voru hrápyls-
urnar og hangikjötið en vínar-
pylsurnar fylgdu fast á eftir,“
sagði Óskar.
„Úrslitin í þessari keppni eru
mikill sigur fyrir kaupfélögin úti á
landi sem stóðu upp úr ásamt
smærri vinnslufyrirtækjunum í
Reykjavík," sagði Sigmundur
Hreiðarsson kjötiðnaðarmeistari
hjá Kjötiðju KÞ í samtali við
Dag. Eins og fram kemur hér að
framan, fóru þrenn af sex gull-
verðlaunum norður og vildi Sig-
mundur nota tækifærið og óska
þeim KEA-mönnum til hamingju
með árangurinn.
„Ég varð var við að þessi
árangur kom fólki á óvart og
hann á eftir að koma okkur inn á
landakortið. Það var ákaflega
skemmtilegt að taka þátt í
keppninni," sagði Sigmundur og
bætti við að árangurinn væri sigur
fyrir fyrirtækið og allt starfsfólk-
ið. ÞI/IM
Fjórtán reyklausir dagar
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis hefur farið þess
á leit við Dag að blaðið birti
leiðbeiningar til þeirra sem
hættu að reykja á „Reyklausa
daginn" svonefnda 1. júní sl.
Leiðbeiningar þessar taka til
fyrstu 14 daganna. Hér á eftir
fara ráðleggingar sem gilda
fyrir 13. og 14. daginn, þ.e.
laugardaginn 13. og sunnu-
daginn 14. júní.
Þrettándi dagur
Þegar allt kemur til alls getur
verið að sambandið við annað
fólk verði þér til hjálpar - fólk
sem veit að þú hefur hætt að
reykja og væntir þess að þér
megi takast það að fullu. Þess
vegna skaltu halda áfram að
segja öllum sem þú þekkir frá
því sem gerst hefur. Þú kemst
þá líka að raun um að margir
aðrir hafa staðið í sömu sporum
og þú og eiga góð ráð í handr-
aðanum.
Þú skalt enn reyna að forðast
þær aðstæður sem reykingar
þínar tengdust öðru fremur á
liðnum árum en smátt og smátt
geturðu horfið til þinna fyrri lífs-
hátta, eftir því sem þú kærir þig
um, án þess að finna þörf fyrir
aö reykja: Til kaffibollans eftir
matinn, samkvæma og svo
framvegis.
Það er þegar orðið að vana
hjá þér að segja nei-takk þegar
þér er boðin sígaretta og þú
verður minna og minna var við
þá tilfinningu að þú sért að færa
einhverja fórn. Aftur á móti finn-
ur þú skýrar hve líkamsástand
þitt hefur batnað. En þrátt fyrir
allt skaltu ekki vera hofmóðug-
ur. Enn er sá tími ekki upp runn-
inn að þú getir umgengist tóbak
án þess að það snerti þig. Þess
vegna skaltu leggja áherslu á
að vera sem mest í reyklausu
umhverfi.
Fjórtándi dagur
Til hamingju!
Þú ert orðinn fyrrverandi
reykingamaður, er það ekki?
Ekki þannig að öll löngun í reyk
sé horfin eða þú þurfir ekki
framar að gæta þín. En þú hef-
ur komist yfir mestu erfiðleik-
ana. Héðan í frá ætti þér að
verða auðvelt að hafna boði um
sígarettu. Einstaka sinnum
muntu verðafyrir því að löngun-
in sækir á þig. Það líður lengri
og lengri tími á milli þessara
kasta og það er ekki sérlega
mikill vandi að komast yfir þau.
Eftir þrjá mánuði verðurðu
alveg steinhissa á því að þér
skyldi nokkurn tímann hafa
dottið þessi vitleysa í hug - að
fara að reýkja.
ÞREFALDUR
1. VINNINGUR