Dagur - 13.06.1992, Qupperneq 24
Akureyrin EA:
Þorsteinn Vilhelms-
son lætur af störfiun
sem skipstjóri
- Sturla Einarsson tekur
við á haustdögum
„Ég hef látið af skipsstjórn á
Akureyrinni EA og er kom-
inn í langt frí“, sagði Þor-
steinn Vilhelmsson, afla-
maðurinn kunni frá Akur-
eyri.
Að sögn Þorsteins tekur
Arngrímur Brynjólfsson, 1.
stýrimaður, við togaranum og
verður í hólnum í sumar.
Sturla Einarsson, skipstjóri
Margrétarinnar EA, mun taka
við Akureyrinni EA á haust-
dögum. Óráðið er enn hver
tekur við Margrétinni.
Nýr togari er í smíðum fyrir
Samherja hf. Skrokkurinn var
smíðaður í Póllandi og er
kominn til Flekkefjord í
Noregi. „Smíði togarans lýkur
í lok nóvember. Ég tek við
skipinu sem skipstjóri, en
fram að þeim tíma verð ég í
fríi og að störfum í landi,“
sagði Þorsteinn Vilhelmsson.
_____________________ój_
Akureyri:
Fjórir of
þungstígir
Fjórír ökumenn voru stöðv-
aðir á Akureyri á fimmtu-
dag vegna hraðaksturs og
var einn þeirra sviptur öku-
leyfi.
Sá sem hraðast ók var á 104
km hraða á Drottningarbraut,
austan við Samkomuhúsið,
þar sem hámarkshraði er 50
km. Hann var sviptur ökuleyf-
inu. Einn ökumaður var
stöðvaður á fimmtudagskvöld-
ið grunaður um ölvun við
akstur.
Aðfaranótt fimmtudagsins
var þvotti stolið af snúrum í
Álfabyggð. Gunnar Jóhanns-
son, rannsóknarlögreglumað-
ur, segir töluvert um að þvotti
sé stolið af snúrum í bænum
og hvetur fólk til að vera á
varðbergi. JHB
Heilsugæslustöðin
á Akureyri:
Inflúensan
gengin yflr
Inflúensan sem hrjáð hefur
Akureyringa og Eyfirðinga
er gengin yfir. Aðeins eitt
tilfelli greindist í liðnum
mánuði.
Kvef og hálsbólga hrjáir
menn í umdæmi Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri.
Skýrsla um smitsjúkdóma í
maí greinir frá 481 sjúklingi er
leitaði lækninga til lækna
heilsugæslustöðvarinnar.
Lungnabólgutilfelli voru 15.
Fimm reyndust með hlaupa-
bólu í mánuðinum og 74 með
magaveiki. Kláðamaur greind-
ist sem endranær, þrír leituðu
sér lækninga. ój
Ferðamenn á Akureyrí vöknuðu upp við ausandi rigningu í gærmorgun en þegar leið á
er góðu ferðaveðrí á Norðuríandi um helgina.
morguninn stytti upp. Spáð
Mynd: Golli
Blíðviðri
næstu daga
- hætt við síðdegisskúr-
um í dag og á morgun
Veðurstofan spáir blíðu á
Norðurlandi næstu daga,
björtu og hlýju veðri en hætt
er við sídegisskúrum seinni
partinn í dag og á morgun.
Helgarspáin hljóðar upp á
bjartviðri um helgina og suð- og
vestlæga vinda með tilheyrandi
hlýindum. Hætta er á smárign-
ingarskúrum seinni partinn í dag
og á morgun en bjart ætti að vera
fram eftir degi. Á mánudag er
spáð bjartviðri og hlýindum allan
daginn með hægri vestlægri átt.
Milli kl. 2 og 3 aðfaranótt
föstudagsins byrjaði að rigna á
Norðurlandi og var úrkoman
umtalsverð. Á Akureyri mældust
t.d. 11 millimetrar kl. 9 um morg-
uninn sem verður að teljast all-
nokkuð. Til samanburðar má
geta þess að meðalúrkoma á
Akureyri í júnímánuði er 28
millimetrar. JHB
Mótun framtíðarstefnu í ferðamálum í samgönguráðuneytinu í sumar:
Hugmyndir um deildaskiptingu Ferðamálaráðs
- verður innlend deild ráðsins staðsett á Akureyri?
Ein af þeim hugmyndum sem
komið hafa upp í skoðun sam-
gönguráðuneytisins á framtíð-
arskipulagi í yfirstjórn ferða-
mála hér á landi er að deilda-
skipta Ferðamálaráði í inn-
lenda og erlenda deild. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
hefur einnig komið fram í
tengslum við þetta hugmynd
um að staðsetja innlenda deild
ráðsins á Akureyri.
Þórhallur Jósefsson í sam-
gönguráðuneytinu staðfesti að
hugmyndin um deiidaskiptingu
ferðamálaráðs hafi komið fram
en þetta sé ein leið af mörgum í
framtíðarskipulagi ferðamála.
„Það má segja að þetta sé einn
af möguleikunum í stöðunni. Við
erum að velta fyrir okkur hvernig
Vonir standa til að hægt verði
að flýta byggingu bóknáms-
húss fyrir Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki um eitt ár í kjölfar gjald-
þrots Byggingafélagsins Hlyns
hf. sem hafði verkið með hönd-
um. Að sögn Magnúsar Sigur-
jónssonar, framkvæmdastjóra
Héraðsnefndar Skagafjarðar,
metur óháð verkfræðistofa
verk- og greiðslustöðuna um
þessar mundir og er niður-
stöðu að vænta eftir miðjan
mánuðinn.
Friðrik Arngrímsson, bústjóri
til bráðabirgðá, sagði Hlyn hf. frá
verkinu eftir að félagið var
úrskurðað gjaldþrota í byrjun
júní. Bygging hússins, sem átti að
hefjast í byrjun maí, hefur tafist
nokkuð af þessum sökum en fjöl-
brautaskólinn líður mjög fyrir
skort á kennsluhúsnæði eins og
fram kom í Degi í gær.
heppilegast sé að koma fyrir
skipulagi ferðamála og það
brennur á okkur að koma með
frumvörp í haust um þessi mál
inn á Alþingi. í sumar og fram
eftir hausti mun fara fram skoðun
á ýmsum möguleikum. Það er
ekki ljóst hvort Ferðamálaráði
verður breytt en það eina sem
ljóst er nú er að þetta verður
skoðað en ég vil ekki gefa mér
niðurstöðuna fyrirfram,“ sagði
Þórhallur.
Með þeim frumvörpum sem
ætlunin er að leggja fram í haust
verður mótað hlutverk stjórn-
valda í skipulagi ferðamála og
verkaskipting stjórnvalda og
atvinnugreinarinnar. Þórhallur
sagði mikið lagt upp úr að frum-
vörpin nái fram á næsta þingi
Að sögn Magnúsar verður ljóst
hverjar kröfur Héraðsnefnd
Skagafjarðar gerir í þrotabú Hlyns
hf. eftir að verk- og greiðslustaða
fyrirhugaðrar byggingar hefur
verið metin en héraðsnefndin
hafði greitt fyrirfram inn á
verkið. Á grundvelli þess mats
verður einnig hægt að áætla á
hvaða grundvelli nýr verktaki
tekur við byggingu hússins.
Magnús segir að bóknámshús-
ið hefði átt að vera tilbúið árið
1994. „Við erum að kanna mögu-
leika á að taka húsið í notkun að
hluta til fyrir haustið 1993 vegna
skorts á kennsluhúsnæði. Það
getur verið ódýrara að byggja á
skemmri tíma,“ segir Magnús og
bætir við að það fari eftir fram-
boði á lánsfé hvort tekst að flýta
verkinu. Að sögn Magnúsar
verður einnig að bera fjármagns-
kostnaðinn saman við kostnað
við að leigja kennsluhúsnæði þar
til bóknámshúsið er fullbúið. GT
enda skili ferðaþjónustan stórum
hluta af gjaldeyristekjum þjóðar-
innar.
„Núna horfir ekki nægjanlega
vel, útlitið er þannig að ferða-
„Okkur miðar í rétta átt á
Hjalteyri. Lúðulirfur eru í 18
kerum. Fóðrun á lirfunum er
strembin. Aðal málið er að
framleiða nægilegt magn af
krabbafló og þörungum sem
lirfurnar nærast á. Stutt er
milli lífs og dauða og á þessari
stundu treystir enginn sér til að
segja til um endanlegan árang-
ur. Við fáum fyrstu seiðin und-
ir mánaðamót, ef allt gengur
að óskum,“ segir Ólafur Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri
Fiskeldis Eyjafjarða hf.
Aðalfundur Fiskeldis Eyja-
fjarðar hf. er í dag. Stærstu hlut-
hafar eru Byggðastofnun, Út-
gerðarfélag Akureyringa hf.,
Arnarneshreppur og Akureyrar-
bær. Starfsmenn hafa verið fjórir
lengst af en eru nú sex. Rann-
sóknirnar á Hjalteyri eru fjár-
magnaðar af hlutafé fyrirtækisins
og rannsóknarstyrkjum frá sjáv-
arútvegsráðuneyti og Rannsókn-
arráði ríkisins. Ólafur Halldórs-
son, framkvæmdastjóri, segir að
aðhalds hafi verið gætt í rekstrin-
um og hagkvæmni hafi setið í
fyrirrúmi.
Fimm þúsund lúðuseiði voru
flutt til Grindavíkur í fyrra þar
sem þau hafa verið í tilraunaeldi,
með mismunandi hita og fóðri.
Tilraunirnar hafa gengið mjög
vel, lúðuseiðin hafa dafnað afar
vel og afföll eru hverfandi.
mönnum fækki og það er ekki
gott. Við þurfum að fjölga þeim
og það gerum við ekki nema með
því að taka á.þessum málum,“
sagði Þórhallur. JÓH
„Líkurnar á að framleiða lúðu-
seiði í miklu magni vaxa dag frá
degi. Hins vegar gerum við okkur
grein fyrir þeirri áhættu sem í
þessari starfsemi felst. Um næstu
mánaðamót verður rannsókna-
stöðin á Dalvík tekin í notkun.
Þar munu fara fram umfangs-
miklar klakfiskarannsóknir í
samvinnu við Hafrannsókna-
stofnunina í Bergen og Háskól-
ann í Gautaborg. Já, við erum
stöðugt að saxa á vandamálin.
Markmið rannsóknanna á Dalvík
er að byggja upp lúðuhrygn-
ingastofna sem ætlað er að
hrygna yfir sem stærstan hluta
ársins,“ segir Ólafur Halldórs-
son. ój
Lottó:
Þrefaldur
pottur
Þrefaldur pottur er í Lottó um
helgina og er búist við að fyrsti
vinningur verði allt að 15 millj-
ónum króna.
Potturinn var orðinn rúmar 6
milljónir um síðustu helgi og
samkvæmt upplýsingum frá
íslenskri getspá er það regla að
hann ríflega tvöfaldist í þriðju
viku. Það þýðir að heildarupp-
hæð vinninga um helgina verður
yfir 20 milljónir króna. JHB
Bygging bóknámshúss fyrir FNVáS:
Verkinu jafiivel flýtt
Fiskeldi Eyjaíjarðar hf.:
Vaxandi líkur á framleiðslu
lúðuseiða í miklu magni