Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 1
Sjómannasambandsþing:
Konráð Alfreðsson
í formannsframboð?
ESSO-mót drengja í 5. aldursflokki hófst á KA-svæðinu í gær og verður því framhaldið í dag. Mótinu líkur annað
kvöld. Hér heilsast fyrirliðar Vals og Fylkis við upphaf mótsins í gær. Þess má geta að í dag hefst „Pollamót“ Þórs
á félagssvæði Þórs. Mynd: Gt
Stj órn Atvinnuleysistryggingasj óðs:
Beðið eftir upplýsingum til að
afgreiða umsókn Akureyrarbæjar
- atvinnuverkefnið komið í fullan gang á Húsavík
Vaxandi líkur eru á að Konráð
Alfreðsson formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar gefi
kost á sér til formannaskjörs á
þingi Sjóntannasambands ís-
lands sem fram fer í október-
mánuði í haust.
Vilji er til innan raða hinna
Menntaskólinn á Akureyri:
Áfram aug-
lýst eftir
kennurum
Afram verður auglýst eftir
kennurum í dönsku og stærð-
fræði í Menntaskólanum á
Akureyri en enn vantar einn
kennara í hvora grein til að
hægt verði að halda uppi lög-
boðinni kennslu næsta vetur.
Ekki höfðust borist umsóknir
um þessar stöður frá kennur-
um með réttindi þegar um-
sóknarfrestur rann út fyrir
nokkru og Tryggvi Gíslason
hefur tilkynnt menntamála-
ráðuneytinu að hann ætli ekki
að ráða réttindalausa kennara í
þær.
Hörður Lárusson, deildarstjóri
hjá menntamálaráðuneytinu,
sagði að tilkynning Tryggva hefði
komið til umfjöllunar hjá ráðu-
neytinu og ákveðið hefði verið að
gera ekkert í málinu í bili annað
en að auglýsa áfram eftir kennur-
um. „Ég ræddi stöðu mála nokk-
uð ítarlega við Tryggva og það
varð í rauninni ekki önnur niður-
staða en sú að halda áfram að
auglýsa eftir fólki í þessi störf,“
sagði Hörður. Hann vildi ekki
segja til um hvað yrði gert ef
auglýsingarnar bæru ekki árang-
ur. JHB
ýmsu aðildarfélaga Sjómanna-
sambandsins að „yngja“ í stjórn
sambandsins og að félögin sam-
einist um einn frambjóðanda og
hefur nafn Konráðs Alfreðssonar
þar oftar borið á góma en önnur
nöfn.
„Ég hef ekki gefið út neina
yfirlýsingu um það en það er svo
annað mál að það hefur legið fyr-
ir að ég myndi hætta en það hefur
engin afstaða verið tekin til þess
og ég mun ræða þetta mál við
mína félaga á undan fjölmiðlum,"
sagði Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands íslands.
Óskar hefur verið í forsvari fyrir
Sjómannasambandiðsíðan 1976.
GG
„Ég held aö sé almenn ánægja
með þetta verkefni og það
gengur vel,“ sagði Guðmund-
ur Níelsson, bæjarritari á
Húsavík, um atvinnuverkcfni í
bænum sem hófst fyrir um
hálfum mánuði og Atvinnu-
leysistryggingasjóður og Húsa-
víkurbær fjármagna. Gert er
ráð fyrir að verkefnið standi
yfir í tvo mánuði og í því taki
allt að 23 einstaklingar þátt.
Stjórn Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs hefur ekki tekið afstöðu
til samskonar erindis frá Akur-
eyrarbæ þar sem umbeðnar
frekari upplýsingar hafi ekki
borist frá bænum.
Að sögn Guðmundar er annars
vegar um að ræða gróðursetning-
arverkefni og hins vegar þrif,
hreinsun og málningu á hafnar-
svæðinu. „Þetta er alveg sérstakt
og afmarkað verkefni og óháð
bæjarvinnunni,“ sagði Guð-
mundur.
Atvinnuleysistryggingasjóður
greiðir bænum sem svarar
atvinnuleysisbótum fyrir þá ein-
staklinga, sem taka þátt í verk-
efninu og voru þeir allir á
atvinnuleysisskrá. Þeir sem
lengst höfðu verið á atvinnuleysi-
skrá gengu fyrir. Til viðbótar
atvinnuleysisbótunum greiðir
Húsavíkurbær um 20 þúsund
krónur í laun á mánuði til hvers
starfsmanns og eru mánaðarlaun
þeirra því á bilinu 66-67 þúsund
krónur.
Akureyrarbær sótti einnig um
fyrirgreiðslu til Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs til samskonar
atvinnuverkefnis, en enn sem
komið er hefur stjórn sjóðsins ekki
afgreitt það. Margrét Tómasdótt-
ir, framkvæmdastjóri Atvinnu-
leysistryggingasjóðs, segir að
stjórn sjóðsins hafi óskað eftir
nánari upplýsingum um hvaða
verkefni bærinn hefði í hyggju að
láta vinna og bréf þess efnis hafi
farið frá sjóðnum 2. júní sl. Enn
sem komið er hafi ekkert heyrst
frá Akureyrarbæ og því ekki
hægt að taka afstöðu til erindis-
ins.
„Það eru ýmsar upplýsingar
sem stjórn sjóðsins vill fá um
framkvæmd verkefnisins og
hvernig starfsmenn verði valdir
af atvinnuleysisskrá," sagði
Margrét.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs Akureyrar, seg-
ir að varðandi þetta atvinnuverk-
efni hafi menn annars vegar horft
til þrifnaðarátaks á miðbæjar-
svæðinu og hins vegar að hreinsa
til í gamla Mjólkursamlagshúsinu
í Grófargili. óþh
Ekki séð jafn háar
atviimuleysistölur
- segir framkvæmdastjóri
Atvinnuleysistryggingasj óðs
Margrét Tómasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, segist ekki
hafa áður séð jafn háar
atvinnuleysistölur yfir sumar-
mánuðina og nú, en samt sem
áður er atvinnuástandið
kannski ekki eins slæmt á land-
inu og spáð hafði verið.
Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn-
unar í ársbyrjun um atvinnuleysi
var gert ráð fyrir að Atvinnuleys-
istryggingasjóður þyrfti viðbót-
arfjárveitingu upp á 5-600 millj-
ónir króna til þess að greiða út
lögboðnar atvinnuleysisbætur.
Margrét Tómasdóttir segir að
enn sem komið er hafi greiðslur
atvinnuleysisbóta verið innan
ramma fjárlaga og aukist
atvinnuleysi ekki frá því sem nú
er á síðustu mánuðum ársins sé
ekki fyrirsjáanlegt að sjóðurinn
þurfi aukafjárveitingu. Ekki
liggja fyrir tölur um greiddar
atvinnuleysisbætur í júní, en í
maí námu greiðslur Atvinnuleys-
istryggingasjóðs um 130 milljón-
um króna. A fjárlögum þessa árs
eru ætlaðar 1280 milljónir til
sjóðsins. óþh
Notaðir bílar:
Minni sala og lægra verð
- líflegra í sölu nýlegra bíla
Sala á notuðum bílum á Akur-
eyri er almennt lakari en
undanfarin ár. Svo virðist sem
nýlegir bílar seljist best en lítil
hreyfing sé á eldri árgerðun-
um. Greiðslukjör hafa lítið
breyst en notaðir bílar virðast
hafa fallið í verði og nefndi
einn bílasali töluna 20% í því
sambandi.
Á bílasölu Hölds og Bílavali
fengust þær upplýsingar að sala á
notuðum bílum væri lakari en
undanfarin ár og sagði Hjörleifur
Gíslason hjá Höldi að salan hefði
ekki tekið kipp með sumarkom-
unni eins og venjulega. Hann
sagði söluna áberandi besta í
nýrri bílunum, árgerðum 1990-
’91, og væri talsvert um að menn
með 5-6 ára gamla bíla vildu
skipta upp.
Þorsteinn Jónsson hjá Stór-
holti sagði sölu á notuðum bílum
hins vegar hafa gengið betur en í
fyrra. Hann sagði söluna besta í
nýlegu bílunum og vantaði meira
af þeim á markaðinn en mikið
væri til af árgerðum ’87-’88 og
hreyfðust þær hægt. Hann og
Kári Agnarsson hjá Bílavali voru
sammála um að sala á nýjum bíl-
um væri minni en venjulega en
Magnús Jónsson hjá bílasölu
Þórshamars hafði aðra sögu að
segja cn hinir. Hann sagði ágæta
sölu í nýjum bílum en mun minni
í notuðum. Þar væri algengast að
menn vildu skipta niður í ódýrari
bíla.
Greiðslukjör virðast lítið hafa
breyst, eins og venjulega er mik-
ið af skuldabréfum í gangi en
töluvert er um staðgreiðslur og
þá helst hjá þeim sem skipta upp.
„Ég lield að það sé ekkert minna
um staðgreiðslur en notaðir bílar
hafa lækkað um svona 20% í
verði,“ sagði Kári Agnarsson.
_______________________JHB
Sauðárkrókur:
Bam á reið-
hjóli varð
ifyrir bíl
Fimm ára barn á reiðhjóli varð
fyrir bfl á Sauðárkróki í gær,
en slapp án teljandi meiðsla.
Að sögn lögreglunnar á Sauð-
árkróki átti óhappið sér stað á
Skagfirðingabraut við Bláfell og
var barnið flutt á sjúkrahús, en
meiðsli þess reyndust minnihátt-
ar. Að sögn lögreglunnar var
bifreiðin á lítilli ferð. óþh