Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 16

Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 3. júlí 1992 Bautinn opinn al/a daga frá ki. 9-23,30 Norðurland: Barnsfæðingum fækkar Alltof mikið um hraðakstur bfla með tjaldvagna - segir lögreglan á Blönduósi Þór Gunnlaugsson, lögreglu- maður á Blönduósi, segir alltof algengt að lögreglan þurfí að stöðva ökumenn ökutækja með annaðhvort hjólhýsi eða í tjaldvagn aftan í vegna hrað- | aksturs. Þór segir að í mörgum tilfell- um átti ferðafólk sig ekki á því að leyfilegur hámarkshraði öku- tækja með hjólhýsi eða tjald- vagna er aðeins 70 km, en því miður sé algengt að þeim sé ekið á allt að 100 km hraða. Þór segir að þeir bílar séu umsvifalaust stöðvaðir og ökumenn þeirra megi eiga von á um níu þúsund króna sekt vegna umferðarlaga- brots. óþh Það Iogaði glatt í þessum gamla fjárhúskofa skammt sunnan við hesthúsahverfið á Húsavík en Sauðfjárveikivarnir höfðu keypt hann og létu síðan brenna vegna þess að þar kom upp riðuveikitilfelli í fyrravetur. Á innfelldu myndinni eru Krist- bjöm Óskarsson, starfsmaður Húsavíkurbæjar, Bárður Guðmundsson, dýralæknir, og Sveinbjörn Lund, slökkvuliðs- StjÓrí á HÚSaVÍk. Myndir: IM Húsavík: Fjárhjús brennd vegna riðuveiki Slökkvilið Húsavíkur brenndi fjárhúskofa og hlöðu með heyi rétt sunnan hesthúsahverfisins síðdegis á miðvikudag. Riðutilfelli fannst í húsunum í fyrravetur og í haust var allt fé Húsvíkinga skorið niður, að undangengnum ströngum samn- ingaviðræðum við forsvarsmenn fjáreigenda. Áskilið var að hreinsað yrði til í húsum eða þeim eytt fyrir sl. áramót og fengu fjáreigendur þar með heimild til að taka fé á ný í haust. Eigandi umræddra húsa fór ekki að tilgreindum samningum og það var loks fyrir nokkrum dögum að Sauðfjárveikivarnir keyptu af honum húsin og létu brenna þau. IM Ferðafélag Akureyrar: Stefiit að því að setja upp skála í Dyngjuflalladal Ferðafélag Akureyrar hyggst koma upp nýjum skála í Dyngjufjalladal, sem er fyrir vestan Oskju, og hefur verið leitað eftir leyfl til þess til hlut- aðeigandi aðila. Sigurður Jónsson, formaður Ferðafélags Akureyrar, segir að mjög æskilegt sé að setja upp nýj- an skála á þessu svæði til þess að unnt sé að bjóða upp á skemmti- legri gönguleiðir í Odáðahraun- inu. „Við erum að standsetja tvo skála sem við höfum keypt og þegar fengist hafa öll leyfi, sem við vonumst til að fá á haustdög- um, þá komum við vonandi öðr- um þeirra fyrir inni í Dyngju- fjalladal,“ sagði Sigurður og sagði að gönguleiðanefnd Ferða- félagsins myndi fara um þetta svæði í sumar og reyna að finna skálanum hentugan stað. Sigurður sagði vera töluvert ströng skilyrði fyrir staðsetningu slíkra skála í óbyggðum, t.d. varðandi vatn, salernisaðstöðu og sorp og erindi Ferðafélagsins þyrfti samþykki hlutaðeigandi sveitarstjórna, Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra og Náttúru- verndarráðs. Ferðafélag Akureyrar á og rek- ur fimm skála; Laugafell inn af Eyjafirði, Dreka í Dyngjufjöllum, Lamba á Glerárdal, Þorsteins- skála í Herðubreiðarlindum og Bræðrafell dyngju. sunnan í Kollóttu- óþh 298 börn fæddust á Norður- landi fyrstu sex mánuði ársins og er það nokkru minna en á sama tímabili í fyrra. 222 af þessum börnum fæddust á Akureyri. Á Akureyri fæddust 236 börn fyrstu sex mánuðina í fyrra, 118 drengir og 118 stúlkur. í ár höfðu hins vegar fæðst 126 drengir og 96 stúlkur á sama tímabili. Mestu munaði þar um tvo síðustu mán- uðina, í maí fæddust 23 drengir og 12 stúlkur og í júní 26 drengir og 15 stúlkur. Stúlkurnar voru aðeins fleiri í marsmánuði, 22 á móti 15 drengjum. Á Húsavík fæddust 26 börn á tímabilinu, 14 drengir og 12 stúlkur en í fyrra 28 börn, 14 drengir og 14 stúlkur. Á Sauðár- króki fæddist 31 barn, 20 drengir og 11 stúlkur, en í fyrra 34 börn, 19 drengir og 15 stúlkur. Á Blönduósi og Siglufirði fékkst í gær aðeins uppgefinn fjöldi fæddra barna fyrstu sex rnánuð- ina, 14 á Blönduósi og 5 á Siglu- firði. Þrátt fyrir að ekki hafi fengist upplýsingar um fjölda barnsfæð- inga í fyrra á Blönduósi og Siglu- firði er ljóst að fæðingar fyrstu sex mánuðina í ár eru nokkuð færri en á sama tíma í fyrra. Þá fæddust jafn mörg börn á Akur- eyri, Húsavík og Sauðárkróki og á öllum stöðunum fimm í ár. JHB Norðurland vestra: Veiðieftirlit úr lofti - hald lagt á 4 net í sumar er fyrirhugað að stór- herða veiðieftirlit í Stranda- sýslu, Húnavatnssýslu og ísa- fjarðarsýslu og til þessa eftirlits hefur sérstakur veiðieftirlits- maður verið skipaður. Sl. miðvikudagsmorgun fór veiðieftirlitsmaðurinn ásamt lög- reglunni í Strandasýslu í eftirlits- flug frá Hrútafirði og norður að Gjögri. í kjölfar þessa flugs var lagt hald á 4 net sem ýmislegt þótti ábótavant við t.d. of stórir möskvar, merkingar o.fl. Engin afli fannst í netunum að þessu sinni. Framhald verður á þessu eftirliti í sumar enda ntarkmiðið að koma í veg fyrir laxveiðar í sjó. AMV/GG Borholuvatn á Húsavíkurhöfða: Psoriasissjúklmgar baða sig í ostakari - vatnið reynt til meðhöndlunar sjúkdómsins Psoriasissjúklingar á Húsavík munu á næstu dögum prufa að baða sig úr steinefnaríku bor- holuvatni, í gömlu ostakari sem komið hefur verið fyrir á Húsavíkurhöfða. Fyrir um 30 árum var borað norðarlega á Húsavíkurhöfða í leit að heitu vatni. Þar fannst steinefnaríkt vatn, rúmlega 60 gráðu heitt en það þótti ekki henta til húsahitunar. Holunni var því lokað og hefur vatn úr henni ekki verið nýtt. Psoriasis er ólæknandi húðsjúk- dómur en honum má oft halda í skefjum með sól- og ljósaböðum eða böðum í vatni með vissum efnasamböndum. Félag psoriasis- sjúklinga á Húsavík hefur í nokk- ur ár haft hug á að prufa áhrif vatnsins í borholunni á Höfðan- um til meðhöndlunar sjúklinga. í fyrra var reynt vatn úr borholu Ætlunin er að psoríasissjúklingarnir baði sig í þessu volduga gamla ostakeri, sem komið hefur verið fyrir á Húsavíkurhöfða. Mynd: im skammt frá sjúkrahúsinu, en það gaf ekki góða raun. Að sögn Jóns Ásbergs Saló- monssonar, eins forsvarsmanna félagsins, er um að gera að prufa vatnið í borholunni til meðhöndl- unar með böðum. Ekki á að kosta of miklu til við þessa prufu og hefur gömlu ostakari verið komið fyrir við holuna. Reyna átti áhrif vatnsins síðasta sunnu- dag, en þá hentaði ekki dælan sem fengin hafði verið til að dæla vatninu úr holunni. Næstu tilraun á að gera um leið og tekist hefur að útvega hentuga dælu. Það er ekki fyrr en eftir nokkr- ar vikur sem í ljós kemur hvort vatnið hefur jákvæð áhrif til með- höndlunar psoriasis, en ef svo reynist er ekki gott að vita hvað verður í framtíðinni. Að líkind- um verður þá byggð upp betri aðstaða til baða í vatninu, og reynist vatnið sérlega vel á það eflaust eftir að auka ferðamanna- straum til Húsavíkur. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.