Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 3. júlí 1992 - DAGUR - 9 Gamla pakkhúsið á Hofsósi: Grettir sterki fær loksins griðastað - Drangeyjarsafn og Grettissafn opnað um helgina - Unnið að endurbyggingu gömlu húsanna á Hofsósi Það er til marks um sóknar- huginn í Hofsósbúum að gömlu húsin í bænum eru að rísa úr öskustónni eitt af öðru. Fram hefur komið í fréttum að elsta hús þorpsins, Bjálkahúsið eða Gamla pakkhúsið eins og heimamenn kalla það, hefur verið endurbyggt og nú er ver- ið að endurnýja gamalt hótel sem byggt var um síðustu alda- mót. Nú um helgina verða bæði þessi hús opnuð almenn- ingi. Það er Valgeir Þorvaldsson smiður sem á mestan heiður af þessum framkvæmdum. Hann sagði blaðamanni að í pakkhús- inu yrði komið fyrir safni. Á neðri hæðinni verður Drangeyj- arsafn með munum sem tengjast því sérstæða atvinnulífi sem stundað hefur verið í Drangey. Efri hæðin verður hins vegar heimili Grettis sterka, frægasta fbúa Drangeyjar sem fær nú loks fastan samastað eftir margra alda vergang. Ymislegt fleira verður þarna á seyði. í heimkynnum Grettis verður til að mynda kynntur hefðbundinn íslenskur matur í þartilgerðum ílátum og í gamla hótelinu verður kaffistofa þar sem þjóðlegt bakkelsi verður borið fram með kaffi sem lagað er án þess að nútíma vélbúnaður komi þar nærri. „Við ætlum ekki að vera með neiná hamborgara," sagði Valgeir. Þá verður hrein- lætisaðstaða fyrir safngesti í kjall- ara hótelsins en á efri hæð þess verður íbúð. Utan við pakkhúsið verður komið fyrir steinum sem fólk get- ur spreytt sig á að lyfta. Einn verður af sömu stærð og Grettir lyfti fimm ára gamall, annar eins og hann lyfti tíu ára osfrv. Þeir sem ráða við steinana fá vottorð þar um en þeir allra sterkustu sem lyft geta stærstu steinunum fá allra náðarsamlegast Ieyfi til að kaupa minjagrip. „Þetta er víst það sem kallast öfug markaðs- setning,“ sagði Valgeir. Hann segir áhuga fólks fyrir húsunum mikinn því eina helgina í sumar þegar hann var að vinna komu um 300 manns þangað og spurðust fyrir um pakkhúsið. Frá og með helginni geta þeir skoðað safnið og fengið sér kaffi, flat- brauð og rjómapönnukökur því húsin verða opnuð almenningi um kaffileytið á laugardaginn. Þau verða svo opin á hverjum degi í allt sumar. Og það er alls ekki ætlun þeirra Hofsósbúa að láta staðar numið við þessi tvö hús. „Næst kemur röðin að gamla kaupfélags- húsinu sem var lengi stærsta hús- ið hér á staðnum,“ segir Valgeir. Það stendur einnig til að lagfæra gömlu brúna sem er þarna í kvos- inni og gera hana að göngubrú. Þá verður hægt að skoða sig um í þessari skemmtilegu kvos sem minnir á þá tíð þegar Hofsós var stórveldi og sló Akureyri við sem verslunarhöfn. -ÞH Kvosin ofan við höfnina á Hofsósi er skemmtilegur staður. Hótelið sem ver- ið er að endurbyggja er fyrir miðju í þyrpingunni vinstra megin við Gamla pakkhúsið. Valgeir Þorvaldsson smiður í anddyri Gamla pakkhússins. Myndir: -ÞH Skátafélagið Klakkur á Akureyri: Iif og fjör í útilífsskólamim Fyrsta námskeiö í útilífsskóla skátafélagsins Klakks á Akur- eyri hófst þann 10. júní sl. og stóð í fimm daga. Þriðja og síðasta námskeiðið hefst nk. mánudag og stendur til 10. júlí. Það fyrsta sem krakkarnir á fyrsta námskeiðinu gerðu, var að fara í kynningarleik en síðan var þeim skipt í tvo hópa, sem nefnd- ust Flakkarar og Náttfarar. Krakkarnir fengu svo það verk- efni að búa til flugdreka og tóku þau öll virkan þátt í þeirri vinnu. Því næst var að koma flugdrekan- um á loft. Næsta dag var farið í ýmsa leiki og krökkunum kennt að gera varðeld og hlóðir. Hlóðirnar voru síðan notaðar til að grilla banana með súkkulaði í. Eftir bananaátið var farið í ratleik en það er leikur með ýmsum þraut- um sem krakkarnir þurftu að leysa. Þriðji dagurinn rann upp og óhætt er að segja að krakkarnir hafi beðið eftir þeim degi með mikilli eftirvæntingu. Dagurinn hófst á því að krakkarnir lærðu nokkra hnúta en síðan var hafist handa við að smíða fleka. Næstu klukkutímana var bundið, hnýtt og neglt og að lokum var flekinn tilbúinn. Því næst var flekinn settur upp á kerru og farið með hann niður að tjörn, þar sem honum var siglt. Þennan dag var nokkuð hvasst, svo siglingaveðr- ið var ekki upp á marga fiska. Á fjórða degi var farið í útilegu Krakkarnir smíðuðu sjálf þennan fleka og sigldu honiim síðan við nokkuð erfiðar aðstæður. Krakkarnir skemmtu sér vel á námskeiðinu, auk þess sein þau lærðu heilmikið. yfir í Vaðlaheiði, að skála sem er í eigu félagsins og nefnist Valhöll og þar var slegið upp tjöldum. Veðrið var mjög gott og sólin skein skært þennan dag. Þegar þátttakendurnir vöknuðu daginn eftir, rigndi lítilega en fljótlega stytti upp. Eftir morgunverð var farið í gönguferð niður að tjörn en síðan var gengið frá og loks haldið fótgangandi heim á leið. Sem fyrr sagði hefst þriðja og síðasta námskeiðið nk. mánudag og stendur skráning yfir um helg- ina í síma 12266. Lærði heilmargt „Mér fannst mjög garnan þessa daga sem ég var í útilífsskólan- um,“ sagði Halldór Elfar, sem var þátttakandi á fyrsta nám- skeiðinu. „Við lærðum ýmislegt, t.d. að hnýta hnúta, búa til flug- dreka og fleka sem við síðan sigldum á Leirutjörn. Við lærð- um að útbúa okkur fyrir útilegur og fórum í marga leiki. Síðan fórum við í útilegu, þar sem margt var brallað, t.d. gerð- um við varðeld og elduðum okk- ur góðan mat, lékum okkur í læknum og sungum heilmikið. Ég lærði margt í útilífsskólanum um útilíf og það nýtist mér örugg- lega í framtíðinni.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.