Dagur - 03.07.1992, Síða 7
Föstudagur 3. júlí 1992 - DAGUR - 7
Hvað er að gerast?
Þrennir tónleikar
Tónlistarhóps
Akureyrarkirkju
um helgina
Tónlistarhópur Akureyrarkirkju,
sem í eru Margrét Bóasdóttir,
sópran, Lilja Hjaltadóttir, fiðla,
Hólmfríður Þóroddsdóttir, óbó,
Dagbjört Ingólfsdóttir, fagott og
Björn Steinar Sólbergsson, orgel,
verður með tónleika í Raufarhafn-
arkirkju í kvöld kl. 20.30, Reykja-
hlíðarkirkju annað kvöld kl. 20.30
og á sunnudag kl. 17 í Akureyrar-
kirkju. Á efnisskránni eru verk eftir
Corellj, .Hándel, Vivaldi, Gunnar
Reyni Sveinsson og Jón Leifs.
Akureyri:
Tjaldsamkomur
Hvítasunnu-
kirkjunnar
Um helgina verður Hvítasunnu-
kirkjan með tjaldsamkomur á skóla-
lóðinni við Glerárskóla. Samkom-
urnar byrja kl. 20 öll kvöldin.
Ræðumaður verður Wynne Goss frá
Wales. Hann verður einnig með
námskeið í lofgjörð og tilbeiðslu kl.
10 í fyrramálið, laugardag. Á
samkomunum verður mikiil og fjöl-
breyttur söngur. Allir eru boðnir
velkomnir á tjaldsamkomurnar.
Sumarleikar
HSÞ á Laugum
um helgina
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
stendur fyrir Sumarleikum HSÞ á
Laugum í Reykjadal um helgina og
hefjast þeir kl. 10 árdegis bæði á
morgun og sunnudag. Á dagskrá
verður héraðsmót í frjálsum íþrótt-
um, pollamót í knattspyrnu, glíma,
starfshlaup í léttum dúr, reiðsýning
og ýmiskonar skemmtiatriði, tívolí
og varðeldur.
Hundasýning í
íþróttahölliiuii
á Akureyri
á sunnudag
Næstkomandi sunnudag efnir
Hundaræktarfélag Islands til hunda-
sýningar í íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Þetta er fimmta hundasýning
félagsins á Akureyri og sú lang-
stærsta til þessa. Sýndir verða 99
hundar af 15 tegundum og er það í
fyrsta skipti sem svo margar tegund-
ir eru sýndar á íslandi. Dómari
verður Ernest Froggatt frá Bret-
landi, en hann er mjög virtur dóm-
ari um allan heim. Dagskráin hefst
kl. 9.30 með sýningu á Labrador
retriever og lýkur með úrslitum um
kl. 15.25.
Kaffiogvöfflusala
Zontaklúbbs
Akureyrar
Konur í Zontaklúbbi Akureyrar
vilja vekja athygli á að sunnudaginn
5. júlí nk. verður efnt til kaffi- og
vöfflusölu í húsi klúbbsins í Innbæn-
um. Upplagt er fyrir Akureyringa
og ferðafólk að líta við um leið og
söfnin í Innbænum eru skoðuð.
Arnar Geirdal
sýnir í Vín
um helgina
Málverkasýning verður í Blóma-
skálanum Vín við Hrafnagil um
helgina, 4. og 5. júlí. Sýndar verða
nokkrar myndir eftir Arnar Geirdal
Guðmundsson. Þetta er í fyrsta
skipti sem haldin er sýning á verkum
hans. Arnar er fertugur Akureyr-
ingur og lærði í Myndlistaskólanum
á Akureyri á árunum 1979 til 1981.
Hann er nú búsettur í Hafnarfirði.
Þetta er sölusýning og eru málverk-
in unnin í olíu, krít og vatnslitum.
Ferðafélag Akureyrar:
Gönguferð og
sigling í
Héðinsfjörð
Um helgina efnir Ferðafélag Akur-
eyrar til tveggja ferða. Annars vegar
gönguferðar á morgun frá Ólafsfirði
í Héðinsfjörð og verður gist í
Hvanndölum. Siglt verður til Ólafs-
fjarðar. Lagt verður af stað frá skrif-
stofu Ferðafélagsins kl. 8 í fyrramál-
ið. Hins vegar verður efnt til báts-
ferðar frá Ölafsfirði í Héðinsfjörð
og verður lagt af stað frá skrifstofu
Ferðafélagsins kl. 8 á sunnudags-
morgun. Skrifstofa Ferðafélags
Akureyrar er opin frá kl. 16-19 frá
mánudegi til föstudags.
Ógnareðli frum-
sýnd í kvöld
í Borgarbíói
Stórmynd helgarinnar í Borgarbíói
á Akureyri er Ógnareðli með
Michael Douglas og Sharon Stone í
aðalhlutverkum. Ekki er ofsögum
sagt að Ógnareðli sé ein af umtöluð-
ustu myndum síðari ára og hún hef-
ur fengið gífurlega mikla aðsókn þar
sem hún hefur verið sýnd. Myndin
var frumsýnd í Bandaríkjunum í
mars við mikil mótmæli hinna ýmsu
samtaka homma og lesbía auk þess
sem samtök kvenna mótmæltu því
sem þær sögðu niðurlægjandi
samfarasenum. Fyrstu sýningarhelg-
ina í Bandaríkjunum skilaði myndin
framleiðandanum 885 milljónum
króna. Nú hcfur myndin tekið inn
um 6 milljarða í Bandaríkjunum.
Ógnareðli verður frumsýnd í
Borgarbíói í kvöld kl. 20.45 og aftur
kl. 23. Hún verður síðan sýnd kl.
20.45 annað kvöld, á sunnudag,
mánudag og þriðjudag.
Borgarbíó sýnir Konu slátrarans
kl. 21 um helgina. Klukkan 23 verð-
ur sýnd mótorhjólamyndin Svell-
kalda klíkan og á sama tíma verður
sýnd myndin Banvæn blekking.
Á barnasýningum á sunnudag kl.
15 verða sýndar myndirnar Benni og
Birta í Ástralíu og Fievel goes west.
Dalvík:
Útimarkaður á
frystihús-
planinuámorgim
Útimarkaður verður á morgun,
laugardag, á planinu sunnan við
frystihúsið á Dalvík og hefst hann
kl. 13. Fjölmargir söluaðilar frá
Dalvík og nágrannabyggðum munu
hafa fjölbreyttan varning á boðstól-
um. Ætlunin er að þessi útimarkað-
ur verði fastur liður á laugardögum í
júlí og eitthvað fram í ágúst. Áður
hefur verið efnt til útimarkaðar yfir
sumarið á planinu fyrir framan Vík-
urröst, en nú hefur hann sem sagt
verið fluttur á frystihúsplanið.
Sú Ellen
í Sjallanum
í kvöld og annað kvöld leikur
hljómsveitin Sú Ellen frá Norðfirði í
Sjallanum. Annað kvöld verður
uppskeruhátíð Pollamóts Þórs, en
mótið hefst í dag og lýkur á morgun.
Mótið hefur verið haldið á hverju
sumri og hafa aldrei verið fleiri
keppendur en nú. Hátíðin hefst
með kvöldverði kl. 19 og verða
skemmtiatriði og dansað fram eftir
nóttu.
Útilífsskóli Klaldís
Fyrir krakka á aldrinum 10-13 ára
Nú er síðasta námskeið sumarsins að
bresta á, en það er dagana 6.-10. júlí.
Skráning í síma 12266 alla daga
íram að námskeiðinu á milli kl. 16.00
og 18.00.
Skátafélagið Klakkur
Alþjóðleg ráðsteftia næringar-
fræðinga haldin í Reykjavík
Um miðjan júní sátu rúmlega 270
næringarfræðingar og aðrir sér-
fræðingar frá öllum Norðurlönd-
um ráðstefnu í Háskólabíói,
kynntu niðurstöður rannsókna og
fjölluðu um samvinnu sín á milli.
Fjöldi erinda var haldinn á ráð-
stefnunni og meðal annars var
greint frá nýjum rannsóknum á
eðli og meðferð offitu sem sýna
að fjöldi hitaeininga í fæði er
ekki það eina sem ræður úrslitum
hvort fólki hættir til að fitna held-
ur skiptir ekki síður máli hversu
fituríkt fæði fólk borðar. Rann-
sóknir dr. Arne Astrup, við Nær-
ingarstofnun Kaupmannahafnar-
háskóla, á efnaskiptum í offitu
benda til dæmis eindregið til þess
að mun betri árangurs sé að
vænta við megrun ef borðað er að
vild og án nokkurs sveltis, fæði
sem er fitulítið, heldur en ef sér-
stakt kapp er lagt á fækkun hita-
eininga.
Ef fæðið er fituríkt virðist ekki
nást sama seddutilfinning fyrir
hverja hitaeiningu og því borðar
fólk ósjálfrátt meira og orkurík-
ara fæði heldur en ef fæðið er
kolvetnaríkt og mikið borðað af
ávöxtum, grænmeti og lítið
smurðu brauði. Einnig kom fram
að strangir og einhæfir megrunar-
kúrar bera sjaldan árangur ef til
lengri tíma er litið heldur geta
þeir þvert á móti aukið vanda
fólks auk þess sem miklar þyngd-
arsveiflur geta skaðað heilsu mun
meira en stöðug ofþyngd.
Á ráðstefnunni var einnig fjáll-
að um næringu ungbarna og ungs
fólks á Norðurlöndum. Dr. Kim
Fleischer Michaelsen kynnti nið-
urstöður rannsókna á næringu,
vexti og þroska danskra ung-
barna sem sýna að um fjórðungur
ungbarna fær fituminna fæði en
æskilegt getur talíst og mun fitu-
minna en eldri börn og fullorðnir
borða að jafnaði.
Fram að þessu hafa málefni
þróunarlanda lítið sem ekkert
verið til umfjöllunar á þingum
norrænna næringarfræðinga en í
þetta sinn var einn morgunn
helgaður umræðu um næringar-
rannsóknir í þróunarlöndum.
Þar kom meðal annars fram að
niðurstöðum slíkra rannsókna er
gjarnan haldið leyndum þar sem
þær geta varpað rýrð á stjórnir
ríkja þar sem næringarskortur er
útbreiddur. í erindi dr. Wenche
Bart Eide, prófessors við Oslóar-
háskóla, kom einnig fram að
rannsóknir vestrænna vísinda-
manna í þróunarlöndum eru oft á
tíðum ekki til þess fallnar að efla
hag þeirra sem verið er að rann-
saka, heldur eru rannsóknirnar
fremur sniðnar með tilliti til hags-
muna vísindamannanna sjálfra
og þeirra eigin frama á vísinda-
sviðinu. í lok erindis síns skoraði
hún því á íslendinga og íslensk
stjórnvöld að beita sér fyrir því
að fjallað verði um bætta sam-
vinnu við rannsóknir vestrænna
vísindamanna í þróunarlöndum á
„Fyrstu alheimsráðstefnu um
matvæli og næringu" í Rómaborg
síðar á þessu ári. Taldi hún
Islendinga öðrum fremur geta
komið slíkri áskorun á framfæri á
alþjóðavettvangi þar sem ísiend-
ingar hefðu sjálfir búið við fátækt
undir erlendri stjórn en teldust
nú til auðugri þjóða heims. Fleiri
ráðstefnugestir tóku undir þessa
áskorun til íslendinga og hefur
henni því verið komið á framfæri
við innlend stjórnvöld.
ÞRÍHJÓL HÆFA BETUR ÞROSKA
FORSKÓLABARNA.
SLYSAVARNAFELAG ISLANDS
RAUDI KROSS ÍSLANDS
SP0RTSK0LIKA
SUMARIÐ '92
★ Línuskautar ★ Körtubolti ★Fimleikar
★ Hokkí ★ Blak ★ Hjólreiðar
★ Sund ★ Sport-leikir ★ Borðtennis
★ Knattspyrna o.fl. o.fl.
fyrir hressa krakka á aldrinum 8-13 ára.
Fjögur vikunámskeið - hálfan daginn frá kl.
9.00-11.00 á morgnana annars vegar eða hins
vegar frá kl. 13.00-15.30. Námskeiðsgjald er kr.
2.500,-
Skráning í KA-heimilinu
og í síma 23482.
Leiðbeinandi er
Gunnar Már Másson,
íþróttafræðinemi í VSA.
Tilboð
Lambalærissneiðar 1. fl. 920 kr. kg
Smjör500 g 199 kr. kg
Vörukynning á Sunquist appelsínu-
safa föstudag og laugardag.
0?TÍ0B
Opið mánud. til föstud. kl. 12-18.30,
laugard. kl. 10-14.
ATH. Tökum kreditkort og
viðskiptamannanótur.