Dagur - 03.07.1992, Page 13
Föstudagur 3. júlí 1992 - DAGUR - 13
Minning
4F Bjöm Ottó Kristinsson
Fæddur 1. október 1918 - Dáinn 29. júní 1992
- kveðja frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
„Auð né heilsu
ræður engi maður,
þótt honum gangi greitt;
margan það sækir,
er minnst um varir,
engi ræður sættum sjálfur. “
(Úr sólarljóðum.)
Þegar við héldum hátíðlegt 25
ára afmæli samfelldrar vélstjórn-
arkennslu á Akureyri á síðast-
liðnu hausti var Björn Kristins-
son fjarverandi. Heilsa hans
leyfði ekki að hann gæti tekið
þátt í þessari hátíðarstund;
stund, sem ekki hefði verið hald-
in ef hans hefði ekki notið við.
Engum manni hefðum við þá
fagnað meira.
Og nú er hann allur, tæpra 74
ára.
Starf frumherjans er ekki alltaf
boriö á torg, aðrir eru oft meir
mærðir. Þegar Björn Kristinsson
af hugsjón sinni gerðist frumherji
vélstjórnarmenntunar á Akureyri
fyrir meira en aldarfjórðungi, þá
var það örugglega ekki gert af
fordild eða frægðarþrá, heldur af
hugsjón, óbilandi áhuga á starfi
sínu og lönguninni til að miðla
öðrum. Við gerum okkur ekki
grein fyrir því starfi, sem hann
vann, þekkjum ekki til áhyggj-
unnar og andvökunnar, slíkt var
einfaldlega ekki nefnt. Hins veg-
ar má segja, að sú áhyggja og sú
andvaka komi okkur nú til góða,
við sem njótum ávaxtanna, ylsins
af eldinum, sem hann kveikti.
Hér á Akureyri höfðu fram yfir
miðja öldina verið haldin nokkur
mótoristanámskeið á vegunr
Fiskifélags íslands við allgóða
aðsókn. Þegar vélstjórnarnámið
var sameinað 1966, lögðust þessi
námskeið af, þannig að engin
vélstjórnarfræðsla var í boði utan
Reykjavíkur. Þessu var mætt
með því að stofna deildir úr Vél-
skóla íslands út um land, m.a. á
Akureyri.
Það var Gunnar Bjarnason,
skólastjóri Vélskóla íslands, sem
fól Birni að setja á stofn deild frá
Vélskólanum hér á Akureyri árið
1966. Þessi fyrstu frumbýlingsár
voru erfið og mikið mæddi á bæði
nemendum og kennurum, þó svo
að þyngstar byrðarnar hafi Björn
borið; hann má með fullum rétti
kalla „burðarás" vélstjórnar-
kennslunnar hér á Akureyri. Vél-
skóli íslands á Akureyri var sjálf-
stæð deild sem sameinaðist Iðn-
skólanum á Akureyri árið 1972
og rann inn í Verkmenntaskól-
ann á Akureyri þegar hann tók til
starfa 1984. Björn lét af starfi
sem stjórnandi Vélskólans 1984,
en fyrstu annirnar sem Verk-
mcnntaskólinn starfaði, var
Björn enn við dálitla kennslu, en
heilsu hans hrakaði þá mjög og
að lokum varð hann að setjast í
helgan stein. Þó átti kennslan
hug hans allan miklu lengur og ef
til vill hefur hann í veikindum
sínum síðustu misserin endurlif-
að þá daga er hann kenndi í fullu
fjöri og sá hugsjón sína smátt og
smátt veröa að veruleika.
Það geta ekki allir orðið braut-
ryðjendur, slíkt er aðeins fáum
gefið, burðarásinn verður aðeins
einn. Þegar við í dag kveðjum
Björn Kristinsson er okkur þakk-
læti og virðing efst í huga, starfi
hans viljum við halda áfram, því
maður kemur í manns stað, einn
tekur við af öðrurn. Þessu fáum
við, dauðlegir menn, ekki breytt.
Við sendum eftirlifandi eigin-
konu hans, börnum og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Með Birni Kristinssyni er
genginn góður drengur.
tSigríður Einarsdóttir
frá F.vrarlanHi
frá Eyrarlandi
Fædd 4. október 1902 - Dáin 23. júní 1992
Hún fæddist í dagrenningu þess-
arar aldar og dó skömrnu fyrir
sólarlag hennar. Langri ævi
merkrar konu er lokið - á meðal
okkar - hún sofnaði svefninum
langa inn í Jónsmessunóttina.
Einkennandi fyrir hana, sem
unni vorinu svo sem hún lýsti
sjálf fyrir skömmu í bréfi:
„...sem krakki fylltist ég svo
sterkri ógn um leið og byrjaði að
snjóa og skildi ekki fullorðna
fólkið sem tók þessu með jafnað-
argeði. Þá byrjaði ég strax að þrá
vorið með lítil löntb, grænan
gróður, blóm og fuglasöng."
Hún hét Sigríður Einarsdóttir
og fæddist, ólst upp og bjó nánast
alla sína ævi á Eyrarlandi, nú í
Eyjafjarðarsveit. Hún var elst
fimm barna sæmdarhjónanna
Margrétar Eiríksdóttur og Einars
Árnasonar, bónda og alþingis-
Hjálparlínan, sími 12122 - 12122.
Minningarspjöld Akureyrarkirkju
fást í Safnaðarheimili kirkjunnar,
Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarkort Hjálparsveitar skáta
Akureyri, fást í Bókvali, Bókabúð
Jónasar og Blómabúðinni Akri,
Kaupangi.
Grýtubakkahreppur - Grenivík.
Munið cftir minningarspjöldum
Steinunnar Sigursteinsdóttur. Til
sölu hjá Eydísi í Litluhlíð 2g, sími
21194.
Minningarkort S.Í.B.S. eru seld í
umboði Vöruhappdrættis S.Í.B.S.,
Strandgötu 17, Akureyri.
Minningarkort D.A.S. eru seld í
umboði D.A.S. í Strandgötu 17,
Akureyri.
Minningarspjöld Kvenfélagsins
Framtíðar fást í: Bókabúð Jónasar,
Blómabúðinni Akri, Dvalarheimil-
inu Hlíð, Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík og hjá Margréti Kröyer Helga-
magrastræti 9.
Minningarkort Landssamtaka
hjartasjúklinga fást í öllunr bóka-
búðum á Akureyri.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð,
Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu
F.S.A.
manns. Hún naut góðs uppeldis á
menningarheimili, nam við
Kvennaskólann á Blönduósi í
byrjun þriðja áratugarins, þar
sem bóklegar greinar voru hafðar
í hávegum ásamt þeim verklegu.
Um það leyti kom ungur mað-
ur úr Mývatnssveit inn í líf
hennar, Sigurgeir Sigfússon hét
hann. Þau felldu hugi sarnan og
settu saman bú á Eyrarlandi,
byggðu við gamla bæinn og
bjuggu þar myndarbúi á rneðan
heilsa leyfði. Börnin urðu fjögur,
barnabörnin þrettán, en barna-
barnabörnin eru orðin allmörg og
fimmti ættliðurinn að byrja að
líta dagsins ljós.
Öllum þessum skara sendi hún
handunnar jólagjafir á hverjum
jólum, gjafir sem hún lagði í svo
mikla alúð og kærleika, gjafir
sem alla gladdi og hún gleymdi
engum.
Mann sinn missti Sigríður eftir
46 ára hjónaband, hún varð einn-
ig að sjá á eftir elsta syni sínum á
besta aldri, næstelsta barnabarn-
inu á fcrmingaraldri og níu ára
langömmubarni. Þá skrifaði hún:
„Og hvað á ég að segja, sorg-
mædd gömul kona, ykkur til hug-
hreystingar, nú þegar hún er
horfin sjónum okkar, yndisleg-
asta blórnið á ættarmeiðnum?“
Og hún heldur áfram: „Er það
öfugmæli að þeir séu ríkastir sem
mest hafa misst? Hugsaðu þér þá
sem aldrei hafa átt neitt, nema þá
veraldarauð, aldrei hafa þekkt
dýpstu gleði og sárustu sorg, þeir
eru hinir fátæku, eiga ekki einu
sinni minningarnar. Skáld hefur
sagt og óskað þjóð sinni, að hún
eigi ávallt menn að missa, meiri
og betri en aðrar þjóðir.“
Nú er hún horfin sjónum
okkar, þroskaðasta og göfugasta
blómið á ættarmeiðnum, og hún
var svo sannarlega ein af meiri og
betri mönnum þjóðar okkar og
við erum rík.
Hún naut ætíð ómældrar virð-
ingar samferðafólksins, því hvar
sem hún kom og hvar sem húrt
dvaldi hafði hún áhrif og setti
svip sinn á umhverfið.
Hún starfaði mikið að félags-
málum og valdist þar til forystu,
hún var hagmælt og listfeng og
hafði unun af ljóðum, bókum og
blórnum. Hún var listaskrifari til
hinstu stundar og hún skilur eftir
sig marga og fagra handunna
gripi sem hún gaf afkomendum
sínum af örlæti. Hún hafði
óvenju næmt auga fyrir fegurð
náttúrunnar og hún unni sveit
sinni af hjarta.
Síðustu árin dvaldi Sigríður í
Skjaldarvík og fór afar vel um
hana þar og hún naut jafnframt
umhyggju barna sinna og fjöl-
skyldna þeirra, sem búa í grennd-
inni. Alltaf fór hún samt heim í
Eyrarland á sumrin og naut sam-
vistanna við fólkiö á bænum og
börn sín og barnabörn, sem
gjarnan komu og dvöldu hjá
henni í gamla bænurn hennar.
I-lún kvaddi þennan heim á
þann veg sem hún var svo oft
búin að óska sér - með fullri
reisn. Hún skrifaði fyrir tveimur
árum: „Þetta sígur allt til þessar-
ar einu áttar sem við öll hljótum
að feta, hvort sem okkur er það
Ijúft eða leitt. Ég segi bara með
Davíð: „...fyrr að kallið kemur,
þá kem ég glaður um borð.“ Og
hún kom svo sannarlega glöð um
borð.
Hún skrifaði einnig: „Gamla
fólkið okkar er alltaf að kveðja
og ég samfagna því og gleðst mcð
þeim sem eiga þörf á hvíldinni.“
Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og enn
skrifar hún: „í þcirri kirkju er
hljóður helgiblær, þar líður mér
vel.“ Hún verður lögð til hinstu
hvílu við hlið eiginmanns síns, í
Kaupangskirkjugarði, í sveitinni
hennar fögru.
Nú er komið að kveðjustund
og minningarnar hrannast upp.
Þær cru svo margar og yndisleg-
ar. Ég eignaðist hana að ömmu
er ég var tæplega fjögurra ára
gömul og síðan þá, eða í 44 ár,
hefur ríkt gagnkvæmur kærleikur
á milii okkar. Bréfin hennar öll
sem ég varðveiti sem gull, munu
veita mér og fjölskyldu minni
mikla andlega auðlegð unt ókom-
in ár. Ef allir væru sem hún, þá
væri heimurinn betri og vænlegri
í dag.
Ég kveð ástfólgna ömmu rnína
með sálmi þeim, sem sunginn var
við útför sonar hennar og lang-
ömmubarns og tengist okkur á
fleiri vegu:
Handleiðsla Guðs
Pað er elskað og vakað
því að yfir mér skín
föður ásjóna björt eins og sól.
Allt ergeislandi bjart,
ekkert glepur mér sýn,
því að Guð er mér hæli og skjól.
Pegar geð mitt er rótt,
er allt heilagt og hljótt,
allur heimurinn brosmildur er,
og það veitir mér frið,
að ég veit mér við hlið
hann, sem vakir í náð yfir mér.
(Pctur Sigurðsson.)
...og-mcð þeim sömu orðum
og hún lauk bréfum sínum: Veri
hún best kvödd og Guði falin í
eilífri náðinni.
Kristín Árnadóttir.
í dag, föstudaginn 3. júlí, kveðj-
um við aldna heiðurskonu, Sig-
ríði Einarsdóttur. Víst er að
margs er að minnast eftir langa
og ánægjulega samfylgd.
Sigríður fæddist á Eyrarlandi í
Eyjafjarðarsveit 4. október 1902.
Hún var elst 5 barna Einars
Árnasonar og Margrétar Eiríks-
dóttur. Aðalsteinn og Laufey eru
bæöi látin, en yngstu systurnar
Hulda og Ingibjörg eru búsettar á
Eyrarlandi.
Sigríður giftist Sigurgeiri Sig-
fússyni árið 1922. Hann lést 1969
eftir langvarandi veikindi. Þau
hjónin eignuðust 4 börn: Árna,
sem lést 1973; Ragnheiði, Einar
og Eirík Yngva.
Öll sín ungdóms- og síðar
búskaparár bjó Sigríður á Eyrar-
landi, eða til ársins 1981 að hún
fluttist á dvalarheimilið í Skjald-
arvík.
Hún var vön að taka því sem
að höndum bar með ótrúlegri
stillingu og æðraðist ekki. Það
eru mikil viðbrigði að yfirgefa
æskuslóðir sínar til frambúðar,
eftir tæplega 80 ár. Þessa ákvörð-
un tók hún sjálf og einnig að láta
sér líða vel á nýja heimilinu.
Starfsstúlkurnar voru henni sér-
staklega góðar og umhyggjusam-
ar og hún mat mikils allt sem þar
var fyrir hana gert. Nýlega talaði
hún svo um að árin hefðu verið
góð og liðið hratt svo sér hefði
örugglega ekki leiðst. Við fjöl-
skyldan hennar sendum starfs-
fólkinu í Skjaldarvík okkar inni-
legustu þakkir fyrir allt sem gert
var fyrir Sigríði.
Óhætt er að segja að áhuga-
málin voru mörg og ólík, því fátt
lét hún sér óviðkomandi. Að
félagsmálum starfaði hún um
áratugaskeið, hún las rnjög mikið
alla tíð og gat sagt okkur sögu-
þráð bóka sem hún hafði lesið,
bæði nýlega og líka fyrir mörgum
árunt. Hún hafði yndi af ferða-
lögum. Mikla og fallega handa-
vinnu vann luin af vandvirkni og
alúð, eins og allt sem luin tók sér
fyrir hendur. Væri góður kapp-
leikur í sjónvarpi t.d. handbolti
hikuðum við fólkið hennar við að
trufla hana með heimsóknum.
Fjölskyldan og vinirnir voru þó
Sigríðar hjartans áhugamál.
Ánægðust var hún þegar hún
hafði sem flest af sínu fólki í
kringum sig.
Að mínu mati var hún einstök
kona, sem við fólkið hennar
elskuðum og virtum og eigum
eftir að sakna og minnast oft á
ókomnum árum. Við gleðjumst
samt fyrir hennar hönd að hafa
fengið að sofna út af í rúminu
sínu í Skjaldarvík, og vakna hjá
vinunum sínum horfnu, án
undangenginna veikinda; rétt
eins og hún hafði óskað sér.
Sigríður var svo heppin að
halda sjón, heyrn, rninni og allri
hugsun frarn á síðustu stund. Það
var alltaf reisn yfir þessari konu
þótt bak og fætur bognuðu og
andlitið var svo sérstaklcga slétt
og fallegt.
Hún lifði lífinu lifandi þó svo á
síðustu árunt hafi hún lítið farið.
Lífsviðhorfið var alltaf jákvætt
og neikvæðar hliðar tæplega til.
Sigríður veitti okkur fólkinu
sínu umhyggju og gleði sem
yljuðu svo vel. Við kveðjum Sig-
ríði með söknuði og treystum á
endurfundi. Það er svo gott að
vita af henni, því hún tók alltaf
svo vel á móti okkur þegar við
komum til hennar. Hafi Sigríður
kæra þökk fyrir allt. Guð leiði
hana á nýjum leiðum.
Sólveig.
Kveðja til ömmu
Fagna þú, sál mín, allt er eitt í Drottni,
eilíft og fagurt, - dauðinn sætur blundur.
Pótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni
og þrotni,
veit ég, að geymast handar stærri undur.
Pótt stórtré vor í byljum jarðar brotni,
bíður vor allra' um síðir Edens-lundur.
Fagna þú, sál mín, lít þú viðlend veldi
vona og drauma, erþrýtur rökkurstíginn.
Sjá hina helgu glóð afarineldi
eilífa kærleikans á bak við skýin.
Fagna þú, sál mín, dauðans kyrra kveldi, -
kemur upp fegri sól, er þessi' er hnigin.
(Jakob Jóh. Smari)
Álfliildur, Friðgeir og Sigga.