Dagur - 03.07.1992, Blaðsíða 15
Föstudagur 3. jútí 1992 - DAGUR - 15
Iþróttir
Fyrsti ósigur Þórsara
- hrikalega lélegt, sagði Bjarni Sveinbjörnsson
Það var ekki tilþrifamikill leik-
ur sem fram fór á Akureyrar-
velli í gær þegar KR-ingar báru
sigurorð af Þór í Samskipa-
deildinni, 0:1. Þetta er fyrsti
tapleikur Þórs í sumar og er
ljóst að þeir þurfa að gera mun
1. deild
Víkingur-Fram 2:2
Þór-KR 0:1
ÍBV-UBK 0:0
Valur-KA 4:0
FH-ÍA 0:4
Staðan:
ÍA 8 5-3-0 14: 5 18
KR 8 5-2-1 15: 7 17
Fram 8 5-1-2 17: 9 16
Þór 8 4-3-1 9: 4 15
Valur 8 3-3-2 12: 9 12
FH 8 2-3-3 9:15 9
Víkingur 8 2-2-4 9:14 8
KA 8 1-3-410:15 6
ÍBV 8 1-1-6 5:13 4
UBK 8 1-1-5 3:11 4
Markahæstir:
Valdimar Kristóferssun. Fram 8
Arnar Gunnlaugsson, ÍA 6
2. deild
ÍBK-Fylkir 3:1
ÍR-Víðir 0:3
Leiftur-Stjarnan 1:0
Þróttur-Selfoss 3:1
Staðan:
Fylkir 7 6-0-1 17: 6 18
ÍBK 7 5-1-116: 8 16
Leiftur 7 4-1-2 13: 3 13
Stjarnan 7 3-1-3 11: 8 10
ÍR 7 2-3-2 9:13 9
Þróttur R. 7 3-0-413:19 9
Víðir 7 2-2-3 11:12 8
Grindavík 6 2-1-3 9:11 7*
*BÍ 6 1-1-4 7:15 4
Selfoss 7 0-2-5 7:17 2*
•Midað við að úrskurður í kærumáli félag-
anna standisi.
Markahæstur:
Þorlákur Árnason, Leiftri 11
íþróttir
Föstudugur
5. flckkur kurlu:
Esso-mót KA kl. 9-19
Eldri llokkur kurlu:
Pollamót Þórs
Laugurdagur
3. deild:
Magni-Þróttur N. kl. 14.00
Grótta-Tindastóll kl. 14.00
KS-Völsungur kl. 14.00
Haukar-Dalvík kl. 14.00
4. deild karla C:
SM-Ungmf. Neisti kl. 14.00
Þrymur -HSÞb kl. 14.(K)
Hvöt-Kormákur kl. 14.00
2. flokkur kurlu:
ÍR-Þór kl. 14.00
Fylkir-KA. kl. 14.00
5. flokkur karlu:
Esso-mót KA kl. 9-19
Eldri dokkur karia:
Pollamót Þórs
Mánudagur
3. flokkur karlu:
KA-Völsungur kl. 20.00
Þór-KS kl. 20.00
Hvöt/Kormákur-Tindastóll kl. 20.00
GOLF
Akureyri
Akureyrarmót 1.-4. júlí
Dalvík
Meistaramót Hamars 36 holur
Húsavík
Meistaramót GH 1.-4. júlí
Mývatnssveit
Einnarkylfukeppni 4. júlf 18 h. m/án
forgj. kl. 13.00
ÓlafsljörAur
Meistaramót GÓ 3.-4. júlí
Ulönduós
Meistaramót GÓs 1.-4. júlí
Sauðárkrókur
Meistaramót 30. júní - 4. júlí 72 h.
Skagaströnd
Meistaramót GSk 3.-4. júlí, opið mót
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Varmárvöllur
Meistaramót íslands (a.hl.) 4.-6. júlí.
betur ætli þeir sér að vera
áfram með í toppbaráttunni.
„Þetta var hrikalega lélegt. Við
spiluðum eins og ellefu einstakl-
ingar þarna inni á vellinum en
ekki eins og lið. Það gengur ekki
að menn hangi svona á boltanum
og spili ekki félagana uppi. Við
þurfum að gera mun betur en
þetta ætlum við okkur að eiga
möguleika gegn ÍA í næstu
umferð,“ sagði Bjarni Svein-
björnsson, fyrirliði Þórs, eftir
leikinn.
„Þetta var rosalega gott,“ sagði
Rúnar Kristinsson, fyrirliði KR.
„Það er alltaf erfitt að spila hér á
Akureyri en við áttum sigurinn
skilinn. Stefnan hjá okkur er að
halda þessu striki sem við höfum
tekið. Svo sjáum við bara til í
haust hvernig það gengur,“ sagði
Rúnar.
Leikur félaganna bauð ekki
upp á mikla spennu. Leikurinn
einkenndist af þófi á miðjunni og
í fyrri hálfleiknum gerðist varla
nokkur skapaður hlutur. Mark
KR-inga kom á 43. mínútu. Ein-
ar Þór Daníelsson hljóp þá með
boltann frá miðju, upp í gegnum
allt, inn í teig og skaut á mark og
skoraði. Allt of einfalt og var
vörnin víðsfjarri. KR-ingar voru
mun sterkari í fyrri hálfleiknum
þótt þeir hafi ekki skapað sér
nein alvarleg færi.
Síðari hálfleikur var mun betri
hjá Þórsurum og til að byrja með
var Halldór Áskelsson ágengur
upp við markið. Hættuleg færi
Iétu þó á sér standa. Einhver skot
komu utan af velli en það var eins
og það vantaði alltaf herslu-
muninn að leikmenn Þórs næðu
að stilla sig saman og spila sig í
gegn.
Seinni hluta hálfleiksins fengu
Þórsarar tvö ágæt færi til þess að
skora en lukkan var ekki með
þeim. f fyrra skiptið skallaði Lár-
us Orri Sigurðsson í markslá eftir
innkast en síðan á 90. mínútu átti
Kristján Kristjánsson, sem kom
inn á sem varamaður, hörkuskot
rétt framhjá markinu.
Sigur KR-inga verður að telj-
ast sanngjarn þótt þeir hafi í raun
ekki átt nein veruleg tækifæri,
frekar en Þórsarar.
Þórsarar urðu fyrir blóðtöku
strax á 8. mínútu þegar Hlynur
Birgisson, þeirra jafnbesti maður
í sumar, varð að fara af velli vegna
meiðsla. Besti maður Þórs var
Halldór Áskeisson en hjá KR átti
Einar Þór Daníelsson ágæta
spretti í annars jöfnu liði.
Lið Þórs: Lárus Sigurðsson, Júlíus
Tryggvason,' Hlynur Birgisson (Þórir
Áskelsson á 8. mín.), Birgir Þór
Karlsson, Lárus Orri Sigurðsson, Svein-
björn Hákonarson, Sveinn Pálsson, Hall-
dór Áskelsson, Ásmundur Arnarson
(Kristján Kristjánsson á 74. mín.), Árni
Þór Árnason, Bjarni Sveinbjörnsson.
Lið KR: Ólafur Gottskálksson. Ólafur
Hrafn Þorvaldsson, Atli Eðvaldsson,
Þormóður Egilsson, Sigurður Ragnar
Eyjólfsson (Gunnar Skúlason á 74.
min.), Rúnar Kristinsson, Gunnar
Oddsson, Einar Þór Daníelsson, Ragnar
Margeirsson, Heimir Guðjónsson (Þor-
steinn Halldórsson á 87. mín.) Hilmar
Björnsson.
Þórir Áskclsson, sem hér á í baráttu við Ragnar Margeirsson, kom inná fyrir
Hlyn Birgisson sem fór meiddur af velli strax í upphafi leiks. Mynd: gt
Gul spjöld: Árni Þór Árnason, Þór, Ein-
ar Þór Dantelsson, Óskar Hrafn Þor-
valdsson, KR.
Hroðaleg útreið KA-manna:
„Lélegt - bara lélegt“
„Lélegt - bara lélegt,“ var það
eina sem Gunnar Gíslason,
þjálfari og leikmaður KA-
manna viidi láta hafa eftir sér
eftir að liðið fékk stóran skell,
0:4, að Hlíðarenda í gærkvöld.
Þetta var fjórði ósigur KA í
röð og þarf vart að fjölyrða um
hversu alvarleg staða liðsins er
þegar fyrri umferð deildarinn-
ar er að Ijúka.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
fjörugur og KA-menn áttu síst
minna fyrsta hálftímann. Að
honum loknum tóku Valsmenn
hins vegar völdin og má segja að
KA-liðið hafi ekki verið með eft-
ir það.
Fyrsta markið kom á 42. mín-
útu eftir klaufaleg varnarmistök
2. deild:
Leiftur í toppslag
Leiftursmönnum halda engin
bönd þessa dagana í 2. deild-
inni í knattspyrnu. í gærkvöld
tóku þeir á móti Stjörnunni og
unnu með einu marki gegn
engu. Þorlákur Árnason skor-
aði sitt 11. mark fyrir Leiftur.
„Þetta var frábær sigur. Við
urðum að vinna til þess að vera
Knattspyrna:
Pollamót Þórs
Fjórða Pollamót Þórs og Flug-
leiða byrjar í dag. Keppt er í
knattspyrnu 30 ára og eldri.
Mótið hefst í dag, föstudag, og
verður spilað í dag og á
morgun.
Keppt verður á sjö keppnis-
völlum á félagssvæði Þórs og
verða þátttökuliðin 41 talsins.
Þau koma alls staðar að af land-
inu. Mótið hefst í dag klukkan
10.30 og verða leiknir 140 leikir í
dag og á morgun. í kvöld verður
grillveisla fyrir þátttakendur og
aðra gesti og annað kvöld verður
Galadinner í Sjallanum þar sem
verðlaunaafhending fer fram.
Fróttatilkynning
áfram með í toppbaráttunni og
það tókst. Liðið spilaði vel í fyrri
hálfleik og okkur tókst að hanga
á þessu eina marki,“ sagði
Marteinn Geirsson, þjálfari
Leifturs, eftir leikinn í gær.
Stjörnumenn voru sterkari
framan af og fengu þá tvö ágæt
færi til þess að skora en vörnin
ásamt Þorvaldi Jónssyni í mark-
inu, kom í veg fyrir mörk.
Mark heimamanna kom á 28.
mínútu leiksins og það var að
vanda Þorlákur Árnason, hinn
mikli markahrókur í Leifturslið-
inu, sem skoraði eftir horn-
spyrnu. Talsverð þvaga myndað-
ist og Þorlákur náði skoti á
marki, þrumaði boltanum upp í
þaknetið. Staðan í leikhléi var
jöfn og í síðari hálfleiknum
bökkuðu heimamenn talsvert.
Við það náði Stjarnan undirtök-
um á miðjunni og pressaði tals-
vert á Leiftursliðið. Þorvaldur
Jónsson, markvörður, stóð sig
mjög vel og kom í veg fyrir að
gestirnir næðu að skora. Ásamt
honum voru þeir Pétur B. Jóns-
son og Mark Duffield bestir í
Leiftursliðinu.
Eftir leikinn í gær eru Leifturs-
menn komnir í þriðja sæti deild-
arinnar með 13 stig. KH/SV
KA. Haukur Bragason var kom-
inn alltof langt út úr markinu og
það nýtti Antony Karl Gregory
sér með því að skalla í autt
markið. Aðeins tveimur mínút-
um síðar bættu Valsarar öðru
marki við og var Antony Karl
potturinn og pannan bak við það.
Hann fékk boltann á eigin vallar-
helmingi, óð upp allan völlinn
framhjá hverjum KA-manninum
á fætur öðrum, gaf á Porca sem
framlengdi á Arnljót Davíðsson
sem var aleinn við markteiginn
og komst hreinlega ekki hjá því
að skora.
Valsmenn héldu uppteknum
hætti í seinni hálfleik og sóknar-
loturnar buldu á KA-liðinu. Jón
Grétar skallaði í markið eftir
hornspyrnu á 49. mínútu og á 61.
mínútu skoraði Ágúst fjórða
markið eftir mikla stórsókn Vals.
KA-menn sluppu vel skömmu
síðar þegar Haukur kippti Dervic
niður þegar hann var kominn í
gegn en of langt mál yrði að lýsa
sóknarlotunum sem Valsmenn
áttu þar til yfir lauk. Lokatölur
urðu 4:0 og miðað við gang leiks-
ins sluppu KA-menn vel.
Skástir í annars jafn lélegu liði
KA voru Ormarr Örlygsson og
Gunnar Már en yfirburðamaður í
Valsliðinu og á vellinum var
Antony Karl Gregory.
Það var ekki heil brú í leik
KA-liðsins og það er ljóst að leik-
menn og þjálfari þurfa að hugsa
sinn gang. Staðan liðsins í deild-
inni er engum tilviljunum háð og
taki það sig ekki á verður botn-
sætið hlutskipti þess. HB/JHB
Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Ágúst
Gylfason, Izudin Dervic, Salih Porca
(Gunnlaugur Einarsson á 78. mín.), Ein-
ar Páll Tómasson, Sævar Jónsson, Jón
Grétar Jónsson, Steinar Adólfsson,
Antony Karl Gregory, Arnljótur Davíðs-
son (Gunnar Gunnarsson á 81. mín.),
Baldur Bragason.
Lið KA: Haukur Bragason, Örn Viðar
Arnarson, Steingrímur Birgisson (Hall-
dór Kristinsson á 56. mín.), Gunnar Már
Másson, Gunnar Gíslason, Bjarni
Jónsson, Pavel Vandas, Páll Gíslason,
Árni Hermannsson (Sigþór Júlíusson 66.
á mín.), Ormarr Örlygsson.
Gul spjöld: Pavel Vandas og Halldór
Kristinsson, KA, báðir fyrir brot.
Dómari: Egill Már Markússon.
Línuverðir: Þorvarður Björnsson og
Gunnar Gylfason.
Dómari: Sæmundur Víglundsson
Línuverðir: Kristján Guðmundsson og
Guðmundur J. Jónsson SV
Knattspyrna:
,Þórsarar í y
Urvalslið KSI
í dag fer fram á Akranesi
leikur ÍA og Úrvalsliðs KSÍ.
Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari, hefur valið liðið
fyrir leikinn og eiga Þórsar-
ar þrjá leikmenn í liðinu.
Eftirtaldir leikmenn skipa
liðið:
Markverðir: Birkir Kristins-
son, Fram og Friðrik Friðriks-
son, ÍBV.
Aðrir leikmenn: Rúnar
Kristinsson, KR, Óskar Þor-
valdsson, KR, Hilmar
Björnsson, KR, Ólafur Krist-
jánsson, FH, Hörður Magnús-
son, FH, Andri Marteinsson,
FH, Daníel Hilmarsson, FH,
Valur Valsson, UBK, Arnar
Grétarsson, UBK, Hlynur
Birgisson, Þór, Lárus Orri Sig-
urðsson, Þór, Sveinbjörn
Hákonarson, Þór, Atli Einars-
son, Víkingi, Atli Helgason,
Víkingi, Guðmundur I.
Magnússon, Víkingi, Indriði
Einarsson, Fylki, Finnur Kol-
beinsson, Fylki, Baldur
Bjarnason, Fram, Valdimar
Kristófersson, Fram, Tómas
Ingi Tómasson, ÍBV. SV
Tveir frá
KA í U-16
Landslið íslands skipað leik-
mönnum 16 ára og yngri
hefur verið valið. Hópurinn
æfír fyrir Norðurlandamót í
Noregi 6.-11. ágúst í haust.
Tveir leikmenn hjá KA voru
valdir í liðið. Liðið er skipað
eftirtöldum leikmönnum.
Markverðir: Helgi Áss
Grétarsson, Fram og Gunnar
Magnússon, Fram.
Aörir leikmenn: Lárus
ívarsson, Fram, Kjartan
Antonsson, UBK, Einar Ein-
arsson, ÍR, Arnar Ægisson,
FH, Freyr Bjarnarson, ÍA,
Anton Ólafsson, Reyni
Sandg., Vilhjálmur Vilhjálms-
son, KR, Grétar Sveinsson,
UBK, Þórhallur Hinriksson,
KA. Óskar Bragason, KA,
Valur Gíslason, Austra,
Nökkvi Gunnarsson, KR,
Andri Sigþórsson, KR, Eiður
Smári Arnórsson, ÍR. SV