Dagur - 22.08.1992, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 22. ágúst 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR
(Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25689
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Og sagan heldur áfram
Með falli kommúnismans vöknuðu
vonir margra um friðvænlegri og
betri heim. Stjórnmálastefna sem í
raun byggðist á misbeitingu valds
á flestum sviðum og hélt hluta
mannkyns í heljargreipum hafði
liðið undir lok án þess að vera sigr-
uð af neinum nema sjálfri sér.
Heimur bættra lífshátta blasti við í
augum margra Vesturlandabúa
þegar múrarnir féllu og gömlu
mennirnir í austri, sem trúðu á
alræði „öreiganna" í skjóli lögreglu
og vopnavalds hurfu af braut
hinna brostnu vona. Skipting
heimsins í austur og vestur virtist
úr sögunni og menn gátu snúið sér
að nýjum viðfangsefnum í stað
þess að gæta þeirra landamæra
sem hin ólíku stjórnkerfi skópu.
Fáir voru þó svo grunnhyggnir að
ímynda sér að alhliða þjóðfélags-
breytingar gætu átt sér stað við
hin fyrstu stjórnarskipti og flestum
ljóst að talsverðan tíma tæki að
leiða þær þjóðir er búið höfðu við
kommúnískt stjórnarfar til vest-
rænna lífshátta.
Sú hefur einnig orðið raunin.
Vandamál þessara ríkja eru af
margvíslegum toga. Framleiðslu-
hættir eru áratugum á eftir þeirri
þróun sem átt hefur sér stað á
Vesturlöndum og nokkurn tíma
tekur að byggja upp hagkerfi við-
skipta þar sem slíkt var nánast
ekki til ef frá er talin sá svarta-
markaður sem ætið þrífst í skjóli
boða og banna. Stríðsátök hafa
einnig brotist út á nokkrum stöð-
um þar sem fólk af mismunandi
þjóðernum vill komast hjá að deila
kjörum með hvað öðru þegar því er
ekki lengur ógnað til þess með
drápstólum stjórnvalda. Slík átök
hafa þó orðið vonum minni ef frá er
talin hin illskeitta og blóðuga bar-
átta Serba á Balkanskaga við að
halda saman einhverju af þeim
þjóðum sem áður mynduðu sam-
bandsríki Júgóslavíu.
Þótt enn sé langt í land að veru-
legur árangur náist í efnahagsleg-
um úrbótum virðast ríki Austur-
Evrópu vera á réttri leið hvað upp-
byggingu varðar og þar reynir
fyrst og fremst á þolinmæði fólks-
ins sjálfs - hvort það hefur biðlund
eftir þeim lífskjörum sem lengi
hafa staðið þegnum vestar í álf-
unni til boða. Ljóst er þó að lítið má
fara úrskeiðis til að sú biðlund
raskist og yngri kynslóðir þessara
ríkja bíða óþreyjufullar eftir nýjum
tímum á sviði lífsgæða.
En hver sem hin efnahagslega
þróun í Austur-Evrópu verður er
langt frá því að vandi heimsins hafi
verið leystur í eitt skipti fyrir öll.
Þótt kommúnismi þeirra Marx,
Engels, Leníns og Stalíns hafi mis-
tekist og sé nú að hverfa á spjöld
sögunnar sem rannsóknarefni
fræðimanna á komandi tímum búa
margar þjóðir og þjóðarbrot við
ömurleg lífskjör sem illmögulegt er
fyrir Vesturlandabúa að gera sér
grein fyrir. Þótt stjórnarskipti í
ísrael hafi dregið úr spennu - að
minnsta kosti um tíma - magnast
að sama skapi spennan í kringum
Saddam Hussein, sem ótrauður
eflir herafla sinn á ný eftir lok eyði-
merkurstríðsins á síðasta ári.
Hörmungar íbúa Sómalíu á vestur-
strönd Afríku eru með öllu ólýsan-
legar og víðar eiga jarðarbúar óra-
langt í land með að tileinka sér þau
lífskjör sem Vesturlandabúar hafa
skapað og telja undirstöðu viðun-
andi mannlífs.
Saga jarðarbúa er saga átaka og
baráttu. Hið mannlega eðli lætur
ekki að sér hæða þrátt fyrir að
margvíslegar kenningar um trú,
siðfræði og' stjórnmál hafi verið
skráðar og ætlað að beina hugsun
manna og þjóða í tiltekna farvegi.
Þótt slakni á spennu í löndum eða
heimshlutum um tíma virðist sem
átök og ófriður fari ætíð af stað á
nýjan leik. Þótt miklar breytingar
hafi vissulega orðið með falli
kommúnismans og opnað fjöl-
mörgu fólki nýjar leiðir er langt frá
því að átök hafi verið aflögð hér á
jörð. Ný tilefni virðast ætíð gefast
til þess að höggva náunga sinn og
í því efni heldur sagan áfram eins
og á öðrum sviðum. ÞI
ÍAKÞANKAR
Kristinn G. Jóhannsson
Um sérkennilegt verðlag
og gjaldeyrismál
Það var í fréttum íslenska
útvarpsins á miðvikudaginn var
að nú væri svo komið í Tallinn,
höfuðborg Eistlands að ekki
væri lengur hægt að hita upp
vatnið fyrir íbúana þar sem ekk-
ert fé væri til að kaupa olíu sem
til þarf. Þetta varð mér tilefni til
að rifja upp veru okkar þar í
sumar.
Við höfðum farið frá Péturs-
borg um morguninn og greið-
lega gekk að komast yfir landa-
mærin. Við komum við í gömlu
hesthúsi sem breytt hafði verið
í myndarlegan veitingastað og
fengum ágætan hádegisverð
en síðan tók við langur akstur til
Tallinn.
Hótel Olumpia var ágætt við
fyrstu kynni eða allt til kom að
matsalnum og peningamálun-
um.
Þannig stóð nefnilega á að
Eistlendingar höfðu fyrir fáum
dögum ákveðið að hætta að
nota rúblu sem gjaldmiðil en
taka upp eistlenska krónu í
staðinn (sbr. mynd). Það var
auðvitað einn liður í sjálfstæðis-
baráttu þeirra og ekki nema gott
eitt um það að segja svo langt
sem það náði. Sérfræðingur
okkar í gjaldeyrismálum komst
fljótt að því að ætlast væri til að
fyrir einn bandarískan dal
fengju menn tólf eistlenskar
krónur. Sem sagt gott.
Þar sem okkur hafði verið
gert viðvart um að Eistlendingar
vildu helst ekki nota annan
gjaldmiðil en sinn eigin í við-
skiptum höfðum við reynt að
losa okkur viö rúblurnar hinu
megin landamæranna og ætl-
uðum nú að skipta ferðatékkum
og dölum í splunkunýjar eist-
lenskar sjálfstæðiskrónur. En
þá fór í verra.
Við reyndum auðvitað fyrst í
bankastúku hótelsins og það
gekk ágætlega að skipta dölum
til að byrja með eða þangað til
skyndilega gatinu var lokaö og
okkur sagt að ekki væri fleiri
seðla að fá þann daginn. Kom
nú í Ijós að prentverk og dreif-
ing hinna nýju seðla hafði ekki
við eftirspurninni. í bönkunum
var sami skortur og gjaldkerar
lokuðu afgreiðslugötum sínum
fyrirvaralaust þegar ekki voru
fleiri eistlenskar krónur til. Þetta
var hvimleitt. Fyrir mína dali
fékk ég eingöngu einnar krónu
seðla og hefi ekki oft haft slíka
seðlabunka í höndum, nýprent-
aðir seðlar og varla þornaðir.
Það kom svo líka í Ijós að þeir
sem þjónuðu í verslunum og
veitingabúðum voru fjarri því að
vera vissir um verðgildi nýju
peninganna.
Hér erdæmi þess: I góðri list-
munaverslun niðri í staðnum
keyptum við dálítinn refil, hand-
ofinn. Hann kostaði fimmtíu og
níu eistlenskar krónur. Þegar
við hugðumst síðan kaupa okk-
ur „sjampó" í verslun hótelsins
kostaði eitt glas af slíku sextíu
og fimm krónur, og innflutt
koníak hundrað go fimmtán eist-
lenskar krónur, bjór kostaði á
veitingastað tuttugu krónur en
pepsí eina krónu og þrjátíu en
annars staðar fimmtán krónur.
Gamanið kárnaði svo veru-
lega þegar greiða átti fyrir veit-
ingar á hótelinu. I Ijós kom að
þjónarnir voru ekki yfir sig hrifnir
af nýju krónunni og þá einkum
vegna þess sögðu þeir að hún
væri hvergi skráð og því hvergi
gjaldgeng utanlands. Þeir voru
því furðu kærulausir um að telja
seðlabunkana sem við réttum
þeim til greiðslu og stungu í
vasann athugasemdalaust ef
maður hafði áður gaukað að
þeim fáeinum dölum í þjórfé.
Hótelið var greinilega enn í
opinberri eigu og ekki virtist
skipta máli fyrir starfsfólkið
hvernig skil yrðu á greiðslu
enda kom það í Ijós eitt kvöldið
að ekki fékk nema helmingur
gestanna mat þar sem þjónun-
um og eldhúsliðinu þótti greini-
lega nóg um erilinn og tóku upp
heyrnarleysi og axlaypptingar í
varnarskyni. Þannig var auðséð
að enn var löng barátta fram-
undan áður en eistlenska krón-
an og nýtt og stoltara vinnulag
kæmist til valda.
Það bar svo einnig við þarna
í staðnum að við vorum að
virða fyrir okkur hóp leigubíla
sem átti samastað fyrir framan
hótelið. Það voru ekki nýir bílar
og ekki allir fallegir. Þeir voru
flestir af gerðunum Volga og
Lada. Einn kom kunnuglega
fyrir sjónir, einkum fótabúnað-
urinn. Þarna stóð sem sagt
heldur krambúleruð Lada í
þrjátíu stiga hita á negldum
snjódekkjum. Ég er viss um að
þarna var kominn einn togara-
farþeginn frá íslandi og hafði nú
fengið þetta nýja hlutverk að
vera leigubíll.
Þótt svona hafi nú ástandið
verið í peningamálunum var
Ijóst að nýfengið frelsi hafði
aukið mönnum bjartsýni til að
takast á við þá erfiðleika sem
við blöstu og okkur virtust
næsta óviðráðanlegir.
P.S. Þess má svo geta að
gullaugað og glóðaraugað
halda áfram á þroskabrautinni í
garðshorninu og rabbarbarinn
stendur nú með alvæpni vörð
um velferð þeirra. Ég hefi frétt
af Gústa og hann er í góðum
höndum. Ég er við það sama.
Kr. G. Jóh.