Dagur


Dagur - 22.08.1992, Qupperneq 9

Dagur - 22.08.1992, Qupperneq 9
Laugardagur 22. ágúst 1992 - DAGUR - 9 Heim að Hólum - hið forna biskupssetur heimsott a Holahatið Hólar í Hjaltadal. Kirkjan var reist árið 1763 og var nýlega endurbætt. Myndir: sþ Hólahátíð hefur verið haldin að Hólum í Hjaltadal frá því á 6. áratugnum. Hún er haldin einu sinni á ári í ágúst. Þar hafa komið saman fjölmargir prestar við hátíðarmessu og fjöldi fólks streymt í kirkjuna til að vera viðstaddur. I ár var Hólahátíð með nokkuð öðru og stærra sniði en venjulega og uppi eru ýmsar hugmyndir til upplyftingar Hólastað í fram- tíðinni. Örfá atriði um Hólastól Hið forna biskupssetur Hólar í Hjaltadal skipar stóran sess í íslenskri sögu og í hugum manna. Þar hafa setið margir merkir biskupar og þekktir. Sá fyrsti var Jón Ogmundsson helgi er byggði fyrstu dómkirkjuna og kom á skóla á Hólum. Hann var vígður árið 1106. í kaþólskum sið eru eflaust þekktastir þeir Guðmund- ur Arason á Sturlungaöldinni og Jón Arason, síðastur kaþólskra, er hálshöggvinn var árið 1550. Eft- ir siðaskipti ber sennilega hæst nafn Guðbrands Þorlákssonar (1571-1627). Árið 1801 var biskupsstóll lagður af á Hólum. Stóð svo allt til ársins 1990 er ný lög tóku gildi og Hólastóll var endurreistur. Það hafði verið markmið Hólanefndar um nokk- urt skeið, en í henni eiga sæti ýmsir menn og er vígslubiskup formaður hennar. „Það er svolít- ið gaman að því að Ólafur Rögn- valdsson sem var fyrsti lútherski biskupinn var prestur í Laufási. Það er skemmtileg tilviljun að það skuli koma menn úr Laufási bæði á þeim tímamótum við siða- skiptin og eins núna þegar þessi lög taka gildi og biskupsstóll er raunverulega endurreistur,“ sagði sr. Bolli Gústavsson vígslu- biskup í samtali við blaðið. Gísli Magnússon biskup reisti þá kirkju er enn stendur á Hólum árið 1763. Kirkjan var lokuð um skeið vegna viðgerða en því verki lauk 1989. Margt fagurra gripa er í Hóladómkirkju. Einn þeirra er altaristaflan, en hún er nýkomin aftur eftir að hafa verið í viðgerð á Þjóðminjasafni talsvert lengi. Hólahátíð 1992 Hólahátíð í ár var með þeim aðdraganda að 9. ágúst var opn- uð myndlistarsýning á olíumynd- um eftir Gísla Sigurðsson í Bændaskólanum og í kirkjunni sýning á gömlum guðsorðabók- um. Elsta bókin er biblía á skinn- handriti frá 13. öld, ættuð úr frönsku klaustri. Þessi bók er í einkaeign eins og flestar hinar. Það eru þeir sr. Ragnar Fjalar Lárusson í Hallgrímskirkju og sr. Björn Jónsson á Akranesi sem eru svo auðugir að eiga þessi gömlu og ómetanlegu rit, en þeir eru báðir miklir bókasafnarar. Sr. Ragnar Fjalar og sr. Björn héldu báðir erindi um bækurnar við opnun sýningarinnar. Hátíð- inni lauk sunnudaginn 16. ágúst með árlegri guðsþjónustu og var kirkjugestum síðan boðið í kaffi. Þá hélt Njörður P. Njarðvík erindi um Sólarljóð sem eru frá 13. öld eftir ókunnan höfund. Haukur Þorsteinsson frá Leik- félagi Sauðárkróks flutti úr Sólar- ljóðum, en ljóðin eru einmitt þemað að myndum Gísla Sig- urðssonar. Hátíðin var mjög vel sótt, en aðsókn hefði mátt vera betri fyrri helgina. Slíkir menn- ingarviðburðir þurfa auðvitað að festast í sessi og vera vel kynntir. Biblíuleit og bókasöfnun Eins og áður sagði héldu þeir sr. Ragnar Fjalar Lárusson og sr. Björn Jónsson erindi við opnun bókasýningarinnar. Erindi sr. Ragnars Fjalars fjallaði m.a. um leit hans að gömlum biblíum, Guðbrandsbiblíu, Þorláksbiblíu og Steinsbiblíu. Hann hefur einnig leitað að Nýjatestamenti Odds Gottskálkssonar frá 1540 og Guðbrands Þorlákssonar prentað 1609 að Hólum og að svokallaðri Summariu sem er útdráttur úr bæði Gamla- og Nýjatestamenti og var prentað á Núpufelli 1589. Af biblíunum er Guðbrandsbiblía elst og merkust. Hún var prentuð á Hól- um árið 1584, að mestu þýdd af Guðbrandi Þorlákssyni biskupi. Hún var fyrsta heildarritið útgef- ið á íslensku og telja margir að hún hafi átt stóran þátt í að varð- veita tunguna. Þegar hún var gef- in út var hverri kirkju skylt að kaupa eitt eintak, en Guðbrand- ur gaf hana mörgum fátækum kirkjum. Biblían er 1444 síður og myndskreytt og líklega voru myndamótin fengin að láni frá Þýskalandi, en ekki eftir Guð- brand sjálfan eins og menn töldu. Þorláksbiblía kom út á Hólum 1644 og Steinsbiblía 1728, báðar kenndar við þá biskupa sem þar voru þá. í fyrirlestrinum kom fram að til er skrá frá árinu 1826 yfir biblíueign í landinu. Sam- kvæmt könnun sr. Ragnars sem nú hefur staðið í tvö ár hefur bókunum fækkað allverulega. Guðbrandsbiblía var upphaflega prentuð í 500 eintökum og árið 1826 voru 160 eftir. Nú hefur sr. Ragnar Fjalar fundið 30 eintök hér á landi. Af hinum biblíunum eru 37 eftir af Þorláksbiblíu sem upphaflega var gefin út í 500 eint. og mest til af Steinsbiblíu. Nýja- testamenti Odds var til í 18 ein- tökum árið 1826 en nú er vitað um tvö, bæði á Landsbókasafni. Nýjatestamenti Guðbrands var þá til í 17 eintökum og eru átta til nú. Skýringar eru margvíslegar, m.a. var eitthvað selt úr landi og er vitað um bækur á erlendum söfnum, t.d. eru fimm Guð- brandsbiblíur í Oxford eða Cam- bridge að sögn sr. Ragnars. í sumum tilfellum var ein bók búin til úr fleirum, þegar um var að ræða skemmd eintök og eflaust hafa bækur líka týnst og eyði- lagst. Sr. Ragnar kvaðst hafa komið fram í sjónvarpi og lýst þá eftir bókunum og fengið þó nokkur viðbrögð. Hann telur ekki líklegt að mikið fleiri finnist hér á landi. Hins vegar ætlar hann ekki að gefast upp heldur halda leit sinni áfram og þá út fyrir landsteinana ef með þarf. „Ef fólk skyldi hafa þessar biblí- ur undir höndum þá má það endi- lega hafa samband við mig því ég þarf að ganga frá þessari skrá sem ég er að gera innan eins - tveggja ára,“ sagði sr. Ragnar Fjalar að lokum. „Ég hef alltaf verið mikill ljóðavinur og þess vegna hafa sálmar og sálmakveðskapur stað- ið mínum huga ákaflega nærri,“ sagði sr. Björn Jónsson. Erindi hans fjallaði um tvö fyrstu þekktu sálmakverin sem útgefin voru á íslensku. Annað var Gíslakver, kennt við Gísla Jóns- son Skálholtsbiskup, útgefið 1555. Hitt var kver Marteins Ein- arssonar, einnig biskups í Skál- holti, útgefið 1558. Af því fyrr- nefnda er eitt eintak til og tvö af hinu. Björn fjallaði einnig um Hólabók, sálmakver Guðbrands biskups, útgefið að Hólum 1589 og kom út í 375 eintökum. Af því eru nú þekkt 3 eintök, tvö á ís- landi og eitt í Kaupmannahöfn. Samtals eiga þeir sr. Ragnar flestar útgáfur Passíusálmanna. Sr. Ragnar á stærsta safnið af Hólaprenti hér á landi, næst Landsbókasafni. Sr. Björn vildi að lokum þakka Áningu á Sauð- árkróki þessa menningardaga á Hólum. Hugmyndir um framtíð Hólastaðar Fyrirtækið Áning var stofnað árið 1987 sem ferðaþjónustufyrir- tæki . Markmið þess er að efla ferðaþjónustu í Skagfirði. Það rekur m.a. sumarhótel á Sauðár- króki. Björn Björnsson hjá Áningu sagði að hugmyndin væri að nýta Hóla sem menningarstað og að byrjunin hefði verið nú á Hólahátíð, en Áning hafði milli- göngu um bókasýninguna. Björn sagði að menn hugsuðu sér að í framtíðinni verði eitthvað um að vera í hverri viku á Hólum að sumrinu, t.d. bókmenntakynn- ingar og annað menningarefni. Sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup hefur einnig stórar hugmyndir um framtíð Hólastaðar. Hann segir gildi Hóla ótvírætt, fólki þyki vænt um staðinn og kirkj- una. Sr. Bolli segir að í framtíð- inni eigi Hólar að eignast kirkju- sögulegt safn, Þjóðminjasafn að Hólum. Þar eigi hið forna Hóla- prent að skipa öndvegi. En það vekur einmitt athygli að á bóka- sýningunni komu flestar bækurn- ar úr einkasöfnum, Hólastóll á ekki mikið af þessum fornu og merku guðsorðabókum Hóla- prents. Vonandi verður úr því bætt í framtíðinni. ,.u Sr. Ragnar Fjalar Lárusson og sr. Björn Jónsson eiga stærstan hluta bóka- safnsins sem sýnt var á Hólum. Guðbrandsbiblía, gefín út á Hólum árið 1584. Aðeins er vitað um 30 eintök á landinu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.