Dagur - 22.08.1992, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 22. ágúst 1992
Gistiheimilið Engimýri
Heimafólk -
Ferðamenn
Hvernig væri að fara í helgarkaffi á laugardag eða
sunnudag á kr. 500 og ef til vill á hestbak eða upp að
Hraunsvatni með silungastöngina í leiðinni?
Góðar viðtökur, fagurt umhverfi.
Gistiheimilið Engimýri í Öxnadal
Vegna 130 ára afmœlis
Akureyrarbœjar, laugar-
daginn 29. ágúst,
mun Dagurtileinka blaðið
þann dag afmœlinu.
Þeir sem vilja senda
afmœlisbarninu kveðjur
á síðum Dags, vinsam-
legast hafið samband
sem fyrst.
auglýsingadeild, sími 24222.
Opið virka daga frá kl. 8-17
nema föstudaga frá kl. 8-16.
Ath! Opið í hádeginu.
Bækur
Tryggð við fomar hefðir
- um ljóðabók Sigurðar Ingólfssonar, Heim til þín
Sigurður Ingólfsson, skáld, er
ungur að árum, en hann hefur
þegar kveðið sér hljóðs nokkrum
sinnum og hefur nú sent frá sér
þriðju ljóðabók sína. Bókin ber
heitið Heim til þín og geymir
ljóð, sem samin eru í Montpellier
í Frakklandi, þar sem Sigurður
stundar framhaldsnám í bók-
menntafræði.
Eins og heiti bókarinnar ber
með sér, eru hér ekki síst á ferð
ljóð ort til ættjarðarinnar og
mörg hver gegnsýrð þeim trega,
sem ættjarðarsækinn íslendingur
finnur til, þegar heimþrá herjar á
hann og hann tekur að sakna
hvers eina heima fyrir; hins
smæsta ekki síður en þess, sem
stærra er.
Sigurður hefur ljúft lag á því
að tjá trega sinn í smáum næmun
myndum, sem segja mikið meira
en orðanna hljóðan gefur ein sér:
Á rabbarbara
liggur daggardropi
í dropahóp sem
gufar upp og þornar
á þröskuldinum
stend ég stundarkorn
en stíg svo áfram,
svona fyrst að morgnar.
Rabbabarann
ríf ég síðan upp
með rót, en moidin
stynur lágvært „blupp“.
Ég ét hann fyrst en læðist aftur inn
og upp í rúm með daggir undir kinn.
Einnig er í þessari ljóðabók
Sigurðar að finna ljúf og hlý ijóð,
sem ort eru til sonar hans ungs
eða fyrir orðastað hans. Þar má
til nefna sonnetturnar Sonur
minn og vorið og Ungbarn ræðir
við snuð sitt, sem reyndar eru
ekki gallalausar en bera báðar
vott um lipurð í orðfæri og
næmni á það, sem ekki verður
séð, heldur einungis numið.
Tindilfætt er vorið vinur minn
er vaknar líkt og þú með bros í augum,
kyndirupphjá döprum vetrardraugum
sem drjúpa afhúsum niðrí grassvörðinn.
Svo iaumast vorið Ictt um mínar dyr
og iæðist upp að hijóðri vöggu þinni,
kyssir þig með ást frá eilífðinni
og ilm afgrasi og ferskan sjávarbyr.
Og veröldin er aftur orðin fögur
og undarlegri og stærri en ég skil
þó sonur minn og vorið viti allt
þvíhann og vorið segja ótal sögur
afsólinni með því að vera til
- og hús mitt verður aidrei aftur kalt.
Eitt er það, sem er einkar
ánægjulegt í ljóðabók Sigurðar
Ingólfssonar, Heim til þín, en
það er tryggð hans við fornar
hefðir íslensks kveðskapar. Á
tímum, þegar fátt er eftir, sem
talist getur séríslenskt í menn-
ingu okkar, þegar erlendir bók-
menntastraumar leika um okkur,
þegar myndmál framandi þjóða
berst okkur að augum og yfir-
gnæfir að langmestu það, sem
innlent er, þegar heimasamin
tónlist er í mörgum tilfellum
bergmál hins aðfengna, er full
ástæða til þess að fagna því, að til
skuli vera á meðal okkar ungir
menn, sem enn hafa á valdi sínu í
marktækum skáldskap að binda
mál sitt í stuðla og höfuðstafi.
Þeir eru sérkenni íslensks skáld-
skapar - ef til vill sem næst það
eina, sem við getum státað af í
bókmenntum sem séríslenskum
arfi við ljóðagerð.
Ekki ber svo að skilja, að allt í
bók Sigurðar sé jafngott, enda
ekki við slíku að búast og gerist
aldrei í neinu ljóðasafni. Hins
vegar er óhætt að segja, að
Sigurður Ingólfsson er á meðal
athyglisverðustu ungu mann-
anna, sem eru að hefja skáldferil
sinn þessi árin.
Haukur Ágústsson.
Nýtt! Handhægt!
Rafmagnsgrill
í eldhúsið — garðhúsið — sumarbústaðinn
og á svalirnar
Nú er hægt að grilla allt árið
Matarkrókarnir á Stfl, f.v.: Orn Viðar Erlendsson, Gunnar Jónasson, Hallgrímur Ingólfsson, Guðbrandur Siglaugs-
son, Edda Hermannsdóttir, Halldór Kristinsson og Baldvin Björnsson. Mynd: Goii
Teiknistofan Stíll:
„Maturinn er fyrir öllu“
nestin
Einkunnarorð starfsmanna á
Teiknistofunni Stfl á Akureyri
hljóta að vera „matur er
mannsins megin“, eða jafnvel
„enginn kann öðrum mat að
kjósa“. Það vill nefnilega svo
undarlega til að allir starfs-
menn teiknistofunnar hafa gef-
ið lesendum Dags uppskriftir í
matarkróknum í helgarblað-
inu.
Starfsfólki Stíls er greinilega
fleira til lista lagt en auglýsinga-
JML ÓKEYPIS JUL
SKEMMTUN í SVEITINNI
Kynntu þér ágústtilboð Ferðaþjónustu bænda
Allar upplýsingar gefur skrifstofa Ferðaþjónustu bænda Bændahöllinni v/Hagatorg, símar 91-623640 og 91-623643, fax 91-623644
og skiltagerð og raunar furða að
það skuli ekki bera matarástina
utan á sér í ríkari mæli en á
myndinni má sjá því „mathákn-
um nægir aldrei nóg“. En „fleira
er matur en feitt kjöt“ og „af
mörgu skal mat hafa“, svo ekki
sé talað um að „allt er það matur
í magann kemst nema holtarætur
einar“.
Matarkrókarnir sjö stilltu sér
upp fyrir ljósmyndara Dags
nýverið og sögðu stundarhátt:
„Maturinn er fyrir öllu“. Ekki
kæmi á óvart þótt þessi fríði
flokkur tæki sig til og gæfi út mat-
aruppskriftabók með „stíliseruð-
um“ uppskriftum. SS