Dagur - 22.08.1992, Page 19
Laugardagur 22. ágúst 1992 - DAGUR - 19
Eitt er ao vilja en
annað að geta - eða hvað?
Blúsmaðurinn og Telecastergít-
arsnillingurinn Albert Collins
sagði eitt sinn í viðtali við annan
mann: „Blúsinn mun aldrei deyja.
Hann er líkt og loftið sem við
öndum að okkur. Alltaf til staðar,
jafnvel þó við tökum ekki eftir
því.“
Þetta eru orð að sönnu hjá
Collins, því blústilfinningin,
treginn, hefur fylgt mann-
skepnuninni frá öndverðu sem
og sú tilhneiging að tjá hana/
hann á einhvern hátt. Sá tjáning-
armáti sem eflaust hefur reynst
áhrifamestur í þessum efnum
er einmitt sá sem í daglegu tali er
einfaldlega nefndur blús (Blues);
hljómfallið sem fluttist með og
þróaðist hjá svörtum þrælum frá
Afríku og afkomendum þeirra. Er
það nánar tiltekið blúsinn sem
Albert Collins á við. Ekki bara hin
almenna tilfinning, heldur einnig
tjáningarform hennar.
Með skilgetnu afkvæmi sínu,
rokkinu, sem síðan kenndi hvíta
manninum loks að meta blúsinn
sjálfan, hefur blúsinn haft meiri
áhrif á tónlistarsögu seinni hluta
tuttugustu aldar en nokkuð ann-
að og er þá ekki ofmælt.
En síðan fæðing rokksins varð
hefur auðvitað heilmikið vatn
runnið til sjávar. Frá Chuck Berry
og Presley til Bítlannaog Rolling
Stones og frá þeim til Zeþpelin,
Doors og Hendrix o.s.frv., allt til
þess sem við þekkjum í dag, alls-
herjarhrærigraut af létt-popp/
rokki til Death/speed rokks.
Eitt afsprengi rokkþróunarinn-
ar eru hinir svokölluðu Nýju gít-
Richie Kotzen er meðal annarra gít-
arsnillinga sem fram koma á L.A.
Blues Authority.
armeistarar (New guitar Masters)
sem fyrst komu fram í sviðsljósið
í kringum 1983-4. Var í flestum
ef ekki öllum tilvikum um að
ræða hámenntaða menn í
klassískum fræðum sem höfðu
snúið sér að rokki í þyngri kantin-
um, að mestu fyrir tilstilli manns
að nafni Mike Varney og fyrirtækis
hans Sharpnel. Hafa margir
þessara gítarleikara náð ansi
langt, bæði undir eigin nafni og
innan hljómsveita. Fyrir skömmu
kallaði Varney nokkra þeirra
saman ásamt sumum félaga
þeirra í taktspili og söng (sem
Leinnig eru hámenntaðir sumir
hverjir) til að setja jú, vel að
merkja, túlkanir þeirra á frægum
blúsum á plötu. Jafnvel hjá þeim
gætti áhrifa frá blúsnum. Er nú
afraksturinn af þessu samkrulli,
þar sem gítarleikarar eins og
Paul Gilbert (Mr. Big), George
Lynch (Dokken m.a.), Richie
Kotzen (Poison), Tony
MacAlpine o.fl. koma við sögu,
komið út undir nafninu L.A. Blues
Authority.
Það er stundum sagt að eitt sé
að vilja framkvæma eitthvað,
annað að geta það svo vel sé.
Hér á það að mörgu leyti við, því
þótt ekki skorti viljann og
almenna getu hvað spila-
mennskuna snertir, þá skortir til-
finninguna að mestu hjá
rokkhetjunum. Það er jú tilfinn-
ingin og túlkun hennar sem
blúsinn snýst um.
L.a.B.A. er þó langt í frá alslæm
og eru ágætis rokkútgáfur á blús-
unum inn á milli, t.d. á Rumblin’
of my mind eftir Robert Johnson
þar sem MacAlpine og Jeff Wat-
son (Night Ranger) fara á kost-
um og á B.B. King blúsaranum
How blue can you get, en þar fer
Kotzen hamförum og Kevin
DuBrow, fyrrum Quiet Riot
maður, syngur af innlifun. Er því
einna helst hægt að mæla með
plötunni við þá sem gaman hafa
af blúsuðu rokki, en líka þeim
sem dunda sér við að læra á
gítar, því hér fá þeir tækifæri til að
kynnast blúsnum á vissan hátt.
Ekki kannski á hinn eina sanna
hátt, en þó þannig að viðkomandi
sjái og heyri hversu blúsinn er
máttugur og áhrifamikill.
áttum
Úr ýmsum
Ibeinu framhaldi af umfjöllun
um útgáfu Geimsteins frá því
í siðustu viku, hefur nú bæst við
á vegum útgáfunnar nýr diskur
með Deep Jimi and the Zep
Creams. Það er þó raunar ekki
Geimsteinn sem gefur diskinn út
heldur fyrirtækið Technicolour
Record i New York, en dreifingin
hér á landi er í höndum Geim-
steins.
Nánar til tekiö er um að ræða
fjögurra laga tónleikadisk sem
tekinn var upp í einum af frægari
klúbbum New York borgar,
CBGB.s. Mun diskurinn aðeins
vera byrjunin á umsvifum Deep
Jimi..., því von er á frekari útgáfu
innan skamms í formi hljóðvers-
verks.
Hljómsveitina skipa fjórir ungir
menn, Sigurður Jóhannesson
söngur, Þór Sigurðsson gítar,
Björn Árnason bassi og Júlíus
Guðmundsson trommur (sonur
G. Rúnars Júlíussonar), en þeir
eru einmitt þeir sömu og komu
fram undir nafni Pandóru. Tónlist
þeirra félaga er í anda rokksins á
sjöunda áratuginum eins og nafn
hljómsveitarinnar gefur skýrt til
kynna og fellur hún svo sannar-
lega vel inn í flokk fortíðar-
hyggjunnar sem nú nýtur hylli og
sem Poppskrifara hefur orðið
tíörætt um.
Dansdúettinn Was (not Was)
nýtur þessa dagana vax-
andi vinsælda með laginu Shake
your head, en það hefur náð í
fimmta sæti breska smáskífulist-
ans þegar þetta er ritað. For-
sprakki dúettsins er Don nokkur
Was, en hann hefur ekki síður
gert garðinn frægan sem upp-
tökustjóri m.a. hjá Bob Dylan,
Iggy Pop og fleirum.
I sjálfu sér væru vinsældir
Shake your head, sem er hiö
þokkalegasta danslag, ekki frekar
í frásögu færandi nema af þeim
sökum að söngvararnir eru ansi
hreint óvenjulegir fyrir þessa teg-
und tónlistar og ólíkir. Eru það
nefnilega leikkonan snopþufríða
Kim Bassinger og... Ozzy
Osbourne, sá „alræmdi” þunga-
rokkari, sem þar kyrja saman með
þessum líka góða árangri.
Nú er spurningin sú hvort hér
sé kominn forsmekkurinn af því
sem koma skal hjá Ozzy, en
hann hefur boðað breytingar á
sínum ferli í komandi framtíð,
eins og komið hefur fram áður í
Poppi.
Vince Neil, fyrrum söngvari
Motley Crue, hefur fengið til
liðs við sig gítarleikarann Steve
Stevens í hina nýju hljómsveit
sína sem hann er að mynda í
kringum sólóferil sinn. Áður gerði
Stefens m.a. garðinn frægan
með Billy Idol auk þess að starf-
rækja um skeið hljómsveitina
Atomic Playboys, en með tak-
mörkuðum árangri. Munu þeir
Neil og Stevens nú vera byrjaðir
að setja saman lög í sameiningu
fyrir sólóplötu Neils sem væntan-
lega mun koma út fyrir lok ársins.
Gera má því skóna að MTV
verðlaunaathöfnin í ár, sem
fram fer í næsta mánuði, verði
ein sú mest rokkaðasta frá
upphafi. Munu Nirvana, U2 og
Red Hot Chili Peppers koma þar
fram og spila fyrir gesti, en þær
eru allar vel hlaðnar tilnefningum
til verðlauna af ýmsu tagi auk
Pearl Jam og Metallica. Öllu
poppaðari listamenn sem einnig
eru vel tilnefndir eru m.a. Prince
og „íslandsvinurinn" þokkafulli
Tori Amos.
Fyrst Prince ber á góma má
bæta því við um hann ofan á
fregnir um nýju plötuna hans frá
því í síðustu viku, að nýtt mynd-
band er komið út með honum,
sem geymir ýmsar glefsur frá
fyrri tíð á ferli hans. Eru þar á
meðal viðtöl við ýmsa fjölskyldu-
meðlimi hans og nána vini auk
eldri kynningarbrota.
Ein af efnilegri rokksveitum
Ástralíu um þessar mundir,
Sreaming Jets, er nú í hljóðveri
að leggja síðustu hönd á aðra
plötu sína. Vakti hún mikla
athygli með frumburðinum All for
one sem kom út í fyrra, en þar
blandar hún á skemmtilegan hátt
allskyns rokki, poppi og blús
saman.
Hópbifreiðapróf
Próf til að aka hópbifreið verða haldin af Umferðarráði á
næstunni.
Umsóknum skulu fylgja eftirtalin gögn:
Læknisvottorð, sakavottorð, afrit af ökuskírteini, prófgjald,
kr. 11.000,-
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag undirbúnings fyrir prófið
fást viö innritun.
Innritun fer fram á umsóknareyðublöðum sem fást hjá
Umferðarráði, Borgartúni 33, Reykjavík (s. 91-625590), eða
Lögreglustöðinni, Akureyri (s. 96-26765).
Innritunarfrestur er til 1. september nk. Ekki verður tekið
við umsóknum sem berast síðar.
UMFERÐAR
RÁÐ
- ökunámsdeild.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Staða deildarsérfræðings í lista- og safnadeild mennta-
málaráðuneytisins er laus til umsóknar. Háskólamenntun
er æskileg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. september 1992.
Menntamálaráðuneytið 18. ágúst 1992.
Vélavörður óskast
á 147 tonna bát, Sólrúnu EA-351 frá Árskógs-
sandi.
Upplýsingar í síma 985-22551 og 96-61098.
Starfsfólk vantar
til rækjuvinnslu
hjá Söltunarfélagi Dalvíkur á Dalvík og á
Árskógsströnd frá 26. ágúst til 15. september.
Upplýsingar veittar í símum 61475 og 61395.
Tónmenntakennarar
Tónmenntakennara vantar að Grunnskóla Eyja-
fjarðarsveitar næsta skólaár.
Upplýsingar gefur skólastjóri eöa aöstoöarskólastjóri
í síma 31137.
Matsmaður
Óskum að ráða löggiltan matsmann til starfa um
borð í frystitogarann Sigurbjörgu ÓF 1.
Nánari upplýsingar veitir Svavar eöa Sigurgeir í
síma 96-62337.
Hótel á Akureyri
auglýsir eftir konu
til að annast morgunverð og fleiri störf.
Um 1/2 starf er aö ræöa.
Þeir sem áhuga hafa, sendi nafn, kennitölu, síma-
númer, ásamt öörum upplýsingum sem máli skiptatil
afgreiðslu Dags, merkt: „Hótel“, fyrir miövikudaginn
26. ágúst nk.
Vantar starfskraft
til afgreiðslu í stóra sérverslun á Akureyri.
Um heilsdagsstarf er aö ræða.
Áhugasamar sendi nafn, kennitölu, símanúmer og
upplýsingar er máli skipta til afgreiðslu Dags fyrir
miövikudaginn 26. ágúst merkt: „Sérverslun“.