Dagur - 27.08.1992, Side 2

Dagur - 27.08.1992, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 27. ágúst 1992 Skrifstofutæknl ,^ám sem xrrisp4 Innritun og upplýsingar 22.00. í síma 27899 til kl. Tölvufræðslan Akureyrl Furuvöllum 5, II. hæð, Akureyrl. Síml 27899. Fréttir Verðlagsráð segir bflasala ekki alltaf fara að lögum: „Okkur þykir óréttlátt að greidd séu sölulaun af báðum bifreiðunum“ - segir Sigurður Valdimarsson beinni endursölu á bílasölunni Síðustu dagar útsölunnar Enn er hægt að gera góð kaup ★ Viðskiptavinir ath! Frá og með 31. ágúst verður verslunin lokuð í hádeginu kl. 12.00-13.00. IIIEYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Simi 22275 Bílasalar eru ekki alls kostar ánægðir með ákvörðun Verð- lagsráðs er varðar söluþóknun bOasala þegar notaðar bifreið- ar eru teknar sem greiðsla eða hluti greiðslu vegna kaupa á annarri bifreið. Telja margir bflasalar að m.a. hafi ekki ver- ið metin að verðleikum sú vinna sem þeir þurfa að inna af hendi þegar um bifreiðasölur er að ræða og sölulaun sem tekin eru séu síst of há. Hjörleifur Gíslason hjá Höldi hf. segir að þegar bílasalan sem hann starfi við annist sölu uppí- tökubíls er venjulega tekinn helmingur af lágmarksgjaldskrá, en hún er 14 þúsund krónur. Með öðrum orðum, fyrst eru teknar 14 þúsund krónur vegna uppítöku á dýrari bifreiðinni og síðan 7 þús- und krónur þegar ódýrari bifreið- in er seld aftur, eða alls 21 þús- und krónur. Hjörleifur segir að það sé ekki hægt að reka bílasölu ef hún eigi að annast ýmsa papp- írsvinnu vegna umskráningar, trygginga o.fl. ef ekki megi taka gjald fyrir þá þjónustu. Um helmingur bílaviðskipta hjá Höldi hf. fer fram með þeim hætti að ódýrari bifreið er notuð sem greiðsla upp í dýrari bifreið og það er allmiklu tímafrekara að ganga frá slíkri bílasölu en ef HRISALUNDUR I kjallara fyrir skólann Ritföng — gott verö Úlpur kr. 3»995 — Peysur frá kr. 995 Buxur frá kr. 1 .295 Ostakynning Föstudag kl. 14-19 - Laugardag kl. 10-14 Grettir sterki • Mandarínuostakaka • Dalayrja • Skólaostur Kynningarafsláttur Ritz kex 200 g 59 kr. Kínakál 59 kr. kg Lambakjöt á lækkuöu veröi til mánaöamóta Vínber 174 kr.kg bifreið er seld beint, jafnvel þó svo hluti söluandvirðis sé greidd- ur með víxlum eða skuldabréfi. „Það er ekkert minni vinna að selja bílinn með peningum og koma viðskiptunum saman því það gerist með ýmsum hætti en þótt hluti andvirðisins sé greidd- ur með ódýrari bíl. Þetta er ekki eins einfalt og það lítur út á blað- inu hjá Verðlagsráði og ekkert minni vinna að selja ódýrari bíl en dýran,“ segir Hjörleifur Gísla- son. Sigurður Valdimarsson hjá Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar segist ekki taka sölulaun af báðum bifreiðunum þegar bifreið er boðin sem greiðsla en segist vita að það sé mjög algengt í þessari atvinnu- grein. „Þegar komið er með bifreið sem greiðslu upp í nýja bifreið þarf kaupandinn aðeins að greiða umskráningargjald sem er 2300 krónur, en bifreiðin er hins vegar metin af umboðinu og kaupverð þá 10 til 15% lægra en ef hún væri og mörgum finnst það alveg nóg. Okkur hefur alltaf þótt það órétt- látt að greidd séu sölulaun af báðum bílunum, lágmarkssölu- laun af annari bifreiðinni en 2% af hinni auk virðisaukaskatts en stundum nægja 5 þúsund krón- urnar ekki til að mæta þeim kostnaði sem við verðum að leggja út fyrir,“ segir Sigurður Valdimarsson. Sigrún Kristmundsdóttir hjá Verðlagsstofnun segir að fólk geti haft umrædda samþykkt Verðlagsráðs til hliðsjónar og bent á hana þegar það standi í bílaviðskiptum, en ef bílasalar. vilji ekki beygja sig fyrir þessari ákvörðun þá verði viðkomandi að snúa sér til dómstólanna innan 6 mánaða og þessi lög eru ekki afturvirk. Um refsiákvæði sagði Sigrún: „í lögunum er gert ráð fyrir að málið yrði kært til rann- sóknarlögreglu og yrði þá við- komandi bílasala væntanlega dæmd í fésekt eingöngu. Höfða yrði mál í hverju einstöku tilfelli og því gætu þau orðið ansi mörg ef allir færu af stað,“ segir Sigrún Kristmundsdóttir hjá Verðlags- stofnun. Sigrún segir að unnið sé að því hjá stofnuinni að kanna mál fast- eignasala sem séu keimlík málum bílasala en ekki hafi verið gerð nein samþykkt um það enn. Iðu- lega séu tekin sölulaun fyrir íbúð- ir sem ekki séu á söluskrá við- komandi fasteignasölu en séu hluti af verði þeirrar fasteignar sem verið sé að selja. Það mál er samt nokkuð flóknara þar sem í gildi eru sérlög um fasteignasöl- ur. GG Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði: Óheimilt að leggja inn mjólk upp í framleiðslu- leimildir næsta árs Saintök afurðastöðva í mjólk- uriðnaði sendu mjólkurfram- leiðendum bréf í gær þar sem ítrekað er að engar heimildir séu til staðar við lok verðlags- ársins að leggja inn mjólk fyrir mánaðamót upp í framleiðslu- heimildir næsta árs. Þetta bréf var sent út vegna fréttar þar um í Morgunblaðinu í gær. Á undanförnum fimm árum hefur mjólkurframleiðendum verið heimilt að færa allt að 5% af fullvirðisrétti sínum á milli verðlagsára, þ.e. nýta sinn rétt fyrirfram. Með þessum hætti hef- ur verið unnt að jafna út sveiflur í mjólkurframleiðslunni og nýta framleiðslugetu bænda í kringum verðlagsáramót. Þetta er ekki unnt að gera nú vegna samnings um stjórnun mjólkurframleiðsl- unnar sem undirritaður var af ríkisvaldinu og Stéttarsambandi bænda á dögunum. Samkvæmt honum fellur verðábyrgð ríkis- sjóðs niður og framleiðsla og birgðir mjólkurvara verða frá 1. september nk. á ábyrgð framleið- enda og afurðastöðva. Þessar breytingar munu hafa í för með sér að þeir mjólkurfram- leiðendur sem þegar eru búnir með fullvirðisrétt sinn verða um stundarsaki^ í vandræðum með umframframleiðslu sína en geta þó lagt hana í samlögin með von um að eitthvað fáist fyrir hana. JÓH Olíufélögin: Verðlækkun á bensíni Olíufélögin þrjú, Skeljungur, Olís og Olíufélagið lækkuðu bensínverð sitt í gær og er lækkunin á bilinu 0,70 til 1,60 krónur á lítrann eftir tegund- um. Ástæða þessarar lækkunar er, að sögn talsmanna olíufélaganna, lágt gengi dollarans, en frá síð- ustu verðákvörðun hefur gengi á dollara lækkað úr 58 krónum nið- ur í 53 krónur. Einnig hefur orð- ið lækkun ytra á innkaupsverði bensíns. ój

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.