Dagur - 01.09.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 1. september 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Norðlensku framhaldsskólarnir settir í þessari viku og hinni næstu:
Nemendafjöldi Framhaldsskólans á
Húsavík eykst um 17% milli skólaára
Framhaldsskólarnir á Norður-
landi verða settir í dag og á
næstu dögum. Verkmennta-
skólinn á Akureyri verður sett-
ur í Akureyrarkirkju í kvöld
kl. 20.30 og stundatafla afhent
eftir hádegi á miðvikudag en
kennsla hefst síðan samkvæmt
stundaskrá á fimmtudagsmorg-
un. Framhaldsskólinn á Húsa-
vík verður setttur 2. september
kl. 10.30 í Húsavíkurkirkju og
hefst kennsla samkvæmt
stundaskrá á fimmtudag.
Framhaldsskólinn á Laugum
byrjar 9. september og hefst
kennsla strax daginn eftir og
haustönn hefst í Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki 7.
september með afhendingu
stundaskráa og bókalista, en
kennsla hefst síðan daginn
eftir.
Við Verkmenntaskólann á
Akureyri hefur aðsókn verið vax-
andi í verklegar greinar undan-
farin ár en að sama skapi minni í
bóklegar greinar en sú þróun
hófst fyrir þremur árum síðan.
Við flestar verklegar brautir hef-
ur þurft að takmarka aðsókn og
vísa nemendum frá en við-
skiptabrautin er orðin fámennari
en verið hefur undanfarin ár en
hún var lang fjölmennust áður
fyrr. Nemendur verða í vetur um
1000 í dagskóla og fækkar um
100, en fjöldi kennara verður
svipaður milli ára og litlar breyt-
ingar í þeim hópi. Fjölda
kennslutíma á viku hefur fækkað
um 300 milli ára og eru nú um
1900.
Verkmenntaskólinn hefur sagt
upp öllu leiguhúsnæði í íþrótta-
höllinni og fer öll kennsla í fyrsta
sinn fram í húsnæði skólans að
íþrótta- og sundkennslu undan-
skilinni að sjálfsögðu. Nemendur
í Öldungadeild verða um 160 í
vetur sem er eilítil fækkun og
hefst kennsla þar einnig á
fimmtudag. Viðskiptabraut hefur
verið þar meginlína í námsvali en
í vetur verða nemendur á uppeld-
is- og heilbrigðisbrautum fleiri en
áður á kostnað viðskiptabrautar.
í vetur verða 186 nemendur í
Framhaldsskólanum á Húsavík
sem er nokkur fjölgun, en á síð-
asta skólaári voru þeir 159.
Kennarafjöldi verður svipaður og
í fyrra þar sem ekki er um
umtalsverða aukningu á tímum
að ræða en þeir verða 402 á viku.
Nemendur á fyrsta ári eru á
almennri bóknámsbraut og þurfa
ekki að taka ákvörðum um á
hvaða braut þeir fara fyrr en á
öðrum vetri.
í vetur verða 120 nemendur
við nám í Framhaldsskólanum á
Laugum í Reykjadal sem er svip-
aður nemendafjöldi milli skóla-
ára. Umsóknir um skólavist voru
150 og þurfti því að vísa frá
nokkuð stórum hóp umsækj-
enda. Þær breytingar verða á
námsframboði að fellt verður
niður fornám og viðskiptabraut,
en vinsælustu námsbrautirnar eru
ferðmálabraut með 19 nemendur
og íþróttabraut með 21
nemanda. Kennarar eru 12 sem
er sami fjöldi og í vor, en allir
kennararnir eru með BA-próf og
kennsluréttindi utan einn, en
hann er að afla sér kennslurétt-
inda.
í vetur verður nemendafjöldi
Biskup ásamt prestum á tröppum Tjarnarkirkju að lokinni messu.
Tjarnarkirkja í Svarfaðardal 100 ára:
Endurbygging kirkjunnar kostar
rúmar 5 miUjónir króna
biskup Islands endurvígði kirkjuna sl. sunnudag
5. júní sl. voru liðin hundrað ár
frá vígslu Tjarnarkirkju í
Svarfaðardal. I sumar hefur
verið unnið að endurbyggingu
kirkjunnar og sl. sunnudag var
hún svo endurvígð af biskupi
íslands, hr. Ólafi Skúlasyni, að
viðstöddum fjölda kirkjugesta
auk þeirra sem fylgdust með
athöfninni í rútu sem stóð á
bæjarhlaðinu á Tjörn.
Auk biskups og sóknarprests-
ins, sr. Jóns Helga Þórarinsson-
ar, voru viðstaddir vígsluna pró-
fasturinn, sr. Birgir Snæbjörns-
son, fyrrverandi víglsubiskup, sr.
Sigurður Guðmundsson og sókn-
arprestarnir Pórhallur Höskulds-
son á Akureyri, Svavar A. Jóns-
son í Ólafsfirði, Hulda Hrönn
Helgadóttir í Hrísey og Torfi
Hjaltalín Stefánsson á Möðru-
völlum.
í lok prédikunar sagði biskup
um tilgang smíði nýrrar Tjarnar-
kirkju fyrir hundrað árum
m.a.: „Hún var til að auðvelda
söfnuði þjónustu og gera leiðina
greiðfærari fram fyrir Guð. Þá
var af stórhug og fórnfýsi hafist
handa svo gleymist ekki og samur
var tilgangurinn þegar það var
bætt sem látið hafði á sjá í þessari
endurgjörð. Þessa sama þarfnast
söfnuðurinn líka sífellt, að gera
sér grein fyrir því hvar farið er að
verða snjáð og dapurlegt og bæta
það upp með aukinni virkni í
þjónustu við Guð svo maður
njóti einnig."
Að lokinni vígsluathöfn var
öllum hátíðargestum boðið til
kaffidrykkju í Húsabakkaskóla.
GG
við Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki 410 en voru 371 og er því
um umtalsverða aukningu að
ræða. Kennarafjöldi verður svip-
aður og í fyrra, eða 33 og þar af 9
stundakennarar, og hefur stærst-
ur hluti þeirra tilskilin kennslu-
réttindi en þrír kennaranna eru að
ljúka kennsluréttindanámi þessa
dagana. Kennslustundir verða
um 820 á viku.
Fjölbrautaskólinn býr við gíf-
urlegan húsnæðisskort sem veld-
ur því að fleiri kennslustundir
verða á hvern kennara en á síð-
asta skólaári. Síðustu tvö árin
hefur verið mikil aðsókn að
grunndeild málmiðnaðar og
verða þar 22 nemendur í vetur
sem er hámark sem skólinn getur
tekið við með tilliti til húsnæðis
og tækjakostar. GG
Kennsla að heljast í grunnskólunum:
Hlutfall réttinda-
kennara aldrei
verið hærra
Kennsla í grunnskólum Akur-
eyrar hefst 7. september nk. en
nú er að Ijúka undirbúnings-
vinnu við lokafrágang stunda-
skrár, kennararáðningar o.fl.
Kennarar (og leiðbeinendur)
koma saman á fyrsta kennara-
fund vetrarins í dag, þriðju-
dag, en á miðvikudag og
fimmtudag fer fram haustþing
kennara á Norðurlandi eystra
og föstudagurinn 4. september
er vinnudagur kennara.
í Barnaskóla Akureyrar verð-
ur skólastjórinn, Benedikt Sig-
urðarson, f leyfi og tekur aðstoð-
arskólastjórinn, Birgir Svein-
björnsson, við hans stöðu. 1
Barnaskólanum sem og öðrum
skólum fækkar kennslustundum
samkvæmt tilskipun frá Mennta-
málaráðuneytinu en sami
kennarafjöldi verður þar í vetur,
alls 21. Nemendafjöldi verður
um 320 sem er svipað og í fyrra
en nokkuð virðist um það að
yngra fólk sé að setjast að í eldri
hverfum bæjarins.
í Oddeyrarskóla verða 14
kennarar í vetur og þar af einn
leiðbeinandi og nemendafjöldi
um 180 sem er einhver fækkun
frá síðasta skólaári.
í Lundarskóla fækkar kennur-
um um 3, verða 29. Fimm eru
hættir og einn nýr hefur bæst í
hópinn og tveir hafa komið aftur
til starfa úr leyfi. Nemendum
fækkar líklega heldur í Lundar-
skóla, verða 390 en voru 404 á
síðasta skólaári.
Stærstur grunnskólanna er
Síðuskóli en 600 nemendur verða
þar við nám í vetur og er það
fjölgun um 40. Kennarar verða
40 og eru 8 ný nöfn á þeim lista,
einhverjir hafa hætt og eins eru
barnsburðarleyfi í gangi. Engin
fjölgun er á stöðugildum í Síðu-
skóla vegna færri kennslustunda í
hverri bekkjardeild. 15 af kenn-
urum Síðuskóla hafa setið þessa
vikuna á heimspekinámskeiði
sem fram fer í skólanum.
í Glerárskóla verður Úlfar
Björnsson skólastjóri í vetur í
leyfi Vilbergs Alexanderssonar.
31 kennari verður þar í vetur og
þar af eru 9 leiðbeinendur en
orsökin fyrir því er að margir
kennarar eru ýmist í launalausu
leyfi, barneignaleyfi eða orlofi
og kennarar eru ekki fúsir til að
sækja um stöður sem aðeins eru
veittar til eins árs. Nokkuð er um
að kennarar séu í hlutastarfi, en í
minna mæli en áður. í Glerár-
skóla fjölgar um eina bekkjar-
deild, en nemendur verða um 450
í vetur og er það nokkur fjölgun
frá síðasta skólaári.
Við Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar verða 29 kennarar í vetur sem
er fækkun um fimm. 10 hafa hætt
störfum, 5 nýir koma til starfa og
nokkuð er um það að þeir sem
hafa verið í hlutastarfi taki að sér
meiri kennslu í vetur og eins
fækkar tímum sem veldur fækk-
un í kennaraliðinu. 6 leiðbein-
endur starfa við Gagnfræðaskól-
ann í vetur, þar af báðir sóknar-
prestarnir við Akureyrarkirkju.
Nemendafjöldi verður um 420 í
18 deildum sem er eilítil fjölgun
frá síðasta skólaári. GG
Verksmiðjuútsala
Vegna fjölda fyrirspurna opnum við útsöl-
una Grænumýri 10, í dag kl. 13.
Úrval af barna- og kvennáttfatnaði, morgunsloppum,
undirfatnaði og fleiru.
Það gæti verið hagstætt að kaupa jóiagjafirnar
núna á lágu verði.
Ath. Útsalan verður aðeins
þessa viku opið kl. 13-18.
FATAGERÐIN