Dagur - 15.10.1992, Qupperneq 1
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 15. október 1992
196. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
ÓlafsQörður:
Bæjarstjórinn hafnaði nýju til-
boði meirihlutamanna um starfslok
Minnihluti bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar krafðist þess á
bæjarstjórnarfundi í fyrra-
kvöld að á bæjarráðsfundi í
dag verði gerð grein fyrir til-
boði sem meirihlutinn gerði
Bjarna Grímssyni, bæjar-
stjóra, á dögunum um starfs-
lok hans en Bjarni hafnaði
þessu tilboði. Svo virðist sem
deilur frá því á síðasta ári og
um síðustu áramót séu að taka
sig upp á nýjan leik en sem
kunnugt er var þá gert sam-
komulag innan meirihluta
sjálfstæðismanna að halda
samstarfí áfram og starfa með
Bjarna Grímssyni, bæjar-
stjóra.
Á fundinum í fyrrakvöld
kvaddi Björn Valur Gíslason,
forystumaður minnihlutans, sér
hljóðs utan dagskrár og las eftir-
farandi bókun:
„Að undanförnu hefur verið
uppi orðrómur þess efnis að
meirihluti bæjarstjórnar hafi gert
bæjarstjóra tilboð varðandi
starfslok hans. Bæjarstjóri hefur
nú staðfest við mig að honum
hafi verið gert slíkt tilboð sem
hann hafi hafnað. Vegna þessa
óskar minnihlutinn eftir því að
bæjarstjórnarmönnum verði
kynnt þetta tilboð og það verði
lagt fyrir næsta bæjarráðsfund.
Jafnframt er þess óskað að í
framtíðinni verði bæjarstjórn-
armönnum gert viðvart um áform
sem þessi, ef einhver verða, áður
en til framkvæmda kemur,“ segir
í bókuninni.
Litlar umræður voru á fundin-
um um málið en forseti bæjar-
stjórnar, Óskar Þór Sigurbjörns-
son, sagði að engin niðurstaða sé
komin í þetta mál.
Björn Valur Gíslason, sagði í
samtali við blaðið í gær, að
ástæða fyrir bókuninni sé að
minnihlutinn teldi sig knúinn að
óska eftir upplýsingum um hvað
meirihlutinn sé að bjóða bæjar-
Áætlanir um lokun Kristnesspítala:
„Lflást skipulagðri niðurrifsstarfseim“
- sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson þingmaður á Alþingi í gær
Þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra lýstu yfír þungum
áhyggjum vegna þeirrar óvissu
sem ríkti um framtíð Kristnes-
spítala þegar fram fór utandag-
skrárumræða um málið á
Alþingi í gær að ósk Jóhannes-
ar Geirs Sigurgeirssonar, en
ástæðuna fyrir óskinni um
utandagskrárumræðuna sagði
hann vera þá að í samtali við
Ríkisútvarpið hefði heilbrigð-
isráðherra nýverið upplýst að
svo gæti farið að Kristnes-
spítala yrði lokað.
Þingmaðurinn sagði ennfremur
að þrátt fyrir að menn héldu því
fram að einungis væri um hag-
ræðingu að ræða þá þýddi þriðj-
ungsniðurskurður, eða u.þ.b. 40
milljónir króna, ekkert annað en
lokun Kristnesspítala.
Jóhannes Geir benti á, að á
undanförnum árum hefði mikið
Sauðárkrókur
og Blönduós:
Ágæt innheimta
fasteignagjalda
Innheimta fasteignagjalda á
Sauðárkróki og Blönduósi hef-
ur gengið þokkalega. Er inn-
heimtuprósentan á svipuðu
róli og í fyrra.
Á bæjarskrifstofunni á Sauðár-
króki fengust þær upplýsingar að
innheimtuprósentan sé 83,93% í
ár, en hún var 84,44% á sama
tíma í fyrra. Þessi prósenta sveifl-
ast nokkuð milli ára og telja
menn því ekkert óeðlilegt við
þessar tölur. Innheimtuprósenta
fasteignagjalda hjá Blönduósbæ
er rúm 89% sem má teljast
allgott. Er það svipað og á síð-
asta ári. Það er því ekki að sjá að
það komi niður á fasteignagjöld-
unum að hart sé í ári. sþ
starf verið unnið til að koma upp
einu endurhæfingarstöðinni utan
höfuðborgarsvæðisins. „Þetta
stangast því algjörlega á við yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar um
flutning ríkisstofnana út á land“
og hann bætti við, „á sama tíma
er verið að byggja upp endur-
hæfingarstöð á Kópavogshæli og
við forsendur Fjárlaga 1993 væri
sagt að í tengslum við kjara-
skerðingar hafi verið fallið frá
lokun öldrunardeildar og sam-
kvæmt því yrði Hátún opnað að
nýju í Reykjavík. Kostnaðinn af
þessu á að taka af rekstrarfé
Kristnesspítala.
Ástandið er orðið óþolandi
fyrir starfsfólk og sjúklinga stofn-
unarinnar, þetta líkist miklu
meira skipulagðri niðurrifsstarf-
semi heldur en að menn séu að
reyna að ná fram sparnaði. Allir
aðilar málsins fyrir norðan eru
tilbúnir til þess að skoða raun-
verulegan sparnað. Heilbrigðis-
þjónustan við Eyjafjörð hefur
sýnt að hún getur tekið á slíkum
málum.“
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í svari sínu
að minna hefði orðið úr endur-
hæfingarstarfinu en til hefði
staðið, m.a. vegna þess að húsa-
kynni hefðu ekki leyft þær breyt-
ingar og ekki hefðu fengist þær
stöðuheimildir sem nauðsynlegar
hafi verið. Sighvatur sagði enn-
fremur að komið hefði fram að
ýmsir vankantar væru á stjórnar-
fyrirkomulagi, þ.e. að Kristnes-
spítali tilheyrði Ríkisspítölum og
væri stjórnað frá Reykjavík af
forstjóra og stjórnarnefnd.
Rekstur Kristnesspítala væri dýr-
ari en annarra sambærilegra
stofnanna og ástæðan væri m.a.
sú að þar væru 16 starfsmanna-
íbúðir og þrjú einbýlishús sem
spítalinn yrði að sjá um. Að lok-
um sagðist heilbrigðisráðherra
hafa skipað nefnd sem ætti að
athuga möguleika á að leggja
starfsemi spítalans niður, vista
sjúklinga á öðrum stofnunum á
Eyjafjarðarsvæðinu eða leita
annarra leiða til að rekstur Krist-
nesspítala geti verið innan
ramma fjárlagafrumvarpsins.
Til máls tóku aðrir þingmenn
kjördæmisins að Halldóri Blön-
dal landbúnaðarráðherra undan-
skildum, og var málflutningur
þeirra mjög á sömu lund, þ.e.
það væri óþolandi að til stæði að
leggja Kristnesspítala niður.
SV/GG
stjóra, hvort þar séu á ferðinni
peningagreiðslur eða annað.
Með þessu sé gamall draugur að
vakna upp innan bæjarstjórnar
en á fyrsta fundi ársins hafi verið
lögð fram bókun þar sem sjálf-
stæðismenn hafi tilkynnt um
áframhaldandi samstarf í meiri-
hluta og með Bjarna Grímsson
sem bæjarstjóra. Jafnframt hafi
verið heitið góðu samstarfi með
minnihlutanum en það Ioforð
hafi greinilega ekki verið haldið
af hálfu meirihlutans og nú sé
beygt inn á sömu braut og áður.
Bjarni Grímsson vildi ekki
ræða þetta mál í gær. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst ekki að
ná í Óskar Þór Sigurbjörnsson,
forseta bæjarstjórnar. JÓH
Myndlistaskólinn á Akureyri höfðar tii fjölda fólks. Kennsla er hafin sem í
öðrum skólum. I dagskólanum á haustönn eru 26 nemendur og 160 nemend-
ur sækja námskeið í teiknun og málun. Margir eru til kallaðir en fáir útvald-
,r« Mynd: Robyn
Sigluflörður:
Helga RE landað 1000 tonnum af rækju
- áhöfnin fékk rjómatertu frá útgerðinni
Rækjubáturinn Helga RE-49
náði þeim árangri sl. mánudag
að hafa landað 1000 tonnum af
Bfll útaf á Lágheiði
- og annar við Vermundarstaði
Bifreið fór út af veginum á
Lágheiði síðdegis í gær vegna
hálku. Bifreiðin var dregin upp
á veginn aftur af dráttarbifreið
og reyndist lítið skemmd. Eng-
in slys urðu á fólki.
Fólksbifreið þeyttist út af veg-
inum framan við Vermundarstaði
í Ólafsfirði í gær um fimmleytið
og er ónýt. Bílstjórinn var einn í
bílnum og slapp ómeiddur. GG
rækju á þessu ári og af því
tilefni afhenti rækjuvinnsla
Ingimundar hf. á Siglufírði
áhöfninni rjómatertu að gjöf
sem svolitla viðurkenningu fyr-
ir áfangann.
Á öllu síðasta ári var rækjuafli
bátsins um 1000 tonn og því
stefnir í verulega meiri afla nú á
bátnum. Á þessu ári hefur verk-
smiðjan fengið liðlega tvö þús-
und tonn til vinnslu sem er.syipað
magn milli ára. Auk Helgu landa
bátarnir Ögmundur RE-94 og
Höfrungur AK hjá Ingimundi hf.
en tveir fyrrnefndu bátarnir eru í
eigu Ingimundar hf. Þessir bátar
hafa nægilegan rækjukvóta til að
halda rækjuvinnslunni gangandi
allt árið en auk þess á útgerðin
Helgu II RE-373 sem er á loðnu-
veiðum.
Segja má að sá siður sé orðinn
að hefð á Siglufirði að gleðja
skipshafnir rækju-, síldar- og
loðnubáta með rjómatertum við
sérstök tilefni og óneitanlega er
sá siður bæði skemmtilegur og
bragðlaukakitlandi. Nú er að sjá
hvaða skipshöfn hreppir næstu
rjómatertuveislu á Siglufirði.
GG