Dagur - 15.10.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 15. október 1992
Fréttir
Málmiðnaðarsvcinar, þ.e. vélvirkjar, stálsmiðir og blikksmiðir, fengu
sveinsbréf sín afhent með viðhöfn um sl. helgi á Fiðlaranum. Það er orðin
hefð að Félag málmiðnaðarmanna og vinnuveitendur sveinanna standi að
því sameiginlega. Prófskírteini fengu þessir nýbökuðu sveinar hins vegar frá
Verkmenntaskólanum að loknum prófum. Mynd: Robyn
Kísiliðjan í Mývatnssveit:
Beðið áfangaskýrslu verkefiiahóps
- áður en frekari ákvarðanir verða teknar
Iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytin sendu í gær frá sér
fréttatilkynningu um náma-
leyfi Kísiliðjunnar í Mývatns-
sveit, vegna þess misskilnings
sem vart hefur orðið í umfjöll-
un fjölmiðla um gildistíma
námaleyfis verksmiðjunnar.
Um þetta mál var fjallað í Degi
í gær og rætt m.a. við Jón Sig-
urðsson, iðnaðarráðherra og þar
kemur fram að ekki standi til að
loka Kísiliðjunni og að verk-
smiðjan hafi námaleyfi til ársins
2001.
í fréttatilkynningu ráðuneyt-
anna er þetta ítrekað. Þar segir
ennfremur, að fyrir 31. mars á
næsta ári, muni liggja fyrir
áfangaskýrsla 3ja manna verk-
efnahóps, sem skipaður var af
umhverfisráðherra í vor að höfðu
samráði við iðnaðarráðherra, um
setflutninga og breytingar á þeim
vegna kísilgúrnámsins og áhrif
þeirra á lífríki vatnsins. í ljósi
þeirrar skýrslu verða teknar
ákvarðanir um mörk vinnslu-
svæðis verksmiðjunnar á vatns-
botninum. -KK
Árskógsströnd:
Rokkhátíð í imdirbúningi
Kennaradeild við Háskólann á Akureyri:
Búist við að málið verði
tekið upp við fjárlagaumræðu
Forsvarsmenn Háskólans á
Akureyri og þingmenn Norður-
landskjördæmis eystra binda
miklar vonir við að við aðra og
þriðju umræðu á Alþingi um
fjárlög næsta árs verði kenn-
aradeild við Háskólann tryggt
fjármagn þannig að hægt sé að
hefja kennslu strax næsta
haust.
Háskólanefnd Háskólans á
Akureyri samþykkti í apríl á síð-
asta ári að ráða starfsmann til að
vinna að undirbúningi að stofnun
kennaradeildar við skólann.
Kristján Kristjánsson var ráðinn
til þess og hóf hann störf í ágúst í
fyrra. Fyrir réttu ári sendi hann
síðan frá sér skýrslu um mögu-
leikann á stofnun kennaradeildar
við Háskólann, sem var strax vel
tekið, m.a. af menntamálaráð-
herra. Ákveðnar vonir voru við
það bundnar að í fjárlögum yfir-
standandi árs fengist heimild til
stofnunar kennaradeildar á þessu
hausti, en af því varð ekki. Ríkis-
stjórnin samþykkti hins vegar í
ágúst sl. 800 þúsund króna auka-
fjárveitingu til að vinna áfram að
undirbúningi að stofnun deildar-
innar og í ljósi hennar gera bæði
háskólamenn á Akureyri og þing-
menn kjördæmisins sér vonir um
að málið fái jákvæða afgreiðslu
Alþingis við afgreiðslu fjárlaga
næsta árs. óþh
Heljarmikil rokkhátíð verður
haldin á Árskógsströnd 14.
nóvember nk., en undanfarin
þrjú ár hefur frjálsíþróttadeild
Ungmennafélagsins Reynis
haldið árshátíð sína með þess-
um óvenjulega hætti.
Reynar verður ekki aðeins
rokk á boðstólum á þessari árs-
hátíð þeirra Reynismanna, held-
ur ýmis blönduð tónlist þ.m.t.
dægurlög í rólegri kantinum
þannig að flestir ættu að geta
fengið þar eitthvað fyrir sinn
tónlistarsmekk. Allir flytjendur
eru heimamenn eða tengdir þeim
með einum eða öðrum hætti t.d.
með giftingu. Fyrri rokkhátíðir
hafa verið haldnar 1. desember
en vegna prófanna í framhalds-
skólunum á Akureyri var ákveð-
ið að flýta hátíðinni um hálfan
mánuð. GG
Skaga^örður:
Japanir vilja meira
hrossakjöt
- eftirspurn þó annað fram að áramótum
Skagaströnd:
Böm úr Höfðaskóla gengu 100 km
- undir stjórn íþróttakennarans
Helgina 2.-4. október fór
íþróttakennarinn í Höfðaskóla
á Skagaströnd, Karl Jacobsen,
í langferð með nokkra
nemendur sína. Þau gengu alls
um 100 km á þremur dögum.
Þátttakendur voru 11 börn úr
8., 9. og 10. bekk, sjö strákar og
fjórar stelpur. Pau lögðu upp á
föstudag um 10 km frá Blöndu-
virkjun og gengu alla leið á
Hveravelli. Tveir piltar í hópnum
ákváðu að hætta förinni þegar
þangað var komið eh hin börnin
9 héldu út alla ferðina. Á laugar-
dag var gengin 12 tíma leið norð-
an Langjökuls og gist í skála. Á
sunnudag gekk hópurinn um 28-9
km á Grímstunguheiðina, en
þangað voru þau sótt. Að sögn
Karls var andinn góður í
hópnum, þetta hefði verið erfitt,
en þau hefðu rætt málin og eng-
inn farið í fýlu. Hann sagði þau
hafa verið vel útbúin og auk jjess
hafa æft sig á undan með því að
ganga skemmri vegalengdir.
Þetta er annar veturinn sem Karl
Jacobsen kennir við Höfðaskóla,
en hann er danskur og hefur
dvalið hér í rúmt ár. Hann kvaðst
hafa ferðast nokkuð um hálend-
ið, en ekki gengið svo langar
ferðir sem þessa. Má vel vera að
þetta verði fastur liður í framtíð-
inni, en Karl sagði að nú ætti að
æfa bjargsig fyrir 7.-10. bekk. sþ
Mikil eftirspurn er eftir hrossa-
kjöti á Japansmarkað og segir
Gísli Halldórsson sláturhús-
stjóri hjá Slátursamlagi Skag-
firðinga að búið sé að tryggja
magn fram undir jól. Eftir það
sé óvíst um framhaldið.
Gísli sagði að ekkert hefði verið
slátrað af hrossum í þrjár vikur,
þar sem haustslátrun á sauðfé sé
yfirstandandi og ekki hafi fengist
hross. Nú sé hrossaslátrun að
hefjast á ný og hafi tekist að fá
nógu mörg hross til að anna eftir-
spurn næstu 5-6 vikur. Eftirspurn
eftir hrossakjöti á Japansmarkað
er mjög mikil, mun meiri en hægt
er að anna að sögn Gísla. Sagði
hann menn fremur trega til að
láta frá sér hross til slátrunar og
þyrfti að verða bót þar á ef fram-
hald ætti að verða á sölunni. sþ
Verkalýðsfélag Húsavíkur:
Um 50 ræstingakonur á námskeiði
íþróttahúsið Hrafnagili - Freyvangur:
Afinælishátíð UMSE og
BSE nk. laugardag
í tilefni af 70 ára afmæli Ung-
mennasambands Eyjafjarðar
og 60 ára afmæli Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar verður
haldin vegleg afmælishátíð í
tvennu lagi nk. laugardag, 17.
október.
Fyrri hluti hátíðarinnar verður
í íþróttahúsinu á Hrafnagili og
hefst kl. 14 og stendur til u.þ.b.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
úxr™
kl. 16 og verður þar boðið upp á
fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjöl-
skylduna.
Síðari hluti hátíðarinnar verð-
ur í félagsheimilinu Freyvangi og
hefst kl. 21 með afmæliskaffi,
góðu skemmtiefni og pínulitlum
ræðustúfum, þrælæfðum. í lok
samsætisins mætir hljómsveitin
Menning frá Dalvík á staðinn og
spilar bæði gamalt og nýtt og auk
þeirra kemur harmonikuleikari
á staðinn með ekta valsa.
Allir fá endurgjaldslaust inn á
skemmtunina í íþróttahúsinu, en
óhjákvæmileg gjaldtaka fyrir
kvöldkaffið og dansleikinn verð-
ur kr. 1200. Þrátt fyrir ágæta for-
skráningu í kaffisamsætið eru
enn mörg sæti laus og vonumst
við til að sem flestir sjái sér fært
aö koma. (Fréttatilkynning)
„Það eru 52 konur sem sitja
námskeiðið en enginn karl-
maður. Það voru þó nokkrar
konur sem höfðu samband við
mig og báðu mig að senda
mönnum sínum bréf og bjóða
þeim að mæta, því þeir bæru
því við þegar þyrfti að þrífa
heimilin að þeir kynnu það
ekki,“ sagði Aðalsteinn Bald-
ursson, varaformaður Verka-
lýðsfélags Húsavíkur, aðspurð-
ur um aðsókn að námskeiði
fyrir ræstingafólk.
Námskeiðið hófst sl. mánudag
og stendur í tíu daga. Þar er
kennt í tveimur hópum, hvorum
hóp í 40 tíma. „Það eru kennd
mannleg samskipti, sem er stór
og mikill þáttur. Ræstingar eru
kenndar, hvernig eigi að ræsta
hin ýmsu gólfefni, hvaða hrein-
gerningarefni á og má nota og í
hvað miklu magni. Fjallað er um
líkamsbeitingu og starfsstelling-
ar, sem er einn mikilvægasti þátt-
urinn að mínu mati. Farið er yfir
sýkingavarnir. Rætt um vinnurétt
°g tryggingamál. Meðferð hættu-
legra efna og hvernig varast skuli
slys af þeirra völdum. Að lokum
er kennd sjálfstyrking. Reynt er
að taka það helsta sem við höld-
Hluti ræstingafólksins á námskeiðinu.
Mynd: IM
um að höfði til þessa fólks,“ sagði
Aðalsteinn, aðspurður um efni
námskeiðsins.
Þetta er fyrsta námskeiðið sem
haldið er í nýinnréttuðu húsnæði
Verkalýðsfélagsins að Garðars-
braut 26. „Ahugínn kom mér
mjög á óvart og við erum mjög
ánægðir með undirtektirnar, og
að geta startað með þessu nám-
skeiði í nýja húsnæðinu. Við-
brögð ræstingakvennanna eru
alveg til fyrirmyndar og á nám-
skeiðinu eru konur á öllum
aldri,“ sagði Aðalsteinn.
Aðalsteinn sagði að í næstu
viku fengi félagið Ara Skúlason,
hagfræðing hjá ASÍ, til að flytja
fyrirlestur um EES. Námskeið í
ræðumennsku og fundarstjórn
væri á döfinni og námskeið fyrir
starfsfólk í mötuneytum. Bæði
minni og stærri námskeið eru á
döfinni hjá félaginu síðar í vetur.
IM