Dagur - 15.10.1992, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 15. október 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Pólitísk þröngsýni
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið skipaði
verulegt rúm í stefnuræðu forsætisráðherra, sem hann
flutti þjóðinni frá Alþingi á mánudagskvöld. Hann sagði
að bærum við gæfu til að staðfesta þá samningsgjörð
myndu okkur opnast ýmsir möguleikar á nýju ári og tæki-
færi sem þá byðust þjóðinni væru óumdeilanlega mikils
virði. Forsætisráðherra skammaði stjórnarandstöðuna
fyrir undanlátssemi gagnvart samningnum og kvað tvo
af þremur stjórnarandstöðuflokkum skulda þjóðinni
skýringar þar sem talsmenn þeirra hafa dregið í efa að við
getum samþykkt samninginn eins og hann nú liggur fyrir
án samræmingar við stjórnarskrána og án þess að leggja
hann í dóm þjóðarinnar.
Að öðru leyti hafði forsætisráðherrann harla lítið til
málanna að leggja varðandi þá erfiðleika sem þjóðin
verður nú að glíma við. Hann kvað tíma kominn til að
ríkisstjórnin líti í eigin barm, skoði hvort afskipti hennar
af fjölmörgum þáttum mannlífsins séu ekki gagnslaus í
besta falli en til stórra trafala í versta falli. Á skýrari hátt
gat hann ekki undirstrikað þá stefnu ríkisstjórnarinnar að
afskiptaleysi hennar sé besti kosturinn þegar atvinnu-
vegir landsmanna eru að bresta og fjöldi þess fólks sem
þarf að sækja atvinnuleysisbætur eykst dag frá degi.
Forsætisráðherra sagði þá venju hafa viðgengist hjá
okkur að setja reglugerðir um alla skapaða hluti. Hætta
sé á að þær standi áfram þótt ástæður kunni að vera á
bak og burt eða hafi jafnvel aldrei verið til. Þetta lætur
forsætisráðherra sér um munn fara á Alþingi á sama tíma
og hann ásamt hluta flokksbræðra sinna og samstarfs-
flokki í ríkisstjórn leggur til að þúsundir reglugerða
Evrópubandalagsins, sem samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið felur í sér, verði samþykktar án þess að
þjóðin fái neitt um það að segja.
Um horfur í atvinnulífi landsmanna sagði forsætisráð-
herra meðal annars að tekjur í landbúnaðarhéruðunum
minnkuðu vegna samdráttar í sauðfjárrækt og væri það
áhyggjuefni ef ekki tækist þannig til að tekjur þeirra, sem
áfram stunda þá búgrein yrðu bærilegar. í sjávarútvegi
muni minni afli draga úr vinnu og fjölgun frystitogara
minnki hráefni til fiskvinnslunnar enn meir. Því þurfi að
jafna svo sem verða megi starfsskilyrði milli landvinnslu
og sjóvinnslu. Almennara orðalag var tæpast unnt að
velja af hálfu ríkisstjórnar landsins um alvarlegan vanda
hinna hefðbundnu atvinnuvega. í þeim felast að vísu
nokkrar áhyggjur af framvindu mála en allar vonir um að
reynt verði að berjast á móti eru víðs fjarri. Hvergi er
varpað fram hugmyndum til lausnar aðsteðjandi vanda
eða leiðum til að mynda það rekstrarumhverfi sem
atvinnuvegunum er nauðsynlegt eigi þeir að geta skapað
þjóðinni atvinnu, útflutningsverðmæti og lífsskilyrði.
Slíkt er þó óumdeilanlegt verkefni stjórnvalda jafnvel
þótt þau telji aðstoð við einstakar atvinnugreinar af hinu
vonda.
Ef ríkisstjórnin er ekki úrræðalaus þá skortir hana allan
vilja. Annað verður ekki lesið úr stefnuræðu forsætisráð-
herra eða ummælum talsmanna stjórnarflokkanna. Ríkis-
stjórnin hefur sett traust sitt á samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið. Hann á að bjarga þjóðinni út úr þeim
vanda sem pólitísk þröngsýni meinar stjórnvöldum að
leysa. ÞI
Frímerki
Sigurður H. Þorsteinsson
Kvenfélagið
Framuðin
tsjWiöOtkBU cOElk
Kvindeforeningen FREMTIDEN, Akureyri
1934
Mand i nationaldragt - og kirke, bl&,
utakket
15o,oo
1935
Portræt af fisker, grá/sort
bl& baggrund
(forbehold oprindelse)
*■ 1936
Kvinde og barn i solnedgang, gul/sort
(forbehold oprindelse)
téte-béche, lodret par
1937
Pige og Juletræ, brun/gren
kunstneri Stefan Jonsson
1938
Pige med trompet, flerfarvet
kunstner: Stefan Jonsson
1939
som 1938 - uden Arstal
fejltryk: plet ved tekst
loo.oo
2oo,oo
100,00
250,00
15o,o
125,oo
15o,oo
Síðan úr erlendum jólamerkjalista, þar sem fjallað er um gömul jólamerki
Kvenfélagsins Framtíðarinnar á Akureyri. Félagið viðheldur enn þeim sið að
gefa út sérstakt jólamerki ár hvert.
Það er ekki langt þar til fer að 1
koma að útgáfu jólamerkja, fyrir
jólin 1992 og notkun á jólakort
og bréf til vina og vandamanna.
Þá eru auk þess orðnir nokkuð
margir sem safna jólamerkjum
sérstaklega, eða jafnvel frímerkja-
safnarar, sem safna jólamerkjum
sem eins konar hliðargrein. Er-
lendis eru til sérstakir klúbbar
jólamerkjasafnara, jafnvel sam-i
tök slíkra klúbba, rétt eins og
samtök klúbba frímerkjasafnara.
Meðal þeirra aðila er hafa gef-
ið út jólamerki hér á landi, er
Kvenfélagið Framtíðin á Akur-
eyri. Þessi félagsskapur hefir gef-
ið út jólamerki allt frá því
snemma á fjórða áratugnum, eða
nánar tiltekið frá 1934, að út kom
jólamerki með mynd af manni í
þjóðbúningi. Segir frá þessu í
upplýsingum, sem ég vil sérstak-
lega þakka frú Margréti Kröyer
fyrir að veita mér, til undirbún-
ings þessum þætti.
Fyrstu jólamerkin munu hafa
verið bæði teiknuð og prentuð í
Danmörku, en síðan tók Stefán
Jónsson að teikna merkin og þau
voru prentuð hér heima. Stefán
og frú Alice Sigurðsson hafa
teiknað flest jólamerkjanna, sem
Framtíðin hefir gefið út. Þó hefir
Örlygur Sigurðsson teiknað
a.m.k. eitt merkjanna, 1948.
Kristinn Jóhannsson, 1971.
Ragnheiður Valgarðsdóttir 1973
og 1974. Eiríkur Smith 1975.
Ragnar Páll 1976. Fanny Hauks-
dóttir 1977, Jakob Hafstein 1978.
Einar Helgason 1980 og Guð-
mundur Baldursson 1981, svo
raktir séu þeir er ég hefi heimildir
um.
í afmælisriti, sem Steindór
Steindórsson skrifar og kemur út
á fimmtugsafmæli félagsins þann
13. janúar 1944, segir m.a. um
samþykktir á aðalfundi 15.
febrúar 1923. „Var á því ári tekið
að vinna fyrir sjóðinn bæði með
merkjasölu og á annan hátt, svo
að hann var rúmar 2000 kr. í árs-
lok 1923.“
Þetta er þá upphaf að merkja-
sölu. Hefir þarna vafalítið verið
um barmmerki að ræða. Síðar
kemur svo að jólamerkjaútgáf-
unni.
í upplýsingum þeim, sem frú
Margrét sendi mér, er þess getið
að jólamerki alit frá árinu 1957,
fram á þennan dag séu enn fáan-
leg. Kosta þau frá 15-50 krónur
stykkið og 160-480 krónur örkin.
Má af þessu sjá að auðvelt er enn
að eignast þessi merki og ódýrt.
Upphaflega fór fé það sem á
þennan hátt var safnað, til að
styðja byggingu elliheimilis á
Akureyri. Þegar því marki var
náð var svo farið að styðja við
byggingu og síðar viðhald og
starfsemi á Fjórðungssjúkrahús-
inu, svo sjá má að verðug verk-
efni hafa verið valin.
Það þarf tæplega að hvetja
Akureyringa til að kaupa þessi
jólamerki og veita þar með
stuðning góðum málefnum sem
Framtfðin berst fyrir, en aðra les-
endur þáttarins vil ég sérstaklega
hvetja til að taka þátt í skemmti-
legri söfnun, því að safnarinn er
ekki síður að gleðja sjálfan sig en
þá sem hann styður með kaupum
merkjanna.
Jólamerkin, sem gefin eru út á
Akureyri eru skráð í norrænum
og alþjóðlegum jólamerkjaverð-
listum, svo sem Green verðlistan-
um ameríska og Nordisk Jule-
mærke Katalog. Þá hefir undirrit-
aður gert skrár yfir þessi merki
sem komið hafa m.a. í íslensk
frímerki, en nokkuð langt er síð-
an það var. Það er því að verða
full þörf að endurnýja þá skrán-
ingu, ef til vill mætti prenta hana
hér í þættinum, seinna í vetur.
Þætti mér gaman að heyra álit
lesenda á því.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Norðurlandsmótið í Karaokesöng:
Elísabet og Gunnlaugur
komin í úrslit
- önnur umferð af sex fer fram í kvöld
Síðastliðið fínimtudagskvöld
hófst í Kjallaranum á Akureyri
Norðurlandsmótið í Karaoke-
söng. Sjö söngvarar mættu til
leiks og segja má að þeir hafí
sungið sig inn í hjörtu áheyr-
enda sem tóku vel undir og
skemmtu sér hið besta.
Tveir af þeim sjö söngvurum
sem kepptu á fimmtudagskvöldið
komust áfram í úrslitakeppnina,
sem haldin verður föstudaginn
27. nóvember næstkomandi.
Elísabet Hjálmarsdóttir söng lag-
ið „Greatest love of all“, sem er
betur þekkt í flutningi Whitneyar
Huston, og Gunnlaugur Sigur-
geirsson söng lagið „Rose“.
Glæsileg verðlaun verða veitt á
úrslitakvöldi Norðurlandsmóts-
ins. Sigurvegarinn fær geislaspil-
ara frá Pioneer í verðlaun frá
Hljómbæ og Hljómdeild KEA og
auk þess þátttökurétt í íslands-
meistaramótinu í Karaokesöng,
sem haldið verður á skemmti-
staðnum Ölveri í Reykjavík 3.
desember nk. Fyrir annað og
þriðja sætið verða veitt hljóm-
plötuverðlaun frá Hljómdeild
KEA.
Önnur umferð af sex fer fram í
Kjallaranum í kvöld og hefst hún
kl. 22.00. Skráning í keppnina fer
fram í Sjallanum.