Dagur - 15.10.1992, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 5
Sorpurðun á Glerárdal
Allt virðist nú stefna í það að allt
sorp af Eyjafjarðarsvæðinu verði
urðað á Glerárdal um ókomna
framtíð. Þetta þykja mér váleg
tíðindi og ég get ekki orða
bundist.
Sundurtætt og
skemmt svæði
Akureyrarbær hefur urðað sorp á
sorphaugunum á Glerárdal í
langan tíma án þess að hafa til
þess starfsleyfi frá Hollustuvernd
ríkisins og eins virðist engin
úttekt á jarðfræði svæðisins hafa
farið fram áður en urðun hófst.
Haugarnir eru ekki afgirtir og því
alltaf opnir og allt sorp bæði frá
fyrirtækjum og almenningi kem-
ur óflokkað á haugana. Eins er
sorpi frá sjúkrahúsinu eytt á opn-
um eldi á haugunum og á haustin
hefur mátt sjá þarna sláturúrgang
frá heimalógun. Sigvatn frá haug-
unum rennur óhindrað í Glerá.
Á svæðinu hefur einnig víða farið
fram skipulagslaus efnistaka
(malarnám) og þá hafa bíla-
íþróttamenn þarna aðstöðu. Með
sanni má því segja að svæðið sé
meira og minna sundurtætt og
skemmt. Þannig lítur út bakgarð-
ur Akureyringa.
Bætt við ósómann
En nú skal ekki látið staðar num-
ið heldur bæta við ósómann með
því að aka sorpi frá öllu Eyja-
fjarðarsvæðinu á Glerárdal. Þessi
ákvörðun byggir m.a. á nýlegri
úttekt á jarðfræði sorphauganna
sem unnin var fyrir Héraðsráð
Eyjafjarðar og eins því að þarna
eru haugar fyrir og hagkvæmni
þess að hafa haugana í næsta ná-
grenni við stærstu byggð svæðis-
ins. Eins er aukning í sorpmagni
talin „aðeins um þriðjungur" af
því sorpi sem nú þegar er urðað á
haugunum.
Jarðfræðiúttektin virðist sýna
að engin hætta er á að vatnsból
bæjarins mengist vegna haug-
anna enda liggja þau í hlíðum
Glerárdals að vestanverðu. Eins
telja höfundar skýrslunnar engar
líkur á því að borhola Hitaveit-
unnar við Laugaból mengist né
að sigvatn frá haugunum renni í
átt til bæjarins þar sem þeir telja
að mengað vatn frá haugunum
renni óhindrað í Glerá. Þá er
Glerá talin ágætur viðtaki sig-
vatns frá haugunum þar sem að
tíð vatnsskipti og snögg flóð eru í
ánni og farvegur lengstum
brattur. Einnig telja þeir auðvelt
að veita flæði grunn-, og yfir-
borðsvatns frá Súlumýrum inn á
haugstæðið, framhjá með nokk-
uð viðamiklum skurðum ofan við
haugana. Jarðvegsþykkt er talin
nægjanleg á svæðinu og nóg af
urðunarefni og siturmöl í næsta
nágrenni hauganna. Einhver
spurning virðist þó vera með
þekjuefni (moldarþekju), en sú
hugmynd viðruð að sækja megi
urðunarefni vestur yfir Glerá í
framtíðinni ef efnistaka innar í
dalnum, á ósnertu svæði, myndi
mæta andstöðu.
Ótakmarkaðir
stækkunarmöguleikar
Þá eru möguleikar á stækkun
hauganna taldir nánast ótak-
markaðir og staðsetning heppileg
með tilliti til flutninga. Ljóst er
að þessi jarðfræðikönnun sýnir
að svæðið uppfyllir flest þau skil-
yrði sem í dag eru sett til frágangs
og tilhögunar sorpurðunar. Á
það skal þó bent að fram til þessa
hafa verið gerðar litlar sem engar
kröfur til sorphauga hér á landi af
hálfu hins opinbera ef frá eru
taldar nokkrar leiðbeiningar. Þó
ber þess að geta að á síðustu
árum hafa sveitarfélög víða um
land tekið sorpeyðingu föstum
tökum og í kjölfar þess fengið
starfsleyfi frá umhverfisráðuneyt-
inu þar sem starfseminni eru sett-
ar ítarlegar starfsreglur. Sum
þessara sveitarfélaga eru þó bæði
fámennari og strjálbýlli en
Eyjafjörður.
Stórkostleg náttúruspjöll
Akureyri er ferðamannabær og
er aðstaðan í Hlíðarfjalli oft aug-
lýst sérstaklega. Sorpurðun og
efnistaka hefur nú þegar valdið
stórkostlegum náttúruspjöllum á
Glerárdal sem blasa við gestum
Hlíðarfjalls.
Aldrei verður hægt að ganga
svo vel frá haugunum að þeir
verði ekki til lýta í þessu landi,
fyrir utan það að svona viðamikil
starfsemi mun mjög hindra
möguleika til útivistar í dalnum
og áframhaldandi efnistaka til
urðunar mun skemma svæðið
enn frekar. Raunar ganga haug-
„Glcrá er taiin tilvalinn viðtaki sigvatns frá haugunum í fyrrnefndri könnun,
en mér finnst þess ekki nægilega gætt að áin rennur í gegnum bæinn og er að
auki stífluð í honum miðjum og þó svo að komið verði fyrir fullkomnu
hreinsivirki (sem ég efa reyndar) fyrir sigvatnið er hér um stflbrot að ræða,“
segir Olafur Jónsson m.a. í grein sinni.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari, tók í síðustu viku við bjartsýnisverðlaunum Bröste 1992. Sigrún er
tólfti íslenski listamáðurinn sem verðlaunin hlýtur, en þau voru fyrst veitt árið 1981. Vefðlaunin nema
35 þúsund dönskum krónum eða tæplega 350 þúsundum íslenskra króna.
Ólafur Jónsson.
arnir þvert á aðkomu fólks inn á
dalinn og ber að hafa í huga í
þessu sambandi að nauðsynlegt
er innan skamms að girða af
vatnsból bæjarins vestan Glerár
sem mjög mun takmarka ferðir
fólks þeim megin. Grafa þarf síð-
an langa og djúpa skurði í hlíð-
inni ofan við haugana til að taka
við yfirborðsvatni, sem fyrir utan
að hindra umferð gangandi fólks
mun lýta mjög allt umhverfið.
Glerá er talin tilvalinn viðtaki
sigvatns frá haugunum í fyrr-
nefndri könnun, en mér finnst
þess ekki nægilega gætt að áin
rennur í gegnum bæinn og er að
auki stífluð í honum miðjum og
þó svo að komið verði fyrir full-
komnu hreinsivirki (sem ég efa
reyndar) fyrir sigvatnið er hér um
stílbrot að ræða.
Náttúruperla eða
framtíðar sorphaugur?
Glerárdalur er allur ein náttúru-
perla í seilingarfjarlægð frá bæn-
um sem gefur stórkostlega mögu-
leika til útivistar hvort sem það er
fjallganga á Súlur og nærliggjandi
fjöll og jökla eða skemmri
gönguferðir. Jarðsaga og gróð-
urfar á dalnum hefur verið kann-
að og lýst nákvæmlega svo er
einnig um örnefni. Hann er einn-
ig vatnsforðabúr íbúanna og hýs-
ir auk þess eina bestu aðstöðu til
vetraríþrótta á landinu.
Jarðfræðiúttekt sem sýnir að
Glerárdalur geti orðið framtíðar
sorphaugur Eyjafjarðar dugir hér
ekki ein og sér. Heildarmyndina
verður að hafa í huga. Brýnt er
að nú þegar verði hafist handa
við að leita að öðrum heppilegum
stöðum til urðunar eða annarra
leiða til sorpförgunar.
Ólafur Jónsson.
Millifyrirsagnir eru blaðsins.
Höfundur er dýralæknir á Akureyri.
m*
FIMMTUDAGU
NORÐURLANDSMÓTIÐ í
KARAOKESÖNG
SKRÁNING f SÍMA 22770
♦ ♦
F O
U R
■■HS T U D A
SJALLAKRÁIN
HLJÓMSVEITIN BERGMÁL
LAUGARDAGUR
ARGENTÍNSKT
KVÖLD
MATREIÐSLUMEISTARNIR FRÁ ARGENTÍNA
STEIKHÚS ÓSKAR FINNSSON OG JÓNAS ÞÓR
SEM M.A. GERÐU GARÐIN FRÆGAN Á HOTEL
ASTORIA í NEW YORK BJÓÐA UPP
Á STÓRGLÆSILEGAN MATSEÐIL
MATSEÐILL:
GRAFINN NAUTAHRyGGVÖÐVI MEÐ ROMMRÚSÍNUSÓSU
KJÖTTVENNA, NAUTALUND OG LAMBAFILLE MEÐ PÖNNURISTUÐU
GRÆNMETI, HVÍTLAUKS- OG CHIMICHURRISÓSU
PINA COLADAÍS MEÐ RJÓMA OG ÁVÖXTUM
ÁRNI ÞÓR EYÞÓRSSON OG ANNA MARÍA RAGNARDÓTTIR
FRÁ DANSSKÓLA JÓNS PÉTURS OG KÖRU
SÝNA SUÐUR-AMERÍSKA DANSA
ÖRN VIÐAR ERLENDSSON LEIKUR SUÐUR-AMERÍSKA TÓNLIST
MIÐAVERÐ KR. 3.200,-
AÐEINS ÞETTA EINA SKIPTI
NÝDÖNSK LEIKUR FYRIR DANSI
SJALLINN