Dagur - 15.10.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. október 1992
Samstaða um óháð ísland - EES-samningurinn undir þjóðaratkvæði
| tTr almennum ^“^Tvorn S^ð « að vinna
1 efnahagssvæðið. Samtokin voru eínahags-
1 „egn því að íslendingar Jðast við að kynna
fvæðinu og hefur starf Þ hættur sem aðstandendur
samninginn og benda J? honum fyrh sjalfstæ
| samtakanna telja er að samningnnnn
landsins. Megin krafa rfratkvæði og landsmonnum a
verði borinn undir þjo * -a áUt sitt á honum. A
þann hátt gefinn hostur a að Æóðaratkvæðagreiðsla
það hefur einmg venðbe PJfnisiegri umræðu um
myndi kalla á mun almennan Qg teya fylgtsmenn
samninginn en nu hefur fa innihald sammngs-
Samstölu mikið skorta a að oefn'°rfriandsmönnum. A
ins hafi verið kynnt nægileg^t^ Sigurður Helgason,
fundi Samstoðu a Akurey Kristín Einarsdott
Þat sem |,au
I ræddu EES-samnmgmn. -------------
Pétur Helgason:
Fyrirvararnir halda ekki
Pétur Helgason, bóndi á Hrana-
stöðum, sagði að mjög fróðlegt
hefði verið að hlýða á erindi
framsögumanna á fundinum.
Sérstaklega hafi Sigurður Helga-
son, fyrrum sýslumaður, komið
víða við og bent á mörg atriði er
bæri að varast. Sigurður hefði
tekið tveggja mánaða frí til að
kynna sér EES-samninginn - tal-
ið þann tíma ekki af veita og því
væri vafasamt að menn gerðu sér
nægilega grein fyrir um hvað þeir
væru að fjalla þar sem mikið verk
væri að fara nákvæmlega í gegn-
um allan samningstextann.
Sigurður hefði bent á að íslend-
ingar hefðu þótt slyngir samn-
ingamenn í gegnum tíðina og
Hannes Jónsson:
Árlegt tap af EES aðild
vegna mikils kostnaðar
í umræðum um samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið hefur
meðal annars verið rætt um hugs-
anlegan hagnað íslendinga af
þátttöku í efnahagssvæðinu. í því
sambandi hafa ýmsar tölur verið
nefndar - allt að tveimur millj-
örðum króna á ári. Á fundi Sam-
stöðu á Akureyri kom fram í
útreikningum sem Hannes
Jónsson, fyrrverandi sendiherra,
hefur unnið um kostnað okkar af
þátttöku í Evrópska efnahags-
svæðinu að árlegt tap af þátttöku
í EES verði um 145 milljónir
króna á árunum 1993 til 1997 en
45 milljónir króna á ári eftir
1997.
Hannes Jónsson gerir í út-
Hannes Jónsson
Prentarar
Glerárgötu 30, 600 Akureyri.
Símar 96-12290 - 12291 - 11744.
||fl| Aðalfundur
Framsóknarfélags Húsavíkur
veröur haldinn aö Hótel Húsavík, Hlíöskjálf, kl. 15
sunnudaginn 18. október.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing.
Önnur mál.
Alþingismennirnir Guðmundur Bjarnason og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson flytja ávörp á fundin-
um.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í
umræðum.
Stjórnin.
reikningum sínum ráð fyrir að
50% hækkun skilaverðs sjávar-
afurða vegna tollalækkana verði
um 800 milljónir króna á ári frá
1993 til 1997 en 950 milljónir eftir
1997. Á móti þessum tekjuauka
þjóðarbúsins vegna viðskipta-
samninga komi síðan margvísleg-
ur kostnaður sem sé EES-aðild-
inni samfara. í útreikningum sín-
um gerir Hannes ráð fyrir að
kostnaður vegna ferða og funda
verði um 150 milljónir króna til
1997 en allt að 200 milljónum eft-
ir það. Þýðingar- og prentkostn-
aður verði um 150 milljónir á ári
og árgjöld til EFTA nemi um 35
milljónum. Pá telur Hannes að
hækkun fastakostnaðar í Brussel
verði um 20 milljónir króna og
nýir fulltrúar fagráðuneyta í
Brussel muni kosta allt að 70
milljónum á ári. Aukinn stjórn-
sýslukostnaður í Reykjavík verði
um 100 milljónir króna á ári og
aðildargjöld og kostnaður vegna
fulltrúa hjá EES-ráðinu og marg-
víslegra nefndarstarfa, meðal
annars vegna eftirlitsnefndar og
dómstóls EFTA verði allt að 400
milljónum króna. ÞI
mikið af allskyns fyrirvörum ein-
kenni marga gjörninga þeirra.
Varðandi EES-samninginn
brygði hins vegar svo við að engir
fyrirvarar væru settir utan einn
allsherjar fyrirvari sem engan
veginn sé víst að haldi þegar á
reynir.
Pétur sagði að þau efni samn-
ingsins sem snertu landbúnaðinn
væru efst í sínum huga. í samn-
ingnum væri engin trygging fyrir
því að erlendir aðilar geti ekki
keypt land og bújarðir hér á landi
og takmarkanir sem rætt væri um
væru haldlitlar. Pétur nefndi bú-
setuskilyrði ef aðilar innan
Evrópska efnahagssvæðisins
keyptu landi á íslandi og taldi
það geta snúist í höndum manna
því margir aðilar hér á landi ættu
þegar lönd og jarðir án þess að
búa á þeim. FJann nefndi sem
dæmi að bændur ættu eyðijarðir
og hvernig færi þá með eignarrétt
þeirra ef fullnægja yrði búsetu-
skilyrði vegna eignarhalds á
landi.
Þá ræddi Pétur um innflutning
á landbúnaðarafurðum og kvað
menn hafa ákveðnar efasemdir
um að unnt verði að takmarka
þær eins og talsmenn EES-samn-
ingsins láta í veðri vaka. Erfitt
geti reynst að verja innlenda
landbúnaðarframleiðslu með inn-
flutningsgjöldum ef ekki megi
nota hærri gjöld en notuð voru á
árinu 1991. Á því ári hefði engin
gjaldtaka farið fram af ýmsum
vörutegundum vegna þess að þær
hafi ekki verið fluttar inn.
Pétur sagði að sú þróun er nú
ætti sér stað í alþjóðastjórnmál-
um - fall Maastrichtsamkomu-
lagsins í Danmörku og naumur
sigur þess í Frakklandi bentu ein-
dregið til að almenningur í
Evrópu væri í auknum mæli að
snúast gegn þeim samruna þjóða
sem stjórnmálamenn berjist
fyrir. Þeir virðist ekki lifa í sama
umhverfi - ekki vera í nægum
tengslum við kjósendur sína en
hrærast þess í stað í heimi
embættismanna.
Pétur ræddi einnig um hvaða
stjórnmálaflokkar hefðu aðild að
Evrópska efnahagssvæðinu á
stefnuskrá sinni og varpaði þeirri
spurningu fram hvort slík aðild
hefði verið samþykkt á lands-
Pétur Helgason.
fundum eða flokksþingum ein-
stakra flokka. Hann vitnaði síðan
í ræðu Sigurðar Helgasonar á
Akureyrarfundinum þar sem
hann lýsti þeirri skoðun að með
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið væri verið að taka
nánast allt ákvörðunarvald af
íslendingum í þeim málum er
samningurinn næði til því bera
ætti allar ákvarðanir undir
erlendar eftirlitsstofnanir. Því sé
forkastanlegt að segja að samn-
ingurinn brjóti ekki í bága við
stjórnarskrána eins og fram komi
í áliti þeirra þriggja lögfræðinga
sem utanríkisráðuneytið fékk til
að meta samninginn með tilliti til
stjórnarskrár lýðveldisins. Með
þeim yfirlýsingum sé einnig verið
að hafna álitsgerð Guðmundar
Alfreðssonar, þjóðréttarfræðings
og segja að hann geti ekki haft
rétt fyrir sér.
Pétur sagði að svo virtist að
almenningur væri hikandi við að
láta í ljós andstöðu við EES-
samninginn - ef til vill teldi fólk
sig ekki þekkja nægjanlega til
málsins. „Ef til vill er þjóðin farin
að trúa Jóni Baldvin að hún sé
svo vitlaus að hún hafi ekkert um
málið að segja. Ég sætti mig ekki
við að ekki sé hægt að gera við-
skiptasamninga án þess að þeir
taki einnig til stjórnarfarslegra
atriða,“ sagði Pétur Helgason.
ÞI
Undirskriftasöíammi gengur vel
- en okkur vantar fleira fólk til starfa, segir
Málmfríður Sigurðardóttir
„Undirskriftasöfnunin hefur
gengið mjög vel og margir styðja
okkar málstað,“ sagði Málmfríð-
ur Sigurðardóttir, fyrrverandi
alþingismaður, og einn af félög-
um í Samstöðu, að loknum fund-
um samtakanna á Húsavík og á
Akureyri. „Enn er þó eftir að
fara í allmörg hverfi á Akureyri
og lýsi ég eftir fólki til að taka
þátt í þessu með okkur,“ sagði
Málmfríður en undirskriftasöfn-
un á vegum Samstöðu gegn fyrir-
huguðum samningi um Evrópska
efnahagssvæðið hefur farið fram
að undanförnu.
Málmfríður sagði að margir
hefðu tekið þeim sem farið hafa
um með undirskriftalistana mjög
vel og jafnvel bent á vini og
kunningja sem hefðu áhuga á að
skrifa undir. Einnig bæri nokkuð
á að fólk teldi sig ekki hafa
Málmfríður Sigurðurdóttir.
myndað sér skoðun á málinu og
sumir teldu að um svo flókin mál
væri að ræða að þeir hefðu ekki
aðstöðu til að meta þau í raunsæju
ljósi. Ef til vill væru þeir farnir að
trúa þeim áróðri að samningur-
inn skipti almenning engu beinu
máli - væri aðeins til hagsbóta
fyrir efnahagslífið í heild. Sann-
leikurinn væri hinsvegar sá að
samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið skipti hvert einasta
mannsbarn máli. Hann hefði alls-
staðar áhrif. Málmfríður kvaðst
efast um að fjárhagslegur ágóði
af inngöngunni í Evrópska efna-
hagssvæðið yrði neinn þegar
kostnaður við þátttökuna væri
dreginn frá og vitnaði meðal ann-
ars til útreikninga Hannesar
Jónssonar í því sambandi. Málm-
fríður vitnaði einnig til erindis
Sigurðar Helgasonar á fundinum
á Akureyri og kvað hann hafa
komið víða við og bent á mörg
atriði í samningnum er varast
bæri. ÞI