Dagur - 15.10.1992, Síða 11
Hvað er að gerast
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 11
Afmælisbarnið Benedikt Guðmundsson, kona hans Svanhildur Sigurgeirsdóttir og dóttirin Eva Björk tóku á móti
gestum, ásamt syninum Einari. Þriðja barn þeirra hjóna er Guðmundur en hann er atvinnumaður í knattspyrnu í
Bclgíu og komst ekki í afmælið.
Fertugsafmæli Benedikts Guðmundssonar,
fulltrúa hjá Byggðastofnun á Akureyri:
Vinir og vandamenn fjölmenntu
í aftnælisveisluna
- sem var að sjálfsögðu haldin í Hamri
Benedikt Guðmundsson, full-
trúi hjá Byggðastofnun á
Akureyri og fyrrum formaður
íþróttafélagsins Þórs, fagnaði
fertugsafmæli sínu í hópi vina
og vandamanna sl. fimmtudag.
Herlegheitin voru að sjálf-
sögðu haldin í Hamri, félags-
heimili Þórs og komu yfir
hundrað gestir til að samfagna
Benedikt og hans fjölskyldu á
þessum tímamótum.
Honum bárust fjölmargar gjaf-
ir á afmælisdaginn, blóm og
blómaskreytingar, vínflöskur og
margt fleira. Þarna voru fluttar
ræður, þar sem m.a. „afrek“
Benedikts í gegnum árin voru
tíunduð og þá var tekið lagið.
Benedikt bauð gestum sínum
upp á alls kyns drykki og eitthvað
matarkyns, sem þeir kunnu svo
sannarlega vel að meta.
Benedikt var formaður íþrótta-
félagsins Þórs í eitt ár, tímabilið
1985-1986 en hélt þá suður til
Reykjavíkur. Þar tók hann við
starfi hjá Henson og vann þar í 2
ár. Hann flutti síðan aftur til
Akureyrar árið 1988 og réði sig
til starfa hjá nýstofnuðu útibúi
Byggðastofnunar á Akureyri.
Þegar Benedikt lét af for-
mennsku í Þór árið 1986, tók
mágur hans, Aðalsteinn Sigur-
geirsson, við formennsku í félag-
inu og hefur hann stýrt því síðan.
-KK
í finni stofunni í Hamri sátu nokkrir „heimsþekktir“ Akureyringar og keppt-
ust við að segja veiðisögur, sem flestar voru teknar með fyrirvara.
Gestum var boðið upp á mat og drykk, sem þeir kunnu vel að meta.
Myndir: Robyn
Hann var þétt setinn bekkurinn í Hamri, enda komu yfir 100 vinir og vandamenn i heimsókn tii Benedikts á afmælis-
daginn.
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Þórs
verður haldinn í Hamri 21. október kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Afmælishátíð
Ungmennasambands Eyjafjarðar og
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
í tilefni af 70 ára afmæli UMSE og 60 ára afmæli BSE verð-
ur haldin vegleg afmælishátíð í tvennu lagi n.k. laugardag,
17. október.
Fyrri hluti hátíðarinnar verður í íþróttahúsinu á Hrafnagili og
hefst kl. 14og stendur til u.þ.b. kl. 16 og verður þar boðið
upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Síðari hluti hátíðarinnar verður í félagsheimilinu Freyvangi
og hefst kl. 21 með afmæliskaffi, góðu skemmtiefni og pínu-
litlum ræðustúfum, þrælæfðum. í lok kaffisamsætis mætir
hljómsveitin Menning frá Dalvík á staðinn og spilar bæði
gamalt og nýtt og auk þeirra kemur harmonikuleikari á
staðinn með ekta valsa.
Allir fá endurgjaldslaust inn á skemmtunina í íþróttahúsinu
en óhjákvæmileg gjaldtaka fyrir kvöldkaffið og dansleikinn
verður kr. 1200.
Þrátt fyrir ágæta forskráningu í kaffisamsætið eru enn mörg
sæti laus og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að
koma.
Verið velkomin í góðan hóp laugardaginn 17. okt. n.k.
Nefndin.
VETRARMÓNUSTA
MRSHAMARSHF.
1. Mótorstilling.
2. Ath. viftureimar.
3. Hreinsa geymasambönd.
4. Ath. loftsíu.
5. Skipt um kerti.
6. Skipt um platínur.
7. Mæla frostþol.
8. Yfirfara og stilla Ijós.
9. Ath. þurrkur og rúðusprautur.
10. Lamir og læsingar smurðar.
Innifalin eru kerti og platínur.
Verð: 4 cyl. kr. 6.650,-
6. cyl. kr. 7.550,-
8 cyl. kr. 8.450,-
Tilboð gildir til 15. nóv.
Pantið í síma 22700.
★
Ath. umfelgum og jafnvægisstillum.
þÓRSHAMAR HF.
Við Tryggvabraut Akureyri Sími 22700