Dagur - 15.10.1992, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 13
Minning
■=[}= Kristján Guðmundsson
Fæddur 20. mars 1931 - Dáinn 11. október 1992
Kveðja frá Útgerðarfélagi
Akureyringa hf.
Listasafn íslands:
Finnsk aldamótalist
Sunnudaginn 11. þ.m. lést á
Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar
Kristján Guðmundsson, vélstjóri,
Vallargerði 4 b, hér í bæ, eftir
erfiða sjúkdómslegu.
Kristján hóf ungur störf hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
þann 30. mars 1951, eða 10 dög-
Dagana 15., 16. og 17. október
nk. fer fram landssöfnun á veg-
um Kiwanishreyfingarinnar á
íslandi. Þetta er í sjöunda sinn
sem Kiwanismenn bjóða K-lyk-
ilinn til sölu og í öll skiptin hef-
ur söfnunarfé verið varið til að
bæta aðstöðu geðfatlaðra.
Árið 1974 var komið á fót
vernduðum vinnustað á lóð
Kleppsspítala og var það fyrsti
vinnustaður sem eingöngu er ætl-
aður geðfötluðum. Söfnunarfé
K-dags 1977 rann einnig til Berg-
iðjunnar en svo nefnist þessi
verndaði vinnustaður.
Árið 1980 og 1983 var veitt fé
til að reisa fyrsta áfangaheimili
fyrir geðfatlaða við Álfaland í
Reykjavík. Þar dvelst fólk sem
útskrifað er af geðdeildum
sjúkrahúsanna og stundar vinnu
á almennum vinnumarkaði.
BORGARBÍÓ
Salur A
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Lethal Weapon 3
Kl. 11.00 Höndin sem
vöggunniruggar
Föstudagur
Kl. 9.00 Lethal Weapon 3
Kl. 11.00 Höndin sem
vöggunniruggar
Salur B
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Kálum þeim gömlu
Kl. 11.00 Ár byssunnar
Föstudagur
Kl. 9.00 Kálum þeim gömlu
Kl. 11.00 Ár byssunnar
Væntanleg er
íslenska stórmyndin
„Sódóma Reykjavik... “
BORGARBÍÓ
S 23500
um eftir tvítugs afmæli sitt, á tog-
aranum Kaldbak EA 1. Kristján
var síðan svo til óslitið á skipum
félagsins þar til 14. mars 1958 að
hann kom í land og gerðist starfs-
maður í frystihúsi okkar og var
hann starfsmaður þess fram að
því að hann lést.
Kristján var völundur til allra
smíða og viðgerða og þekktur
fyrir alúð sína og samviskusemi
Árið 1986 var unglingadeild-
inni við Dalbraut komið á fót,
ásamt því að fé var veitt til geð-
deildar Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Fyrir ágóða af K-degi 1989 var
keypt raðhús í Reykjavík þar
sem nú er starfrækt sambýli.
Einnig voru þá hafnar endurbæt-
ur við sambýli Geðverndarfélags
Akureyrar að Álfabyggð 4.
Að þessu sinni er ætlunin að
reisa hús á lóð Kleppsspítalans
sem ætlað er sem stækkun á
Bergiðjunni. Húsið er um 150
ferm. að flatarmáli á tveimur
hæðum. Þar munu starfa 20 til 25
manns að framleiðslu á ýmsum
þeim vörum sem Bergiðjan fram-
leiðir. Þar má nefna gangstéttar-
hellur, rennusteina, sekkjaða
mold og m.fl. Einnig mun ljúka
endurbótum við sambýlið á
Akureyri en þar geta dvalið 8
manns.
gagnvart öllum verkum sínum.
Við sendum eftirlifandi eigin-
konu hans, Ástu Valhjálmsdótt-
ur, stjúpbörnum og ættingjum
hugheilar samúðarkveðjur er við
með þessum línum viljum þakka
góðum drengskaparmanni störf
hans hjá okkur.
Blessuð sé minning hans.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.,
Gunnar Ragnars.
Á fyrri K-dögum hafa selst 300
þúsund lyklar. Árið 1989 seldust
58 þúsund lyklar og lætur nærri
að söfnunarfé fyrir K-daga sé 90
milljónir króna á núvirði. Lands-
menn hafa alltaf tekið vel undir
beiðni Kiwanismanna um stuðn-
ing til handa geðfötluðum sem
reyndar er stærsti einstaki hópur
fatlaðra í landinu og kannski sá
hópur sem erfiðast á með að
vinna sjálfur að sínum málum.
Það er því einlæg von okkar að
fimmtudaginn 15. október taki
fólk um land allt vel á móti sölu-
mönnum K-Iykils, en þann dag
fer fram húsasala. Föstudaginn
16. og laugardaginn 17. verða
Kiwanismenn og -konur við sölu
við alla stórmarkaði og aðra þá
staði þar sem fólk kemur saman.
Jafnframt sölu á K-lykli fer þessa
sömu daga fram kynning á
málefnum geðfatlaðara í landinu
með ýmsum hætti. Fréttatilkynning
Laugardaginn 17. október kl.
15 verður opnuð sýningin
Finnsk aldamótalist í Lista-
safni íslands. Sýningin er hald-
in í tilefni af 75 ára afmæli
finnska lýðveldisins og kemur
frá Listasafninu í Ábo.
Á sýningunni eru verk eftir alla
helstu listamenn Finna um síð-
ustu aldamót. Meðal verkanna
eru nokkrir þjóðardýrgripir
Finna sem þeir hætta sjaldan á að
sýna erlendis. Tímabilið 1880-
1910 hefur verið kallað „Gullöld-
in“ í finnskri myndlist því þá var
mikil gróska í listunum og óvíða
á Norðurlöndum voru jafn marg-
ir frábærir listamenn starfandi og
í Finnlandi.
List aldamótakynslóðarinnar
gegndi stóru hlutverki í þjóðern-
isbaráttu Finna og nægir í því
sambandi að nefna verk Akseli
Gallens-Kallela um atburði sem
greint er frá í Kalevalabálkinum.
Þá verða einnig á sýningunni
verk eftir Helenu Schjerfbeck,
sem nú á dögum er álitin einn
merkasti listamaður á Norður-
löndum.
Fyrir skömmu héldu þrjár ungar stúlkur á Akureyri hlutavcltu til styrktar
Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og söfnuðu þær alls 1.137
krónum. Á myndinni eru Sandra B. Þráinsdóttir og Heiðdís Norðfjörð en á
myndina vantar Telmu Axelsdóttur. Mynd: kk
Þessir ungu og hressu akureyrsku drengir héldu nýlega hlutaveltu til styrktar
Hjálpræðishernum og söfnuðust alls kr. 2.400. Strákarnir heita Birgir Þór
Þrastarson, Jón Benedikt Gíslason og Kristinn Frímann Jakobsson.
Mynd: Robyn
Styrktarfelag vangefinna
á Norðurlandi
Áríðandi félagsfundur
verður haldinn að Iðjulundi, mánudaginn 19. októ-
ber, kl. 20.00.
Mætiö stundvíslega.
Stjórnin.
DAGSPREIMT
Strandgötu 31 • Akureyri • -a- 24222 & 24166
BENEDIKT INGIMARSSON,
Hálsi, Eyjafjarðarsveit,
er lést 8. október sl., verður jarðsunginn að Saurbæjarkirkju,
föstudaginn 16. október kl. 13.30.
Vandamenn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
KRISTDÓRS VIGFÚSSONAR,
Aðaistræti 7, Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki að Hjúkrunarheimilinu
Seli og séra Birgi Snæbjörnssyni.
Kristín Stefánsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Kjörorð landssöfnunar Kiwanis 15.-17. október:
Gleymum ekki geðsjúkum