Dagur - 15.10.1992, Side 15
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Halidór Arinbjarnarson
Heimsmeistaramót í júdó:
„Tókum ekki upp úr töskunum til þess
aö halda fötunum sæmilega hreinum“
Freyr Gauti og Jón Óðinn á góðri stund. Þeir eru vafalaust fegnir að vera
komnir heim.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær eru þeir Freyr Gauti Sig-
mundsson og Vernharð Þor-
Ieifsson komnir heim frá
Argentínu þar sem þeir kepptu
á HM í júdó fyrir karla yngri
en 21 árs en mótið var haldið í
Buenos Aires að þessu sinni.
Freyr Gauti náði 9. sæti í sín-
um flokki sem er mjög góður
árangur ef tekið er mið af
styrkleika mótsins. AHt ferða-
lagið var hið ævintýralegasta
og kynntust þeir félgar ýmsu
sem menn eiga ekki að venjast
í stórmóti sem þessu.
Alls tóku 37 þjóðir þátt í mót-
inu sem var geysisterkt. Vern-
harð keppti fyrst en hann keppir í
-95 kg flokki. Hann var mjög
óheppinn. Lenti á móti heima-
manni í 1. umferð sem var dyggi-
lega studdur af þúsund heima-
mönnum sem sungu þjóðsönginn
í sífellu. í upphafi glímunnar
fékk Vernharð á sig refsistig og
Argentínumaðurinn náði síðan
að hanga á þeirri forustu allt til
loka. I næstu umferð tapaði
íslendingar urðu þess heiðurs
aðnjótandi að mæta Rússum í
fyrsta leik þeirra síðarnefndu í
móti í 79 ár. Leikur liðanna fór
fram í frosti á Lenín leikvang-
inum í Moskvu. Rússar voru
betri aðilinn í leiknum og unnu
verðskuldaðan sigur 1:0.
Fyrri hálfleikur var tíðindalít-
ill. Liðin skiptust á um að sækja í
byrjun en síðan náðu Rússar
heldur undirtökunum, án þess að
skapa sér verulega hættuleg færi.
Þeir áttu þó nokkrar þungar
sóknir en íslensku varnar-
mennirnir voru vel á verði og
náðu að bægja hættunni frá.
Besta færi íslendinga kom um
miðjan hálfleikinn þegar Ragnar
Margeirsson átti skot í stöng.
Rétt fyrir leikhlé meiddist Birkir
Kristinsson markvörður eftir
samstuð við einn Rússann. Hann
harkaði þó af sér og hélt áfram.
í seinni hálfleik máttu íslend-
ingar halda áfram að verjast.
Lengi vel leit út fyrir að íslending-
ar næðu öðru stiginu, en mark
Sergei Juran á 20. mínútu seinni
hálfleiks gerði þær vonir að engu.
Varnarleikur íslendinga var góð-
ur allan leikinn ef markið er
Læknar Eyjólfs Sverrissonar vildu
ekki sleppa honum í A-landsleikinn
á móti Rússum.
Argentínumaðurinn fyrir Kóreu-
búa sem síðar hélt áfram og varð
heimsmeistari. Þar sem Argen-
tínumaðurinn tapaði fékk Vern-
harð ekki uppreisnarglímu og var
þar með úr leik. Til að gefa hug-
mynd um styrkleika mótsins, þá
vann Kóreubúinn nýkrýndan
Vernharð var mjög óheppinn með
andstæðing þegar dregið var.
undanskilið. Birkir markvörður
átti einnig góðan dag og bjargaði
oft vel. Sveinbjörn Hákonarson
kom inná þegar 3 mínútur voru
til leiksloka. Islendingar hafa nú
2 stig að loknum 4 leikjum. HA
Landslið íslands skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri tapaði
stórt fyrir Rússum í fjórða leik
liðsins í undankeppni Evrópu-
móts landsliða. Rússar skor-
uðu þegar á 2. mínútu og
bættu 4 mörkum við áður en
flautað var til leiksloka.
Rússar voru mun betri framan-
af og í fyrri hálfleik lék íslenska
Ólympíumeistara í úrslitum.
Freyr Gauti sat yfir í 1. umferð
í -78 kg flokknum. í 2. umferð
mætti hann Uruguaybúa sem
hann sigraði. Næst tapaði hann
fyrir silfurverðlaunahafanum af
síðasta Evrópumeistaramóti en
fékk uppreisnarglímu þar sem sá
tapaði næstu glímu. Uppreisnar-
glímunni tapaði Freyr Gauti en
þessi árangur tryggði honum 9.
sæti í sínum flokki sem er mjög
góður árangur á heimsmeistara-
móti þar sem 37 þjóðir taka þátt,
ekki síst ef miðað er við aðstæð-
ur.
Aðstaða keppenda var mjög
frábrugðin því sem menn eiga að
venjast af stórmóti sem þessu, að
sögn Jóns Óðins Óðinssonar sem
fór með strákunum sem farar-
stjóri. Mótshaldarar eiga að sjá
um allar ferðir en ekkert stóðst í
þeim efnum. Fáir virtust tala ann-
að en spænsku og því var erfitt
með öll samskipti. Innifalið í
verði hótelsins átti að vera matur
en þann stað fundu þeir félagar
aldrei og hættu reyndar að leita
er þeir fregnuðu frá Portúgölum
að þeir hefðu hrakist þaðan út
aftur sökum óþrifnaðar. Annar
aðbúnaður var í sama stíl.
íslendingarnir gistu á hóteli sem
átti að vera fjögurra stjörnu. Þar
skorti hins vegar mjög upp á
hreinlæti. „Við tókum fötin
aldrei upp úr töskunum til þess
að halda þeim allavega sæmilega
hreinum," sagði Jón Óðinn.
Eins og fram hefur komið í
Degi þurftu keppendur og farar-
stóri sjálfir að fjármagna ferðina
þar sem Júdósambandið er fjár-
vana og gat ekki hlaupið undir
liðið talsvert undir getu. Staðan
var 3:0 í hálfleik og þrátt fyrir
mun betri seinni hálfleik hjá
íslendingum náðu þeir ekki að
skora en fengu á sig 2 mörk.
Ólafur Pétursson markvörður sá
til þess að tapið yrði ekki enn
stærra. Auk hans átti Ágúst
Gylfason ágætan leik. Leikið var
við erfiðar aðstæður, kalt var í
veðri og völlurinn frosinn. HA
bagga. Jón Óðinn sagði þá að
mestu eiga þann þátt ferðarinnar
eftir en gerði sér vonir um að það
mundi takast. Júdódeild KA er
15 ára um þessar mundir og af því
tilefni verður gefið út afmælisrit.
Um síðustu helgi var haustmót
Júdósambands Islands haldið í
íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Frá KA tóku 6
keppendur þátt og stóðu þeir
sig allir mjög vel.
Alls voru þátttakendur milli 40
og 50 frá 4 félögum. Auk KA
voru það Ármenningar, Þróttar-
ar og Selfyssingar. Mótið var
heldur minna í sniðum en oft
áður og nokkrir af sterkustu
júdómönnum okkar voru ekki
með. Munaði þar mest um Frey
Gauta Sigmundsson og Vernharð
Þorleifsson sem voru á HM í
Argentínu. Bjarni Friðriksson og
Sigurður Bergmann voru heldur
ekki með. Bestum árangri
norðanmanna náðu Rúnar
Snæland, Jónas Jónasson og
Friðrik Pálsson. Að sögn Jóns
Jakobssonar hjá KA sem einnig
náði ágætis árangri, sýndu menn
tölverðar framfarir og sérstak-
lega nefndi hann Friðrik Pálsson
sem hann sagði vera í mikilli
sókn. í lokin fylgja svo úrslitin.
, HA
Urslit
Karlaflokkur:
-60 kg:
1. Höskuldur Einarsson, Ármanni
2. Rúnar Snæland, KA
3. Gígja Gunnarsdóttir, Ármanni
-71 kg:
1. Eiríkur Kristinsson, Ármanni
2. Karl Erlingsson, Ármanni
3. -4. ívar Þrastarson, Ármanni
3.-4. Kristján Ársælsson, Þrótti
„Nú er verið að fara af stað með
auglýsingasöfnun fyrir það rit og
þá ætti eitthvað að koma í kass-
ann því ekki veitir af,“ sagði Jón
Óðinn Óðinsson júdóþjálfari og
Argentínufari. HA
-78 kg:
1. Helgi Júlíusson, Ármanni
2. Halldór Guðbjörnsson, Ármanni
3. Karel Halldórsson, Ármanni
-95 kg:
1. Halldór Hafsteinsson, Ármanni
2. Þórir Rúnarsson, Ármanni
+75 kg:
1. Jón Jakobsson, KA
2. Sigurður Jónsson, Þrótti
Opinn flokkur:
1. Halldór Hafsteinsson. Ármanni
2. Þórir Rúnarsson, Ármanni
3. Jón Jakobsson, KA
Karlar yngri en 21 árs:
-65 kg
1. Rúnar Snæland, KA
2. Jónas Jónsson, KA
3. Atli H. Arnarson KA
-71 kg
1. ívar Þrastarson, Ármanni
2. Eyjólfur Sigurðsson, Ármanni
+71 kg:
1. Ari Sigfússon, Ármanni
2. Friðrik Pálsson, KA
3. Guðmundur Ólason, Þrótti
Unglingar 15-17 ára:
-60 kg:
1. Gils Matthiasson, Selfossi
2. Bergur Sigfússon, Ármanni
3. Björn Grétarsson, Selfossi
-65 kg:
1. Atli H. Arnarson, KA
2. Jónas Jónsson, KA
3. Teitur Guðmundsson, Selfossi
+70 kg:
1. Ari Sigfússon, Ármanni
2. Friðrik Pálsson, KA
3. Atli Gylfason, Ármanni
íslenska liðið varðist vel
- beið þó lægri hlut
Lárus Örri Sigurðsson virðist hafa fest sig í sessi í U-21 landsliðinu. Lið hans
átti aldrei möguleika á móti Rússum og tapaði stórt.
Landslið U-21:
Tap fyrir Rússum
JÚdÓ:
Haustmótjúdósambandsins
- ágætis árangur hjá KA