Dagur - 15.10.1992, Síða 16
Kaldbakur mun halda á karfaveiðar og selja í Þýskalandi.
Björgvin EA með 57 tonn á tíu dögum:
Þorsk hvergi að firnia
Björgvin EA frá Dalvík land-
aði á mánudaginn 57 tonnum.
Aflinn var að mestu grálúða og
ufsi.
„Togaranum var ætlað að
veiða þorsk sem ekki gekk.
Þorskur er ekki á togslóð og því
var leitað í aðrar tegundir. Grá-
lúða fékkst í norðurkantinum.
Lúðan er smá en feit. Já, 57 tonn
á tíu dögum þykir ekki merki-
legt. Betur má ef duga skal,“
sagði Valdimar Bragason, útgerð-
arstjóri Útgerðarfélags Dalvík-
inga hf. ój
Aðalfimdur LIÚ haldinn á
Akureyri í lok október
Bróðurpartur gistirýmis á
Akureyri er frátekinn 28. til
31. október nk. vegna aðalfund-
ar Landssambands íslenskra
Kaldbakur EA fiskar fyrir siglingu:
,Bestí kosturinn að sigja með karfam
- segir Magnús Magnússon, útgerðarstjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf.
Svalbakur EA kom til löndun-
ar sl. mánudag. Aflinn, 113
tonn, var að mestu karfl og
grálúða. Afli Kaldbaks EA,
sem landaði í gær, var einnig
karfi og grálúða, tæp 80 tonn.
Nú er ráðgert að Kaldbakur
haldi á karfaslóð að löndun
lokinni og sigli með aflann á
Riúpnaveiðin hefst
í dag:
Veiðimenn bjartsýnir
„Það er dálítið erfitt að segja
til um rjúpnaveiðina áður en
farið er af stað nema að maður
hefur séð rjúpu í haust og aðil-
ar sem þekkja vel til telja að
þokkalegt sé að hafa af fugli,“
sagði Gísli Ólafsson, varafor-
maður Skotveiðifélags Eyja-
fjarðar um rjúpnaveiðina en
tímabilið hefst í dag.
Talið hefur verið að rjúpna-
stofninn hafi orðið illa úti í jóns-
messuhretinu og m.a. þess vegna
hafa rjúpnavinir hvatt til að rjúp-
unni verði hlíft í haust. Gísli
Ólafsson benti á að í fyrra hafi
verið miklar hrakspár fyrir veiði-
tímabilið en í ljós hafi komið að
talsvert hafi verið af fugli.
„Auðvitað vita allir að rjúpna-
stofninn er ekki í neinu hámarki
en við getum vitnað til vísinda-
manna sem allir eru á einu máli
um að ekki sé hætta á að stofninn
þurrkist út þó veitt sé úr honum,“
sagði Gísli. JÓH
VEÐRIÐ
Milli Islands og Grænlands er
1042 millibara hæðarsvæði
sem þokast suður, en austur
við Noreg er 998 millibara
lægð sem hreyfist SA. Áfram
verður svalt í veðri og víða
næturfrost. Norðan gola eða
kaldi verður fram eftir morgni
og víða dálítil él á miðum og
annesjum og skýjað. Síðan
léttir til með vestan golu þegar
líður á daginn en súld verður á
miðum.
Þýskaland.
Að undanförnu hefur lítið sem
ekkert borist af þorski til frysti-
húsa við Eyjafjörð. Afli togar-
anna er að mestu karfi og grá-
lúða. Gott verð hefur fengist fyrir
þessar fisktegundir í Þýskalandi
að undanförnu. Skagfirðingur
gerði toppsölu í síðustu viku og
Björgvin EA frá Dalvík seldi í
gær á mjög þokkalegu verði.
Magnús Magnússon, útgerðar-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., segir að Kaldbak EA
verði haldið að karfaveiðum í
næsta túr, því stefnt sé að sigl-
ingu á Þýskaland með aflann.
Harðbakur EA er í slipp í Pól-
landi og verður til áramóta. Nú
hefur stjórn Útgerðarfélags
Akureyringa hf. tryggt vinnsl-
unni í landi afla í stað þess sem
tapast vegna fyrrgreindra orsaka.
Þrír bátar eru komnir í föst við-
skipti. Bátarnir eru Frosti, Eld-
eyjar-Hjalti og Eldeyjarboði.
Frosti landaði í gær 30 tonnum af
þorski og Eldeyjarbátarnir 20
tonnum, hvor. Búið er að gera
samninga við útgerðir bátanna
um löndun fram í febrúar 1993.
„Eins og málum er komið er
Björgúlfur EA seldi í Þýskalandi:
,Átti von á betri sölu“
- segir Valdimar Bragason, útgerðarstjóri
Björgúlfur EA, togari Útgerð-
arfélags Dalvíkinga hf., seldi
127 tonn af karfa í gærmorgun
í Þýskalandi. Meðaiverð
reyndist þokkalegt, krónur
98,83 á kfló.
Valdimar Bragason, útgerðar-
stjóri Útgerðarfélags Dalvík-
inga hf., segir togara fyrirtæk-
isins sigla með afla á erlenda
markaði einu sinni til tvisvar á
ári. Áherslan er lögð á að afla
hráefnis fyrir frystihúsið.
„Björgúlfur hélt til veiða suður
í Rósagarð laust fyrir mánaða-
mót. Togaranum var haldið á
karfaslóð þar sem ákveðið var að
sigla með aflann á Þýskaland.
Verð á karfa í Þýskalandi hefur
sveiflast mikið að undanförnu.
Engu að síður átti ég von á betri
sölu hjá Björgúlfi sérstaklega í
ljósi þess að aflinn var fyrsta
flokks og Skagfirðingur gerði
toppsölu á mánudag," sagði
Valdimar Bragason. ój
besti kosturinn að sigla með karf-
ann. Hærra verð fæst fyrir þann
bleika á erlendum mörkuðum en
fengist með vinnslunni hér heima,“
sagði Magnús Magnússon. ój
Kópasker:
Skínandi falleg
rækjaúr
Öxarfirðinpi
Rækjuveiði hófst í Öxarfirði
sl. sunnudag í blíðskaparveðri
og fengu bátarnir skínandi
fallega rækju, 150 til 160 stk. í
kg. Bátarnir sem hófu veiðar á
sunnudaginn voru Kristey frá
Húsavík, Þingey frá Kópaskeri
og Öxarnúpur og Þorsteinn frá
Raufarhöfn. Allir bátarnir
Ieggja upp aflann hjá Geflu hf.
á Kópaskeri.
Afli var einnig mjög góður, um
2 tonn á bát, sem fékkst í einu
hali og virðist spá Hafrannsókna-
stofnunar um aukið rækjumagn í
Öxarfirði ætla að ganga eftir.
Bátarnir eru nú í landi vegna
brælu en þeir fara væntanlega út
á fimmtudag ef tíðin leyfir en
þann sama dag hefst vinnsla
einnig hjá Geflu. GG
Drangey landaði á Sigluflrði
- hagkvæmni í rekstri er markmið útgerðarinnar
Drangey SK-1 landaði afla
sínum á Sigluflrði á mið-
vikudagsmorgun í annað sinn á
skömmum tíma. Þær fregnir
fengust í Skildi hf. að Drangey
hefði landað á Sauðárkróki 5.
október sl. og þetta væri því
ekki óeðlilegt.
Eins og fram hefur komið
sögðu nokkrir skipverjar á
Drangeynni upp störfum nýverið
eftir að togarinn landaði á Siglu-
firði, af ótta við að flytja ætti
útgerð skipsins þangað. Forsvars-
menn Skjaldar hf. og Þormóðs
ramma hf. sögðu slíkt ekki
standa til, en hagkvæmni í rekstri
sé markmiðið. Forsvarsmenn
meirihluta útgerðarinnar mættu á
fund bæjarráðs Sauðárkróks og
voru málin rædd og töldu bæjar-
fulltrúar það til góðs, eins og
fram kom á bæjarstjórnarfundi
nýlega. Árni Guðmundsson
framkvæmdastjóri Skjaldar sagði
í samtali við blaðið nýlega að
skipverjar á Drangey sýndu ekk-
ert fararsnið á sér og þetta mál
virtist úr sögunni. Ekki hefur
frést af neinum aðgerðum skip-
verja vegna löndunar á Siglufirði
á miðvikudagsmorgun og því
ekki annað að sjá en allir séu
sáttir. Það er þó ljóst að Sauðár-
krókur missir spón úr aski sínum
ef landað er annars staðar, þar
má nefna aflagjöld til Hafnar-
sjóðs, kaup á olíu og hugsanlega
kaup á kosti skipshafnar, svo og
störf við löndun. sþ
útvegsmanna, sem haldinn
veröur í Alþýðuhúsinu
flmmtudaginn 29. og föstudag-
inn 30. október.
Jónas Haraldsson, skrifstofu-
stjóri LÍÚ,segir að ekki sé ennþá
ljóst hversu margir gestir komi til
Ákureyrar vegna þingsins, skrán-
ingu sé ekki lokið. Þó megi ætla
að þeir verði á bilinu 250 til 280,
en 214 fulltrúar hafa rétt til setu á
aðalfundinum.
Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa verða flutt erindi um
ýmis mál. Þorsteinn Pálsson,
sjávarútvegsráðherra, ávarpar
fundinn og meðal annarra
ræðumanna má nefna Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, sem mun ræða um EES-
samninginn og sjávarútveginn og
Þórð Asgeirsson, forstöðumann
Fiskistofu, sem mun ræða um
hlutverk Fiskistofu.
LÍÚ-fundurinn er einn af
stærri árlegum fundum og því
mikill fengur fyrir ferðaþjónust-
una á Akureyri, en hann hefur
tvisvar áður verið haldinn á
Akureyri. óþh
Hraðfrystihús
ÓlafsQarðar hf.:
Framkvæmda-
stjóriim
búinnað
segja upp
Jóhann Guðmundsson, fram-
kvæmdatjóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar hf., hefur sagt
stöðu sinni lausri og verið
ráðinn framleiðslustjóri hjá
íslenskum matvælum hf. í
Hafnarflrði.
Jóhann hefur gegnt stöðu
framkvæmdastjóra H.Ó. í um
tvö ár, en hann tók við af
Finnboga Baldvinssyni er
hann var ráðinn framkvæmda-
stjóri Söltunarfélags Dalvíkur
hf. Jóhann mun láta af störf-
um í næsta mánuði. óþh