Dagur - 18.11.1992, Blaðsíða 1
Vel í fii 1 »t 1 klæddur lim ín BERNHARDT -^'^11 ■ 1 II Thc Tiiikir-l.«Htk errabodin
1 1 HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Hafnarframkvæmdir á Húsavík:
Viðaukasairmingur við
Hagvirki/Klett bundinn
uppgjöri við heimamenn
- samningurinn hljóðar upp á 51 milljón
Hagvirki/Klettur hf. og Hafnar-
stjórn Húsavíkur gerðu með
sér samning um hafnarfram-
kvæmdir á Húsavík sem skrif-
að var undir í gærdag.
Um er að ræða viðaukasamn-
ing við þann samning sem í gildi
er um framkvæmdirnar. Samn-
ingurinn er um dýpkun við
Norðurgarðinn með sprenging-
um og verður aðalverkþunginn á
tímabilinu frá apríl og út júlí ’93.
Framkvæmdunum sem í gangi
eru á að ljúka 1. ágúst. Við-
aukasamningurinn hljóðar upp á
51 milljón króna og þá á eftir að
bjóða út uppgröftinn af hafnar-
botninum.
Aðspurður sagði Einar Njáls-
son, hafnarstjóri, að erfitt væri
að bera saman kostnaðartölur við
verkið. Par sem hafnarbotninn
reyndist að meginhluta til ógræfur
og sprengivinnu þarf til við dýpk-
unina, verður dýpkað mun minna
svæði en til stóð í upphafi. Heild-
arkostnaður við verkið verður að
Iíkindum um 15 milljónum króna
hærri en áætlað var þó mun minni
hiuti hafnarinnar verði dýpkað-
ur.
Samningurinn er bundinn því
að uppgjöri Hagvirkis/Kletts við
heimamenn verði lokið áður en
samningurinn tekur gildi. IM
Undirbúningurinn er í fullum gangi. Leikmyndin er komin á sinn stað og tæknifólk vann að því í gær að koma fyrir
myndavélum og setja upp Ijósa- og hljóðkerfi. Hljóðprófanir voru síðdegis í gær og í dag hefjast fyrstu æfingar lista-
fólksins á sviðinu í Sjallanum. „Generalprufa“ verður síðan á föstudagsmorgun. Myndir: Robyn.
Undirbúningur Landslagskeppninnar í fullum gangi:
SjaUinn breytist í tæknitöfraheim
Sigluijörðiir:
Ræíí um endur-
skoðun á stjóra-
kerfi bæjarins
Á fundi bæjarráðs Siglufjarðar
í gær var rætt um endurskoðun
á stjórnkerfi bæjarins.
„Það hefur lengi verið á döf-
inni að endurskoða stjórnkerfi
bæjarins og eiginlega má segja að
kveikjan að þessari umræðu nú
hafi verið nýútkomin bók eftir
Sigfús Jónsson um stjórnun sveit-
arfélaga. Við teljum að þetta sé
eðlileg naflaskoðun,“ sagði
Björn Valdimarsson, bæjarstjóri
á Siglufirði. „Við erum ekkert að
flýta okkur í þessu, en munum
ræða þetta á næstunni. Menn
hafa verið að velta þessu fyrir sér
og okkur fannst tímabært að taka
upp þessa umræðu,“ sagði Björn.
Hann nefndi að endurskoðunin
myndi ná til stjórnkerfis bæjar-
ins, þ.m.t. yfirstjórnar og
nefndakerfis bæjarins. óþh
Akurey r arflugvöllur:
Fækkun farþega
síðustu 5 ár
Á tímabilinu 1987 til 1991
fækkaði farþegum sem fara um
Akureyrarflugvöll um tæplega
fimm þúsund.
Petta kemur fram í svari sam-
gönguráðherra við fyrirspurn
Jónasar Hallgrímssonar (B-Au)
um m.a. heildarfjölda farþega
um Akureyrarflugvöll síðan
beint flug til Akureyrar erlendis
frá hófst.
Árið 1987 voru farþegarnir
130.499, 121.268 árið 1988,
120.305 árið 1989, 120.877 árið
1990 og 115.804 árið 1991. óþh
Undirbúningur fyrir lokakvöld
Landslagsins 1992 í Sjallanum
á Akureyri er í fullum gangi.
Þessa dagana er Sjallinn sér-
stakur tæknitöfraheimur.
Unnið er að því að setja upp
Slökkvilið Akureyrar var
kallað út á sjötta tímanum í
gær vegna elds í gömlum
ónýtum bíl skammt fyrir
norðan nyrstu hús á Akur-
eyri.
Aö sögn varðstjóra slökkvi-
liðsins er talið að kveikt hafi
Fljúgandi hálka var á götum
Siglufjarðar í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar varð eitt umferðar-
óhapp í bænum.
í gærmorgun snjóaði töluvert
á Siglufirði og við það myndað-
ist hálka á götum bæjarins. Eitt
umferðaróhapp varð, sem má
Mikil hálka myndaðist á göt-
um Akureyrarbæjar í gær og
fóru margir ökumenn heldur
flatt á henni.
Laust fyrir hádegi fór að
snjóa á Akureyri og urðu götur
bæjarins á svipstundu eins og
skautasvell. Síðdegis í gær hafði
öll nauðsynleg tæki og tól fyrir
beinu útsendinguna nk. föstu-
dagskvöld og leikmynd er þeg-
ar komin á sinn stað.
Útsendingin á föstudagskvöld-
ið er flókin og krefst mikils undir-
verið í bílhræinu, sem var við
Dverghól, skammt norðvestur
af Efnaverksmiðjunni Sjöfn.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn. Varðstjóri sagði að
slökkvilið hafi verið kallað á
staðinn vegna ótta við aö neista-
flug frá bílnum kynni að berast í
nærliggjandi skepnuhús. óþh
að öllu leyti rekja til hálkunnar.
Ökumaður missti stjórn á fólks-
bifreið á Skriðustíg og rann hún
inn á Suðurgötu, þar sem hún
lenti all harkalega á kyrrstæðri
fólksbifreið. Engin meiðsl urðu,
en báðar bifreiðirnar skemmd-
ust töluvert, einkum þó sú kyrr-
stæða. óþh
varðstjóri lögreglunnar á Akur-
eyri spurnir af átta árekstrum
víðsvegar í bænum og var sá
fyrsti í hádeginu. í öllum tilfell-
um var um að ræða minniháttar
tjón, en ökumenn höfðu ekki
áttað sig nægilega vel á skyndi-
legum breytingum á aksturs-
skilyrðum. óþh
búnings. Tæknimenn byrjuðu um
síðustu helgi að setja upp tæki og
þeirri vinnu miðar vel. Sverrir
Karlsson og Jóhann Jóhannsson,
sem hafa yfirumsjón með tækni-
hliðinni, segja að þessi útsending
sé ein sú viðamesta sem Stöð 2
hafi til þessa ráðist í. Notaðar eru
sex myndavélar, sem búið er að
koma haglega fyrir út um allt
hús. Allt hljóðkerfi og ljósakerfi
var flutt í gámi norður yfir lieið-
ar. Mikið er lagt upp úr hljóðinu
og af þeim sökum var hljóðbíl
Bylgjunnar ekið norður, en auk
hans verður Samvers-bíllinn not-
aður við beinu sendinguna.
Lokakvöldið verður sent út í
stereó á Bylgjunni og þannig get-
ur fólk notið tónlistarinnar sem
best, urn leið og það horfir á
beina útsendingu á Stöð 2.
Þegar er búið að setja upp leik-
mynd í Sjallanum, sem Jón
Árnason, innanhússarkitekt og
deildarstjóri hönnunardeildar i
Stöðvar 2, hefur hannað. „Ég er
mjög ánægður með hvernig til j
Drangey SK-1 landaði 120
tonnum á Sauðárkróki á þriðju-
dag. Er það í fyrsta skipti frá
því í byrjun október að Drang-
ey iandar á Króknum, en hún
hefur hins vegar landað fjórum
sinnum á Sigluflrði nú í haust.
Drangey landaði nú 120 tonn-
um af blönduðum afla. Skv.
Framkvæmdum við Stráka-
göng lýkur endanlega í næsta
mánuði þegar hurð verður sett
upp við gangamunnann Fljóta-
megin.
Sett verður upp hurð, sem
keypt er frá Noregi, en véla-
hefur tekist,“ sagði Jón þegar
blaðamaður Dags hitti hann að
máli í Sjallanum í gær. Hann
sagði að vitaskuld væri Sjallinn
ekki stórt hús og hönnun leik-
myndarinnar hafi tekið mið af
því. „Ég þurfti að ýkja stærð
sviðsins og ég held að það hafi
tekist ágætlega,“ sagði Jón.
í dag er von á listafólkinu
norður og æfingar hefjast strax í
Sjallanum. Á rnorgun verður
einnig æft og prufuæfing, svoköll-
uð „generalprufa" verður á föstu-
dagsmorgun.
Kolbeinn Gíslason, frarn-
kvæmdastjóri Sjallans, sagði í
gær að þegar væri orðið uppselt í
mat á föstudagskvöld, samtals
um 300 manns. Hann sagði að
mikið yrði lagt undir til þess að
gera kvöldið eins veglegt og
mögulegt væri. „Vitanlega er
þetta góð kynning fyrir Sjallann,
en fyrst og fremst tel ég að þessi
keppni sé ein besta kynning sem
Akureyrarbær hefur lengi
fengið,“ sagði Kolbeinn. óþh
heimildum blaðsins er reglan sú
að landað er á Siglufirði ef meiri-
hluti aflans á að vinnast þar, ann-
ars á Sauðárkróki. Drangey hef-
ur landað fjórum sinnum á Siglu-
firði nú í haust, síðast 6. nóv. sl.,
en aðeins einu sinni á Sauðár-
króki. Hins vegar mun nægur
fiskur berast til Skjaldar hf. á
Sauðárkróki. sþ
verkstæði SR á Siglufirði smíðar
rammann utan um hana. Að sögn
Jónasar Snæbjörnssonar,
umdæmisverkfræðings hjá Vega-
gerðinni á Sauðárkróki, verður
hurðin sett upp í næsta mánuði.
óþh
Akureyri:
Eldur í ónýtum bfl
Sigluprður:
Rann á kyirstæðan M
Akureyri:
Fóru flatt á hálkunni
Drangey landar á Króknum
Strákagöng:
Hurð sett upp í desember