Dagur - 18.11.1992, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 18. nóvember 1992
Fréttir
Styrktartónleikar fyrir Kammerhljómsveit Akureyrar
nk. sunnudag:
Tónlistarveisla í Gryflimni
- í burðarliðnum er þríhliða samningur um rekstur
Kammerhljómsveitarinnar
Forráðamenn Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar vonast til að
innan skamms verði gengið frá
þríhliða samningi sveitarinnar,
ríkisins og Akureyrarbæjar um
rekstur Kammerhljómsveitar-
innar, sem muni gera henni
kleift að halda 5-6 tónleika á
ári. Fjárhagur sveitarinnar hef-
ur verið ákaflega erfiður og
eftir síðasta starfsár skuldaði
hún á aðra milljón króna. Til
þess að reyna að laga stöðuna
verður efnt til styrktartónleika
í Gryfjunni, sal Verkmennta-
skólans á Akureyri, nk. sunnu-
dag kl. 16.
Á blaðamannafundi í gær um
tónleikana á sunnudag og rekstur
Kammerhljómsveitarinnar kom
fram að menntamálaráðherra og
aðrir sem að þessu máli hafa
komið, hafi sýnt því mikinn
áhuga að tryggja rekstur sveitar-
innar. Menn séu því vongóðir um
að hægt verði að ganga frá þrí-
hiiða samningi innan skamms.
Tónleikarnir á sunnudag verða
sannkölluð tónlistarveisla. Fram
koma um 130 flytjendur, þar af
Kammerhljómsveitin og Kórar
Akureyrarkirkju og Glerár-
kirkju. Af öðrum flytjendum má
nefna Christopher Á. Thornton,
sópransaxafónn, Helgu Bryndísi
Magnúsdóttur, píanó, Hólmfríði
Benediktsdóttur, sópran, Pálma
Gunnarsson, dægurlagasöngv-
ara, Sigurð Bernhöft, tenór,
(nemandi Sigurðar V. Demetz,
sem verður viðstaddur tónleik-
ana), Óskar Péturson, tenór,
Jacqueline F. Simm, óbó og Tom
Higgerson, píanó, Jennifer
Spear, gítar og Moira Lang,
sópran, óbókvartett Tónlistar-
skólans á Akureyri, stórsveit
Lúðrasveitar Akureyrar og tvö-
falt djasstríó.
Reiknað er með að tónleikarn-
ir taki rúma tvo tíma. Eins og
áður segir verða þeir haldnir í
samkomusal Verkmenntaskólans
á Akureyri, Gryfjunni. Jón
Hlöðver Áskelsson, fram-
kvæmdastjóri Kammerhljóm-
sveitarinnar, vildi koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til for-
ráðamanna skólans fyrir afnot af
þessu húsnæði, en þetta eru í
fyrsta skipti sem slíkir tónleikar
eru haldnir þar.
Kammerhljómsveit Akureyrar
hefur starfað í fimm ár og á þeim
tíma haldið 24 tónleika. Áheyr-
endur eru orðnir um 5000. Guð-
mundur Óli Gunnarsson, skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Akur-
eyri, hefur verið ráðinn aðal-
stjórnandi hljómsveitarinnar og
eru þetta fyrstu tónleikarnir sem
hann stjórnar henni eftir að geng-
ið var frá þeirri ráðningu.
Fyrstu tónleikar Kammer-
hljómsveitarinnar eftir áramót
verða 7. febrúar í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju. Meðal
annars verður frumflutt nýtt verk
eftir Atla Ingólfsson. Aðrir tón-
leikarnir verða 7. mars í íþrótta-
skemmunni. Flutt verður Vínar-
tónlist undir stjóm Páls Pampichl-
ers Pálssonar. Einsöngvarar
verða Jón Þorsteinsson, tenór og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
sópran. Priðju tónleikarnir verða
á kirkjulistaviku í Akuureyrar-
Á blaðamannafundi í gær kynntu þeir Gunnar Frímannsson, rekstrarstjóri
Tónlistarskólans á Akureyri og Jón Hlöðver Áskelsson, framkvæmdastjóri
Kammerhljómsveitar Akureyrar, tónleika á sunnudag og greindu frá fjár-
hagsstöðu hljómsveitarinnar. Mynd: Robyn
kirkju 9. maí. Þar flytur hljóm-
sveitin ásamt Kór Akureyrar-
kirkju og einsöngvurunum
Michael Jóni Clarke, tenór og
Margréti Bóasdóttur, sópran,
sálumessu Gabriels Faurés. óþh
Skagaströnd:
Útvarp Kántrýbær hefiir útsendingar
Sl. laugardag hóf Villfa vestrið
á Skagaströnd útsendingar á
Útvarpi Kántrýbæ. Það er
enginn annar en kántrýsöngv-
arinn Hallbjörn Hjartarson
sem stendur fyrir þessu uppá-
tæki. Að sögn Hallbjarnar
verður sent út um helgar til að
byrja með.
Útsendingartímar verða frá kl.
18 til 2 á nóttunni, föstudaga til
sunnudaga. Nær eingöngu verður
útvarpað kántrýtónlist, að sögn
Hallbjarnar, en það gæti breyst
síðar. í framtíðinni segist Hall-
björn geta hugsað sér að vera
með fréttaþætti og spjall við
Hallbjörn er eini starfsmaðurinn.
hlustendur, auk auglýsinga sem
hann vonast til að fá. Sent er út á
FM 100,7 en Hallbjörn segir
útsendinguna ekki ná eins víða
og hann hafi vonast til. Hann er
eini starfsmaður útvarpsins, sér
um tæknihliðina sem og annað.
Útvarpið er staðsett uppi á lofti í
Kántrýbæ, en þar er einnig opið
um helgar, en Hallbjörn segir lít-
ið að gera þar, hins vegar hafi
verið nóg að gera sl. sumar.
Hann sagðist ekki hafa fengið
mikil viðbrögð við framtaki sínu
ennþá, fólk haldi eflaust að hann
sé geggjaður en hann kveðst van-
ur slíku og ekki kippa sér upp við
það. sþ
TILROÐ
Grilloður kjúklingur
498 pr. stk.
Úr kjötborði
Þurrkryddoöur höggvinn
lombohryggur
nvoxtofylltur lombobógur
Hvftloukslegið lombolæri
Svíno-, lombo- og noutopottréttir
Svínokjöt of nýslótruðu í úrvoli
Kýr- og noutokjöt of nýslótruðu
í úrvoli
Nýsteiktor fronskor kortöflur
ollon doginn
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga kl. 9-22
Laugardaga og
sunnudaga kl. 10-22
Héraðsráð Eyjaíjarðar:
Bjöm Valur tekur sæti Bjama
Með brottvikningu meirihluta
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar á
Bjarna Grímssyni úr stól
bæjarstjóra víkur hann einnig
sæti í héraðsráði Eyjafjarðar.
Hans sæti tekur Björn Vahir
Gíslason, bæjarfulltrúi vinstri-
manna í Ólafsflrði.
Samkvæmt upplýsingum Hall-
dórs Jónssonar, bæjarstjóra á
Akureyri og formanns héraðs-
ráðs Eyjafjarðar, er Björn Valur
varamaður Bjama í ráðinu. Aðrir
fulltrúar í héraðsráði eru svo
Birgir Þórðarson, oddviti sveitar-
stjórnar Eyjafjarðarsveitar,
Fiskmiölun Noröurlands á Dalvík - Fiskverö á markaöl vikuna 08.11-14.111992
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meðalverð Magn Verðmæti
verð verö (kr/kg) (kg)
Grálúöa 74 60 65,33 1.651 107.852
Hlýri 45 44 44,43 14 622
Karfi 27 25 25,35 91 2.307
Keila 20 20 20,00 18 360
Lúöa 250 250 250,00 29 7.250
Skötubörð 10 10 10,00 185 1.850
Steinbítur 50 43 45,96 393 18.061
Ufsi 20 20 20,00 10 200
Undirmál þ. 60 60 60,00 289 17.340
Ýsa 94 70 90,25 352 31.768
Þorskur 82 72 76,80 3.978 305.514
Samtals 70,35 7.010 493.124
Flskmarkaöurinn á Skagaströnd hf. - Sala 01.11-13.111992
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meðalverð Magn Verðmæti
verð verð (kr/kg) (kg)
Þorskur 101 70 93,20 7.782 725.311
Þorskur (und.) 71 62 66,97 4.118 275.780
Ýsa 103 90 91,80 7.060 648.109
Karfi 58 40 40,29 2.517 101.418
Lúða 450 450 450,00 34 15.300
Keila 47 47 47,00 145 6.815
Grálúöa 79 79 79,00 711 56.169
Skarkoli 61 61 61,00 260 15.860
Steinbítur 52 52 52,00 1.101 57.252
Ufsi 37 37 37,00 5.567 205.979
Samtals 71,96 29.295 2.107.993
Dagur blrtir vikulega töflu yflr fiskverð h]á Fiakmiðlun Norburlands á Dalvik og nú elnnlg hjá Flsk-
markaðlnum á Skagastrónd og grelnlr trá verðinu sem fékkst I vtkunnl á undan. Þetta er gett i Ijðsl þoss að hlutverk flskmarkaða i verðmyndun [slenskra sjávarafuröa hefur vaxlð hröðum skrefum og því sjálfsagt
að gera lesendum blaðslns kleift eð fylgjast með þróun markaösverðs á fiskl hér á Norðurlandi.
Kristján Pór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Dalvík og Guðný Sverris-
dóttir, sveitarstjóri í Grýtu-
bakkahreppi.
Héraðsráð mun koma saman
til fundar í næstu viku. JÓH
Póstur og sími:
Fólkfari
að huga að
jólasendingum
erlendis
Nú eru ekki nema flmm vikur
til jóla og því vill Póstur og
sími minna fólk á að vera
tímanlega á ferðinni með
bögglapóst til vina og ættingja
erlendis.
Frestur til að póstleggja böggla
í skip til Norðurlanda rennur út
nk. mánudag, 23. nóvember, en
eigi að tryggja að bögglapóstur
með flugi til Norðurlanda (A-
póstur), Evrópulanda, Kanada
og austurhluta Bandaríkjanna
komist til viðtakenda fyrir jól eru
síðustu forvöð að póstleggja
hann 4. desember nk. Viðmiðun-
ardagur fyrir bögglapóst (A-póst)
til annarra landa er 2. desember.
Um jólapóst (jólakort og smá-
bögglar) gilda aðrar dagsetning-
ar. Jólapóst til Norðurlanda ber
að póstleggja í síðasta lagi 16.
desember, annarra Evrópulanda
14. desember, Bandaríkjanna 11.
desember, Kanada 4. desember
og annarra landa 11. desember.
óþh