Dagur - 18.11.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 18. nóvember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Mývatnssveit
Á fá byggðarlög er hallað þótt fullyrt sé að Mývatnssveit
sé eitthvert sérstæðasta landssvæði á íslandi. í Mývatns-
sveit er andstæðum náttúrunnar teflt saman með svo
hstilegum hætti að forvitni og aðdáun vekur. Eldvirkni og
jarðhiti minna á nálgæð þess afls sem leynist í iðrum
jarðar. í nálægð við úfið hraun eru gróðurvinjar að
ógleymdu einu fjölskrúðugasta fulgalífi hér á landi.
Mývatnssveit hggur hátt - langt inni í landi og af þeim
sökum gætir áhrifa meginlandsloftslags meira en á öðr-
um byggðum bólum. Þannig eru hlýir sumardagar og
kuldi vetrarins hluti af hinum náttúrulegu andstæðum
sem þetta landssvæði býr yfir.
Af þessum sökum er mönnum annt um Mývatnssveit -
bæði heimamönnum og öðrum. Af þessum sökum hefur
þetta byggðarlag laðað til sín ferðafólk í meira mæli en
aðrir staðir og er ofarlega á blaði þegar fjallað er um leiðir
til að auka atvinnu við ferðaþjónustu hér á landi.
Að undanförnu hefur hallað á atvinnumöguleika
Mývetninga eins og margra er til sveita búa. Samdráttur-
inn í landbúnaði hefur tekið sinn toh af afkomu mý-
vetnskra bænda eins og annarra. Til viðbótar því er nauð-
synlegt að gæta vel að gróðurfari og takmarkar það
möguleika manna til ræktunar búfjár - einkum sauðkind-
arinnar, sem verið hefur uppistaða í landbúnaði Mývetn-
inga í gegnum tíðina.
Fyrir um aldarfjórðungi var reist verksmiðja til að vinna
kísilgúr úr Mývatni. Með tilkomu hennar sköpuðust ný
tækifæri í atvinnumálum auk þess sem íslenskt hráefni er
nýtt til framleiðslu á útflutningsvöru. Enginn vafi er á því
að tilkoma Kísiliðjunnar hefur veitt umtalsverðu fjár-
magni inn í mývetnskt samfélag og skapað lífsskilyrði
fyrir fjölda fólks. Þrátt fyrir það hefur aldrei orðið sátt um
þennan atvinnurekstur á meðal Mývetninga. Þar ráða til-
finningar manna til sveitarinnar og þeirrar sérstæðu og
dýrmætu náttúrufegurðar sem hún býr yfir að öhum lík-
indum mestu um. Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar, benti nýlega á í viðtali við Dag að ef ekki
hefði verið hafist handa við framleiðslu á kísilgúr á sínum
tíma væri Ytriflói í Mývatni nú trúlega fullur og að breyt-
ast í fast land. Þetta er einnig áht ýmissa vísindamanna,
sem rannsakað hafa lífríki Mývatns, þótt vissulega séu
skoðanir nokkuð skiptar á meðal þeirra.
Nú starfa um 60 manns hjá þessu fyrirtæki og liðlega
200 einstakhngar byggja afkomu sína á rekstri þess. Þeg-
ar tekið er tillit til þess að íbúar Skútustaðahrepps eru um
520 er þetta hátt hlutfall. Borið saman við Reykjavík
þýddi sama hlutfah lífsafkomu fyrir aht að 50 þúsund
manns.
Af þessu er ljóst að mikið er í húfi að rekstur Kísihðj-
unnar haldi áfram. Tilvera Mývatnssveitar sem öflugrar
byggðar felst í að ólíkir atvinnuvegir geti lifað þar í sátt
og samlyndi - bæði við náttúruna og hið mannlega sam-
félag, þannig að enginn skaði hljótist af. Rekstur Kísihðj-
unnar er þar ein af meginstoðum, auk þess sem efla þarf
ferðamannaþjónustuna eftir föngum. Einnig þarf að við-
halda þeim landbúnaði sem nú er stundaður og aukin
landgræðslustörf gætu orðið hður í því efni. Ef þetta tekst
á Mývatnssveit ekki síðri möguleika en aðrar byggðir
landsins til að viðhalda öflugri atvinnustarfsemi og gró-
andi mannlífi. ÞI
Tónlist
Óvenjulegur tónlistaratburður
- fiðla og píanó á Sal Tónlistarskólans
Nokkuð óvenjulegur tónlistarat-
burður átti sér stað á Akureyri
föstudaginn 13. nóvember. Þá
efndu Hiroto Yashima, japansk-
ur fiðluleikari, og Hrólfur
Vagnsson, harmonikuleikari, til
tónleika á Sal Tónlistarskóla
Akureyrar.
Hljóðfærasamsetning af þessu
tagi er ekki tíð að minnsta kosti
hér á landi. Það gerði tónleikana
forvitnilega. Hvort sem þetta
hefur valdið eður ei, voru þeir vel
sóttir og var sem næst hvert sæti
skipað.
Hiroto Yashima er snjall fiðlu-
leikari. Hann lék Sex rúmenska
dansa eftir Béla Bartók, Zigeun-
erweisen eftir Pablo de Sarasate,
Liebesfreud, Liebeslied og Schön
Rosmarin eftir Fritz Kreisler,
Tango eftir Isaac Albeniz í
útsetningu Kreislers og Czardas
eftir Vittorio Monti af tæknilegri
snilld. Einungis örsjaldan kom
fyrir, að tónn var ekki alveg
réttur, en í heild var leikur hans
snjall, hraður, öruggur og feiru-
laus. Hrólfur Vagnsson var í
hlutverki undirleikara í þessum
verkum.
Þrátt fyrir mikla tæknilega
getu, skorti mikilvægan þátt í
góðan leik Hirotos Yashimas.
Innlifun var ekki með sem skyldi.
Fyrir vikið var leikurinn á köflum
nánast vélrænn. Fiðluleikarinn
virtist ekki leyfa sér að hrífast
með; láta gamminn geysa og
hleypa funa í leik sinn, eins og
við á í mörgum þeirra verka, sem
hér um ræðir, svo sem í rúmensku
dönsunum, Zigeunerweise og
Czardas. Það var í raun ekki fyrr
en í skemmtilegu aukalagi, sem
hann brá nokkuð á leik og leyfði
tjáningu að komast að eins og við
átti.
Við annan tón brá í flutningi
Hirotos Yashimas á Schenes III
fyrir einleiksfiðlu eftír Japanann
Toshi Ichiyanagi. Þar virtist
fiðluleikarinn vera kominn á
svið, þar sem hann gat beitt túlk-
unarhæfni sinni. Þetta marg-
slungna, fínlega og hugljúfa verk
flutti Hiroto Yashima afar fallega
og af næmni og snilld, sem hlaut
að hrífa hvern þann, sem á
heyrði.
Hrólfur Vagnsson flutti verkið
Dinosaurus fyrir segulband og
harmoniku eftir Arne Nordheim.
Honum fórst það áfallalaust og
faglega úr hendi, en væntanlega
hefði verið æskilegt að hafa mann
við stilliborð til þess að laga styrk
og blæ segulbandsins að spili
harmonikunnar, en hún hvarf á
stundum nálega alveg í hljóðin af
segulbandinu.
Þá fluttu Hiroto Yashima og
Hrólfur Vagnsson verkið Visio
Triformis eftir Peter Wessel.
Þetta er nútímalegt verk, þar sem
tónskáldið gerir tilraunir með
takt eða taktleysu og form.
Flutningur þeirra félaga var góð-
ur og forvitnilegur. Tilraunir sem
þessar eru góðra gjalda verðar og
ætíð skemmtilegt að heyra hvað
tónskáldum hefur dottið í hug að
reyna í verkum sínum.
Hrólfur Vagnsson býr og starf-
ar í Þýskalandi, en hefur gert
talsvert af því að koma heim og
halda tónleika. Ætíð flytur hann
með sér eitthvað sérkennilegt og
skemmtilegt. Því er hann líka
kærkominn gestur þá hann
kemur. Vonandi verður því ekki
langt að bíða þess, að tónlistar-
unnendum gefist aftur kostur á
því að njóta einhvers þess, sem
hann vill bjóða.
Haukur Ágústsson.
Siðblinda Hitaveitu Akureyrar
- svar frá Neytendafélagi Akureyrar og nágrennis
Prúðmennið Baldur bæjarlög-
maður, var látinn kasta að mér
smá viðarteinungi í blaðagrein í
gær, þar sem hann vænir mig um
að sjá ekki skóginn fyrir trjánum.
En sannleikurinn er sá að lög-
maðurinn er sjálfur blindaður og
sér ekki skilningstréð fyrir laga-
greinum.
Baldur minn! nú vil ég taka þig
á hné mér, ekki til að rassskella
þig, heldur til að reyna að opna
augu þín fyrir kjarna málsins,
mannlega þættinum. Til þess þarf
ég að endurtaka nokkrar stað-
reyndir.
Vita skaltu, að ég tel innheimt-
una löglega, en aðferðina sið-
lausa. Því skulum við, Baldur,
klippa lagagreinarnar af, líta á
tréð, og vita hvort þú sérð ekki
siðleysið.
1. Hitaveitan hefur tekið á
móti greiðslum frá fjölskyldunum
tveim vegna notkunar þeirra á
kranavatni. Með því hefur Hita-
veitan viðurkennt áætlað notkun-
arhlutfall þeirra og tekið við
greiðslum í samræmi við það.
Kvenfélagið Tilraun í
Svarfaðardal:
Óánægja með
fyrirhugaða
lokun Krist-
nesspítala
Á fundi hjá Kvenfélaginu Til-
raun í Svarfaðardal, sem hald-
inn var 7. nóvember sl., var
samþykkt ályktun til að mót-
mæla fyrirhugaðri Iokun Krist-
nesspítala.
„Fundurinn lýsir einróma yfir
óánægju með ef Kristnesspítali í
Eyjafjarðarsveit verður lagður
niður og biður því heilbrigðisráð-
herra að gera allt sem í hans valdi
stendur til að svo verði ekki,“
segir í ályktuninni.
2. í sumar lokaði Hitaveitan
ekki fyrir kranavatnið hjá barna-
fjölskyldunum tveim, vegna þess
að hún taldi líkur á að hún næði
að innheimta skuld hjá þáverandi
eigendum íbúðarinnar, og það
tókst. Þegar Hitaveitan hins veg-
ar frétti að íbúðin hefði komist í
hendur manns sem borgaði illa
skuldir sínar, snéri hún við blað-
inu og lokaði fyrir kranavatnið
hjá barnafjölskyldunum og
neyddi þær þannig til að þrýsta á
nýja íbúðareigandann vegna
hans skulda, en það virkaði ekki
eins og ljóst er.
Baldur minn! Siðleysið felst í
því að beita barnafjölskyldunum
fyrir sig þrátt fyrir að þær hafi
borgað. Til hvers og fyrir hvað
var Hitaveitan þá að láta þær
borga, ef þær öðluðust engan rétt
við það?
3. Hitaveitan bauð barnafjöl-
skyldunum að útvega þeim
skuldabréf til að þær gætu greitt
upp skuld óreiðumannsins. Þetta
var eins og ég hef áður sagt engin
gjöf eða vinargreiði, því fjöl-
skyldurnar áttu sjálfar að bera
alla áhættu og kostnað af skuld-
inni og meðfylgjandi málaferlum.
Núna eftir að málið er orðið
opinbert hafið þið loksins haft
nægan tíma og þolinmæði til að
útskýra lagagreinarnar fyrir fjöl-
Dr. Hermann Pálsson, pró-
fessor emeritus við Háskólann
í Edinborg, flytur fyrirlestur
við Háskólann á Akureyri á
morgun, fimmtudaginn 19.
nóvember. Fyrirlesturinn nefnir
Hermann „Kringum Völu-
spá“.
Dr. Hermann Pálsson er einn
skyldunum og ekki skemmir það
heldur ef þú leiðbeinir þeim í
gegnum lagafrumskóginn og sérð
til þess að þær þurfi ekki að bera
nokkurn kostnað af lántöku og
innheimtuaðgerðum.
Það er þarna sem Hitaveitan
brást, þið gáfuð ykkur ekki næg-
an tíma til að kanna og kynna
málið. Þegar þið eruð loksins
neyddir til þess með opinberri
umfjöllun að gefa því nægan
gaum, verða viðbrögð þessa
ólánsama fólks, eins og þú kemst
svo fallega að orði, Baldur minn,
„hvers vegna var okkur ekki sagt
þetta“?
Þarna liggur nefnilega
vandinn, enginn hafði nennt eða
gefið sér nægan tíma til að
útskýra þá þröngu stöðu sem
Hitaveitan er í, heldur bara látið
kné fylgja kviði í nafni laganna.
Eftir að vera búnar að vera
vatnslausar í um einn mánuð, og
ekkert útlit fyrir lausn í sjónmáli,
snéru fjölskyldurnar sér til Neyt-
endafélagsins.
Árangur: Nú eru þær aftur
komnar með heitt vatn, og þið
sjónina aftur.
Það nægir mér.
Fyrir hönd Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis:
Vilhjálmur Ingi Árnason.
af kunnustu rýnendum íslenskra
fræða. Hann hefur skrifað fjölda
bóka og ritgerða um hugðarefni
sín og er einn mikilvirkasti þýð-
andi íslenskra fornbókmennta á
enska tungu frá upphafi vega.
Fyrirlestur Dr. Hermanns
hefst kl. 17.30 í stofu 24 í aðal-
byggingu Háskólans við Þing-
vallastræti 23.
Háskólinn á Akureyri:
Dr. Hennaim Pálsson flyt-
ur fvrirlestur um Völuspá