Dagur - 18.11.1992, Síða 11
Miðvikudagur 18. nóvember 1992 - DAGUR - 11
Íþróttir
Rögnvaldur segir sig
úr skíöalandslíðinu
Skíðagöngumaðurinn Rögn-
valdur Ingþórsson frá Akur-
eyri hefur nú sagt sig úr skíða-
landsliðinu með formlegum
hætti. Astæðuna segir hann
fyrst og fremst vera óánægju
sína með vinnubrögð SKI í
málefnum skíðagöngumanna.
Knattspyrnuiið Þryms á Sauð-
árkróki hefur nú gengið frá
ráðningu þjálfara. Tindastóls-
maðurinn og markahrellirinn
Guðbrandur Guðbrandsson
mun þjálfa liðið næsta sumar,
ásamt því að leika með.
Honum til aðstoðar verður
Þórarinn Thorlacius sem þjálfaði
Þrym á síðasta ári og verður hann
jafnframt liðsstjóri. Annar Tinda-
stólsmaður hefur einnig gengið í
raðir Þryms. Það er hinn 18 ára
Finnur Kristinsson. Mikill fengur
er að þessum mönnum fyrir liðið.
Guðbrandur er mikill marka-
skorari en þurfti talvert að sitja á
bekknum hjá Tindastól í sumar.
Hann hefur m.a. verið kosinn
knattspyrnumaður Sauðárkróks
og verður spennandi að fylgjast
Daníel Jakobsson er því orð-
inn eini skíðagöngumaðurinn í
A-landsIiðinu.
Rögnvaldur er einn okkar
besti skíðamaður og tók meðal
annars þátt í Ólympíuleikunum á
síðasta vetri. „Þessi ákvörðun er
í raun viðbrögð mín við því að
með árangri hans sem þjálfara og
hvort slagorð Þrymsmanna verð-
ur loks að veruleika, þ.e. Þrymur
í 3. deild.
Guðbrandur mun hrella markverði
4. deildarinnar næsta sumar ásamt
því að þjálfa Þrym.
Skíðasambandið ákvað að skera
niður fjárframlög til skíða-
göngumanna um 60% miðað við
það sem áður var búið að segja
og var það þó lítið. Þetta varð til
þess að maður fór að hugsa sinn
gang. Einnig hefur allur undir-
búningur verið í óvissu og maður
hefur ekki getað skipulagt neitt
varðandi æfingar eða persónulegt
líf. Með þessu útiloka ég einn
óvissuþátt og get skipulagt hlut-
ina sjálfur," sagði Rögnvaldur
þegar Dagur sló á þráðinn til
hans til Umeá í Svíþjóð þar sem
hann stundar nám. Hann sagist
þó alls ekki hættur á skíðunum
og hefði í raun aldrei verið í
betra formi. Aðstæður til æfinga í
Umeá eru eins og best verður á
kosið og hefur hann úr 6 mismun-
andi göngubrautum að velja. „Á
þessu stigi hef ég ákveðið að
miða undirbúninginn við
Ólympíuleikana í Lillehammer á
næsta ári en HM í Falum nú í vet-
ur er kannski meira aukaatriði þó
ég kannski keppi ef ég verð í góðu
formi." Það er því ljóst að þó
Rögnvaldur hafi sagt skilið við
Skíðasambandið má búast við
frekari afrekum af hans hálfu á
næstunni. „Nú hef ég tíma til að
æfa meira og betur en nokkru
sinni fyrr,“ sagði Rögnvaldur Ing-
þórsson að lokum.
Guðbrandur Guðbrands-
son þjálfar Þrym
Rúnar Sigtryggsson verður fjarri góðu gamni í kvöld þegar Þór mætir ÍR.
Vonir standa til að hann verði til í slaginn í næstu umferð en liðböndin eru
ekki slitin eins og óttast var í fyrstu. Mynd: Robyn
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Spennandi leikir í 10. umferð
í kvöld verður leikin 10.
umferðin í 1. deildinni í hand-
bolta. KA-menn spila annan
útileikinn í röð er þeir mæta
ÍBV í eyjum, en liðin sem
komu upp úr 2. deild í fyrra,
Þór og IR, eigast við í íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Fleiri athyglisverðir leikir fara
fram. Hans Guðmundsson mætir
sínum gömlu félögum í FH og
erki óvinirnir Valur og Víkingur
keppa að Hlíðarenda. En þá að
leik kvöldsins á Akureyri. Haft
var samband við þjálfara liðanna
og þeir spurðir um leikinn.
Jan Larsen, Þór:
„Ég er bjartsýnn á leikinn í
kvöld. Við höfum verið að spila
vel og svo verður heppnin von-
andi okkar megin í kvöld. Það
má alls ekki gefast upp þó móti
blási. Auðvitað er slæmt að hafa
ekki Rúnar en það kemur maður
í manns stað og nú verður bara
að treysta á aðra. Stuðningur
áhorfenda skipti verulega sköpun
síðast og ég vona að það verði
eins í kvöld því ég lofa skemmti-
legum leik,“ sagði Jan Larsen.
Brynjar Kvaran, ÍR.
Brynjar Kvaran er Akureyring-
um að góðu kunnur þar sem hann
þjálfaði lið KA fyrir nokkru
síðan. Hann er að gera góða hluti
með ÍR og hefur frammistaða
liðsins komið verulega á óvart.
Hann bjost við spennandi leik.
„Það er alltaf erfitt að leika fyrir
utan höfuðborgarsvæðið, enda
mörg liðin með sterkan heima-
völl. Þórsarar hafa komið
Bikarkeppni
í handbolta
Þá eru komnar endanlegar
dagsetningar á bikarleikina
í hadboltanum í 16 liða
úrslitum karla og kvenna.
Leikirnir verða sem hér
segir:
Kvennaflokkur:
Föstudagur 20 nóv.:
FH-Haukar kl. 19.00
Sunnudagur 22. nóv.:
Fram-Ármann kl. 18.30
KR-Víkingur kl. 20.00
Mánudagur 23. nóv.:
Stjarnan Selfoss kl. 20.00
Karlaflokkur:
Laugardagur 21. nóv.:
FH b-Valur kl. 15.30
ÍR-ÍBV kl. 16.30
ÍR b-Grótta kl. 18.00
Sunudagur 22. nóv.:
UBK-Fram kl. 18.30
Fram b-Haukar kl. 21.30
Selfoss-HK kl. 20.00
ÍH-KA kl. 16.30
UMFA-Víkingur kl. 20.00
skemmtilega á óvart og því má
búast við hörkuleik,“ sagði
Brynjar Kvaran.
Leik Þórs og
Skallagríms flýtt
Nokkrar breytingar hafa nú
orðið á áður birtri leikja-
niðurröðun í bikarkeppni
Körfuknattleikssambandsins.
Meðal annars hefur leik Þórs
og Skallagríms verið flýtt um 2
daga. Hann verður næstkomandi
föstudagskvöld kl. 20.00 í Borg-
arnesi. Þá verður leikur Tinda-
stóls og Njarðvíkinga f 1. deild
kvenna, sem frestað var um síð-
ustu helgi, leikinn 6. febrúar.
Halldór Arinbjarnarson
Rögnvaldur Ingþórsson hefur nú ákveðið að skipuleggja sínar æflngar sjálf-
ur frekar en vera í sífelldri óvissu um hvað Skíðasamband íslands ætlast
fyrir.
© < 46.
-tyrirþlg ogþina fjölskyldu! leikvikd
Logi Már Einarsson
lagði Alla Gísla
Logi Már Einarsson náði að vinna Alfreð Gíslason í síðustu umferð. Báðir
náðu reyndar ágætis árangri. Alfreð var með 8 rétta en Logi Már 9. Þeir
félagar virðast í meira lagi samhentir því þeir voru með alla sömu leikina
rétta og aðeins leikur Reading og Birmingham skildi á milli. En 1 leikur er
nóg og því er þátttöku Alfreðs Gíslasonar í getraunaleik Dags lokið að
þessu sinni og því getur hann einbeitt sér að handboltanum.
Leikurinn berst nú áfram um KA-liðiö þvi Logi Már skoraði á Pétur
Bjarnason hornamann í Ldeildar liði KA í handbolta. „Ég ákvað aö velja
einhvern sem hefur eitthvað smá vit á þessu," sagði Logi. „Annars er ég
alveg öruggur með að vinna þrátt fyrir það. Þó ég hafi ekki minnsta
áhuga á þessum málum eða íþróttum yfirleitt, eins og þeir sem mig
þekkja geta vitnað um, þá hef ég heilmikiö vit á þessu," sagði Logi einnig.
Pétur tók vel i áskorun Loga og sagöist mundu gera sitt besta. „Reyndar
sakna ég þess að sjá ekki mína menn á seðlinum, en það eru að sjálfsögðu
Úlfarnir." Um næstu helai kemur síöan í Ijós hvor hefur betur.
islendingar verða heldur betur að herða sig i „tippinu" þvi enn einu
sinni náði enginn öllum 13 leikjunum réttum. Það voru hins vegar 217
getspakir Svíar sem það gerðu. Er með hreinum ólikindum hversu illa
okkur virðist ganga að spá í leikina. Salan á getraunaseðlum var svipuð í
síðustu viku og verið hefur, en hér á landi var selt fyrir 7 milljónir. Ekkert
var leikið í úrvalsdeildinni ensku og því voru allir leikirnir á seðlinum úr 2.
deild. Nú eru hins vegar 9 af 13 leikjum úr úrvalsdeildinni, og þá er bara
að drífa sig út á næsta sölustað.
Logi u ♦-» Q- ‘flj Q. I/> C JX
1. Coventry-Man. City 12 1
2. Crystal Pal.-Nott. Forest 1X 2
3. Everton-Chelsea 1X 1X
4. Leeds-Arsenal 1 12
5. Man. Utd.-Oldham 1 1
6. Middlesbro-Wimbledon 1 1X
7. Norwich-Sheff Utd. 1 1
8. Sheff. Wed.-lpswich 1 X
9. Tottenham-Aston Villa 12 2
10. Barnsley-Birmingham 1 1X
11. Bristol City-Swindon 1 12
12. Luton-Millwall 12 X2
13. Portsmouth-Tranmere 12 2
Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir:
Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455
Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888