Dagur


Dagur - 19.11.1992, Qupperneq 1

Dagur - 19.11.1992, Qupperneq 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofuné •'hringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Boðað til framhaldsaðalfundar hjá Laxósi hf. í Ólafsfirði: Heimtur á haíheitar laxi 3,5 prósent - skilaði 21 tonni á markað Uppsteypu á húsinu við Lindarsíðu er lokið. Á inn- felldu myndinni eru fv. Aðalsteinn Óskarsson, formað- ur Félags aldraðra, Aðalsteinn Júlíusson, eftirlitsmaður og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Myndir: Robyn Byggingaframkvæmdir Félags aldraðra við Lindarsíðu á Akureyri: Húsið komið í fulla hæð Aðalfundur laxeldisfyrirtækis- ins Laxós hf. í Ólafsfirði var haldinn sl. mánudag. Þar var síöan samþykkt að boða til framhaldsaðalfundar um næstu mánaðamót til að m.a. leita leiða til að auka við hlutafé fyrirtækisins meðal stærstu hluthafanna, sem eru Ólafs- fjarðarbær, KEA og Veiðifélag Olafsfjarðarár. Laxós hf. er hafbeitarstöð, og voru heimtur á laxi í sumar þolanlegar að sögn Þorsteins Ásgeirssonar stjórnarformanns fyrirtækisins, eða um 3,5%. í haust hafa um 21 tonn farið á markað, mestmegnis frosið, og eru aðalviðskiptalöndin Þýska- Blönduós: EinstaMega gott vatn Á Blönduósi er fleira til fyrir- myndar en sorpmálin. Vatnið í vatnsbóli bæjarins er einstak- lega gott neysluvatn. Þetta kom í Ijós við rannsókn sem gerð var á vatninu. Ástæður þess að vatnið var athugað var áhugi á útflutningi á vatni til neyslu eftir að auglýst var eftir vatni til sölu fyrir nokkru síðan. Athugað var í framhaldi af því um kostnað og vatnsþörf sveitarfélagsins og vatnið var rannsakað. í ljós kom að vatnið á Blöndu- ósi hefur heppilegt efnainnihald og sýrustig að sögn Ófeigs Gests- sonar bæjarstjóra. Ófeigur segir að ákveðnir aðilar hafi sýnt mál- inu áhuga, en alls óvíst sé um framhaldið og því ekkert frekar um það að segja á þessu stigi. sþ „Okkur hefur gengið vel að fá fólk til að koma á leitarráð- stefnuna og það hefur greini- lega áhuga á að nýta sér þarna möguleikann á að koma eigin hugmyndum á framfæri. Með ráðstefnunni vonumst við til að geta virkjað orku þessa fólks til atvinnuuppbyggingar og hrundið af stað sókn íbúanna í eigin atvinnumáluin,“ segir Elín Antonsdóttir, verkefnis- stjóri átaksverkefnis í Eyja- fjarðarsveit, Svalbarðsstrand- land og Sviss. Skilaverð á laxin- um er um 350 kr. á kg, sem Þor- steinn telur vera ásættanlegt verð. Auka þarf við sleppingar til að treysta betur rekstrargrundvöll fyrirtækisins, en öllum fram- kvæmdum verður hins vegar haldið í algjöru lágmarki. Laxós hf. rekur jafnframt seiðaeldisstöð og eru þar nú um 300 þúsund seiði, og eru uppi hugmyndir um að tvöfalda þá tölu til aukningar á sleppingum. Yfirstandandi ár er fyrsta heila rekstrarárið og því liggja ekki fyrir tölur um rekstrar- kostnað seiðaeldisstöðvarinnar, en þó er ljóst að hann er mjög lít- ill miðað við það sem gengur og gerist hjá öðrum eldisstöðvum. í nýútkominni skýrslu Rann- sóknaráðs ríkisins um fiskeldi kemur fram að fyrr á árum villt- ust hafbeitarlaxar lítið frá sleppi- stað, en nú bregði svo við að allt að 30% endurheimtra laxa úr einstökum hópum eru teknir á öðrum stað. Líklegt er talið að þessu valdi breyttar sleppi- og móttökuaðferðir og einnig benda rannsóknir til að ratvísi laxins sé háð stofnum. Nauðsynlegt er tal- ið í dag að viðurkenna eignarrétt hafbeitarstöðva á laxinum eftir sleppingu seiða, eins og gert er með lömb á afrétti. Athyglisvert er að í hafbeit á Suður- og Vesturlandi endur- heimtist mestur hluti laxins (um 90%) eftir eins árs dvöl í hafi, um 10% laxins snýr aftur eftir tveggja ára veru í hafi, en aðeins einstaka laxar endurheimtast eft- ir lengri en tveggja ára veru í hafi. Á Norðurlandi heimtist mun hærra hlutfall eftir tveggja ára veru í hafi. Leita þarf allra leiða til að halda kostnaði við seiðaeldi í lágmarki, og er talið að í hafbeit muni 45 kr. kostnað- ur pr. stk. bera sig með um 6% endurheimtum að jafnaði. GG arhreppi, Grýtubakkahreppi og Hálshreppi. Tveggja daga leitarráðstefna fer fram á Hrafnagili um helgina og þar mæta til leiks um 60 manns úr sveitarfélögunum fjórum. Elín segir að mikill undirbún- ingur hafi staðið að undanförnu og var fyrirkomulag leitarráð- stefnunnar kynnt nýverið í dreifi- bréfi til íbúa í sveitarfélögunum fjórum. Leitarráðstefnulíkanið hefur verið notað í öðrum atvinnuátaksverkefnum á land- Framkvæmdum við sjö hæða hús að Lindarsíðu 2 í Glerár- hverfi núðar samkvæmt áætl- un. í gær lauk bygginga- verktakinn, S.S. Byggir hf., við að steypa húsið upp, en það er reist fyrir Félag aldr- aðra á Akureyri Sigurður Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri S.S. Byggis hf. seg- Næg atvinna hefur verið hjá frystihúsi Jökuls á Raufarhöfn að undanförnu og er nú svo komið að tæpast hefst undan að vinna þann afla sem berst á land vegna skorts á starfsfólki. Einkum vantar konur til að vinna við pökkun og snyrtingu inu en ráðstefnustjóri á Hrafna- gili verður Örn Daníel Jónsson, deildarstjóri í Háskóla íslands, en hann hefur talsverða reynslu af hliðstæðum leitarráðstefnum. íbúum sveitarfélaganna var boðið að tilkynna þátttöku og voru viðbrögð góð. Elín segir að enn sé hægt að skrá sig á ráð- stefnuna, hún er að því leyti opin en þátttakendur verða að sitja alla ráðstefnuna, bæði á föstudag og laugardag. Átaksverkefninu hefur verið gefið nafnið Vaki. ir að mjög auðvelt verði að skila húsinu fullbúnu á réttum tíma, þ.e. að hausti. í vikunni verður hafist handa við að glerja og unn- ið er að einangrun hússins að utanverðu. Er því lýkur verður húsið sprautuhúðað og strax eftir áramót hefjast framkvæmdir innanhúss. „f mars hefst vinna við Lindar- síðu 4. Grunnurinn er þegar og hefur nú verið brugðið á það ráð að vinna í frystihúsinu á laugardögum til að bjarga aflaverðmætum. Þorsteinn Óli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Jökuls, sagði í samtali við Dag að nú væri verið að vinna í pakkningar á Banda- ríkjamarkað og þar sem um dýr- ari vöru væri að ræða en fyrir Evrópumarkaðinn krefðist fram- leiðsla hennar meiri vinnu. Á meðan unnið var fyrir Evrópu- markaðinn hefði hafst vel undan, en miðað við núverandi ástand væri skortur á vinnuafli til að starfa við snyrtingu og pökkun í frystihúsinu. Þorsteinn Óli sagði að Jökull hefði haft ríflegan kvóta að undanförnu, sem tæp- lega hefði náðst að veiða, en nú væri útlit fyrir að togarinn myndi ljúka við kvótann fyrir áramót. Áflasamdrátturinn mýndi þó ekki koma niður á fiskvinnslunni og atvinnuástandinu - að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Guðmundur Guðmundsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn, sagði að telja yrði almennt atvinnu- ástand gott. Nokkrir karlmenn væru þó af og til á atvinnuleysis- skrá og væri þar fyrst og fremst um að ræða lausráðna menn, sem störfuðu við loðnubræðsluna, og veiðarnar hverju sinni réðu því kominn. Helst hefðum við viljað byrja strax að steypa húsið upp. Slíkt er þó ekki hægt þar sem við verðum að framkvæma sam- kvæmt gerðri áætlun. Það eina sem ekki hefur staðist hér á bygg- ngarreitnum er að Akureyrar- lær hefur ekki ráðist í malbikun- arframkvæmdir sem ráðgert var,“ segir Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri. ój nokkuð um atvinnumöguleika þeirra. ÞI Bólstaðarhlíðarbrekkan: Stefat að út- boði í byijun næsta árs Nýr vegur um Bólstaöarhlíð- arbrekku verður boöinn út í byrjun næsta árs, að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, um- dæmisverkfræðings Vegagerð- arinnar á Sauðárkróki. „Það er ekki alveg komið á hreint með legu vegarins. Teng- ingar við Svartárdalinn eru tölu- vert flóknar og þetta erum við að ræða við landeigendur Bólstaðar- hlíðar og Gils og sveitarstjórn Bólstaðarhlíðarhrepps,“ sagði Jónas. Annað stórt verkefni í umdæmi Vegagerðarinnar á Sauðárkróki er ný brú yfir Hrútafjarðará. Staðsetning nýrrar brúar hafði verið sett inn á skipulag, en ýmsir lýstu óánægju með það. „Þetta mál er í endurskoðun, en það er stefnt að því að bjóða út bygg- ingu brúarinnar á næsta ári,“ sagði Jónas. óþh Atvinnuátaksverkefnið Vaki: Leitarráðsteftia haldin á Hrafnagili um helgina - „hrundið af stað sókn íbúanna í eigin atvinnumálum,“ segir verkefnisstjórinn Raufarhöfn: Konur vantar til starfa í frystihúsið - almennt atvinnuástand nokkuð gott

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.