Dagur - 19.11.1992, Qupperneq 7
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 - DAGUR - 7
verður öll starfsemi Sjafnar undir
i einu þaki í fyrsta skipti frá árinu
1963.
Um nokkurra ára bil fram-
leiddi fyrirtækið svamp upp í
Grófargili og síðan úti í Austur-
síðu meðan Akureyri var eitt
stærsta húsgagnaframleiðslu-
svæði landsins. Pegar öll hús-
gagnagerð dróst verulega saman
hér þá minnkaði markaður fyrir
svamp að sama skapi. Nú eru
svampskurðartækin leigð út og
fer sú starfsemi fram í húsnæði
Sjafnar, en svampurinn er fram-
leiddur fyrir sunnan.
í dag eru um 70 starfsmenn hjá
Sjöfn og þar af eru 11 starfsmenn
hjá söluskrifstofu fyrirtækisins í
Goðatúni 4 í Garðabæ. Starfs-
mannafjöldinn eykst nokkuð yfir
sumartímann, bæði vegna sumar-
afleysingafólks og eins er þá mest
eftirspurn eftir málningarvörum
fyrirtækisins, en þá liðlega þre-
faldast framleiðslan á málningar-
vörum. Framleiðsla á hreinlætis-
vörum er hins vegar miklu jafnari
en áður var, þegar t.d. stórinn-
kaup voru gerð á haustin af
hreinlætisvörum fyrir skólana.
Á rannsóknarstofunni, fv: Geir Óskarsson, Ingimar Friðriksson, Kristinn Sigurharðarson, Börkur Gunnarsson og
Aðalsteinn Jónsson. Mynd: gg
Ný sótthreinsiefni
„í samstarfi við Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins, Sjávarútvegs-
deild Háskólans á Akureyri og
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
hefur nýju sóthreinsiefni í
matvælaiðnaði, BARRA, verið
komið á markaðinn. Ef rétt er að
blöndun staðið og BARRI þann-
ig borinn á í styrkleikanum 150
ppm, er ástæðulaust að skola
hann af, heldur er hann látinn
liggja á yfirborðinu yfir nótt eða
á meðan vinnsla liggur niðri. Að
morgni má hefja vinnslu án þess
að frekari aðgerða sé þörf. Auk
þess hefur FANTUR, bæði rauð-
ur og hvítur, notið mikilla vin-
Kvenfélagið Framtíðin:
sælda hjá matvælaframleiðend-
um.“
Öflug rannsóknarstofa
Á rannsóknarstofu Sjafnar vinna
að jafnaði 3-4 starfsmenn og þar
fer fram eftirlit með framleiðsl-
unni, auk þess þróunarstarfs sem
segja má að sífellt sé unnið að hjá
Efnaverksmiðjunni Sjöfn. Auk
þess vinnur einn efnafræðingur á
lagernum í Garðabæ sem tækni-
legur ráðgjafi fyrir viðskiptavin-
ina. Þess utan ferðast hann milli
staða og gefur ráð til þeirra sem
starfa þar, t.d. í matvælaiðnaði,
sjúkrahúsum og öðrum þeim
stöðum þar sem hreinlætis er
mest gætt.“
Texti:
Geir Guðsteinsson
Nú hefur Kaupfélag Eyfirðinga
gert tilboð í hlut Sambandsins í
Sjöfn. Er það ekki ánægjulegt
fyrir stjórnendur og starfsmenn
ef eigandinn verður alfarið norð-
lenskur?
„Það er hið besta mál fyrir
Norðlendinga að haldið skuli í
við suðvesturhorn landsins í
framleiðslu á hreinlætsvörum og
málningu af þeim myndarbrag
sem ég vil álíta að sé gert hér í
Sjöfn. Það hafa ekki önnur
íslensk einkafyrirtæki í þessari
liðngrein fleiri sérlærða starfs-
Imenn á sínum snærum en Sjöfn,
en hjá keppinautunum eru 1 til 2
efnafræðingar á móti 4 til 5 hér.
Ef aðrir aðilar, sérstaklega sam-
keppnisaðilar, næðu meirihluta í
fyrirtækinu er sú hætta alltaf fyrir
hendi að öll starfsemin yrði flutt
suður og þar með fjöldi atvinnu-
tækifæra. Þetta fyrirtæki hefur
alltaf verið rekið með góðum
árangri, hagnaði allflest árin, og
staðið af sér alla samkeppni í 60
ár. Það er því langt frá því nein
nauð að teljast eigandi að Efna-
verksmiðjunni Sjöfn,“ segir
Aðalsteinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri. GG
Anna Mary Jónsdóttir útskýrir notkun á límyfirbreiðslum fyrir viðskiptavini
á lagernum við Austursíðu. Mynd: Robyn
Jólamerkið 1992 komið út
Með bættum samgöngum hafa
pantanir einnig orðið tíðari og
smærri. Auk söluskrifstofunnar í
Garðabæ rekur Sjöfn þjónustu-
miðstöð fyrir málara við Snorra-
braut í Reykjavík.
Harðnandi samkeppni
Markaðshlutdeild Sjafnar hefur
verið mjög stór á undanförnum
árum í gólfefnum og er alltaf að
aukast, en þar er þekktast
Uretankvars, gólftex, auk mest
seldu gólfmálningar á íslandi, E-
21, sem er bæði mjög sterk og
meðfærileg.
En hefur orðið breyting á
markaðshlutdeild Sjafnar á
undanförnum árum?
„Það hefur orðið breyting á
markaðshlutdeildinni en ekki
stór breyting á magninu, en tals-
verður innflutningur á sér stað á
málningu og málningarvörum og
samkeppnin við innflutninginn
hefur því mjög harðnað. Við telj-
um okkur fyllilega samkeppnis-
færa í gæðum og nokkurn veginn
í verði, en það birtast öðru
hverju á markaðnum alls konar
tilboð og söluherferðir, þar sem
verð vörunnar er það lágt að við-
komandi söluaðili rétt hefur fyrir
kostnaði,“ segir Aðalsteinn
Jónsson.
„Auðvitað gætum við keyrt
niður verðin á okkar framleiðslu
og staðið uppi slyppir og snauðir,
en það er hreint engin skynsemi í
því. Við höfðum sent menn t.d.
til Póllands og Noregs til að
leggja Uretankvars á vinnslu-
dekkin í togurunum og ég álít að
okkar efni sé komið á um 70% af
íslenska togaraflotanum. Það er
orðið við ramman reip að draga í
hreinlætisvörunum vegna sí-
aukins innflutnings og eins vegna
þess að verslunin er að færast á
sífellt færri hendur. Þessar stóru
verslanir vilja stofna til beinna
sambanda við erlenda fram-
leiðendur og flytja vöruna inn
sjálfir og leggja á hana heildsölu-
og smásöluálagningu. Með því
setja þeir okkur stólinn fyrir
dyrnar, annað hvort verðum við
að lækka verð vörunnar það mik-
ið að ekkert er upp úr þeim við-
skiptum að hafa ellegar verður
ekkert af viðskiptum.
Ég álít að þessir erfiðleikar
verði viðvarandi þangað til versl-
un við „kaupmanninn á horninu"
verður á ný hafin til vegs og virð-
ingar. Erlendis er þeim verslun-
um reyndar hægt og bítandi að
fjölga og sú þróun kemur hingað
í tímans rás.
Markaðshlutdeild okkar hefur
eðlilega minnkað í þessari sam-
keppni, kringum 1960 voru
íslenskar sápuverksmiðjur með
allt að 70% af markaðnum og
Sjöfn var með um helming þess,
en í dag er þetta hlutfall snöggt-
um lægra og það kæmi mér á
óvart ef það hlutfall væri hærra
en 35%. Sú ánægjulega þróun
hefur hins vegar átt sér stað að
hér hjá Sjöfn hefur verið lögð
sérstök áhersla á að betrumbæta
vörur fyrir stofnanir, iðnaðinn,
fiskiðnaðinn og kjötiðnaðinn og
þar hefur fyrirtækið stórbætt
markaðshlutdeild sína.“
Kvenlelagið Framtíðin á
Akureyri hefur gefið út hið
árlega jólamerki sitt. Merkið
gerði myndlistarkonan Halla
Haraldsdóttir.
Jólamerki Kvenfélagsins
Framtíðarinnar er til sölu í Póst-
húsinu á Akureyri, í Frímerkja-
húsinu og Frímerkjamiðstöðinni
í Reykjavík. Auk þess sjá félags-
konur um sölu á Akureyri. Allur
ágóði af merkjasölunni rennur í
elliheimilissjóð.
Ástæða er til að hvetja sem
flesta til að láta jólamerki Kven-
félagsins Framtíðarinnar prýða
jólapóstinn í ár og styrkja þannig
hag þeirra öldruðu.
j Ú 1. í N i <> 9 2 I Ó L i X \i *> <> Z i Ó L I N
J Ú L i N í 9 9 2 } 6 .1. J N 19 9 2 J Ú U H
Jólamerki Kvenfélagsins Framtíðarinnar, jólin 1992.
Tónleikar á Dalvík
og í Skjólbrekku
Björk Jónsdóttir, sópransöng-
kona og Svana Víkingsdóttir,
píanóieikari, halda tónleika á
Dalvík í kvöld og Skjólbrekku
í Mývatnssveit annað kvöld.
Tónleikarnir í Dalvíkurkirkju
í kvöld, fimmtudaginn 19.
nóvember, hefjast kl. 21 og tón-
leikarnir í Skjólbrekku annað
kvöld verða á sama tíma.
Á efnisskránni er píanótónlist
eftir Chopin og söngverk eftir
Bizet, Brahms, Markús Krist-
jánsson, Árna Thorsteinsson, Pál
ísólfsson og Verdi.
(Úr fréttatilkynningu)
Björk Jónsdóttir.