Dagur - 19.11.1992, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 19. nóvember 1992
Aðalbjörg Sigurðardóttir
^wdiiijorg aigurðardottir - ættuð
Palmadóttir hlýða á dagskráratriði.
úr Fljótum til vinstri og Steingerður
Félag aldraðra á Akureyri
minntist 10 ára afmælis síns
með hóf! í Húsi aldraðra á
sunnudaginn var. Félagið var
stofnað 3. október 1982 og var
fyrsta félag sinnar tegundar
sem stofnað var hér á landi.
Um 150 manns sóttu afmælis-
hófið en félagar í Félagi aldr-
aðra eru nú um 600.
í afmælishófinu flutti Aðal-
steinn Óskarsson, formaður
félagsins, ágrip af sögu þess, Sig-
ríður Schiöth, stjórnaði almenn-
um söng og Óskar Pétursson,
tenórsöngvari, söng einsöng auk
fleiri atriða. Auk þess að vera
fyrsta félag aldraðra á landinu er
félagið á Akureyri hið eina er
staðið hefur fyrir byggingu íbúða
fyrir aldraðra. Þegar félagið var
fimm ára var hafist handa um
þjónustuíbúðir aldraðra við Víði-
lund á Akureyri og nú, á tíu ára
afmælinu, er verið að gera fok-
heldar 35 íbúðir af 70 sem félagið
gengst fyrir að reisa í Glerár-
hverfi. ÞI
Herluf Ryel „Lúffi í
Margar gómsætar kökur ™ru á boðstólum og hér nær
...........bita.
Gránu“ ser
<?„a,nfnunÖ1 "r..afmælishófinu - dansherrar
onefndum „domum“.
voru Sigurður og Hekla ásamt
Skagafjörður:
Skagfirskt söngfólk sameinast
- á Kóramóti skagfirskra kóra sl. laugardag
Skagflrðingar eru frægir
söngmenn og sönnuðu söng-
áhuga sinn sl. laugardags-
kvöld. Þá var haldið Kóra-
mót skagfirskra kóra í Mið-
garði og tóku fjórir kórar þátt
í því, alls um 200 manns.
Húsið var troðfullt og var
söngfólkinu vel tekið.
Að sögn Björgvins Jónssonar
á Sauðárkróki kom hugmyndin
upp á stjórnarfundi f kirkju-
kórnum. Slíkt kóramót var síð-
ast haldið árið 1980 og hafði þá
verið haldið einu sinni áður.
Fjórir kórar komu fram á mót-
inu, samkór fólks úr nokkrum
kirkjukórum í sýslunni undir
stjórn Sólveigar S. Einarsdótt-
ur, Karlakórinn Heimir einnig
undir stjórn Sólveigar ásamt
Tomasi Higgerson undirleikara,
Kirkjukór Sauðárkróks, stjórn-
andi og undirleikari var Rögn-
valdur Valbergsson, og Rökk-
urkórinn sem Sveinn Árnason
stjórnaði, undirleikari var Tom-
as Higgerson. Kynnir var sr.
Hjálmar Jónsson. Að lokum
sungu allir kórarnir saman. Að
lokinni söngdagskrá var dans-
leikur þar sem hljómsveitin
Miðaldamenn lék fyrir dansi.
Sagði Björgvin að samkoman
hefði í alla staði heppnast ein-
staklega vel. sþ
Kirkjukór Sauðárkróks, einn þeírra sem fram komu á kóramótinu.
Karlakórinn Heimir, einn þeirra kóra sem fram komu.
Jón Benediktsson, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn á Akureyri:
Gaf 8,5 milijónir
króna til fiknarmála
- Þakkarávarp
„Hinn 18. júní 1991 lést Jón
Benediktsson, fyrrverandi yfir-
lögregluþjónn á Akureyri, Laxa-
götu 9, háaldraður.
Hann lét eftir sig erfðaskrá,
þar sem hann arfleiddi eftirtaldar
stofnanir að eigum sínum:
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri, Dvalarheimilið Hlíð,
Sólborg, Bjarg og Náttúrulækn-
ingafélag Akureyrar, en allar eru
stofnanirnar á Akureyri.
í árslok 1989 hafði hann gefið
þessum stofnunum kr. 1.000.000
hverri, en arfurinn nemur til við-
bótar rúmum 700.000,00 í hlut.
Már Magnússon
með fyrirlestur
Samtök um sorg og sorgarvið-
brögð standa fyrir fyrirlestri í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
í kvöld, fimmtudaginn 19.
nóvember, kl. 20.30.
Már Magnússon, sálfræðingur,
talar um missir og skólann. Allir
eru velkomnir á þennan fyrirlest-
ur.
Fyrir þennan höfðingsskap og
hlýhug, sem hann sýndi þessum
stofnunum, vilja þær nú þakka og
votta minningu hans virðingu,"
segir í frétt frá stofnununum
fimm.
Landslags-
keppninni
þjófstartað
í KjaJlar-
anum í kvöld
í kvöld veröur keppninni um
Landslagið 1992, sem fram fer
í Sjallanum annað kvöld, þjóf-
startað í Kjallaranum.
Öll myndböndin og lögin sem
taka þátt í keppninni verða sýnd
og leikin og verða keppendur
teknir tali. Bein útsending verður
á Bylgjunni og Viking Brugg
býður gestum upp á mjöð úr
flösku og ýmislegt annað verður
til skemmtunar. (Fréttatilkynning)