Dagur - 19.11.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 19.11.1992, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 - DAGUR - 11 Mannlíf Kaffihlaðborðið svignaði undan kræsingunum. Ungmennafélagið Einingin í Bárðardal 100 ára: Afmælishátíd í Bamaskólanum Ungmennafélagið Einingin í Bárðardal í S-Þingeyjarsýslu á 100 ára afmæli 6. desember nk. Einingarfélagar og aðrir velunnarar komu saman í Barnaskólanum í Bárðardal sl. laugardag og fögnuðu þessum merku tímamótum í sögu félagsins. Þar flutti Hjördís Kristjánsdóttir, kennari og húsfreyja í Lundarbrekku, ágrip af sögu félagsins. í fram- haldi af því hafði blaðamaður samband við Hjördísi og fékk hjá henni punkta um félagið og hátíðina sl. laugardag. Félagið var stofnað árið 1892, upp út litlu söngfélagi sem var búið að vera starfandi í Bárðar- dal og var fyrst kallað Skemmti- félagið Einingin. Markmið félagsins var að standa fyrir skemmtunum í sveitinni og eins að berjast fyrir þeim málum sem snertu Bárðardalinn og íbúa hans, auk þess sem mikil áhersla var lögð á að íbúar sveitarinnar stæðu saman allir sem einn. Eftir stofnun Ungmennafélags Akureyrar 1906 og fleiri ung- mennafélaga, breyttust áherslur í starfi félagsins og aðaláherslan lögð á skógrækt og íþróttastarf- semi. Félagið hefur unnið að gróðursetningu víða í Bárðar- dalnum og einnig unnið að upp- byggingu félags- og íþrótta- aðstöðu við Barnaskólann. í dag eru á milli 50-60 félagsmenn í Einingu og eru þeir allir virkir. Reglan er sú allir félagsmenn 10 ára og eldri, eru settir í einhverja nefnd og taka þannig þátt í félagsstarfinu. Fyrsti formaður félagsins var Sigurgeir Jónsson, sem þá bjó á Stóru Völlum. Með honum í stjórn voru Hlín Jónsdóttir á Sandhaugum, sem síðar bjó með Einari Benediktssyni síðustu ævi- ár hans í Herdísarvík og Sigur- geir Jónsson á Jarlsstöðum. Núverandi formaður Einingar er Steinn Jóhann Jónsson í Lyng- holti. Um 200 manns komu á afmælis- fagnaðinn sl. laugardag og bárust félaginu margar góðar gjafir og kveðjur. Á meðal gesta voru Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar og stjórnarmaður í ÍSÍ, auk full- trúa nokkurra félaga innan HSÞ. Hátíðin hófst með kaffidrykkju kl. 20.30 og undir borðum var flutt fjölbreytt dagskrá, sem stóð í um 3V6 klst. Að síðustu var stig- inn dans til kl. 04.00 um nóttina. -KK Veislugestir voru á öllum aldri. María Kristjánsdóttir frá Halldórsstöðum, Þuríður og María Jónsdætur frá Bjarnastöðum. Þorrabragur frá 1961 var endurfluttur í afmælishóflnu. Myndir: Ágúst Hilmarsson. Skemmtiklúbburinn Líf og fjör Dansleikur á Fiðlaranum, 4. hæð, laugardaginn 21. nóvember frá kl. 22.00-03.00. Tríó Rabba Sveins sér um fjörið. Skemmtiklúbburinn Líf og fjör />~... / íA lly % y jyiy, /A" Vs . FIMMTUDAGUR FORSKOTASÆLUNA LANDSLAGSVEiSLA FRÁ KL. 20.00 OÐI VIKING-BRUGG > M m ' yyi. ! SYND OG VIÐTÖL VIÐ KEPPENDUR BEIN ÚTSENDING Á BYLGJUNNI . V .%< : / j i&jn-r ' /*>~ SjSÍ ' ? Idl fv -V ' í FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 90. NÓVEMBER HÚSIÐ OPNAÐ KL 18*00 TEKID Á MÓTI GESTUM MEÐ FORDRYKK Á KLAKÁ xl HEFST KL. 19.00 , S' / & M A T S E Ð I L L *; v GmFÍNNNÁUJAHRyGGYÖÐVI MEÐ ROMMRÚSÍNUSÓSU ÁVAXTAKRAP , NAUTALUND OG LAMBAFILLET AÐ HÆTTIARGENTÍNU PINA COLADA ÍS y I MATREIÐSLUMENN: ÓSKAR Á ARGENTÍNU OG JÓNAS ÞÓR OPNAÐ AFTUR KL. 23.30 •: !/ LAUGARDAGUR Auglýsing í Degi ber árangur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.