Dagur - 28.11.1992, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 28. nóvember 1992
Fréttir
Aukning í rækjuvinnslu á Siglufirði:
Viraislan ran 4200 torai á
Ólafsfjörður:
15 umsóknir um
bæjarstjórann
Fimmtán umsóknir bárust
um stöðu bæjarstjóra í
Ólafsfirði, en eins og kunn-
ugt er sagði meirihluti
bæjarstjórnar Bjarna Kr.
Grímssyni upp störfum.
Unnið er að því að yfirfara
umsóknirnar og er gert ráð
fyrir að bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar staðfesti ráðningu nýs
bæjarstjóra á fundi 8. desem-
ber nk. og að ölium líkindum
tekur nýr bæjarstjóri við
stjórnartaumunum 1. janúar
1993.
Kristinn Hreinsson, bæjar-
ritari, gegnir nú stöðu bæjar-
stjóra. óþh
Mikil vinna hefur verið í rækju-
vinnslu á Siglufirði að undan-
förnu. Hjá Þormóði ramma hf.
hefur verið unnið frá sjö á
morgnana til sex á daginn, sex
daga vikunnar, og hefur þar
eingöngu verið um tvífrosna
rækju að ræða.
Hjá Þormóði ramma hefur
fersk rækja aðeins borist verk-
smiðjunni á sumrin en yfir vetrar-
tímann hefur aflinn borist af
Sunnu SI, Drangavík ST og Pétri
Jónssyni RE, sem öll eru á djúp-
rækjuveiðum og frysta aflann um
borð. Stærsta rækjan fer beint á
markað í Austurlöndum fjær,
aðallega Japan og Kóreu, en sú
smærri til vinnslu í landi.
Vinnsla hófst hjá Þormóði
ramma hf. í febrúarmánuði
vegna breytinga sem var verið að
ljúka við í verksmiðjunni, en á
árinu hefur vinnslan verið um
1450 tonn, en á árinu 1991 var
vinnslan um 1050 tonn. Stefnt er
að því að vinna um 2300 tonn á
árinu 1993. Unnið verður fram
að Þorláksmessu og byrjað aftur
af krafti strax í ársbyrjun, að
sögn verkstjóra, ef gengi punds-
ins verður ekki komið niður úr
öllu valdi.
Fyrirhugað er að setja tvö troll
um borð í Sunnu SI, þ.e. veitt
verður með tveimur trollum í
einu og er reiknað með að það
skili um 40% aukningu. Þessi
aðferð var reynd á humarveiðum
og skilaði mjög góðum árangri.
Fremur rólegt hefur verið í
haust í rækjuverksmiðju Ingi-
mundar hf. en verksmiðjan er
með tvo báta á sínum snærum,
Helgu RE og Ögmund RE en
auk þess var Höfrungur AK í við-
skiptum hjá verksmiðjunni sl.
sumar. Rækjan hefur verið frem-
ur smá síðustu vikurnar, en
nokkuð er það breytilegt eftir
veiðisvæðum.
Ögmundur RE er á veiðum í
Eyjafjarðarál og Helga RE suð-
austur af Kolbeinsey í kaldaskít
og hefur tíðin verið heldur rysjótt
og afli almennt tregur. Rækja
hefur verið að finnast norður af
Hala, í hólfi 723, og hafa nokkrir
bátar haldið þangað vestur, aðal-
lega vegna brælu á Kolbeinseyj-
ar- og Langanessvæðinu. Búist er
við að þeim fjölgi verði eitthvert
framhald á góðri veiði á þeim
árinu
slóðum. Sæmilega rækju, en
fremur smáa, hafa nokkrir bátar
verið að fá austan við Grímsey.
Á árinu 1991 voru unnin 2800
tonn hjá verksmiðjunni, en á
þessu ári er vinnslan enn undir
því magni og vafasamt að því
magni verði náð það sem eftir lif-
ir þessa árs. Heimabátarnir hafa
þó veitt meira á þessu ári en því
síðasta en Höfrungur AK minna
og eins hefur minna verið keypt
af sjófrystri rækju af Rússum. Að
sögn verkstjóra eru menn tvístíg-
andi í þeim viðskiptum vegna
umræðu og athugana á uppruna-
vottorðum.
Unnið verður í verksmiðjunni
allt fram undir vetrarsólstöður,
og vinnsla hafin aftur á nýju ári
kringum þrettándann. GG
Skagaströnd:
Starfsmenn
rækjuverksmiðju
fá mánaðarlangt
jólaleyfi
Sflórn Stéttarsambands bænda:
Hafnar álögum á búvöruframleiðslu
Stjórn Stéttarsambands bænda
hafnar álögum á búvörufram-
leiðsluna og Iækkun endur-
greiðslna ríkisins á virðisauka-
skatti, en þær voru teknar upp
þegar matarskatturinn svokall-
aði var lagður á innlenda
búvöruframleiðslu.
í samþykkt stjómar Stéttar-
sambandsins um þetta mál segir:
„Bændur hafa með búvörusamn-
ingi skuldbundið sig til að lækka
búvöruverð í trausti þess að þær
aðgerðir skili sér í lækkuðu vöru-
verði til neytenda. Óþolandi er
að ríkisvaldið komi með aukinni
skattlagningu í veg fyrir að slík
verðlækkun á innlendum búvör-
um náist fram. Samkeppnisstaða
eggja-, kjúklinga-, svína- og
nautakjötsframleiðslu veikist sér-
staklega í kjölfar fyrrgreindra
aðgerða. Allar slíkar aðgerðir
vinna gegn hagsmunum neytenda
og bænda og veikja stöðu
íslenskrar framleiðslu. í þessu
sambandi skal sérstaklega minnt
á yfirlýsingu forsætisráðherra,
Davíðs Oddssonar, frá 18.11. sl.
um að „óheiðarlegt og ósann-
gjarnt sé að leggja meiri byrðar á
bændastéttina en þegar hafi verið
gert.“
I samþykkt stjórnar Stéttar-
sambandsins kemur einnig fram
að hún sé tilbúin til viðræðna um
framkvæmd búvörusamnings að
því er varðar frestun framlags í
Framleiðnisjóð og fyrirkomulag
á greiðslu vaxta- og geymslu-
gjalds vegna kindakjöts. Þá vill
stjórn Stéttarsambandsins taka
fram að hún styðji afnám
aðstöðugjaldsins og áhersla verði
lögð á að vinna áfram að lækkun
gjalda og í því sambandi er bent á
tryggingargjaldið. óþh
Rækjuverksmiðja Hólanes hf.
á Skagaströnd hefur nægjan-
legt hráefni til vinnslu og fer
vinnslan fram á tveimur átta
tíma vöktum fram til 15. des-
ember nk. Þá verður verk-
smiðjunni lokað fram í miðjan
janúarmánuð vegna jólaleyfa
og nauðsynlegrar viðhalds-
vinnu í verksmiðjunni.
Verksmiðjan hefur haft nokk-
uð af frystu hráefni og eins hefur
aflast þokkalega á Húnaflóa í
haust auk þess sem einn bátur
hefur verið á úthafsrækju og afl-
að ágætlega.
Þessi mánaðarlokun er hefð-
bundin á þessum árstíma og hef-
ur mælst mjög vel fyrir hjá starfs-
fólkinu, en í svartasta skamm-
deginu er veiðitími bátanna styst-
ur því innfjarðarrækjan veiðist
aðeins í dagsbirtunni og má því
segja að í þessu langa jólaleyfi fari
saman hagsmunir starfsmanna og
vinnuveitandans. GG
Hraðfrystihús Pórshafnar hf.:
Iiðlega sjöunda hver
sfld fer tfl vinnslu
hafnar að undanförnu, en á
mánudag lönduðu tveir bátar þar
loðnu, Svanur RE og Björg Jóns-
dóttir ÞH, samtals um 650 tonn-
um. Bræla var í gær á loðnumið-
unum norðaustur af Langanesi
en sæmilegt veður á síldarmið-
unum, en síldin stendur sem fyrr
mjög djúpt og því erfitt að nálg-
ast hana.
Hilmar Hilmarsson, verk-
smiðjustjóri, segist vera ósam-
mála þeirri gagnrýni sem fram
hafi komið að undanförnu um
síldveiðar loðnubátanna, þeir
moki síldinni í land og það ein-
göngu til bræðslu. Hann segir að
öll sú síld sem hafi komið til
Hraðfrystistöðvarinnar á þessu
hausti hafa fengist af loðnubátun-
um. Þórshamar GK hafi t.d.
komið með megnið af síldarafla
sínum til vinnslu, bæði til Þórs-
hafnar og Neskaupstaðar. GG
Húsavík:
Bændur læra notkun Búbótar
Á þesssu hausti hafa um 7000
tonn af sfld borist til Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf. en
um sjöundi hluti þess hefur
farið til vinnslu, mestmegnis
verið flakað. Vinna við sfldar-
vinnslu skapar mikla vinnu hjá
Hraðfrystistöðinni og eykur
jafnframt á fjölbreytni þeirra
verka sem starfsfólkinu stend-
ur jafnan til boða. Fimm bátar
hafa landað sfld á Þórshöfn og
er Ifldegt að flestir þeirra verði
búnir að veiða þann kvóta sem
þeim var úthlutað fyrir árslok.
Útlfutningsverðmæti þeirrar
síldar sem fer til vinnslu er fimm-
falt hærra en útflutningsverðmæti
þeirrar síldar sem lendir í
bræðslu, og því er það þjóðhags-
lega hagkvæmt að sem mest af
þeirri síld sem veiðist fari til
vinnslu.
Engin síld hefur borist til Þórs-
Búnaðarsamband Suður-Þing-
eyinga og Tölvuþjónustan á
Húsavík tóku höndum saman
um námskeiðshald fyrir
bændur. Hafa 24 bændur úr
Þingeyjarsýslu skráð sig á
tveggja daga námskeið, þau
fyrstu af þessu tagi sem hald-
in eru á svæðinu.
Leiðbeinandi á námskeiðun-
um er Jón Sigurðsson frá Bún-
aðarsambandi Eyjafjarðar, en
Tölvuþjónustan sér um að
útvega húsnæði, búnað og
bækur. Leiðbeint er um notkun
Búbótar, þróaðs forrits sem
Búnaðarfélag íslands hefur lát-
ið vinna að í nokkur ár.
„Þetta cr mjög góð aðsókn,
hér koma bændur frá Keldu-
hverfi til Mývatnssveitar og frá
nærsveitum,“ sagði Einar Kol-
beinsson eigandi Tölvuþjónust-
unnar. „Ég er mjög ánægöur
með þær viðtökur sem starfsemi
fyrirtækisins hefur fengið,“
sagði Einar, en hann opnaði
Tölvuþjónustuna að Garðars-
braut 26 í júlí sl. IM
Bændur sýndu tölvunámskeiðinu mikinn áhuga.
Mynd: IM
C\aWer\
TMImflancla
Listagili • Akureyri
Sími 96-21580
mwm
IIIW