Dagur - 28.11.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. nóvember 1992 - DAGUR - 13
Hvar er þín annálaða greind?
Ólafur hvftnaði í framan.
Vertu rólegur. Ég hef séð menn
fara á taugum áður þegar þeir eru
hrasddir um að falla. En það væri
rangt af okkur að fara að skipta
um áherslur í miðri baráttu.
Hvað segir kosningastjórinn um
þetta? Ólafur beindi máli sínu til
Halldórs.
Ég er sammála formanninum,
sagði Haildór. Við erum á upp-
leið. Sígandi lukka er best.
Þórólfur fann að reiðin magn-
aðist upp í honum. Nú ætla ég að
segja meiningu mína. Ég er ekki
að fara á taugum. Ég bara sé að
kosningabaráttan hjá okkur er
grútmáttlaus. í síðustu kosning-
um vann flokkurinn stórsigur
með því að leggja áherslu á þig,
Ólafur, og góðan árangur ríkis-
stjórnar, sem var vinsæl. Nú
erum við með sömu aðferð en
hún virkar ekki, meðal annars af
því að stjórnin er ekki jafn
vinsæl. Það er enginn munur á
okkur og hinum flokkunum. Við
erum að væla um lífskjör eins og
tíðkast hefur í kosningum í ára-
tugi. Við sýnum engin ný stefnu-
mál og ekkert nýtt fólk. Okkur
hundleiðist sjálfum á kosninga-
fundunum og hvernig í ósköpun-
um eigum við þá að ná til fólks?
Þú samþykktir þessa áætlun
sjálfur fyrir nokkrum vikum,
Þórólfur. Það var farið að síga í
Ólaf.
Já, ég veit það. En ég er að
segja að við eigum að breyta
henni. Við eigum að leggja
áherslu á aðra hluti hérna í
Reykjavík. Við erum með atriði
inni í kosningastefnuskránni sem
við getum tekið út og keyrt upp.
Eins og atkvæðavægið, baráttu
gegn sjóðasukki og nýsköpun í
iðnaði.
Þú ert ótrúlegur græningi,
sagði Ólafur og hló. Heldurðu að
þetta séu ný mál? Þetta eru gaml-
ar lummur eins og lífskjörin sem
þú varst að gera grín að áðan. Og
að auki fengjum við landsbyggð-
ina upp á móti okkur.
Þórólfur stóð upp og barði í
borðið. Ég ætla ekki að deila við
þig um aldursgreiningu á stefnu-
málum. Þú hefur betri yfirsýn til
að meta hvað er áratugagömul
pólitík, bætti hann við hæðnis-
lega. En ég er að segja þér hvað
yngra fólkinu gæti þótt áhuga-
vert. Það er ótrúlega þreytt þetta
sífellda væl um lífskjörin. En ég
nenni ekki að sitja lengur í þess-
um saumaklúbbi. Ég er í kosn-
ingabaráttu. Þórólfur stóð upp og
fór út.
Þegar hann kom út í bíl hringdi
hann í Böðvar og bað hann að
hóa saman innsta hringnum úr
prófkjörinu. Biddu þá að koma
heim til mín í kvöld klukkan níu.
Ég skal hringja sjálfur í Sigrúnu.
Næst hringdi hann í Guðmund
bekkjarráðsformann. Böðvar
hringir í þig á eftir. Við erum að
kalla saman klíkufund í kvöld.
Þetta er það sem mig langar að
biðja þig að gera. Svo töluðu þeir
saman þangað til Þórólfur stöðv-
aði bílinn fyrir utan heima hjá
sér.
Klukkan níu voru allir komnir
og sestir inn í stofu. Þórólfur setti
bolla á borðið og jólaköku sem
móðir hans sendi honum með
Böðvari.
Ég þakka ykkur fyrir að koma.
Eins og þið hafið séð í skoðana-
könnunum stendur þetta ekki
nógu vel. Ég er örugglega fallinn
nema að við gerum eitthvað. Og
þegar ég segi við þá meina ég
okkur hér inni því flokkurinn ætl-
ar ekki að breyta um áherslur.
Mig langar að heyra hugmyndir.
Við þurfum að setja sinnep undir
taglið á gömlu jálkunum. Þórólf-
ur leit yfir hópinn: Hvað segir
bekkj arráðsformaðurinn?
Guðmundur nuddaði á sér
gagnaugað. Ég held að þú ættir
að fara í þína eigin kosninga-
baráttu. Þú skalt leggja áherslu á
vægi atkvæða, sukkið í sjóðakerf-
inu og ný atvinnutækifæri. Og til
að slá niður gagnrýnina frá lands-
byggðinni skaltu tala um vald-
dreifingu og sjálfstjórn kjördæm-
anna.
Þau veltu áfram fyrir sér
hvernig þau gætu tekið frum-
kvæðið. Böðvar stakk upp á að
boða opinn fund í Austurbæjar-
bíói. Sú tillaga var að sjálfsögðu
felld enda myndi enginn mæta
því vandamálið var einmitt það
að enginn hafði áhuga á Þórólfi
Jónssyni. Þau ræddu málið fram
og til baka og að lokum var
ákveðið að Þórólfur sendi tvær
harðorðar greinar um þessi mál
inn í DV og Morgunblaðið á
mánudag. Það var líka ákveðið
að birta tvær heilsíðuauglýsingar
á miðvikudaginn í sömu blöðum
með mynd af Þórólfi og góðum
slagorðum með undirskriftinni
Stuðningsmenn Þórólfs.
Þórólfi tókst ekki að fá grein-
arnar birtar í þriðjudagsblöðun-
um en auglýsingarnar komu á
miðvikudaginn. Þær voru eins í
báðum blöðunum, með stórri
andlitsmynd af Þórólfi og fyrir
neðan var textinn: Þórólf á þing.
Við heimtum sama atkvæðisrétt
og fólkið úti á landi. Við höfnum
gæluverkefnum í dreifbýlinu. Við
krefjumst nýrra atvinnutækifæra.
Ungt fólk í Reykjavík. Stuðn-
ingsmenn Þórólfs Jónssonar.
Þórólfur var allan daginn á
vinnustaðarfundum en varð var
við það að á kosningaskrifstof-
unni veltu menn þessum auglýs-
ingum mikið fyrir sér. Á kosn-
ingastjórnarfundi klukkan fimm
varð allt vitlaust. Ásrún talaði
fyrst. Ég hélt að við hefðum
ákveðið á fundinum fyrir helgi að
breyta ekki um áherslur. Nú sýn-
ist mér að upp sé komin ný kosn-
ingabarátta. Erum við að þessu
sem flokkur eða einstaklingar?
Ég er búin að vera í kosningabar-
áttu oft en ég hef aldrei lent í
svona. Þetta er yfirgengilegt.
Hún hvessti augun á Þórólf. Ef
þessari einkaauglýsingaherferð
linnir ekki þá... Ólafur greip
fram í fyrir henni. Ég vil biðja
menn að vera rólega hér. Hann
beindi orðum sínum til Þórólfs.
Ég vil fá skýringar á þessum aug-
lýsingum sem voru í blöðunum í
dag. Ég ætla ekki að rekja sím-
tölin sem ég hef fengið út af þeim
en segi aðeins að okkar fólki úti
um land er ekki skemmt. Ég segi
líka eins og Ásrún að ég hélt að
við hefðum komist að niðurstöðu
um þetta mál á föstudaginn.
Þórólfur talaði hægt og yfirveg-
að. Þetta er framlag stuðnings-
manna minna en ég tek auðvitað
á því fulla ábyrgð. Ég verð að
segja að mér finnst það undarlegt
að kvartað sé undan því að aug-
lýsingar veki athygli en það er
svo sem í takt við annað í þessari
kosningabaráttu. Ég skal biðja
mína menn að halda aftur af sér
en ég neita að sitja undir því að
verið sé að rjúfa samstöðu. Mínir
stuðningsmenn styðja þennan
flokk og hans stefnumál heils
hugar ekki síður en þið. Og þeir
i eru ekki ómerkilegri flokksmenn
en þeir sem hafa verið hér og
vermt bekkina lengur.
Fundurinn leystist upp
skömmu síðar. Ólafur dró Þórólf
afsíðis og sagði: Þú verður að
stoppa þessar auglýsingar. Ann-
ars fer allt upp í loft, kosninga-
baráttan fer í vitleysu og þér
verður kennt um allt. Þá áttu
aldrei möguleika aftur í þessum
flokki.
Daginn eftir birtust greinarnar
í DV og Morgunblaðinu. Þar
lagði Þórólfur út af sömu áhersl-
um og voru í auglýsingunum. Það
varð titringur í flokknum en ekki
uppreisn.
Um kvöldið hringdi Þórólfur í
blaðamanninn sem hann þekkti á
DV og fékk hann til að koma
með sér á vinnustaðarfund á
föstudagsmorguninn. Fundurinn
var í stórri vélsmiðju í Reykja-
vík. Þórólfur flutti stuttan inn-
gang um atriðin þrjú, atkvæðis-
réttinn, sóunina og nýju atvinnu-
tækifærin.
Hvað áttu við með sóun? Get-
urðu nefnt okkur einhver dæmi?
spurði fullorðinn maður.
Þið þekkið dæmin. Það eru
togarar keyptir í smáþorp úti á
landi en það er enginn kvóti til
þess að nýta þá. í ofanálag eru
settir milljónatugir í að endur-
nýja frystihúsið á staðnum og
þangað kemur aldrei branda.
Norður á Akureyri byggðu menn
upp heilan skóla, útgerðarskóla,
sem þó var til í Reykjavík. Það
var engin þörf á að byggja skól-
ann á Akureyri. Kaupverð húss-
ins og laun fyrir kennarana námu
milljónatugum. Hvers hagur var
það? Þjóðarinnar eða nokkurra
einstaklinga fyrir norðan? Þið
vitið svarið. Annað dæmi frá
Akureyri er lungnadeildin sem
þar var sett upp. Það vantaði
enga lungnadeild. Sonur frammá-
manns á staðnum varð að koma
úr framhaldsnámi í lungnalækn-
ingum í Svíþjóð og pabbi hans og
mamma vildu að hann settist að á
Akureyri. Til viðbótar þurfti að
ráða hjúkrunarfólk. Þetta var
ekki byggt af umhyggju fyrir
lungnaveikum Akureyringum
heldur handa pólitískum gælu-
dýrum og fáeinum fjölskyldum.
Á ég að nefna fleiri dæmi?
Vorum að taka heim
úrval af stórglœsilegum ítölskum
leðursófasettum
og hornsófum
verð • Margar tegundir og litir
VISA
raðgreiðslur
Sófasett 3+1+1 • Módel 865 • Kr. 133.200 stgr.
1/örubær :z—r
Bk h úsgagnaverslun sími as-Biaia
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
drAttarvexti
Við minnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. NÓVEMBER
1- DESEMBER______
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísitölu.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SlMI 696900
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar'ST 96-24222
...alltaftilað
tryggja atvinnu
I