Dagur - 28.11.1992, Blaðsíða 22

Dagur - 28.11.1992, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 28. nóvember 1992 Popp Magnús Geir Guðmundsson Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 30. nóvember 1992 kl. 20-22 verða bæjarfull- trúarnir Sigríður Stefánsdóttir og Þórarinn E. Sveinsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 21000. „Von í veruleikans kalda“ Nú um mánuði frá því nýjasta afurð Bubba Morthens, Von, kom á markað, er von að maður spyrji hvort þessum vinsælasta tónlist- armanni þjóðarinnar á annan áratug séu engin takmörk sett. Hvort hann geti endalaust endur- nýjað sig, vaðið úr einni tónlistar- stefnu yfir í aðra, án þess að fat- ast hið minnsta flugið. Það er nefnilega með Von í hreinskilni sagt að sjaldan eða aldrei hefur Bubba tekist í heild eins vel upp að mati Poppskrifara Dags og hafa þó fyrri verk hans ekki verið neitt slor. Eru þetta stór orð, en Leiðalýsing St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkju- garðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntun- um í símum 22517 og 21093 fram til sunnudagsins 6. desember. Verð á krossi er kr. 1200. Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum. Bridgefélag Akureyrar Viking Brugg hraðsveitakeppni Þriggja kvölda hraðsveitakeppni hefst þriðju- dagskvöldið 1. desember. Verðlaun mótsins gef- ur Viking Brugg. Þátttaka tilkynnist Páli Jónssyni í síma 21695 (vinnu- sími: 25200) í síðasta lagi sunnudaginn 29. nóvember. Spilamennska hefst kl. 19.30 og eru spilarar hvattir til að mæta stundvíslega. Stjórn Bridgefélags Akureyrar. Skautafélag Akureyrar Islandsmótið í íshokkí Bauerdeildin Skautafélag Akureyrar- Björninn á skautasvellinu laugardag kl. 16.00. IjUjl Boðskort Félagar í Framsóknarfélagi Húsavíkur og stuðn- ingsmenn eru boðnir til hátíðar í tilefni 60 ára afmælis félagsins sunnudaginn 6. des. kl 17. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir kl. 20 mánudag- inn 30. nóv. til Kristrúnar s. 41610, Sigurgeirs s. 41097, Egils s. 41422 eða Lilju s. 41539. Framsóknarfélag Húsavíkur. suðræna sveiflan frá Kúbu og tónsköpun Bubba blandast hreint óaðfinnanlega á Von. Það var í maí á þessu ári sem Bubbi lét draum sinn rætast að halda til Kúbu og vinna þar plötu. Fór hann þangað ásamt þeim Eyþóri Gunnarssyni upptöku- stjóra og Gunnlaugi Briem trommuleikara og dvöldust þeir þar í um tvær vikur. Tóku þeir mestan hluta af plötunni upp þar ásamt mörgum af vinsælustu tónlistarmönnum Kúbu í hljóm- sveitinni Sierra Maestra. (Mun nafnið vera dregið af fjalli nokkru á Kúbu.) Alls voru lögin tólf sem hljóðrituð voru í ferðinni og er þau að finna á Von. Er Bubbi einn af fyrstu vestrænu tónlistar- mönnunum sem sækir Kúbu heim til að taka upp plötu og var honum og félögum tekið með kostum og kynjum. Þegar heim var komið aftur var bætt við upptökurnar, endanleg- ur söngur tekinn upp o.fl. undir stjórn Óskars Páls Sveinssonar í félagi við Eyþór. Lauk þeirri vinnu síðan um miðjan ágúst og kom platan út í lok október eins og áður segir. Eins og kunnugt er kom svo Sierra Maestra hingað til lands í byrjun nóvember og hélt tónleika með Bubba víða um land með góðum árangri. Meðal annars hér á Akureyri. Má segja að það hafi sannast sem aldrei fyrr að tónlistin þekki engin landamæri i með þessu samstarfi Bubba og Sierra Maestra, því vart er hægt að ímynda sér tvo jafn ólíka aðila ná eins vel saman og raunin er hér. Verður Von seint hrósað of mikið að mati Poppskrifara og er platan sannkallaður gleðigjafi í svartnættinu sem nú hvílir yfir þjóðinni. Það er nefnilega von í Von. Landslagsgleði Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum á Akureyri og víðar allt umfangið og herlegheit- in kringum Landslagskeppnina, sem haldin var hér í bænum með glæsibrag um síðustu helgi. Var keppninni bæði útvarpað og sjónvarpað á Stöð tvö og Bylgj- unni, þannig að sem flestir gætu notið hennar ásamt þeim sem mættir voru í Sjallann. Verður vart annað sagt en að vel hafi til tekist með framkvæmd keppn- innar og hún komist til skila án meiriháttar áfalla. Var keppnin líka hin ágætasta skemmtun og mikið fyrir augað að mati skrifara Popps, sem við- staddur var í Sjallanum. Voru það tíu lög af um tvö hundruð og fimmtíu sem kepptu til úrslita og eins og kunnugt er var það lagið Ég man hverja stund eftir Jón Kjell, sungið af Pálma Gunnars- syni og Guðrúnu Gunnarsdóttur, sem bar sigur úr býtum. Hlutu þau Pálmi og Guðrún svo einnig útnefningu sem bestu flytjend- urnir, en athyglisverðasta lagið varvalið, Sjallagestum til mikillar ánægju, Til botns, lag þeirra Akureyrarpilta Jóns Andra og Trausta, sungið af bráðefnilegri söngkonu Sigrúnu Sif Jóelsdótt- ur. Að mati poppskrifara voru flytj- endurnir Pálmi og Guðrún og akureyrsku strákarnir Jón og Trausti vel að sínum viðurkenn- ingum komin, en þótti á hinn bóg- inn önnur lög sigurvænlegri en Ég man hverja stund. Vissulega er lagið nokkuð faglega saman- sett og útsett hjá Jóni Kjell, en samt ekki líklegt til að eiga of langa lífdaga í hugum fólks. En hvað sem því líður hvort vinn- ingslagið hafi ekki endilega verið það rétta eða besta, þá hyggur Poppskrifari að breiddin sem fram kom tónlistarlega í lögunum tíu sanni endanlega að Lands- lagskeppnin eigi fullan og nauð- synlegan rétt á sér. Er það t.a.m. ekki spurning að þessi góði árangur þeirra Jóns og Trausta verður þeim hvatning til frekari dáða um leið og að verða öðrum ungum tónlistarmönnum hvatn- ing til að koma sér og sínu á framfæri. Er ekki að öðru leyti ástæða til að dæma lögin tíu sér- staklega. Það gera tónlistarunn- endur og hafa reyndar nú þegar gert, best sjálfir. Er diskur með lögunum nú kominn út á vegum Japis og er óhætt að mæla með honum sem góðri heimild um vel- heppnaða keppni. Til lukku með Landslagið. Treginn tjáður - Tregasveitin kveður sér hljóðs Vegur blústónlistarinnar hefur á ný farið vaxandi síðustu árstiðir bæði erlendis og hér heima. Má á margan hátt rekja það til þeirrar viðleitni sem nú er í algleymi, að hverfa aftur í grasrótina í tónlist- arsköpun og tónlistartúlkun. Svokallaða fortíðarhyggju sem Poppskrifari vill nefna svo og sem hann hefur fjallað nokkuð um áður. Vinir Dóra hafa hingað til verið í fararbroddi í íslenskum blús og sent frá sér eins og kunn- ugt er tvær geislaplötur annars vegar með Jimmy Dawkins og Chicago Beau og hins vegar með Beau og píanóleikaranum aldna Pinetop Perkins. Er svo von á meiru góðu frá þeim í náinni framtíð eins og fram hefur komið. (Með munnhörpuleikar- anum Billy Boy Arnold og líklega önnur plata með Pinetop.) Nú hefur hins vegar önnur blús- hljómsveit, Tregasveitin, einnig kvatt sér hljóðs með útgáfu á sinni fyrstu samnefndu plötu. Tregasveitin er þó ekki ný af nál- inni, stofnuð árið 1989, en samt til að byrja með aðeins til skemmtunar. Hafa mannabreyt- ingar verið nokkuð tíðar í hljóm- sveitinni, en þeir feðgar Pétur Tyrfingsson (gítar, söngur) og Guðmundur Pétursson (gítar, líka ( Vinum Dóra), hafa verið í henni frá upphafi ásamt Sigurði Sigurðssyni söngvara og munn- hörpuleikara, sem áður hefur gert garðinn frægan í Centaur. Á plötunni sjá svo Björn Logi Þórar- insson (bassi) og Guðvin Flosa- son (trommur) um taktspilið, en þeir hafa síðan platan var unnin 1 horfið á braut og Jóhann Hjör- leifsson (trommur) og Stefán Ing- ólfsson (bassi) komið í þeirra stað. Áplötunni, sem lengi hefurverið í fæðingu, eru níu lög, sjö eftir marga af helstu meisturum blúsins, en tvö frumsamin. Ain’t Got Nobody eftir Guðmund og Broken Heart Blues eftir Pétur. Líkt og Vinum Dóra tekst Trega- sveitinni hreint makalaust vel upp í túlkun sinni og tjáningu á blúsnum svo að ekki verður hjá því komist að hrífast af. You Upset Me eftir B. B. King, I Believe To My Soul eftir Ray Charles og Same Thing eftir Willie Dixon, svo dæmi séu tekin, eru allt mjög góðar túlkanir, en hæst rís þó treginn í lagi Péturs Broken Heart Blues, sem er við hæfi lokalag plötunnar. Þar er innlifun þeirra feðga Péturs og Guðmundar í söng og gítarleik slík, að maður verður beinlínis orðlaus af hrifningu. Frá því Popþskrifari heyrði þetta lag fyrst í sumar hefur hann það meira og minna á heilanum og telur það tvímælalaust eitt besta, ef ekki allra besta lag ársins. Er treginn þar tjáður á eins hreinskiptinn hátt og hugsast getur, af manni (Pétri) sem greinilega hefur upp- lifað sorgina á djúpan hátt. Með slíkri tjáningu er óhætt að mæla.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.